Eftirfarandi friðlýsingar má finna á Reykjanesskaganum sbr. vefsíðu Umhverfisstofnunar:
-Akurey (Rvík)
-Álafoss (Mosf.)
-Ástjörn (Hafn.)
Tröllabörn.
-Ástjörn og Ásfjall (Hafn.)
-Bakkatjörn (Seltj.)
-Bláfjöll
-Borgir (Kóp.)
-Bringur (Mosf.)
-Búrfell (Garðab.)
-Bláfjöll (Rvík)
-Eldborg (Grindav.)
-Eldey (Reykjanesb.)
-Fjaran við Kastúsatjörn (Seltj.)
-Fossvogsbakkar (Rvík)
-Garðahraun (Gardab.)
-Gálgahraun (Gardab.)
Tungufoss.
-Grótta (Seltj.)
-Hamarinn (Hafn.)
-Háubakkar (Rvík)
-Hleinar (Hafn.)
-Hlið (Álftan.)
-Hvaleyrarlón og Hvaleyrarhöfði (Hafn.)
-Kaldárhraun og Gjárnar (Hafn.)
-Kasthúsatjörn (Álftan.)
-Laugarás (Rvík)
-Litluborgi (Hafn.)
-Rauðhólar (Rvík)
Valhúsahæð.
-Reykjanesfólkvangur
-Skerjafjörður (Garðab.)
-Skerjafjörður (Kóp.)
-Stekkjarhraun (Hafn.)
-Tröllabörn (Kóp.)
-Tungufoss (Mosf.)
-Valhúsahæð (Seltj.)
-Varmárósar (Mosf.)
-Vífilsstaðavatn (Garðab.)
-Víghólar (Kóp.)
Akurey
Akurey – friðlýsing.
Akurey er lág og vel gróin eyja í Kollafirði, um 6,6 hektarar að stærð, norðaustan við Seltjarnarnes.Akurey flokkast sem alþjóðlega mikilvæg sjófuglabyggð en í eynni verpa ýmsir sjófuglar eins og lundi sem er langalgengastur, sílamáfur, æðarfugl og teista, jafnframt er Akurey mikilvæg vetrarstöð fyrir skarfa.
Markmiðið með friðlýsingu Akureyjar er að stuðla að vernd líffræðilegar fjölbreytni með því að vernda alþjóðlega mikilvægt fuglasvæði í Reykjavík.
Í reglum um friðlandið er meðal annars kveðið á um að flug ómannaðra loftfara er óheimilt, þá er óheimilt að fara í land í Akurey nema með leyfi Umhverfisstofnunar og Reykjavíkurborgar.
Ákvæðið á þó ekki við um umsjónaraðila. Þá kemur einnig fram að óheimilt er að spilla gróðri og trufla dýralíf innan friðlandsins. Varðandi landnotkun þá er heimilt að nýta æðarfugl og sílamáf.
Umhverfisstofnun getur veitt leyfi til athafna í friðlandinu, s.s. til ljósmynda- og kvikmyndatöku.
Álafoss
Álafoss – friðlýsing.
Umhverfisráðherra hefur að tillögu sveitarfélagsins Mosfellsbæjar og að fengnu áliti Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands ákveðið að friðlýsa Álafoss og nánasta umhverfi hans. Landsvæðið er friðlýst sem náttúruvætti, skv. 2. tölul. 1. mgr. 53. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999.
Álafoss er fallegur foss í Varmá þar sem hún liðast í gegnum Álafosskvos í Mosfellsbæ. Varmá er á náttúruminjaskrá frá upptökum til ósa en áin og fossinn tengjast ríkulega atvinnu- og íþróttasögu Mosfellsbæjar. Árið 1896 hófst ullarvinnsla við Álafoss og vegna þeirrar starfsemi var áin stífluð ofan við fossinn. Myndaðist þá talsvert dýpi í ylvolgri Varmánni sem notað var til sundiðkunar og dýfinga. Má enn sjá leifar af tveimur dýfingarpöllum ofan við fossinn sem og leifar af stíflunni.
Álafoss.
Hið friðlýsta svæði er 1,4 hektarar að stærð og nær yfir fossinn, töluvert svæði ofan og neðan hans og einnig skóglendi í svonefndu Álanesi sem er einn af eldri skógum bæjarins.
Markmiðið með friðlýsingu Álafoss sem náttúruvættis er að vernda fossinn sjálfan, nánasta umhverfi hans sem og menningarminjar sem tengjast sögu og þróun Mosfellsbæjar. Svæðið er fjölsótt, bæði af bæjarbúum og öðrum gestum og mikilvægt að treysta útivistar- og fræðslugildi þess.
Ástjörn
Ástjörn – friðlýsing.
Ástjörn og svæðið umhverfis hana var friðlýst árið 1978. Í desember 1996 var verndarsvæðið stækkað með stofnun fólkvangs við Ástjörn og Ásfjall umhverfis friðlandið.
Ástjörn er einstætt náttúrufyrirbæri sem á sér enga hliðstæðu í næsta nágrenni hins nær samfellda þéttbýlis höfuðborgarsvæðisins. Tjörnin og svæðið umhverfis hana einkennist af mjög auðugu gróður- og dýralífi. Þar er t.d. að finna eina flórgoðavarpið á Suðvesturlandi en tegundinni hefur fækkað til muna frá því sem var á fyrri hluta 20. Aldar og er flórgoði alfriðuð tegund og á válista. Í tjörninni er mikið smádýralíf sem er þó lítt rannsakað.
Ástjörn og Ásfjall.
Ástjörn við Hafnarfjörð er í kvos vestan undir Ásfjalli. Bakkar tjarnarinnar eru raklendir og að norðaustanverðu er stórt mýrarstykki niður undan gamla Ásbænum.
Upp af votlendinu taka við þurrir grýttir móar sem eru að gróa upp og hefur trjám verið plantað í þá norðan og austan megin við tjörnina. Tvö gömul tún eru norðan tjarnarinnar, annars vegar við Stekk og hins vegar við Ás.
Ástjörn og Ásfjall
Ástjörn og Ásfjall – friðlýsing.
Ástjörn og Ásfjall var friðlýst sem fólkvangur árið 1996. Fólkvangurinn umlykur friðland Ástjarnar en Ástjörn og svæðið umhverfis hana var friðlýst árið 1978. Útsýni af fjallinu er gott og sérstaklega áhugavert fyrir áhugafólk um jarðfræði og sögu höfuðborgarsvæðisins. Á Ásfjalli eru minjar um hersetu fyrr á öldinni.
Ástjörn er einstætt náttúrufyrirbæri sem á sér enga hliðstæðu í næsta nágrenni hins nær samfellda þéttbýlis höfuðborgarsvæðisins. Tjörnin og svæðið umhverfis hana einkennist af mjög auðugu gróður- og dýralífi. Þar er t.d. að finna eina flórgoðavarpið á Suðvesturlandi en tegundinni hefur fækkað til muna frá því sem var á fyrri hluta 20. aldar og er flórgoði alfriðuð tegund og á válista. Í tjörninni er mikið smádýralíf sem er þó lítt rannsakað.
Stærð fólkvangsins er 56,9 ha.
Bakkatjörn
Bakkatjörn – friðlýsing.
Bakkatjörn var friðlýst árið 2000. Bakkatjörn er ísölt tjörn og hefur svo verið frá um 1960 þegar lokað var fyrir leirvog sem þar var. Lægð kölluð Rásin tengdi áður Bakkatjörn og Seftjörn en sú síðarnefnda er nú horfin undir byggð.
Umhverfis Bakkatjörn er graslendi í sendnum jarðvegi og votlendi. Þær tegundir sem finna má innan friðlandsins eru m.a. melgresi, skriðlíngresi, tágamura, lokasjóður, mýrasauðlaukur, njóli, túnvingull, vallarsveifgras, klóelfting, mýrastör, knjáliðagras, lófótur, hálmgresi, gulstör, hrafnaklukka, vætuskúfur (vætusef), baldursbrá, fjöruarfi, fjörukál, hjartaarfi, vallhumall, snarrótarpunktur, túnvingull, gullvöndur, engjavöndur, hnúskakrækill, umfeðmingur, mýrasóley, augnfró, túnsúra, skarifífill, brennisóley, maríustakkur, gleym-mér-ei, hvítsmári, vallhæra og skriðlíngresi. Í blautustu lænunum vaxa lófótur, gulstör, mýrastör ásamt hrafnafífu, klófífu, hófsóley, skriðlíngresi, vætusefi, mýrasauðlauk og knjáliðagrasi.
Stærð friðlandsins er 14,9 ha.
Bláfjöll
Bláfjöll – friðlýsing.
Bláfjallafólkvangur var fyrst friðlýstur árið 1973. Fólkvangurinn er fjallaklasi sem rís hæst 685 m yfir sjávarmál. Vinsælt útivistarsvæði með góðri aðstöðu fyrir skíðafólk.
Aðilar að rekstri fólksvangs þess, sem stofnaður var í Bláfjöllum, sbr. auglýsingu ráðuneytisins nr. 97, 21. mars 1973 eru nú eftirtalin sveitarfélög: Reykjavíkurborg, Kópavogskaupstaður, Seltjarnarneskaupstaður, Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðakaupstaður, Keflavíkurkaupstaður,
Njarðvíkurkaupstaður, Selvogshreppur, Miðneshreppur, Gerðahreppur, Vatnsleysustrandarhreppur og Bessastaðahreppur.
Stærð fólkvangsins er 9035 ha.
Borgir
Borgir – friðlýsing.
Borgir voru friðlýstar sem náttúruvætti árið 1981. Eftir að jökull hopaði í lok ísaldar, fyrir um 10000 árum, var Borgarholtið sker úti fyrir landi. Hafaldan skolaði burt smágrýti en skildi eftir lágbarða grágrýtis hnullunga sem einkenna holtið.
Mörk friðlýsta svæðisins fylgja jaðri Borga að sunnan. Að vestan liggja mörkin 10-15 m frá lóðarmörkum
aðliggjandi húsa, en 205 m frá þeim að norðan og norðaustan. Að austan fylgja mörkin jaðri Borga að því
undanskildu að utan markanna er um 25 m breið spilda inn að kirkjunni og um 15 m breið landræma
umhverfis hana.
Borgarholt.
Umhverfis friðlýsta svæðið afmarkast svonefnt jaðarsvæði. Ytri mörk þess liggja 10-15 m utan við mörk
friðlýsta svæðisins að austan og sunnan, en að vestan og norðan eru mörk þess jafnframt lóðamörk.
Stærð náttúruvættisins er 2,8 ha en umhverfis friðlýsta svæðið afmarkast svokallað jaðarsvæði og er stærð þess 1,3 ha.
Bringur
Bringur – friðlýsing.

Bújörðin Bringur varð til sem nýbýli úr landi prestsetursins að Mosfelli árið 1856. Jörðin fór í eyði árið 1966, en þar er að finna talsvert af mannvistarleifum á bæjarstæðinu og heimatúninu. Jörðin Bringur er norðan Köldukvíslar en þaðan er víðsýnt yfir Mosfellsdal og allt til hafs. Handan árinnar, utan fólkvangsins, rís Grímansfell, sem er hæsta fjall Mosfellsbæjar, og rétt við túngarðinn er Helgufoss í Köldukvísl.
Helgusel í Bringum. Helgufoss fjær.
Vestan við fossinn eru Helguhvammur, rústir Helgusels og Helguhóll, einnig nefndur Hrafnaklettur. Sagan segir að þar sé mikil huldufólksbyggð. Seljarústirnar vitna um löngu horfna atvinnuhætti þegar búpeningur var hafður í seli yfir sumartímann. Þjóðtrúin hermir að Helgusel sé nefnt eftir Helgu dóttur Bárðar Snæfellsáss, en önnur skýring á nafngiftinni byggir á því að landsvæðið var fyrrum í eigu kirkjustaðarins á Mosfelli og upphafleg merking nafnsins væri þá hið helga sel.
Örskammt frá túnfætinum í Bringum má sjá leifar af þjóðbraut, svonefndum Bringnavegi, sem lagður var árið 1910. Vegur þessi var tengileið milli Mosfellsdals og gamla Þingvallavegarins sem lá yfir Mosfellsheiði til Þingvalla.
Búrfell
Búrfell – friðlýsing.
Svæðið er mjög gott dæmi um jarðmyndanir sem eru sérstakar á landsvísu og hafa hátt vísinda- og fræðslugildi. Búrfell og hrauntraðir frá gígnum, gjárnar og misgengi eru mjög áberandi í landi. Búrfell er stakur gjall- og klepragígur sem tilheyrir eldstöðvakerfi Krýsuvíkur. Snemma á nútíma fyrir um 8100 árum rann úr Búrfelli Búrfellshraun sem hefur breytilega ásýnd eftir svæðum. Næst upptökunum í Búrfelli er hraunið slétt helluhraun með hrauntröðum eða hraunrásum með hellum. Fjær upptökunum er það klumpahraun. Innan svæðisins er talsvert af menningarminjum s.s. fjárskjól og seljarústir sem telja má einstakar í sinni röð, byggðar við gjárbarmana með baðstofum, eldhúsi, kvíum og stekkjum. Hluti svæðisins hefur verið friðlýstur sem hluti af Reykjanesfólkvangi síðan 1975.
Svæðið er 380 ha að stærð.
Eldborg í Bláfjöllum
Eldborg í Bláfjöllum – friðlýsing.
Eldborg er einn þriggja gíga af eldborgargerð hjá Kóngsfelli. Eldborg var friðlýst sem náttúruvætti árið 1971.
Fallegt landslag og sérstakar jarðmyndanir einkenna svæðið sem er á vatnsverndarsvæði. Göngustígur liggur frá bílastæði upp á Eldborgina. Haustið 2012 var unnið í göngustígagerð á svæðinu, villustígum var lokað og mosi græddur í sár þar sem villustígar höfðu myndast um gíginn.
Stærð náttúruvættisins er 34,8 ha.
Eldborg í Grindavík (Krýsuvík)
Eldborg undir Geitarhlíð – friðlýsing.
Eldborg undir Geitahlíð var friðlýst árið 1987. Eldborg er hluti af gjallgígaröð og er Stóra-Eldborg meðal fegurstu gíga Suðvesturlands.
Stærð náttúruvættisins er 100,5 ha.
Eldey
Eldey var friðlýst árið 1974 og er hún 77 metra há þverhnípt klettaeyja suður af Reykjanesi. Í Eldey er ein stærsta súlubyggð sem þekkist í heiminum og óhætt að segja að á sumrin sé eyjan þakin súlu. Óheimilt er að fara í eyna án leyfis Umhverfisstofnunar og til verndar fuglalífi eru skot bönnuð nær eynni en 2 km.
Stærð Eldeyjar er 2 hektarar.
Fjaran við Kasthúsatjörn
Kasthúsatjörn – friðlýsing.
Aðliggjandi fjara við Kasthúsatjörn var friðlýst sem fólkvangur árið 2002. Markmið með friðlýsingu fjörunnar sem fólkvangs er að tryggja landsvæði til útivistar og almenningsnota. Fjaran og aðliggjandi sjávarsvæði eru sérstaklega áhugaverð til náttúruskoðunar svo sem fugla- og fjöruskoðunar. Aðgengi að svæðinu er gott og því ákjósanlegt til útikennslu.
Stærð fólkvangsins er 17,6 ha.
Hluti Kasthúsatjarnar og umhverfi hennar á Álftanesi var friðlýst sem friðland árið 2002 og er markmið með friðlýsingunni að vernda tjörnina með fjölskrúðugu fuglalífi hennar og lífríki, en tjörnin er strandtjörn, grunn og lífrík. Tjörnin býr yfir líffræðilegri fjölbreytni og er ákjósanleg til rannsókna og fræðslu.
Stærð friðlandsins er 4,20 ha.
Fossvogsbakkar
Fossvogsbakkar – friðlýsing.
Fossvogsbakkar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1999. Á svæðinu er að finna fágætar jarðminjar í jarðsögu Reykjavíkur og landsins alls, Fossvogslögin, og felst verndargildi svæðisins í verndun þeirra.
Náttúruvætti eru náttúrumyndanir sem mikilvægt er að varðveita sakir fræðilegs gildis, fegurðar eða sérkenna. Markmiðið með friðlýsingu Fossvogsbakka er verndun fágætra jarðminja svæðisins.
Setin í Fossvogsbökkum, hluti hinna svokölluðu Fossvogslaga, eru talin vera um 11.000 ára gömul, eða frá lokum síðustu ísaldar. Talið er að þau hafi myndast í einu af síðustu hlýskeiðunum eftir að bráðnun jökla hafði leitt til umtalsverðrar hækkunar sjávarstöðu. Lögin eru um 2 km að lengd við strandlengjuna og 5 m þykk þar sem þau eru þykkust. Sumsstaðar eru þau þó nærri horfin vegna sjávarrofs.
Fossvogur – set.
Setlögin liggja ofan á grágrýtisklöpp sem talin er hafa myndast fyrir 100-200 þúsund árum. Neðsta lag setlaganna er jökulberg sem myndað er úr jökulruðningi og bendir til þess að á svæðinu hafi verið jökull sem hefur hopað. Næstu lög eru sjávarsetlög, einkum fíngerð silt- og eðjusteinslög, sem bendir til þess að á svæðinu hafi verið grunnsævi. Í sjávarsetlögunum er að finna mikið magn af steingervingum, einkum skeljar lindýra. Ofan á sjávarsetinu er aftur að finna jökulberg sem bendir til þess að allra síðustu jökulskeið ísaldar hafi átt sér stað eftir að setlögin mynduðust. Af þessu má sjá að hægt er að fá mikilvægar vísbendingar um loftslagsbreytingar, landslagsmyndun, sjávarstöðu og lífríki á grunnsævi.
Elliðaárdalur – kort.
Einstakt er að merkar jarðminjar, líkt og finnast í Fossvogsbökkum, séu staðsettar í miðri borg og að mestu leyti mjög aðgengilegar og sýnlegar.
Á svæðinu er mjög fjölbreyttur gróður sem hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum og áratugum vegna útbreiðslu ágengra tegunda og landnámi slæðinga úr görðum. Þar sem setlögin eru ekki mjög brött og mynda nokkurs konar skriður eru þau nokkuð gróin af margvíslegum gróðri, einkum grastegundum, en einnig stórvaxnari gróðri. Á bökkum setlaganna er gróður víða stórvaxinn þannig að hann skyggir á jarðminjarnar. Á þeim svæðum er lúpína algeng.
Gróðurlendið á Fossvogsbökkum hýsir fjölbreytilegt smádýralíf og fuglalíf á svæðinu er mikið, einkum í fjörunni.
Við Fossvogsbakka er að finna minjar frá tímum síðari heimstyrjaldar. Um er að ræða húsgrunna sem tilheyra herbúð, Camp Mable Leaf. Austan við herbúðirnar eru tóftir sem byggðar voru árið 1944 og eru enn vel greinanlegar.
Náttúruvættið er 17,8 hektarar að stærð.
Garðahraun
Garðahraun – friðlýsing.
Garðahraun og Vífilsstaðahraun (Svínahraun) eru hlutar hins svokallaða Búrfellshrauns. Hraunin eiga uppruna sinn í Búrfellseldstöðinni og eru talin vera um 8000 ára gömul. Svæðin eru aðgengileg og henta vel til útivistar, fræðslu og rannsókna fyrir áhugamenn jafnt sem vísindamenn. Innan þeirra eru merkar söguminjar, s.s. Berklastígur, sem var útivistarstígur sjúklinga frá berklahælinu á Vífilsstöðum og sk. Atvinnubótastígur, sem lagður var í atvinnubótavinnu frostaveturinn 1918, en var aldrei tekinn í notkun.
Markmið friðlýsingarinnar er að stofna fólkvang, útivistarsvæði í þéttbýli, þar sem jarðmyndanir, gróðurfar, fuglalíf og menningarminjar, m.a. fornar rústir eru verndaðar. Með friðlýsingunni eru tryggðir möguleikar til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu í náttúrulegu umhverfi.
Gálgahraun
Gálgahraun – friðlýsing.
Markmiðið með friðlýsingu Gálgahrauns er að vernda nyrsta hluta Búrfellshrauns, þann hluta hraunsins sem runnið hefur í sjó fram, bæði vegna jarðmyndana og lífríkis. Markmið friðlýsingarinnar er jafnframt að varðveita Gálgahraun sem vettvang náttúruskoðunar og fræðslu um ókomna tíð.
Gálgahraun, Garðabæ, friðlýst sem friðland í stjórnartíðindum B.nr. 877/2009.
Verndargildi svæðisins byggir m.a. á því að verndarsvæðið í Gálgahrauni er á þessu svæði að mestu ósnortið. Þar sem hraunjaðarinn nær í sjó fram hefur rofmáttur úthafsöldunnar verið lítill í innvíkunum Arnarnesvogi og Lambhúsatjörn og er hraunið því að mestu eins og þegar það rann. Forsendur friðlýsingarinnar eru jarðmyndanir, gróðurfar, fuglalíf og menningarminjar, en í hrauninu er m.a. forn gata, Fógetagata og forn aftökustaður, Gálgaklettur, sem hraunið dregur nafn sitt af.
Grótta
Grótta – friðlýsing.
Grótta var friðlýst árið 1974. Grótta er í raun eyja sem tengd er við land af mjóum granda sem fer á kaf á flóði. Strönd eyjunnar hefur að mestu verið hlaðin upp vegna landsigs og er hún því eins og grunn skál. Vegna fuglaverndunar er óheimilt að fara um svæðið frá 1. maí til 15. júlí.
Eyjan er vel gróin og gróskuleg þrátt fyrir fábreytt gróðurlendi og tiltölulega fáar tegundir.
Auðugt og fjölbreytilegt fuglalíf er í Gróttu. Samkvæmt rannsóknum sem gerðar hafa verið eru um 450 kríupör í Gróttu. Krían er ábyrgðartegund og alfriðuð.
Viti var fyrst reistur árið 1897 og þar bjó lengi vitavörðurinn Albert Þorvarðarson (1910-1973), en Slysavarnarfélagið á Nesinu heitir eftir honum.
Frá Gróttu var áður útræði og segir sagan að skip hafi farist við Gróttutanga.
Dauðinn sótti sjávardrótt,
sog var ljótt í dröngum.
Ekki er rótt að eiga nótt
undir Gróttutöngum.
Stærð friðlandsins er 39,6 ha.
Hamarinn
Hamarinn – friðlýsing.
Hamarinn var friðlýstur sem náttúruvætti árið 1984. Á Hamrinum eru jökulminjar. Hann setur mikinn svip á miðbæ Hafnarfjarðar og nýtur vinsælda sem útivistarsvæði. Hamrinum tengjast sögur um álfa og huldufólk.
Stærð náttúruvættisins er 2,1 ha.
Háubakkar
Háubakkar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1983. Á svæðinu er að finna þykk setlög sem bera merki um áhrif loftslagsbreytinga á ísöld.
Náttúruvætti eru náttúrumyndanir sem mikilvægt er að varðveita sakir fræðilegs gildis, fegurðar eða sérkenna. Markmiðið með friðlýsingu Háubakka er verndun fágætra jarðminja svæðisins í núverandi mynd.
Háubakkar – friðlýsing.
Setlögin í Háubökkum tilheyra svokölluðum Elliðavogslögum sem mynduðust að öllum líkindum á löngu tímabili sem hófst fyrir meira en 300 þúsund árum og varði í að minnsta kosti 100 þúsund ár. Í setlögunum er bæði sjávar- og þurrlendisset sem bendir til þess að sjávarstaða hafi verið all breytileg á þeim tíma er setlögin mynduðust. Elliðavogslögin eru talin ná frá Brimnesi suður að Álftanesi, en Háubakkar eru með betri stöðum þar sem opnur eru að setlögunum sem víðast hvar eru grafin fyrir neðan yngri hraun- og setlög.
Neðstu setlögin eru jökulberg, líklega rúmlega 300 þúsund ára gamalt. Fyrir ofan jökulbergið taka við sjávarsetlög sem benda til hærri sjávarstöðu í kjölfar þess að jöklar bráðnuðu.
Háubakkar.
Í sjávarsetlögunum er nokkuð af steingervingum, einkum samlokutegundir, t.d. kúfskel, krókskel og hallloka. Þessar tegundir eru nokkuð kuldasæknar og bendir það til þess að hiti sjávar hafi verið um 1-2°C lægri en í dag. Fyrir ofan sjávarsetið er meira jökulberg sem talið er vera um 250 þúsund ára gamalt. Efst í setlögunum er síðan þurrlendisset, einkum móset, meðal annars surtarbrand sem bendir til þess að gróskusamt votlendi hafi verið á svæðinu og loftslag hlýrra en nú. Ýmsar plöntuleifar er að vinna í surtarbrandinum.
Háubakkar.
Þær jarðminjar sem er að finna í Háubökkum veita mikilvæga innsýn í jarðsögu Reykjavíkur og endurspegla setlögin um 100 þúsund ára sögu sem einkennist af miklum umskiptum í veðurfari, sjávarstöðu og landmótun. Þá veita þau einnig góðar upplýsingar um lífríki sjávar og gróðurfar á þurrlandi.
Verndun lífríkis er ekki upprunalegt markmið með friðýsingu Háubakka. Hins vegar liggur svæðið að fjörum þar sem er töluvert fuglalíf og nokkuð um strandgróður. Þá er fjölbreytileiki plantna sem vex ofan á bökkunum og í skriðum mikill, sérstaklega gras og blómlendi, auk þess sem nokkuð stórvaxinn trjágróður finnst á svæðinu. Ágengar tegundir eins og alaskalúpína og skógarkerfill finnast á svæðinu.
Fuglar eru áberandi á svæðinu, einkum vaðfuglar, enda stendur svæðið við vog. Skordýralíf er töluvert.
Náttúruvættið er 2,1 hektarar að stærð.
Hleinar
Friðlýsingarsvæðið á Hleinum.
Hleinar voru friðlýstir sem fólkvangur árið 2009. Markmiðið með friðlýsingu svæðisins er að vernda fjöru og útivistarsvæði í fögru hraunumhverfi sem vaxið er náttúrulegum gróðri svo sem mosa- og lynggróðri. Jafnframt er það markmið friðlýsingarinnar að vernda búsetulandslag og menningarminjar, en á svæðinu eru tóftir, fiskreitir, grjóthleðslur, gerði, garðar og vagnslóðar. Aðgengi að svæðinu er gott og það er því ákjósanlegt til fræðslu og útikennslu.
Fólkvangurinn er 32,3 hektarar að stærð og er hluti af friðlýsingu búsvæða fugla við Álftanes og Skerjafjörð í samræmi við náttúruverndaráætlun 2004-2008.
Hlið
Hlið – friðlýsing.
Hlið á Álftanesi var friðlýst sem fólkvangur árið 2002. Árið 2020 var fólkvangurinn stækkaður og friðlýsingaskilmálar endurskoðaðir.
Markmið friðlýsingarinnar er að tryggja landsvæði til útivistar og almenningsnota og að vernda fuglalíf, búsvæði fugla og líffræðilega fjölbreytni svæðisins. Miðar verndunin að því að auðvelda almenningi aðgang að náttúrunni, svæðis til útivistar, náttúruskoðunar og til fræðslu. Fjaran og aðliggjandi sjávarsvæði eru áhugaverð til náttúruskoðunar svo sem fugla- og fjöruskoðunar.
Aðgengi að svæðinu er gott og er það hluti af lífríku svæði og því ákjósanlegt til útikennslu. Innan svæðisins eru m.a. margæs, æðarfugl, rauðbrystingur, sendlingur og tildra sem eru ábyrgðartegundir á Íslandi og eru þær skráðar á viðauka II og III við Bernarsamninginn. Á svæðinu er einnig auðugt botndýralíf á grunnsvæði og lífríkar þangfjörur. Jafnframt eru friðlýstar menningarminjar (Skjónaleiði) innan fólkvangsins.
Stærð fólkvangsins er 41 ha.
Nú verðum við náttúru landsins að liði
um ljómandi vordag í sjávarins niði.
Nú látum við seli og fugla í friði
og fólkvanginn stækkum hér úti í Hliði.
(Arinbjörn Vilhjálmsson, júní 2020.)
Hvaleyrarlón og Hvaleyrargrandi
Hvaleyrarlón og Hvaleyrarhöfði – friðlýsing.
Hvaleyrarlón og Hvaleyrarhöfði voru friðlýst sem fólkvangur árið 2009. Markmið með friðlýsingu Hvaleyrarlóns og fjara Hvaleyrarhöfða er að tryggja útivistar- og fræðslusvæði til útiveru og fuglaskoðunar ásamt því að vernda lífríki og leirur svæðisins sem eru m.a. mikilvægt búsvæði fugla.
Útivistar- og fræðslugildi svæðisins er hátt. Dýralíf í leiru er allauðugt og er fuglalíf sérlega auðugt á svæðinu. Aðgengi fyrir íbúa er gott og einnig eru grunnskóli og leikskóli í nágrenninu og svæðið því tilvalið til útikennslu. Svæðið hefur lengi verið vinsælt til útivistar og er ákjósanlegt til fuglaskoðunar allt árið, en oft má sjá á svæðinu sjaldséða gesti eins og t.d. gráhegra.
Svæðið er 39,9 hektarar að stærð.
Kaldárhraun og Gjárnar
Kaldárhraun og Gjár – friðlýst svæði.
Kaldárhraun og Gjárnar í Hafnarfirði voru friðlýst sem náttúruvætti árið 2009. Markmið með friðlýsingu Kaldárhrauns og Gjánna er að vernda helluhraunsmyndun og fagrar klettamyndanir í vestari hrauntröðinni frá hinni kunnu eldstöð Búrfelli.
Kaldárhraun er heillegt og óraskað helluhraun á vinsælu útivistarsvæði við Helgafell, en upptök hraunsins eru í gígum austan við norðurenda Gvendarselshæðar. Kaldárhraun er eitt síðasta dæmið um heillegt og óraskað helluhraun í landi Hafnarfjarðar og er fræðslu- og útivistargildi svæðisins metið hátt. Á svæðinu eru fornminjar sem tengjast selbúskap, m.a. gömul gata, Kaldárstígur.
Stærð hins friðlýsta svæðis er 208,9 ha.
Kasthúsatjörn

Aðliggjandi fjara var svo friðlýst sem fólkvangur árið 2002.
Markmið með friðlýsingu fjörunnar sem fólkvangs er að tryggja landsvæði til útivistar og almenningsnota. Fjaran og aðliggjandi sjávarsvæði eru sérstaklega áhugaverð til náttúruskoðunar svo sem fugla- og fjöruskoðunar. Aðgengi að svæðinu er gott og því ákjósanlegt til útikennslu.
Stærð fólkvangsins er 17,6 ha.
Laugarás
Laugarás – friðlýsing.
Laugarás var friðlýstur sem náttúruvætti árið 1982. Á svæðinu eru jarðminjar í formi jökulsrispaðs bergs og einnig má sjá ummerki um sjávarstöðu við lok ísaldar.
Náttúruvætti eru náttúrumyndanir sem mikilvægt er að varðveita sakir fræðilegs gildis, fegurðar eða sérkenna. Markmiðið með friðlýsingu Laugaráss er verndun fágætra jarðminja svæðisins og vilji til að halda opnu svæði þar sem unnt væri að skoða þær merku jarðminjar sem eru á svæðinu.
Jarðminjar í Laugarási eru að mestu afmarkaðar við hæsta punkt svæðisins. Þar er að finna grágrýtisstórgrýti, ávalar klappir og hnullunga sem talin eru vera um 200 þúsund ára gömul og eru hluti af Reykjavíkurgrágrýtismynduninni.
Laugarás.
Jöklar ísaldar mótuðu grágrýtið og má sjá jökulrákir í stærri hnullungunum. Við lok ísaldar hækkaði sjávarborð og var Laugarás þá einn af fáum stöðum sem ekki var neðansjávar, en sjávarstaðan þá var um 45 metrum hærri en hún er nú. Aðeins efsti hluti Laugaráss stóð upp úr þannig að hann var lítið meira en sker. Ummerki um þetta má sjá á stórgrýti nálægt efsta punkti svæðisins sem er sjávarbarið.
Jarðminjar svæðisins veita mikilvæga sýn í jarðsögu Reykjavíkur og upplýsingar um loftslags- og landháttabreytingar.
Friðlýsing Laugaráss er ekki bara mikilvæg til verndar jarðminjum, heldur einnig vegna verndunar upprunalegs holtagróðurs í miðju þéttbýli þar sem upprunalegar, einkennandi tegundir eru ríkjandi og mynda sérstök samfélög sem eru nokkuð tegundauðug.
Laugarás – mynd SS.
Áður fyrr var þessi holtagróður ríkjandi á svæðinu, en hann á nú undir högg að sækja vegna lúpínu og trjágróðurs sem herjar á. Lúpínan myndar stórar og þéttar breiður sem stundum skyggja á eða hylja jarðmyndanirnar. Birki er algengasta trjátegundin, en einnig er mikið um selju. Aðrar trjátegundir sem finnast eru reynir, viðja, alaskavíðir, loðvíðir, stafafura og elri.
Ýmsir fuglar halda til á svæðinu, s.s. stari, svartþröstur og auðnutittlingur. Flugur og fiðrildi eru mest áberandi af skordýrum, einkum hunangsflugur, geitungar, birki- og víðifetar og ýmsar tvívængjur. Innan um gróðurinn er nokkuð um hattsveppi.
Náttúruvættið er 1,5 hektarar að stærð.
Litluborgir
Litluborgir – friðlýsing.
Litluborgir voru friðlýstar sem náttúruvætti árið 2009. Markmiðið með friðlýsingu Litluborga er að vernda sérstæðar jarðmyndanir í landi Hafnarfjarðar. Jafnframt er það markmið með friðlýsingunni að varðveita jarðmyndanir svæðisins vegna mikils fræðslugildis, en Helgafell og nágrenni þess hefur um langan tíma verið afar vinsælt útivistarsvæði.
Litluborgir eru hraunborgir og gervigígar sem myndast hafa við það að hraun hefur runnið yfir stöðuvatn. Aðrar merkar og áhugaverðar myndanir á svæðinu eru dropsteinar og kísilgúr.
Stærð náttúruvættisins er 10,6 ha.
Rauðhólar
Rauðhólar – friðlýsing.
Rauðhólar voru friðlýstir sem fólkvangur árið 1974. Fótgangandi fólki er heimil för um allt svæðið og má ekki hindra slíka för með girðingu nema stigar til yfirferðar séu með hæfilegu millibili. Reiðgötum má ekki loka með girðingum. Þessi ákvæði eiga þó ekki við girðingar um vatnsból og ræktað land enda er umferð óheimil innan slíkra girðinga. Allt jarðrask er bannað innan fólkvangsins nema leyfi [Umhverfisstofnunar] komi til.
Stærð fólkvangsins er 130,2 ha.
Reykjanesfólkvangur
Reykjanesfólkvangur – friðlýsing.
Reykjanesfólkvangur var friðlýstur sem fólkvangur árið 1975. Mikið er um jarðhitasvæði og margskonar náttúruminjar innan fólkvangsins. Eldfjöll eru mörg innan fólkvangsins einkum lágar hraundyngjur og gossprungur. Móbergs- fjöll og stapar í óteljandi myndum er einkennandi fyrir landslag á svæðinu. Innan marka fólkvangsins er náttúruvættið Eldborg undir Geitahlíð. Naðurtunga finnst innan fólkvangsins og er hún á válista NÍ og talin talsvert útbreidd við hveri norðan Trölladyngju.
Stærð fólkvangsins er 29.262,7 ha.
Skerjafjörður – Garðabæ
Skerjafjörður Garðabæ – friðlýsing.
Skerjafjörður innan bæjarmarka Garðabæjar var friðlýst sem búsvæði árið 2009. Markmið með friðlýsingunni er að vernda lífríki á strönd, í fjöru og grunnsævi Skerjafjarðar. Einnig er markmið með friðlýsingunni að vernda útivistar- og fræðslugildi svæðisins sem felst í auðugu lífríki og möguleikum til útivistar við ströndina.
Skerjafjarðarsvæðið er undirstaða afar fjölbreytts fuglalífs allan ársins hring og er svæðið mikilvægur viðkomustaður farfugla og fargesta sem hér hafa viðdvöl á leið sinni til og frá norðlægum varpslóðum.
Skerjafjörður.
Fjörur og leirur svæðisins eru lífríkar, þar eru miklar þangfjörur og grunnsævi er með auðugu botndýralífi. Skerjafjarðarsvæðið í heild sinni hefur alþjóðlegt verndargildi vegna fuglategunda, svo sem rauðbrystings og margæsar og einnig er svæðið mikilvægt vegna marhálms, en plantan hefur takmarkaða útbreiðslu hér á landi og er ein aðalfæðutegund margæsar. Fræðslugildi svæðisins er hátt með tilliti til lífríkis og aðgengi að svæðinu er gott, en strandlengjan er vinsæl til útivistar og fjörðurinn til skemmtisiglinga.
Við ákvörðun um friðlýsinguna var höfð hliðsjón af samningnum um vernd villtra plantna og dýra og lífsvæða í Evrópu (Bern 1979) sbr. Stjórnartíðindi C 17/1993, samningnum um líffræðilega fjölbreytni (Ríó de Janeró 1992) sbr. Stjórnartíðindi C 3/1995 og samþykkt um votlendi sem hafa alþjóðlegt gildi, einkum fyrir fuglalíf (Ramsar 1971) sbr. Stjórnartíðindi C 1/1978.
Stærð búsvæðisins er 427,5 ha.
Skerjafjörður – Kópavogur
Skerjafjörður Kópavogi – friðlýsing.
Skerjafjörður innan bæjarmarka Kópavogs var friðlýst sem búsvæði árið 2012. Markmiðið með friðlýsingu Skerjafjarðar er að vernda lífríki við ströndina, í fjöru og á grunnsævi, einkum og sér í lagi með tilliti til fugla. Jafnframt er það markmið að vernda útivistar- og fræðslugildi svæðisins sem felst í líffræðilegri fjölbreytni og samrýmist verndun búsvæða fugla.
Skerjafjarðarsvæðið í heild hefur alþjóðlegt verndargildi vegna farfuglategunda, svo sem rauðbrystings og margæsar en þar er að finna lífríkar þangfjörur, leirur og grunnsævi sem skapa undirstöðu fyrir afar fjölbreytt fuglalíf allan ársins hring. Einnig er svæðið mikilvægt vegna marhálms og sjávarfitjungs sem hafa takmarkaða útbreiðslu hér á landi, en marhálmur er ein aðal fæða margæsar.
Kópavogur – Skerjafjörður; MWL.
Í Fossvogi og Kópavogi er stór hluti af leirum á Skerjafjarðarsvæðinu. Fræðslugildi svæðisins er hátt með tilliti til lífríkis og aðgengi að svæðinu er gott. Strandlengjan er vinsæl til útivistar og í Fossvogi eru iðkaðar siglingar og annað sjósport.
Við ákvörðun um friðlýsinguna var höfð hliðsjón af samningnum um vernd villtra plantna og dýra og lífsvæða í Evrópu (Bern 1979, sbr. Stjórnartíðindi C 17/1993), samningnum um líffræðilega fjölbreytni (Ríó de Janeró 1992, sbr. Stjórnartíðindi C 3/1995) og samþykkt um votlendi sem hafa alþjóðlegt gildi, einkum fyrir fuglalíf (Ramsar 1971, sbr. Stjórnartíðindi C 1/1978).
Stærð búsvæðisins er 62,6 ha.
Víghólar – Kópavogur
Víghólar – friðlýst svæði.
Víghólar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1983. Þar er að finna jökulsorfnar grágrýtis klappir, svokölluð hvalbök. Jökulrákirnar segja til um stefnu jökulsins sem lá yfir Kópavogi í lok ísaldar.Víghólar og Borgarholt tilheyra víðáttumiklum hraunum sem runnu á hlýskeiðum ísaldar.
Stærð náttúruvættisins er 1,4 ha.
Um mörk náttúruvættisins gilda eftirfarandi ákvæði:
Friðlýsta svæðið umhverfis Víghól afmarkast að sunnan, vestan og norðan af lóðamörkum aðliggjandi húsa og af lóðamörkum og bílastæði að austan. Um svæðið gilda eftirfarandi reglur:
1. Varðveita skal jarðmyndanir og lífríki svæðisins í núverandi mynd. Hvers konar mannvirkjagerð eða jarðrask, sem breytt getur útliti eða eðli svæðisins, er óheimilt, nema til komi sérstakt leyfi [Umhverfisstofnunarar].
Víghólar.
2. Gangandi fólki er heimil för um svæðið, enda sé góðrar umgengni gætt. Þá er bæjarstjórn heimilt, að höfðu samráði við náttúruverndarnefnd og skipulagsnefnd, að láta planta skjólgróðri, leggja gangstíga, setja upp bekki og annan búnað í þágu útivista á svæðinu.
3. Hvers konar losun jarðefna, rusls eða sorps er óheimil á svæðinu. Náttúruverndarnefnd Kópavogs hefur eftirlit með framkvæmd friðlýsingar í umboði [Umhverfisstofnunar] og bæjarstjórnar.
Um viðurlög vegna brota á reglum þessum fer eftir ákvæðum náttúruverndarlaga.
Ráðuneytið er samþykkt friðlýsingunni, sem tekur gildi við birtingu þessarar auglýsingar í
Stjórnartíðindum. Menntamálaráðuneytið, 23. nóvember 1983.
Stekkjarhraun
Stekkjarhraun – friðlýsing.
Stekkjahraun var friðlýst árið 2009. Markmið með friðlýsingu svæðisins er að vernda útivistarsvæði í fögru hraunumhverfi þar sem jafnframt er athyglisvert gróðurlendi og sérstakar menningarminjar. Stekkjarhraun er hluti af hraunum sem runnu í Búrfellseldum fyrir um 7000 árum. Stekkjarhraun er í beinu framhaldi af Gráhelluhrauni og hefur hraunið runnið um þröngan farveg milli Setbergshlíðar og Mosahlíðar. Aðgengi að svæðinu er gott og er það því ákjósanlegt til fræðslu og útikennslu. Með friðlýsingunni er einnig verið að vernda votlendisbletti við Lækinn þar sem hann rennur með Stekkjarhrauni, en þar vaxa m.a. horblaðka og starir sem eru fágætar tegundir í þéttbýli.
Stærð hins friðlýsta svæðis er 15,9 hektarar.
Tröllabörn
Tröllabörn – friðlýsing.
Tröllabörn voru friðlýst sem náttúruvætti árið 1983. Náttúruvættið einkennist af sérkennilegum hraundrýlum (hornító) sem hafa verið notuð sem fjárskýli og jafnvel sem sæluhús. Þegar gosgufurnar koma úr útstreymisopum hraunsins brenna þær við hátt hitastig þegar þær sameinast súrefni loftsins. Þá hlaðast upp litlar en brattar strýtur úr kleprum sem gosgufurnar rífa með sér. Strýtur sem þessar, eða hraundríli, eru einkum algengar á hraundyngjum.
Stærð náttúruvættisins er 4,7 ha.
Tungufoss
Tungufoss – friðlýsing.
Umhverfisráðherra hefur að tillögu sveitarfélagsins Mosfellsbæjar og að fengnu áliti Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands ákveðið að friðlýsa Tungufoss og nánasta umhverfi hans. Landsvæðið er friðlýst sem náttúruvætti, skv. 2. tölul. 1. mgr. 53. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999.
Tungufoss er fallegur foss neðarlega í Köldukvísl í Mosfellsbæ, á móts við Leirvogstungu og dregur fossinn nafn sitt af bæjarnafninu. Við Tungufoss má sjá leifar af heimarafstöð sem var reist árið 1930 af bóndanum í Leirvogstungu og bræðrum hans og framleiddi stöðin rafmagn fyrir bæinn fram til ársins 1958.
Tungufoss.
Tveir fallegir hylir eru neðan við Tungufoss: Kerið, sem er beint fyrir neðan fossinn, og Klapparhylur litlu neðar. Nærsvæði fossins er vinsælt til útivistar en hið friðlýsta svæði er 1,4 hektarar að stærð.
Markmiðið með friðlýsingu Tungufoss sem náttúruvættis er að vernda fossinn sjálfan sem og menningarminjar innan þess. Svæðið hefur mikið útivistargildi enda fjölsótt bæði af bæjarbúum og öðrum gestum og mikilvægt að treysta útivistar- og fræðslugildi þess.
Valhúsahæð
Valhúsahæð – friðlýsing.
Valhúsahæð var friðlýst sem náttúruvætti árið 1998. Á Valhúsahæð er rákað berg eftir ísaldarjökul. Þaðan er víðsýnt um Faxaflóa. Hæðin ber nafn sitt af húsum sem fyrr á öldum geymdu veiðifálka Danakonungs. Valhúsahæð er hæsti staður á Seltjarnarnesi í 31 m hæð yfir sjó.
Á Valhúsahæð er graslendi, lítt grónir melar, mólendistorfur og votlendisblettir. Þar er að finna fjölda tegunda t.d. olurt, túnvingul, blóðberg, vallelftingu, krossmöðru, gulmöðru, túnfífla, blávingul, vallhæru, axhæru, vallarsveifgras, hvítmöðru, klóelftingu, vallhumal, kattartungu, gleym-mér-ei, umfeðming, grávíðir, þursaskegg, túnvingul, mosajafna, krækilyng, mósef, brjóstagras, gullmuru, lógresi, friggjargras, mýrfjólu, þrenningarfjólu, njóla, túnsúru, brennisóley og maríustakk svo eitthvað sé nefnt.
Landamerkjasteinn á Valhúsahæð.
Jarðfræði á Valhúsahæð er margbreytileg en þar er að finna laus jarðlög, basalthraunlög (grágrýti) og jökulrákir. Einnig er vel hugsanlegt að forna eldstöð sé að finna á Valhúsahæð. Aldur grágrýtishraunanna á Seltjarnarnesi er nokkuð óljós, en talið er að þau hafi myndast á næst síðasta hlýskeiði. Laus jökulruðningur sem þar er að finna er væntanlega frá lokum síðasta jökulskeiðs. Á Valhúsahæð má skoða minjar sem tengjast hersetu og sögu hernámsins hér á landi í seinni heimstyrjöldinni.
Stærð náttúruvættisins er 1,7 ha.
Varmárósar
Varmárósar – friðlýsing.
Varmárósar voru fyrst friðlýstir árið 1980 sem friðland og var friðlýsingin endurskoðuð árið 2012. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda og viðhalda fitjasefi (Juncus gerardii) og búsvæði þess sem og náttúrulegu ástandi votlendis Varmárósa ásamt sérstöku gróðurfari sem þar er. Friðlýsingin á einnig að tryggja rannsóknir og vöktun á lífríki svæðisins og treysta útivistar-, rannsókna- og fræðslugildi svæðisins. Við endurskoðun friðlýsingarinnar 2012 var samningur um vernd villtra plantna og dýra og lífsvæða í Evrópu (Bern 1979), samningur um líffræðilega fjölbreytni (1992) og stefnumörkun stjórnvalda höfð til hliðsjónar.
Stærð friðlandsins er 9.76 hektarar og liggja mörk þess frá hesthúshverfinu við Varmárbakka og frá göngustíg við reiðhringi út í Varmá og norður fyrir Hestþinghól út í ósinn.
Vífilsstaðavatn
Vífilsstaðavatn – friðlýsing.
Vífilsstaðavatn og nágrenni var friðlýst sem friðland árið 2007. Friðlýsingin tekur til Vífilsstaðavatns og hlíðanna að sunnar og austanverður upp frá vatninu upp á brún, að meðtöldu Grunnavatnsskarði. Vestur – og norðurmörk fylgja ofanbyggðavegi og Elliðavatnsvegi.
Friðlýsingunni er ætlað að stuðla að varðveislu og viðhaldi náttúrulegs ástands vatnsins og styrkja verndun tegunda og samfélagsgerðar með sérstæðum stofnum bleikju, urriða, áls og hornsíla í vatninu. Hornsílin í vatninu eru mjög sérstök þar sem þau skortir kviðgadda. Töluvert af andfuglum verpa við vatnið og mófuglar umhverfis það. Markmið með verndun nærsvæðis vatnsins er að tryggja eðlilegt grunnvatnsstreymi til þess og viðhalda náttúrulegu gróðurfari svæðisins. Enn fremur er það markmið friðlýsingarinnar að treysta útivistar-, rannsókna- og fræðslugildi svæðisins.
Stærð friðlandsins er 188,3 ha.
Víghólar
Víghólar – friðlýsing.
Víghólar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1983. Þar er að finna jökulsorfnar grágrýtis klappir, svokölluð hvalbök. Jökulrákirnar segja til um stefnu jökulsins sem lá yfir Kópavogi í lok ísaldar.
Víghólar og Borgarholt tilheyra víðáttumiklum hraunum sem runnu á hlýskeiðum ísaldar.
Stærð náttúruvættisins er 1,4 ha.
Heimild:
-https://www.ust.is/nattura/natturuverndarsvaedi/fridlyst-svaedi/sudvesturland/
Kópavogur – Álfjóll.
Þorbjarnarstaðir
Gengið var um Þorbjarnarstaði í Hraunum. Veður var frábært – sól og logn. Tjörnin milli Þorbjarnarstaða og Gerðis, Brunntjörn, var spegilslétt. Norðvestar er Fagurgerði umgirt.
Þegar komið er að Þorbjarnarstöðum frá gamla Keflavíkurveginum er fyrst komið að Þorbjarnarstaðaréttinni (Hraunaréttinni), sem mun hafa verið allfjörug á meðan var. Réttin stendur vel heilleg austan undan Sölvhól.
Þorbjarnarstaðir – Þorbjarnarstaðastekkur/Himnaríki.
Byrjað var á því að ganga austan með hleðslugarði bæjarins, en heimatúnið er girt hringinn með slíkum garði – reyndar tvöföldum. Sunnan undir hraunhól skammt sunnar er tótt og gerði framan og til hliðar við hana. Skammt sunnan þess er önnur heilleg tótt og hlaðinn garður sunnan hennar. Þar virðist hafa veriðum matjurtargarð að ræða. Vestan garðsins er gamalt gerði og tótt sunnan í því. Framundan er Tjörnin. Í henni gæti sjávarfalla, en tjörnin er ekki síst merkileg vegna þess að ferkst vatn kemur í hana undan hrauninu þegar fjarar út. Suðvestast í henni eru mannvirki – hlaðinn bryggja út í tjörnina. Ef vel er að gáð má einnig sjá hlaðna brú út í hólma, sem þarna er og aðra hlaðna bryggju frá honum út í tjörnina. Í hólmanum mótar fyrir tótt. Þarna var m.a. ullin þveginn sem og annar fatnaður á árum fyrrum.
Þorbjarnarstaðir.
Stígur (þvottastígur) liggur frá aðstöðunni við tjörnina upp á heimtröðina. Þegar honum er fylgt sést skeifulaga lægð á vinstri hönd. Í henni er skúti. Á hægri hönd er hringlaga lægð. Í henni er einnig skúti. Tótt er vestan við lægðina. Efsti hluti heimtraðarinnar er hlaðinn beggja vegna. Þegar komið er að bæjarhúsunum má sjá tveggja rýma hús á vinstri hönd og fjölrýma hús á þá hægri.
Þorbjarnarstaðir – uppdráttur ÓSÁ.
Þetta voru bæjarhúsin á Þorbjarnarstöðum. Stutt er síðan þakið féll af syðri húsunum. Greinilegt er að tréþiljað hefur verið að framan á nyrðri húsunum og er fallegur gangur þar framan við. Vestan og sunnan við bæinn er hlaðinn garður. Frá bænum sést Miðmundarvarða á Miðmundarhól vel, fallega hlaðinn á sprungubarmi. Hún var eitt eyktarmarkanna frá Þorbjarnastöðum.
Þorbjarnarstaðir – brunnur í Brunntjörn.
Tótt er syðst á túninu. Þegar komið var yfir suðurveggina sást móta fyrir gamalli hleðslu neðan ytri veggjarins skammt austar. Vestan við hleðsluna er laut og sunnan hennar fótur af gamalli vörðu. Norðan hennar liðast Alfaraleiðin gamla úr vestri til austurs. Alfaraleiðin var aðalgatan út á Útnesin. Önnur varða sést við götuna skammt vestar.
Beint framundan til suðurs sjást hraunbakkar. Undir þeim er gömul hlaðin rétt. Inni í henni er hlaðinn dilkur og tveir aðrir vestan í henni. Réttin stendur enn mjög vel, enda hefur hún upphaflega verið vel gerð.
Þorbjarnarstaðir – flugmynd.
Þegar gengið er norður með vestanverðum heimatúnsgarðinum sést vel hversu mikið mannvirki hann hefur verið. Við norðvesturhorn hans er nokkurs konar dalur í hrauninu. Þar gæti hafa verið nátthagi. Innan og norðanundir garðinum er minni dalur. Innst í honum er skúti. Vestan við hraunhólinn, sem myndar dalinn, er enn ein tóttin. Auðvelt er að greina húsaskipan af tóftum Þorbjarnarstaðabæjarins, sem fór í eyði um 1930.
Þorbjarnastaðaborgin er upp í Brunntorfum, en henni eru gerð góð skil í öðrum FERLIRslýsingum, s.s. HÉR og HÉR.
Þorbjarnarstaðaborg.
Á Þorbjarnastöðum bjó hið ágætasta fólk og eru afkomendur þess m.a. margir mætir Hafnfirðingar.
Gangan tók u.þ.b. klukkustund. Gerður var uppdráttur af svæðinu.
Þorbjarnarstaðastekkur.
Friðlýst svæði á Reykjanesskaganum

Hóp – Minja- og söguskilti
Um var að ræða menningar- og sögutengda ferð í boði Grindavíkurbæjar og Saltfiskssetursins.
Ferðin hófst við Saltfisksetrið, Hafnargötu 12a. Gengið var að tóftum gamla Hópsbæjar og Neðri-sundvörðu. Þar var vígt fimmta söguskiltið sem sett er upp í Grindavík og nú í Hópshverfi. Þar mátti má sjá ýmsar minjar, s.s. tóftir gamla torfbæjarins á Hópi og jafnvel minjar um landnámsskála Molda-Gnúps, landnámsmanns Grindavíkur.
Gengið var með strandlengjunni að Eyjagarði, hafnarbakkanum sem reistur var í Vestmannaeyjagosinu, og að minjum á Hópsnesi. Í ferðinni var og ýmislegt skoðað sem fyrir augu bar á leiðinni.
Hóp og Hópsnes – uppdráttur ÓSÁ.
Á söguskiltinu við Hóp stóð m.a: „Þú ert ofan við Vatnstanga norðan við Hópið, núverandi hafnarlægi Grindvíkinga. Til hægri handar eru tóftir gamla bæjarins á Hópi. Í Manntali 1880 var bæjarstæðan nefnd Stóra-Hóp og Litla-Hóp, en í Manntali 1910 nefndist hún Austur-Hóp og Vestur-Hóp. Þar var þríbýli frá 1850 og fram í byrjun 20. aldar. Gamli bærinn mun hafa verið rifinn um 1930. Tröð lá upp með vestanverðum bænum upp að túngarðinum. Önnur tröð lá frá bænum áleiðis niður á Vatnstanga. Fjaran var rétt neðan við bæinn, en gerð var uppfylling á henni eftir miðja 20. öld þar sem nú er vegurinn (Bakkalág).
Húsið Hóp var byggt árið 1935 af Einari Einarssyni í Garðhúsum og húsið Sjónarhóll var byggt af Guðmundi Þorsteinssyni árið 1951.
Á túnakorti frá 1918 var hlaðin sundvarða þar sem íbúðarhúsið er nú. Rétt neðan við húsið Hóp er rúst. Hún mun vera leifar þurrabúðar sem byggð var ábúanda um tíma frá Þórkötlustöðum fyrir aldamótin 1900. Útihús var þarna skammt vestar.
Í Manntölum frá ýmsum tímum má sjá bæði tengsl og nöfn íbúanna á ýmsum tímum. Frændsemi hefur löngum verið mikil og náin milli íbúa hverfanna í Grindavík. Fremsta tóftin (suðvestanvert) við gamla Hóp er svonefnt Goðhús eða Goðatóft. Hún var friðlýst 1930. Nafnið bendir til þess að tóftin sé mjög gömul. Hún hefur verið endurbyggð til annarra nota líkt og flest önnur mannvirki á svæðinu.
Líkleg bólfesta fyrsta landnámsmannsins í Grindavík. Uppdráttur ÓSÁ.
Í túninu við Hóp eru leifar gamalla mannvirkja, s.s. gerðið og Gerðishúsið (Gerðatóft), sem ekki hafa verið rannsökuð, svo og gamlar götur. Enn má sjá leifar gömlu Hópsbæjanna, Melbæjar, Hópskots, Hópsness og Ness (síðasta íbúðarhúsið var flutt yfir Hópið á bát og er nú Túngata 9), auk minja verbúðar frá Hópi ofan við Hópsvör, þurrkgarða og ískofa. Elsta bryggjan neðan við Hópskot er sýnd á uppdrættinum, en hún er nú horfin og aðrar nýrri teknar við hlutverki hennar.
Auk örnefnanna má sjá ýmiss gömul mannvirki í Hópinu á þessu sögu- og minjakorti.
Landnám
Hóp – minjar gamla bæjarins.
Molda-Gnúpur nam land í Grindavík, en hvar…..? Bjó Molda-Gnúpur að Hópi? Eða kannski einhver sona hans?
Hóp – efri innsiglingarvarðan.
Í Landnámu segir að „Maður hét Hrólfur höggvandi; hann bjó á Norðmæri, þar sem hét Moldatún. Hans synir voru þeir Vémundur og Molda-Gnúpur; þeir voru vígamenn miklir og járnsmiðir …. Gnúpur fór til Íslands fyrir víga sakir þeirra bræðra… En um vorið eftir fóru þeir Molda-Gnúpur vestur í Grindavík og staðfestist þar; þeir höfðu fátt kvikfjár. Þeir voru þá fulltíða synir Molda-Gnúps, Björn og Gnúpur, Þorsteinn hrungnir og Þórður leggjaldi.“
Hóp – túnakort 1918.
Hér að framan er einungis sagt Grindavík en ekki nákvæmlega hvar. Í önefnalýsingu um Hóp í Grindavík sem Ari Gíslason skráði segir m.a. um jörðina Hóp, „sem hefur um langt skeið hefur verið miðsvæðis og ein af lykiljörðum byggðalagsins: Hóp í Grindavík er næsta jörð vestan við Þórkötlustaðahverfi. Bærinn stendur niður við sjó, við Hópið, sem hann dregur nafn af. Sagt er, að hann hafi upphaflega verið nefndur Hof, og er hér gömul goðatóft til. Sagt er, að Hofsnafnið finnist og í gömlum heimildum.
Vestan við túnið á Hópi er Eystri-Vikradalur. Vestan hans er stór hóll, sem heitir Miðaftanshóll. Hann er eyktamark frá gamla bænum.“
Á túninu umhverfis gamla bæinn eru jarðlægar tóftir og garðar svo til við hvert sjónmál. Garðarnir eru greinilega misgamlir og hafa flestir þeirra eldri verið sléttaðir út. Ofan við gamla bæjarhólinn, norðvestan fjárhúsanna má greina 5 tóftir, auk matjurtargarða. Heimtröðin sést vel vestan við hólinn og suðvestan við Goðatóftina fyrrnefndu. Jarðlægur vörslugarður hefur verið í boga ofan við gamla bæinn, en hann síðan verið færður út og stækkaður og auk þess hefur verið hlaðinn garður til norðurs. Innan gamla garðsins og ofan gamla bæjarhólsins er forvitnileg jarðlæg rúst með görðum til beggja átta er teygja sig að gamla garðinum. Við norðvesturhornið hefur verið hlið. Nokkru vestar í túninu eru tóftir nýrri útihúsa. Forvitnilegasta rústin er þó sú minnst sýnilega í túninu. Hún virðist vera leifar af fornum skála er snýr til SV og NA. Stærðin á mannvirkinu er svipuð skála þeim er sjá má í Húshólma og lögunin er áþekk. Um er að ræða áhugaverðar minjar, sérstaklega með hliðsjón af framangreindri lýsingu í Landnámu.
Hóp
Í Jarðabókinni 1703 segir að „öngvar engjar“ séu á Hópi. Þar var þá tvíbýli. „Flæðihætt er fyrir sauð, og líka brýtur sjófargángur túnið, og er hætt við enn meira landbroti.“ Þá eru þarna kýr, hestar og fé hjá báðum ábúendum. „Heimræði árið um kring og lending hin besta sem hjer í sveit er, en ærið lángt að setja, nema með flóði verði lent. Þar gánga vetur og sumar skip heimabænda. Item áttrætt skip stólsins og fylgir því búð og vergögn, sem hvorutveggja er innkomið í tíð Mag. Brynjólfs, en var ekki fyrr.“ Þá segir að „fjörugæði eru mikil til beitar fyrir fje á Hópi.“
Hóp í Grindavík – uppdráttur ÓSÁ.
Bærinn varð snemma eign Skálholtsstaðar. Verminjarnar ofan við Hópsvör virðast skv. þessu því geta tengst útveri Skálholtsstóls á staðnum. Árið 1840 er „Miklar innnytjar eru við jörð þessa af Hópinu, ef notkaðar væru. Í því veiðist mergð hrognkelsa eftir Jónsmessu, einnig silungur og mikill áll, en við ekkert þetta er sú ástundun höfð sem skyldi, og engir viðburðir við tvennt það síðarnefnda. Veiðst hefir þar líka selur og lax, þótt minna fengist með jafnri viðleitni sem hið þrennt fyrst talda; þegar fiskur gengur grunnt, hefir þar inni þorskur fengist og þyrsklingur, en sú veiði er samt ekki teljandi.“
Í Landnámi Ingólfs segir að „á bæ þessum bagar vatnsleysi til neyslu.“ Þar stingur skökku við því ferskvatnsuppspretta kemur undan landinu í fjörunni við Vatnstanga. Í fjöruborðinu hefur því verið mikið og fjölbreytt lífríki frá náttúrunnar hendi þar sem ferskvatnið kemur undan berginu og sameinast sjónum.
Árið 1847 var jörðin seld í tvennu lagi (Stóri- og Litliparturinn) eftir afsalsbréfum 8. ágúst 1787 og 26. janúar 1791. Tvíbýli var á Hópi alla 19. öldina, en frá 1850 þríbýli og var þriðji parturinn nefndur Litla-Hóp frá 1880, sem fyrr er lýst.
Inn á Túnakort 1918 er býlið Hópsnes merkt. Bærinn mun hafa staðið á hól, sem notaður var í vegagerð á 7. áratugnum og er bæjarstæðið sjálft því horfið. Skv. lýsingu Huldu D. Gísladóttur (f:1918) stóð bærinn ofan við núverandi smábátahöfn, sunnan við Skiparéttina. Hann hafi jafnan verið nefndur Hópsnes, en ábúandinn í hennar tíð gjarnan kenndur við „Nes“, t.d. Guðmundur í Nesi.
Í bréfi um byggingu jarða Skálholtsstóls í Grindavík frá 1563 er boðið að breyta bænhúskúgildum þeim sem voru á Hrauni, Þórkötlustöðum og Hópi í leigukúgildi. Gæti það verið vísbending um bænhús á Hópi. Í manntali 1703 er getið um hjáleigu á Hópi, en hennar er ekki getið í Jarðabók frá sama ári eða öðrum heimildum.
Melbær er merktur inn á túnakort frá 1918. Þar var um 160 m norðnorðvestan við bæ. Bærinn stóð rétt norðan við þar sem gamalt bárujárnshús stendur nú, rétt norðan við íbúðarhúsið á Hópi I. Nú er þar sléttað tún. Gerðatóft, útihús, er fast norðan við bæjarhólinn. Það er merkt á túnkort 1918. Þrátt fyrir að sléttað hefur verið yfir húsið má greinilega merkja útlínur þess. Það hefur verið 12×18 m að stærð og virðist hafa verið einfalt. Út frá vesturhlið má grein garðlag sem og út frá austurhlið þess. Mun þetta vera gerðið sem húsið var kennt við.
Austanvert við túnið er svonefnt Vatnsstæði. Milli þess og Skiparéttar er hraunhryggur eða strýta, sem heitir Álfakirkja. Kletturinn er í mosa- og grasigrónu hrauni. Hann er aflíðandi og grasivaxinn að norðan en að sunnan skín í klöppina. Frá jafnsléttu er kletturinn um 3 m á hæð. Skiparéttin er suður af Vatnsstæðinu. Þetta var grjótrétt, sem skipin voru sett upp í. Hún sést enn og er 12×12 m að stærð. Veggir hennar eru nokkuð hrundir. Tóftin er einföld ef frá er talinn krókur, sem er á henni austarlega. Loftur Jónsson segir um Vatnsstæðið: „Þar sem mýrin sunnan við þar sem fyrirtækið Stakkavík er nú var vatnsstæði þar sem sjór rann í á flóði. Þetta var þó nokkuð stór tjörn. Ósinn inn í vatnsstæðið var það mikill að ekki var hann fær þurrum fótum á flóði. Einhverntíma þegar dýpkun fór fram í höfninni var botndrullu dælt í þetta vatnsstæði og það fyllt upp. Smám saman greri þetta upp.“
Langhóll er austan við Síkin, fast vestan við veginn er liggur suður á Hópsnes. „Álfarnir sem þar bjuggu, sóttu kirkju í Álfakirkjuna,“ segir í örnefnaskrá. Nyrst á Langhól er tóft og bogadregin grjóthleðsla liggur yfir Síkið. Önnur tóft er sunnar á hólnum. Þetta eru leifar frá því að Hóp hafði útgerð ofan við Hópsvör. Hleðsluleifar eru í hrauninu á Hópsnesi. Þetta voru herslugarðar. Fyrir neðan Hóp eru Vötnin og Vatnatangi (Vatnstangi), en í Vötnunum var þveginn þvottur frá Hópi. Í Vatnatanga sóttu húsfreyjur að Hópi vatn í kaffið og þótti hvergi betra vant á þessum slóðum,“ segir í Sögu Grindavíkur.
Öskuhóll er hóll, fullur af gamalli ösku. Hann er beint norðan við eystri Hópsbæinn. Hóllinn er í sléttuðu túni, grasi gróinn. Hann er 25×15 að stærð. Gömul rudd leið liggur úr túni á Hópi til austurs óræktina, í átt að Þórkötlustöðum. Leiðin liggur til austurs í svipaðri hæð í túninu og Hópsbæirnir standa nú. Slóðinn liggur í jarðri túnsins og í um 50 m áður en hann kemur að girðingu, sem girðir af Hópstún, og vegi sem liggur þar til suðurs að Bakkavör. Slóðinn er svo aftur greinilegur austan vegarins og þar liggur hann út hraunið til austurs.
Gömul þjóðleið liggur ofan við Hóp áleiðis í Voga. Um var að ræða svonefnda Skógfellsleið, sem einnig var nefnd Vogavegur. Leiðin milli byggðalaganna liggur að mestu um hraunlendi, en kaflinn milli Skógfellanna er djúpt markaður í slétta hraunklöppina. Hann er um 16 km, en bæði greiðfær og áhugaverð gönguleið.
Hafnargerð
Á fyrri öldum, og allt undir síðari heimsstyrjöld, ýttu Grindvíkingar bátum sínum á sjó og lentu í vörum. Var þá oftast svo, að ein vör a.m.k. fylgdi hverju lögbýli. Þær voru flestar við vík eða víkur, sem gengu inn í ströndina. Í þeim var eilítið meira skjól en utar, brimaldan sumstaðar lítið eitt minni og setningurinn nokkru hægari. Í flestum þeirra var þó lending bæði bág og hættuleg.
Grindavík – seilað í Norðurvör.
Engum sögum fer af lendingabótum í Grindavík fyrir 1800. Bændur hafa vafalaust hreinsað varirnar eftir því sem þörf krafði og kostur var, en meira gátu þeir ekki. Gefur og auga leið, hve mikil og erfið vinna það hefur verið að halda vörunum sæmilega hreinum. Hafið er á sífelldri hreyfingu og skolar sandi og grjóti upp á ströndina, og þegar gerði stórbrim og flóð, bárust oft stórgrýtisbjörg upp í varirnar svo þær urðu ónothæfar.
Engar heimildir eru um að hugað hafi verið að hafnargerð fyrr en kom fram á síðari hluta 18. aldar. Þá lét Guðmundur Runólfsson, sýslumaður, mæla Hópið og ósinn, en ekkert varð af framkvæmdum. Hefur verkfæraleysi og e.t.v. skortur á mannafla, að líkindum valdið mestu.
Á 20. öld hafa gríðarlegar breytingar orðið í hafnarmálum í Grindavík og mun vart ofsagt, að hvergi annarsstaðar á landinu hafi skipt svo mjög um til hins betra í þessum efnum. Árið 1902 fól hreppsnefnd þeim Einari Jónssyni, hreppsstjóra, og Erlendi Oddsyni, að mæla dýpi og stærð Járngerðarstaðavíkur og ef unnt er að gera uppdrátt af höfninni. Ári síðar ákvað hreppsnefndin að skoða Hópið og kanna hvað mundi kosta að gjöra innsiglingu fyrir haffær skip svo þar gæti orðið öruggt skipalægi. Ljúka átti því verki fyrir alþingi 1905.
Fjórtán árum síðar (1917) komust hafnarmálin aftur á dagskrá í Grindavík. Einar G. Einarsson, kaupmaður í Garðhúsum, tók sér penna í hönd og skrifaði Stjórnarráði Íslands. Í bréfinu óskaði hann eftir því, að varðskip yrði fengið til að gera frumkönnun á innsiglingu og höfn í Grindavík. Sumarið 1919 voru gerðar mælingar í Járngerðarstaðavík og lagt til að byggður yrði lítill steypugarður á rifið suðaustur af Akurhúsanefi til skjóls fyrir lendinguna. Þessari álitsgerð fylgdi uppdráttur, er sýndi legu garðsins. Dýrara var talið að dýpka Hópið og gera innsiglingu inn í það, og reyndar óvíst, hvort hugmyndin væri framkvæmanleg.
Gamla Klöpp – uppdráttur ÓSÁ. Bæjarstæðið var umflotið sjó 1925. Timburhúsið Teigur flaut þá upp.
Árið 1925 gerði mikið sjávarflóð í Grindavík er eyðilagði allmikið af húsum og skemmdi stórkostlega uppsátrið. Einar G. Einarsson hélt áfram að ýta á Stjórnarráðið um úrbætur. Athuganir voru gerðar og tillögur lagðar fram. Einar lét gera teikningu af bryggju við varirnar í Járngerðarstaðahverfi og sendi Alþingi með beiðni um fjárstyrk. Benti hann m.a. á að allar vörur, sem fluttar voru til Grindavíkur sjóleiðis hafi orðið að bera á bakinu og klöngrast með langa leið yfir hált og óslétt fjörugrjót. Bryggjusmíði hófst þó ekki fyrr en á árunum 1931-1933, en þá voru gerðar þrjár bátabryggjur, ein í hverju hverfi. Þörf fyrir bryggju hafði vaxið mjög í víkinni er vélbátaútgerð hófst þar árið 1928.
Bryggjan í Járngerðarstaðahverfi var byggð á árunum 1931-1932. Hún var með steyptum veggjum og þekju, grjótfyllt og hallaði í sjó fram.
Náði endi hennar u.þ.b. einn metra út fyrir stórstraumsfjöruborð. Alþingi greiddi þriðjung kostnaðarins en heimamenn tvo þriðju hluta. Þrátt fyrir mikinn fögnuð Grindvíkinga með bryggjuna þótti hún helst til of stutt. Árið 1933 var bryggjan lengd.
Sem fyrr varð að setja bátana í naust að kvöldi. Næsta skref var að gera varanlega höfn, þar sem allur bátaflotinn ætti öruggt lægi í öllum veðrum. Enn tók Einar G. Einarsson sig til árið 1938 og ritaði vitamálsstjóra bréf. Bað hann um hæfan mann til að athuga hvort tiltækilegt væri að grafa skurð í gegnum grjót og malarrif það, sem lokar Hópinu. Einnig lagði hann til endurbætur á bryggjunni.
Árið 1939 hófust framkvæmdir við að opna Rifósinn. Get var ráð fyrir að reisa bráðabirgða stíflugarð við efra mynni væntanlegrar rásar, þannig að vatnið héldist inni í Hópinu um fjöru svo hægt væri að vinna 4-5 tíma að dýpkun um hverja fjöru. Handverkfæri voru notuð til að losa grjót og handbörur til að flytja það til. Í september var búið að gera 10 m breiða rás í gegnum eiðið og svo djúpt niður, að fiskibátarnir flutu inn og út um hálffallinn sjó. Hinn erfiði setningur bátanna eftir hvern róður heyrði þá sögunni til. Eftir affermingu voru bátarnir færðir inn í Hópið og lágu þar til næsta róðurs.
Grindavík – dýpkunarskipið Grettir.
Árið 1945 var “grafvél” Reykjavíkurhafnar notuð til að breikka og dýpka innsiglinguna og um leið grafin renna upp að bryggju í Hópinu, sem gerð var 1944. Árið 1947 var gerður skjólgarður frá svonefndum Svíra og fram á Rifið, auk þess sem byggð var ein bryggja af þremur, sem áætlun hafði verið gerð um í Hópinu. Fé til framkvæmdanna var tekið að láni og þótti sumum nóg um. Aðkomubátum fjölgaði hins vegar svo ört við úrbæturnar að krafa var gerð um enn frekari framkvæmdir í höfnini. Síðan hefur stöðugt verið unnið að úrbótum og betrumbótum á hafnaraðstöðinni í Grindavík.
Byggingar- og framkvæmdarsaga Grindavíkurhafnar er ævintýri líkust. Árið 1939, þegar hafist var handa um dýpkun innsiglingarinnar, bjuggu grindvískir sjómenn enn við hafnleysi. Frá árinu 1939 hefur hver stórframkvæmdin rekið aðra, og þegar lauk því tímabili, sem hér er til umfjöllunar, áttu Grindvíkingar eina bestu og fullkomnustu höfn á suðurströnd landsins.
Sjávarútvegur og fiskvinnsla
Tvíæringur.
Fyrstu grindvísku bátarnir hafa sjálfsagt verið mjög litlir. Jafnvel aðeins fyrir tvo til fjóra enda ekki ætlunin að veiða mjög mikið heldur aðeins í soðið. Skipin hafa verið smátt og smátt að stækka og talið er að um miðbik 14. aldar hafi tólfæringar verið mjög algengir í Grindavík. Strax á 15. öld sóttust erlendir menn mjög eftir fiski í Grindavík og lögðu útvegsmenn mikið kapp á að auka útgerð sína. Mikið var um að bændur í öðrum landshlutum sendu vinnumenn sína í verið á Suður-og Vesturlandi á vetrarvertíð. Fiskur var allur þurrkaður og ef ekki viðraði til að þurrka var fiskurinn settur í kös og var þá fiskinum staflað á ákveðinn hátt.
Árið 1780 gengu til veiða úr Grindavík á vetrarvertíð 27 heimabátar, 8 áttæringar, 13 sexæringar og 6 feræringar. Aflinn hjá þessum bátum voru 105.280 fiskar. Upp úr 1860 fór bátum að fjölga verulega í Grindavík og sést það á að 1871 voru 18 bátar í Grindavík, en árið 1898 voru þeir orðnir 62.
Eftir 1900 voru menn farnir að veiða í net og jókst aflinn til mikilla muna. Ekki eru netin aðalástæðan fyrir auknum afla, heldur er talið að óvenjumikill þorskur hafi verið á miðum Grindvíkinga á árunum 1912- 1927.
Vélbátaútgerð hófst í Grindavík árið 1924 og er það langt á eftir öðrum. Ástæðan fyrir því að Grindvíkingar tóku ekki vélbáta fram yfir árabátana fyrr, var sú að lendingarskilyrði voru mjög slæm. Fyrstu vélbátarnir voru áttæringar sem breytt var og vél sett í. Það hefur verið gífurleg bylting fyrir sjómenn að komast á vélbát og losna við allann róðurinn.
Árið 1928 var síðasta árið þar sem árabátar voru notaðir við veiðar í Grindavík og nú voru vélbátar eingöngu við líði og aflabrögð voru mjög góð. En eitt skyggði þó á og það var hafnleysið sem fyrr er lýst.
Með öllum eftirfarandi framkvæmdum gjörbreyttust aðstæður til útgerðar í Grindavík og nú risu upp fyrirtæki sem keyptu og ráku stóra báta. Hafist var handa við að byggja Hraðfrystihús rindavíkur og var fyrsta verkefni þess frysting beitusíldar. Nokkrum árum síðar var svo stofnað hraðfrystihús í Þórkötlustaðahverfi. En með auknum fiski að landi fylgdi meiri úrgangur og eitthvað varð að gera við hann. Þörfin jókst til muna þegar var farið að salta síld í Grindavík, en fyrsta síldin var söltuð þar hinn 19 september 1945. Úr varð að byggð var beinavinnslu og lýsisbræðsla sem hlaut nafnið Fiskimjöl og Lýsi og var það almenningshlutafélag.
Grindavíkurhöfn 1954 – loftmynd.
Miklar framkvæmdir urðu í hafnargerð á næstu árum. Sumarið 1957 var byggð 80 metra bryggja. Var hún hugsuð sem viðlegukantur fyrir báta sem þegar hafði verið landað úr. Hafnargarðurinn var líka lengdur um fimmtíu metra árið 1958. Þetta hélt svo áfram smátt og smátt. Haldið var áfram við bryggjusmíði og eins við gerð skjólgarða. Árið 1969 var viðlegu bakkinn orðinn 276 metrar samtals og bryggjurými í höfninni 560 metrar. Í janúar 1973 þurfti að finna Eyjaflotanum höfn í kjölfar eldgoss á Heimaey og varð Grindavík fyrir valinu. Árið 1973 var gerð viðlegubryggja og árið 1974 var svo gerð bryggja við svonefndan Eyjabakka.
Eftir allar þessar framkvæmdir á fimmta áratugnum var orðið mögulegt að koma stærri bátum inn í höfnina. Öll helstu útgerðarfyrirtæki á Grindavík ráku síldveiðar og söltun.
Einnig lögðu aðkomubátar upp afla sinn í Grindavík. Þegar mest var lönduðu yfir hundrað bátar í Grindavík á degi hverjum. Á árunum 1975-1988 voru Grindvíkingar meðal umsvifamestu síldarsaltenda sunnanlands. En það var ekki bara síld sem barst til lands í Grindavík. Mikið var um loðnuveiði og þegar humarveiðar hófust voru Grindvíkingar fljótir að senda báta á vettvang. Allt þetta gerði það að verkum að Grindavík breyttist úr litlu svávarplássi í ört vaxandi útgerðarbæ.
Við gerð uppdráttarins var m.a. stuðst við „Örnefni á Hópi“, sem séra Ari Gíslason skráði, Örnefnalýsingu Lofts Jónssonar, Jarðabók ÁM 1703, Manntöl frá 1880 og 1910, örnefni skv. upplýsingum Guðsteins Einarssonar, hreppsstjóra, sóknarlýsingu Geirs Backmanns frá 1840, Sögu Grindavíkur og upplýsingum og heimildum núlifandi Grindvíkinga.
Sérstakar þakkir eru færðar þeim Lofti Jónssyni, Tómasi Þorvaldssyni, Guðmundir Þorsteinssyni, Birgi Guðmundssyni, Huldur Dagmar Gísladóttur og Jóni Guðlaugssyni fyrir aðstoðina við gerð uppdráttarins. Þá er Gunnari Tómassyni þökkuð afnot af meðfylgjandi ljósmyndum.“
Frá „Nesi“ var siglt með Oddi V. Gíslasyni út Hópið, um Ósinn og út á Járngerðarsundið. Þar var stefnan tekin á Bótina utan við Þórkötlustaðanes. Sjólag var eins og best getur orðið. Útsýnið til landsins var ekki síðra. Vel var hægt að ímynda sér heimleiðir útvegsbændanna fyrrum. Aldan virtist há, en útlegð. Þótt handtök stjórnenda og áhöfnar Odds væru bæði örugg og traustvekjandi var auðvelt að sjá fyrir hvernig forfeður vorir fyrrum hafa þurft að hafa vara á sér og afl til að komast síðasta sjólagið að vörinni á öldum áður, hvort sem um var að ræða Fornuvör, Suðurvör, Norðurvör, Staðarvör eða Hópsvör (Gvendarvör).
Uppdráttur af svæðinu er á skiltinu, sem er allt hið vandaðasta. Eins og fram kom hér að framan er um að ræða fimmta Minja- og söguskiltið af sex slíkum í Grindavík. Segja má með sanni að þetta framtak Saltfisksetursins og Grindavíkurbæjar verður bæði að teljast til mikillar fyrirmyndar og á án efa eftir að efla til muna vitund bæjarbúa sem og annarra á sögu Grindavíkur og hinum miklu minjum sem sveitarfélagið hefur að geyma.
Frábært veður.
Hóp – tóftir gamla bæjarins.
Heiðmörk
Sigurður málari Guðmundsson kom fyrstur fram með hugmyndina um friðun Heiðmerkur árið 1870. Hann taldi nauðsynlegt að Reykvíkingar gætu notið útivistar í geðfelldu umhverfi í nágrenni bæjarins. En góðir hlutir gerast hægt – nú sem fyrrum.
Heiðmörk – skilti.
Það var þó ekki fyrr en 1936 að Hákon Bjarnason skógræktarstjóri kynnti hugmyndina opinberlega, en hann taldi svæðið ákjósanlegt til útivistar fyrir almenning. Árið 1946 var Skógræktarfélag Reykjavíkur stofnað og fékk þá svæðið í vöggugjöf. Heiðmörk var friðuð í nokkrum áföngum á árunum 1950-1958 frá Elliðavatni að Vífilsstaðahlíð. Nú er Heiðmerkursvæðið rúmir 3000 ha. að stærð, að Rauðhólum, en þeir voru friðlýstir árið 1961. Þann 25. júní 1950 var Heiðmörk vígð, en þá gróðursetti Gunnar Thoroddsen borgarstjóri, greniplöntu á Vígsluflöt.
Heiðmörk.
Fyrsta gróðursetningin fór þó fram vorið 1949 þegar starfsmenn Skógræktarfélagsins gróðursettu 5000 greniplöntur í svæði sem nú heitir Undanfari. Árangur skógræktarstarfsins er greinilegur og vex nú upp á 800 ha. Svæði með yfir 60 tegundum trjá og runna. Nokkur trjánna hafa náð 20 m hæð. Mikil tilraunastarfsemi með mismunandi trjátegundum og ræktunaraðferðum hefur farið fram undanfarna áratugi en nú er aðallega gróðursett sitkagreni, stafafura og birki. Starfsmenn Skógræktarfélags Reykjavíkur, landnemafélög og vinnuhópar Vinnuskóla Reykjavíkur og Landsvikjunar hafa séð um gróðursetninguna. Nú hafa verið gróðursetta yfir 5 milljón plöntur í svæðið.
Heiðmörk – kort.
En aðdragandinn var kannski ekki eins auðveldur og virðist skv. framangreindu. Náttúruvernd og markviss nýting umhverfisins hefur jafnan verið að frumkvæði fárra er séð hafa tilganginn umfram aðra. Þegar skilningurinn verður öðrum augljós skapast þó jafnan grundvöllur fyrir jákvæðari þróun þessa til lengri framtíðar.
Sigurður Nordal skrifaði grein í Lesbók MBL 11. maí 1941 sem hafði fyrirsögnina „HEIÐMÖRK„. Um var að ræða erindi sem hann hafði flutt á útvarpskvöldi Skógræktarfjelagsins 2. maí s.á.
Heiðmörk.
Erindið var síðar gefið út í safnriti Sigurðar, List og lífsskoðun, 3. bindi, bls. 317-323. Af þessu tilefni sagði Sigurður m.a.: “Til ills fórum vér um góð héruð, er vér skulum byggja útnes þetta” – er í Landnámu haft eftir Karla, þræli Ingólfs Arnarssonar, þegar fyrst var numið hér land. Mörgum manni, sem fer um aðalþjóðveginn til Reykjavíkur, austan yfir Fjall, mun koma eitthvað svipað til hugar. Það eru mikil umskipti að láta að baki sér hið grösuga víðlendi þar eystra og fara um Svínahraun og Sandskeið. Og svo má heita, að því nær sem dregur höfuðstaðnum, þegar komið er niður á Árbæjarmela og yfir Elliðaár, því óyndislegri verði þessi leið frá náttúrunnar hendi, mýrar og hrjóstug holt á víxl. Að vísu er margvíslega fegurð að sjá úr Reykjavík og í nánd við hana… Raun ber því líka vitni, að næsta nágrennið laðar ekki bæjarbúa til sín.
Það getur vakið hreinustu furðu að ganga á fögrum sunnudegi, hvort sem er um vetur eða sumar, út á Seltjarnarnes, inn með Viðeyjarsundum eða suður í Fossvog. Á þessum leiðum er oftast örfátt fólk á gangi, líkt og í grennd við ofurlítið þorp. Hvar eru tugir þúsundanna, sem kúldrazt hafa sex daga vikunnar við vinnu sína í bænum, innan húss og utan, og nú ættu að leita frá göturykinu, kolareyknum og húsaþvögunni, draga að sjer hreint loft, liðka sig, styrkja og hressa með eðlilegri hreyfingu, njóta fegurðar lofts, láðs og lagar? Hvar er allt fólkið?
Nú skulum við hugsa okkur, að göngumaðurinn leggi leið sína dálítið lengra frá bænum, upp á Vatnsendahæð, suður með Hjöllum, upp á Búrfell, Helgafell, upp í Grindaskörð.
Þar er hægt að vera á ferð heila sunnudaga, í dásamlegasta veðri, án þess að sjá nokkura tvífætta skepnu á sveimi.
Heiðmörk.
Eg hef einstöku sinnum tekið með mér kunningja mína, sem bornir og barnfæddir eru í Reykjavík, um þessar slóðir… – alveg gagntekinn af því að horfa yfir þetta land, eyðilegt að vísu, en með svo undarlega heiðan og sterkan svip í einfaldleika sínum. Það var ekkert annað en mjúkar, boðamyndaðara línur langra ása, einstöku lítil vötn, fáein fell, sem tóðu upp úr, og fjallasveigurinn frá Vífilsfelli til Keilis eins og skjólgarður um þessa friðarsýn. Mér fannst þá í svip, að þeta væri fegursta útsýni, sem eg ef séð. Það hafði áhrif á mig með einhvers konar persónulegum mætti, tilhaldslaust, alvarlegt, sefandi og styrkjandi í senn. Eg hafði ekkert af því skoðað, nema það sem séð varð frá þjóðveginum.
Heiðmörk – haust.
Nokkrum árum síðar, þegar eg kom heim til langdvalar í Reykjavík, byrjaði eg að kynnast því. Það voru ekki ferðalög, sem í frásögur eru færandi; sunnudagsgöngur með nestispoka á baki upp að Gvendarbrunnum, suður í Kaldársel, smám saman til nýrra og nýrra staða, sem náð varð til með því að ganga alla leið, fram og aftur, á einum degi. Þær kostuðu ekkert annað en skóslitið, og þær heimtuðu ekki önnur afrek en að taka hvorn fótinn fram fyrir annan. Eg er enginn göngugarpur, liðónýtur að klífa fjöll, hef aldrei lagt í að ganga upp á Esju, kann ekkert til þess að fara í öræfaferðir né útilegur. Mér dettur ekki í hug að efast um, að þeir menn, sem hafa dug og tækifæri til þess að ferðast um hálendi Íslands og liggja þar við, finni þar enn meiri hressingu, eflingu og æfintýri.
Við skulum ganga fyrir vesturenda Elliðavatns, fram hjá beitarhúsunum og suðaustur yfir ásana. Allt í einu komum við niður í langan og mjóan dal, sem liggur til suðurs. Vestan megin er klettabelti með dálitlu skógarkjarri. Það eru Hjallarnir. Dalbotninn er víðast eggléttar grundir, aflíðandi móaflesjur að austan. Þarna er fjallaloft og fjallró, svo að ótrúlegt má þykja, að við séum ekki nema rúma 10 kílómetra frá borginni. Við göngum með Hjöllunum, beina leið að Gjáarrétt. Þar er einkennilegt um að litast, stór hellir, djúpar hraunsprungur, ein þeirra með vatnsbóli í botni og þrep gerð niður að því.
Gjáarrétt í Búrfellsgjá.
Við höldum upp eftir Gjánni, sem hefur myndazt við að hraunstraumur hefur runnið þar fram, jaðrarnir storknað, en bráðin hraunleðjan í miðjunni skilið eftir auðan farveg. Gjáin er undrasmíð, með íhvolfum skjöldum beggja vegna, sem væru þing að að hafa bak við ræðupall í samkomuhúsi. Þegar hærra dregur, þrengist hún og grynnist. Hraunsteinarnir verða rauðir, víða með víravirki af steinþráðum, eins og þeir væru nýstorkanðir. Og allt í einu sjáum við niður í stóran eldgíg, sem tæmt hefur allt hraunið úr sér niður Gjána. Hann heitir Búrfell.”
Þá fjallar Sigurður um næsta nágrenni, s.s. Kaldársel, Vatnsenda, Gvendarbrunna, Vífilsstaðahlíð, Húsfell, Helgafell og svæðið ofan Hafnarfjarðar.
“Ástæðan til þess, að eg hef gert þessar stöðvar að umtalsefni, er fyrirætlun Skógræktarfjelagsins að fá þær girtar og friðaðar. Það er tvennt, sem fyrir forystumönnum félagsins vakir; að klæða þetta landssvæði smám saman fjölbreyttum skógargróðri, ferga það og prýða, að laða fólkið af mölinni til þess að leita þar athvarfs og hressingar. Maggi Magnús yfirlæknir skrifaði hugvekju í Morgunblaðið, er hann nefndi Sumarland Reykvíkinga. Og Hákon Bjarnason skógræktarstjóri mun síðar í kvöld gera nánari grein fyrir málinu. Þetta er fyrirætlun sem á skilið óskiptan stuðning Reykvíkinga, bæði bæjarfélags og einstaklinga, og æskilegast væri, að nágrannabæirnir tveir, [Kópavogur] og Hafnarfjörður, tækju höndum saman að framkvæma hana af stórhug og myndarskap.
Heiðmörk.
Þessum þjóðgarði þarf að velja nafn, sem honum í senn sæmir vel og minnir á takmark hans og tilgang. Eg vil stinga upp á því, að hann verði kallaður Heiðmörk. Heiðmörk er fornt heiti á einu fylkinu á Upplöndum í Noregi. Mörk er skógur. Allir finna, hversu vel það fer í nöfnum eins og Þórsmörk og Þelamörk. Í því er fólginn draumur voru um að klæða landið aftur íturvöxnum trjágróðri. Heiður er bjartur, og Heimörk; hið bjarta skóglendi. – er heiti, sem vel mun fara þessu friðsæla landi með tæru lofti og litum.
Heiðmörk á að verða okkar sólskinsblettur í heiði í réttri merkinu; þar eigum við að njóta heiðríku lands og lofts betur en unnt er að gera á götum bæjanna, heiðríkju hugans, heiðríkju einverunnar.”
(Sjá Heiðmörk – kort).
Heimildir m.a.:
-Sigurður Nordal, safnritið List og lífsskoðun, 3. bindi, bls. 317-323.
-Lesbók MBL. 11. maí 1941, bls. 161-163.
-Skilti við Helluvatn í Heiðmörk – Saga Heiðmerkur.
Fjárborg í Heiðmörk.
Hamarinn í Hafnarfirði II
Margt fróðlegt hefur verið sagt um Hamarinn í Hafnarfirði, enda einn af hornsteinum bæjarins – í bókstaflegum skilningi þess orðs.
Örn Arnarsson hefur lítið ort um merkilega staði, eða náttúrufræðileg fyrirbrigði, sem löngum hafa þó seitt fram ljóð á tungu skáldanna. Til þess stendur hann of föstum fótum i mannlifinu. Og þegar hann yrkir um Hamarinn í Hafnarfirði, gerir hann þessa hamraborg að tákni, sem tjáir honum sérstaka sögu og gefur honum tilefni til að koma að því efni, sem jafnan er honum hugstæðast:
Hamarskot – tilgáta.
Hamarinn í Hafnarfirði
horfir yfir þétta byggð,
fólk að starfi, fley sem plœgja
fjarðardjúpin logni skyggð.
Hamarinn á sína sögu,
sem er skráð í klett og bjarg.
Stóð hann af sér storm og skruggu,
strauma, haf og jökulfarg.
Hamarinn í Hafnarfirði
horfði fyrr á kotin snauð,
beygt af oki kóngs og kirkju
klæðlaust fólk, sem skorti brauð,
sá það vaxa að viljaþreki
von og þekking nýrri hresst,
rétta bak og hefja höfuð
hætt að óttast kóng og prest.
Hamarinn í Hafnarfirði
horfir fram mót nýrri öld.
Hann mun sjá, að framtið færir
fegra líf og betri völd.
Þögult tákn um þroska lýðsins:
Þar er hæð, sem fyrr var lægð,
jökulhefluð hamrasteypa,
hafi sorfin, stormi fægð.
Hvergi hefur Örn túlkað betur ást sína á alþýðunni en i þessu stílhreina kvæði.
Þóroddur Guðmundsson.
Þóroddur Guðmundsson frá Sandi fjallar um Hamarinn í Alþýublaði Hafnarfjarðar árið 1962 undir fyrirsögninni „Hugleiðingar um Hamarinn“. Þar skrifar hann m.a.:
„Á nöktum klöppunum Hamarsins sjást rákir, sem allar stefna í sömu átt, frá suðaustri til norðvesturs, og bera vitni um ísaldarjökulínn, sem gekk þar yfir á sínum tíma, en úrkomur og vindar hafa síðan jafnað yfir allt. Auðvitað vantar margt og mikið í þessa sögu, svo sem upphaf hennar og svo náttúrlega það, sem gerzt hefur á þeim stutta tíma, sem liðinn er.
Um forsögu Hamarsins verð ég fáorður, enda ekki allt of margvís um hana. Þess má þó geta, að hann er myndaður úr svo nefndu grágrýti, og gerðu það „Guð og eldur“, eins og Jónas Hallgrímsson komst að orði um náttúruundrin við Þingvöll, hraunið, björgin og gjárnar, en þó miklu fyrr, því að grágrýtið hefur, eins og merkin sýna, myndazt löngu áður en Þingvallar- og Hafnarfjarðarhraun runnu, sem gerðist ekki fyrr en eftir jökultíma, og þó löngu áður en Ásbjörn Özurarson nam land milli Hraunsholts og Hvassahrauns, sem í Landnámu segir frá.
Á Hamrinum.
Saga Hamarsins þau rösku þúsund ár, sem liðin eru síðan, skal ekki heldur rakin. Aðeins vil ég minna á, að bærinn Hamarskot mun lengi hafa staðið, þar sem Flensborgarskólinn stendur nú. Og eftir að Hamarskot var rifið, stóð um árabil fjós, þar sem suðurálman er. Mætti friðsæld sú, ró og öryggi, sem jafnan fylgir kúnum, gefa vistmönnum skólans eitthvað af blessun sinni, auk mjólkurinnar sem þar er neytt dags daglega.
Þegar sá, er þetta ritar, í fyrsta sinn kom til Hafnarfjarðar og gekk upp á „Hamarinn, sem hæst af öllum ber,“ eins og ég heyrði þá um hann sagt, stóð sunnan í honum áður nefnt fjós eða rúst af því, man ekki hvort heldur var. Síðar hefur mér veríð sagt, að eigandi fjóssins hafi verið merkiskonan Valgerður Jensdóttir, systir þeirra Bjarna bónda í Ásgarði í Dölum og Friðjóns læknis á Akureyri.
Útsýni af Hamrinum yfir Austurgötu.
Hamarinn minnti mig þá þegar og minnir enn á hæðir þær erlendis, til að mynda í Bretlandseyjum, sem kastalar voru reistir á til varnar árásum óvina. Hins vegar getur naumast ólíkari manna verk en vopnavígi og virkiskastala gagnvart fjósi Valgerðar Jensdóttur og húsi Flensborgarskóla. Hefðu Íslendingar áður fyrr átt í styrjöldum við aðrar þjóðir, mundu þeir án efa hafa reist á Hamrinum hervirki. Og hvers virði hefði það verið, hjá beztu höín suðvestan lands? í stað þess byggðu þeir þar friðsaman bóndabæ, síðar fjós og loks ungmennaskóla. Mér finnst þetta táknrænt fyrir íslenzkan friðarvilja, sjálfsbjargarhvöt og menningarviðleitni.
Hamarinn – Flensborgarskóli.
Víkjum því næst að síðasta tímabilinu í sögu Hamarsins, og þá um leið hlutdeild hans í menningarbaráttu Hafnfirðinga, með því að hann um aldarfjórðungs skeið hefur nú verið grunnur Flensborgarskóla, eins helzta menntaseturs bæjarins og þótt víðar sé leitað. Má því með sanni segja, að núverandi hús skólans hafi verið grundvallað á bjargi. En slíkt var af meistaranum frá Nasaret forðum talið viturlega gert.
Markaðar klappir á Hamrinum.
Ég hef að vísu heyrt gamla Flensborgara hneykslast á því, að skólinn skyldi vera fluttur neðan frá sjó og upp á Hamar. Um slíkt geta eðlílega verið skiptar skoðanir. En hitt orkar ekki tvímælis, að góður skóli er þjóðþrifastofnun, hvort sem hann er byggður á bjargi eða sandi, hlutrænt skoðað, því að hinn andlegi grundvöllur skólans skiptir mestu máli: að hann sé bjarg þekkingar, trúmennsku, víðsýni og skilnings. Frá hendi Guðs og glóðum elds er Hamarinn meistaraverk og bæjarprýði eigi síður en aðrir bergkastalar lands vors. Og hann hefur sérstöðu meðal hamraborga: stendur í miðdepli f jölmenns kaupstaðar og er grundvöllur elztu menntastofnunar hans.
Hamarinn – horft frá Austurgötu.
Hár er hann ekki, Hamarinn í Hafnarfirði, í metrum talið. Þó er hægt að beinbrjóta sig í brekkum hans, ef hált er og ógætilega farið.
Eflaust gengur margt ungmennið upp á þennan og fleiri hamra og þykist hafa hamingjuna í hendi sér, en missir hana. Sporin af jafnsléttu barnæskunnar upp á setberg unglingsáranna eru ýmsum erfið, jafnvel nauðug, þrátt fyrir það að þau eru óhjákvæmileg.
Enn þá grænkar Hamarskotstúnið á vorin. Veturlangt og daglega ár eftir ár leggja mörg hundruð ungmenni leið sína upp á þennan Hamar í leit að fróðleik og þroska, óafvitandi eða vitandi vits, með namingjuvonina í brjósti og lýsigull eftirvæntingar í hendi sér, og um tveir tugir leiðsögumanna styðja þau í þessari leit. Hvern árangur skyldi hún bera?“
Jón Símon Jóhannsson á Hamrinum.
Jón Símon Jóhannsson fjallar um álfana í Hamrinum í Degi árið 1998 undir fyrirsögninni „Baráttukveðjur frá álfunum“:
Hamarinn – álfasteinn.
Í Hafnarfirði er heilt konungsveldi – álfa. Í Hamrinum býr kóngafólkið og börnin þar tala þýsku.
„Það eru aðallega íbúar í húsunum við Hamarinn sem verða varir við álfana og geta sagt frá samskiptum sínum við þá. Sjáendur segja að þeir séu vel klæddir og vel efnum búnir. Sumir hafa sagt að þessir álfar séu af konungakyni. Þetta séu höfðingjar meðal álfa. Svo er það fólkið sem hefur búið kringum Hamarinn. Þeir segja frá því að hlutir hafi horfið og hafa staðið í þeirri trú að álfarnir hafi tekið hlutina,“ segir Símon Jón Jóhannsson þjóðfræðingur.
Engin hætta fyrir börn
Hamarinn – útsýni.
Símon Jón er kennari í Flensborgarskóla í Hafnarfirði og hefur meðfram starfi sínu þar kannað þjóðsögur úr Hafnarfirði með það að markmiði að gefa út bækling eða litla bók. Hann segist lítið hafa fundið af beinum þjóðsögum tengt álfatrúnni og álfabyggðinni í Hafnarfirði enda ekki rétt að blanda þeim við það sem sjáendur segja. Í þjóðsögunum sé frekar fjallað um þá staði sem álfatrúin sé tengd við.
Hamarinn – hamraborg.
Hann segir að af öllum stöðum loði álfatrúin mest við Hamarinn, klettinn við Flensborg. Álfatrúin komi helst fram í samtölum við fólk, nágranna álfanna.
„Það orð fer af Hamrinum að þar sé börnum engin hætta búin. Talsvert er um að börn séu að leika sér þar og menn fullyrða að þar hafi ekki orðið slys þó að klettarnir séu háir. Börn, sem leika sér þar, meiða sig ekki,“ segir Símon Jón sem sjálfur hefur verið nágranni álfanna í Hamrinum en hann bjó í einu af húsunum undir Hamrinum um nokkurt skeið.
Hann segist sjálfur ekki hafa séð álfa eða orðið var við þá en hafa fundið það vel á mannfólkinu grönnum sínum í húsunum í kring, fólki sem hafði búið þar lengi, að það gekk út frá því að álfar byggju í Hamrinum.
Vildu ekki barnaheimilið
Flensborg á Hamrinum.
„Fyrir tiltölulega fáum árum stóð til að byggja barnaheimili nærri Flensborg sem jafnframt hefði orðið í grennd við Hamarinn. Það voru átök í bæjarsamfélaginu vegna þessarar byggingar. Þá hafði samband við Kristján Bersa Ólafsson, skólameistara í Flensborg, miðill sem sagði að álfar hefðu haft samband við sig og beðið sig um að koma á framfæri baráttukveðjum til Kristjáns. Þeir vildu ekki barnaheimili við Hamarinn. Síðar var hætt við að byggja barnaheimilið á þessum stað en það var ekki vegna álfanna,“ segir Símon Jón. Hann bendir jafnframt á að sjáendur hafi greint frá því fyrir nokkrum árum að álfabörnin leiki sér mikið á svæðinu kringum Flensborg og að þau tali þýsku.
Hamarinn – útsýni yfir miðbæ Hafnarfjarðar.
Flensborg sé náttúrlega þýsk borg auk þess að vera framhaldsskóli í Hafnarfirði. Þýskustofurnar í skólanum snúi út að Hamrinum og hann rifjar upp að kennararnir hafi gantast með það fyrir nokkrum árum að það sé laglegt ef þeir séu með mun fleiri í þýskutímunum en virðist við fyrstu sýn. Kannski ágætis ábending í kjarabaráttu…
„Mér skilst á fólki, sem hefur búið lengi á þessu svæði, að það reikni með því að það sé álfabyggð í Hamrinum,“ segir hann.
Sjá meira um Hamarinn HÉR, HÉR og HÉR.
Heimildir:
-Skinfaxi, 1. okt. 1948, Stefán Júlíusson – Um skáldskap Arnars Arnarssonar, bls. 86
-Alþýðublað Hafnarfjarðar, 15. des. 1962, Þóroddur Guðmundsson frá Sandi – Hugleiðingar um Hamarinn, bls. 4-5.
-Dagur, Lífið í landinu, 2. april 1998, Símon Jón Jóhannsson – Baráttukveðjur frá álfunum, bls. 1.
Hamarinn.
Þingvellir – þingminjarannsóknir
Í Íslendingabók er m.a. getið um Alþingi. Þar segir að maður, sem átti landið í Bláskógum upphaflega hafði verið gerður útlægur fyrir dráp á þræli. Hann var nefndur Þórir kroppinskeggi.
Landið varð síðar almenningseign og fólkið setti þar niður Alþingi“: „Alþingi var sett at ráði Úlfljóts ok allra landsmanna, þar er nú er, en áðr var þing á Kjalarnesi, þat er Þorsteinn Ingólfssonr landnámamanns, faðir Þorkels mána lögsögumanns, hafði þar ok höfðingjar þeir, er at því hurfu.
En maðr hafði sekr orðit of þræls morð eða leysings, sá er land átti í Bláskógum. Hann er nefndr Þórir kroppinskeggi, en dóttursonr hans er kallaðr Þorvaldr kroppinskeggi, sá er fór síðan í Austfjörðu ok brenndi þar inni Gunnar, bróður sinn. Svá sagði Hallr Órækjusonr. En sá hét Kolr, er myrðr var. Við hann er kennd gjá sú, er þar er kölluð síðan Kolsgjá, sem hræin fundust.
Horft til norðurs yfir þingstaðinn.
Land þat varð síðan allsherjarfé, en þat lögðu landsmenn til alþingis neyzlu. Af því er þar almenning at viða til alþingis í skógum ok á heiðum hagi til hrossahafnar. Þat sagði Úlfheðinn oss.
Svá hafa ok spakir menn sagt, at á sex tigum vetra yrði Ísland albyggt, svá at eigi væri meir síðan.
Því nær tók Hrafn lögsögu Hæingssonr landnámamanns, næstr Úlfljóti, ok hafði tuttugu sumur. Hann var ór Rangárhverfi. Þat var sex tigum vetra eftir dráp Eadmundar konungs, vetri eða tveim, áðr Haraldr inn hárfagri yrði dauðr, at tölu spakra manna.
Þórarinn Ragabróðir, sonr Óleifs hjalta, tók lögsögu næstr Hrafni ok hafði önnur tuttugu. Hann var borgfirzkr.“
Í Skýrslu Adolf Friðriksson, Garðar Guðmundsson og Howell M.Roberts um „Þinghald til forna – Framvinduskýrsla 2002“ segir m.a. um fyrrum þingminjarannsóknir á Þingvöllum: „Árið 1998 hófst undirbúningur að fornleifarannsóknum á Þingvöllum og fól Þingvallanefnd Fornleifastofnun að taka saman greinargerð um stöðu rannsókna og gera tillögur um nýjar rannsóknir. Á grundvelli þessarar úttektar var gerð áætlun um frekari rannsóknir á þingminjum, og stofnað til verkefnisins “Þinghald til forna á Íslandi” undir stjórn Adolfs Friðrikssonar og Dr. Sigurðar Líndal. Er það samstarfsverkefni Fornleifastofnunar Íslands, Þingvallanefndar, Þjóðminjasafns Íslands, Hins íslenska bókmenntafélags og Raunvísindastofnunar HÍ. Rannsóknin nær til allra fornra þingstaða, og er markmið hennar að varpa nýju ljósi á gerð þeirra, aldur og hlutverk í samfélagi fornaldar.
Athuganir og skráning á 18. öld
Þegar Íslendingar gengu Noregskonungi á hönd á 13. öld tók þinghald á Þingvöllum breytingum, þannig að þar varð ekki lengur allsherjarsamkoma eins og lýst er í Íslendingasögum heldur fyrst og fremst dómþing og fundur ráðamanna landsins.
Frásagnir eru til um fjölbreytta skemmtan og þjónustu á þingtímanum.
Alþingi gegndi þó áfram veigamiklu hlutverki sem æðsta valdastofnun innlend en eftir að einveldi var komið á 1662 dró mjög úr pólitískri þýðingu þess uns það var lagt niður í lok 18. aldar. Voru elstu minjar þinghalds þá fallnar í gleymsku, huldar jarðvegi og yngri mannvirkjaleifum eða jafnvel horfnar með öllu. 18. öldin virðist þó hafa verið helsta öld framkvæmda á þingstaðnum en þá fóru embættismenn konungs aftur að byggja búðir í Þinginu og reist var sérstakt lögréttuhús.
Rannsóknir á fornum mannvistarleifum á Þingvöllum hófust á 18. öld og hafa þar verið gerðar margvíslegar athuganir síðan. Elsta lýsing af þingstaðnum er „Alþings Catastasis Epter sógn fyrre manna“ sem mun hafa verið gerð árið 170027. Þar er sagt frá lögréttu og um 18 búðum.
Búð á Þingvöllum.
Búðatóftunum er ekki lýst, en sagt er hvar þær eru og að þær hafi tilheyrt hinum ýmsu mönnum, sem þekktir voru úr fornsögum. Þar segir að hið „gamla Lögberg“ sé á Spönginni. Hafa fræðimenn síðan deilt hart um hvort Lögberg hafi verið þar á Spönginni eða á Hallinum vestan Öxarár. Af frumritinu eru til fjölmargar afskriftir sem sýnir rannsóknarsögu Þingvalla frá 1700-1945 og byggir fyrri hluti þessa yfirlits að mestu á hans verki.
Þessi ritgerð hefur leitt til þess að gerð var lýsing á þingstaðnum árið 1735, eins og hann var þá. Er hún gagnmerk samtímaheimild um hvar búðir lögmannanna, amtmanns, landfógeta, landsskrifara og búðir sýslumanna voru.
Árið 1783 skráði Jón Steingrímsson búðir á Þingvöllum og er þar að finna annars vegar lýsingu á fornmannabúðum en hins vegar þeim búðum sem þá voru og er sú lýsing ýtarlegri en eldri skráin. Þessar 18. aldar lýsingar á staðsetningu þingbúða fornmanna byggðu á munnmælum og ágiskunum út frá frásögnum fornsagnanna.
Jón Ólafsson frá Grunnavík ólst upp hjá Páli Vídalín lögmanni og reið með honum til þings hvert sumar á árunum 1719-1726. Eru til lýsingar eftir hann á mannvirkjum frá þeirri öld31. Af þeim 18. aldar mönnum sem fjölluðu um þingstaðinn forna, var hann fyrstur til að benda á að Lögberg hafi líklega verið á Hallinum skammt norðan við Snorrabúð. Taldi hann sig m.a. hafa fundið leifar hinnar fornu lögréttu þar á berginu. Segist hann hafa fundið þar „ferkantaða hraunsteina, setta í hálfhring“, sem „voru allir mátulega stórir til að sitja á“. Þessir steinar eru ekki lengur á sínum stað því Jón og félagar hans tóku þá upp, veltu þeim niður af Hallinum og gerðu úr þeim stillur yfir ána. Er Þingvalla ennfremur getið í nokkrum landlýsingum og ferðabókum frá 18. öld, og eru þeirra merkastar lýsing Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar. Auk þessara lýsinga eru til þrír uppdrættir af þingstaðum frá 18. öld og einn frá öndverðri 19. öld. Enginn þeirra er nákvæmur í samanburði við uppdrætti frá síðari tímum, en sýna flestir engu að síður Þingvallabæ, kirkjugarðinn vestan, og kirkjuna norðan bæjar, nokkrar tjaldaðar búðir og helstu drætti í landslaginu í kring.
Rannsóknir á 19. öld
Um miðja 19. öld fengu fornar mannvirkjaleifar á Þingvöllum táknrænt gildi í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga og hér slær saman pólitískri sögu og sögu fræða og þjóðlegra rannsókna.
Sigurður Guðmundsson málari og stofnandi Forngripasafns Íslands hóf rannsóknir á Þingvöllum, og var hann óspart hvattur af Jóni Sigurðssyni til þess. Athyglisvert er að þeir gerðu sér grein fyrir mörgum aðferðafræðilegum vandamálum varðandi minjaskoðun á söguslóðum. Jón varaði Sigurð við því að trúa öllum frásögnum fólks um minjastaði, og gæta sín á því „að þeir ljúgi engu sjálfir, sem segja frá, því þeim hættir við að ginna á þesskonar okkur sögufíflin“. Sigurður aflaði sér upplýsinga hjá staðkunnugum, og benti sjálfur á að mikilvægt væri við rannsókn á Þingvelli að safna upplýsingum um yngri minjar, s.s. fjárhús, fjós, heygarða og réttir til að þeim verði ekki ruglað saman við búðatóftir eða dómhringa. Jón lagði hart að Sigurði að rannsaka Þingvöll vandlega og skrifa um hann lærða ritgerð. Gerði Sigurður rannsókn á Þingvelli um 1861 og Bókmenntafélagið gaf út skýrslu hans árið 1878, að honum látnum. Var það fyrsta sjálfstæða verkið um fornleifar á Þingvelli.
Björn Gunnlaugsson – uppdráttur.
Björn Gunnlaugsson, sem fyrr á öldinni hafði unnið að Íslandsuppdrætti fyrir Bókmenntafélagið, slóst í för með Sigurði og gerðu þeir uppdrátt af staðnum sem var mun nákvæmari en fyrri kort. Ljóst er að Sigurður hafði talsverða þekkingu á sögunum og lögbókunum fornu. Þessar heimildir gefa þá mynd af þingstaðnum að þar hafi verið búðir er menn héldu til í yfir þingtímann, lögrétta og dómhringur. Í sögunum eru vísbendingar um afstöðu búða einstakra manna. Sigurður lagði mikla áherslu á að bera kennsl á hverja búð og ákvaða hver hafi þar haldið til á söguöld. Hann fann í sögunum lauslegar lýsingar á aðstæðum er gáfu einhverja vísbendingu um legu búðanna á svæðinu og bætti sumum við á Þingvallaruppdrátt án þess að þeirra sæjust merki á yfirborði.
Þingvellir – yfirlit.
Niðurstaða Sigurðar var á þá leið að flestar sjáanlegar minjar á staðnum mátti tengja sögu fyrstu alda Íslandsbyggðar. Á örfáum stöðum getur hann yngri minja sem hann segir hafa verið byggingar sem reistar hafa verið á eldri tóftum. Af þessum sökum var ritgerð Sigurðar talsvert gagnrýnd af erlendum fræðimönnum.
Í riti Kristians Kålund um íslenska sögustaði46 er að finna rækilegustu lýsingu á Þingvöllum og þeim Þingvallavandamálum sem þá voru efst á baugi. Hann gefur stutta lýsingu á búðunum sem þar voru sýnilegar, en taldi líklegt að allar minjar sem voru þar frá söguöld, væru horfnar, enda hafi tóftarbrotin fornu horfið er nýjar búðir og aðrar byggingar voru reistar á Þingvöllum í aldanna rás.
Þingvellir – aftökustaðir.
Hið íslenska fornleifafélag lét það verða eitt sitt fyrsta verk eftir stofnun félagsins að gera rannsókn á Þingvelli 1880, enda var félagið upphaflega stofnað í kringum fyrirhugaðar Þingvallarannsóknir. Sigurður Vigfússon fór á vegum félagsins og rannsakaði bæði minjar og staðháttu, með hliðsjón af fornsögunum. Hann birti með rannsókn sinni uppdrátt Björns Gunnlaugssonar að viðbættum nýjum upplýsingum. Sigurður mældi upp allnokkur mannvirki og gróf í minjar á sex stöðum beggja vegna Öxarár: í Biskupsbúð sem er skammt vestan við traðirnar að Þingvallabæ og norðvestan kirkjunnar, í hleðslu skammt vestan við suðurenda Spangarinnar, í mannvirkið á Spönginni, í „Njálsbúð“ vestan ár á móts við Þingvallabæ, í „Snorrabúð“, og loks í hleðsluna á Hallinum norðan við Snorrabúð, þar sem sumir fræðimenn töldu að Lögberg hefði verið.
Taldi Sigurður sig sanna að Lögberg hefði verið á Spönginni og snerist þar með gegn skoðunum virtra fræðimanna á borð við Kålund og Guðbrand Vigfússon, sem töldu Lögberg hafa verið vestan ár.
Mannvirki á Spönginni
Dagana 1. júní – 4. júní 1880 mældi Sigurður upp og gróf í mannvirki á Spönginni austan ár.49 Þar er hringlaga gerði og ferhyrnd tóft í miðju innan þess. Samkvæmt mælingum hans er hringlaga mannvirkið þar um 18,83 m (60 fet) í þvermál langsum eftir Spönginni (NA-SV), en um 16.63m (53 fet) þversum (NV-SA) að utanmáli. Inn í hringnum er lítil, ferhyrnd tóft, 9,73 m (31 fet) x 6,60m (21 fet) að utanmáli og snýr u.þ.b. NV-SA, með op á suður (SV) hlið. “Veggir tóttarinnar eru gildir og miklu hærri en brún hringsins umhverfis”, segir Sigurður. Hann lét grafa tvo skurði: annan langsum eftir Spönginni og annan þversum yfir miðjan hringinn og tóftina, niður að berginu undir. Hann skildi eftir tvö ógrafin höft í miðri tóftinni. Dýpst náðu skurðirnir 188 sm (3 álnir), við tóftarvegg þar sem hann er hæstur, en grynntust út til brúna á berginu. Sigurður áleit að tóftin hafi verið byggð ofan í hringinn síðar.
Þessu til stuðnings bendir hann á að hún stendur ekki í miðju hringsins, heldur suðaustan til í honum, hún er ólík að gerð og jarðvegur er mun þéttari inní henni en innan hringsins. Að öðru leyti er tóftinni ekki lýst, og ljóst að Sigurður hafði takmarkaðan áhuga á henni. Ekki eru gefin innri mál, mál á þykkt veggja eða hleðslugerð þeirra, en greint frá því hvort inní henni hafi verið e.k. skán eða ekki. Sigurður telur líklegt að hún sé búðartóft frá seinni tímum, og síðar, samkvæmt munnmælum, hafi lögrétta verið höfð þar. Öllu ítarlegri lýsingu gefur hann á hringmannvirkinu: “Aðaleinkenni á þessu mannvirki er það, að [flestir steinarnir finnast]…í fyrstu pálstungu, og svo mold fyrir neðan, og sýnist grjótinu dreift út með moldinni til uppfyllingar mest á yfirborðinu; sums staðar sjást engir steinar, og er mold alveg niðr í gegn, en einungis voru steinar á stangli í moldinni.” Lýsing hans á ystu brún hringsins virðist stangast á. Fyrst segir hann enga steinhleðslu hafa verið en “sums staðar hryggur af smágrjóti undir hringröndinni ystu”, en síðar segir hann í þremur örmum skurðanna sjáist “hleðsla yst eða grjót”.
Sigurður Guðmundsson.
Taldi hann votta fyrir fleiri hringlaga hryggjum, jafnvel 2-3 innan hringsins: “er innar sem tveir eða þrír hringir úr grjóti, hver innan í öðrum, niður við bergið og í miðjunni sem væri lítið afgirt rúm með steinum á berginu(?), en ekkert verður sagt um þetta með frekari vissu”. Ljóst er að hinir meintu hringir hafi ekki verið ýkja greinilegir og Sigurður hefur ekki getað gert upp við sig hvort hann tryði því að þetta væru e.k. bekkir, eða náttúrulegir hryggir.50 Þetta mannvirki virðist m.ö.o. hafa verið e.k. pallur eða upphækkun úr mold og grjóti. Berghellan sem mannvirkið stendur á virðist flöt en lægst í miðju. Í skurðunum í miðju upphækkunnarinnar sást þunnt svart plöntulag “hér um bil eina alin 18-12 þumlunga frá berginu” eins og segir í skýrslunni. Lýsing er á þessu mannvirki í Lögberg, Þjóðólfi (1951) 3. árg, bls. 270: Á lögbergi miðju var það, sem dómendur sátu, þar sér enn merki til dómhringsins, og er það núna grasivaxin hringrúst. Innan í hring þessum sér til húsrústar, og er hún nýrri og glöggari; hún er frá seinni tímum Alþingis á Þingvöllum og var kölluð allsherjarbúð.
“Biskupsbúð”
Stór tóft er í Þingvallatúni, niður við árbakka, um 30 m norðan við kirkjuna.
Sigurður Vigfússon rannsakaði staðinn með grefti dagana 29. maí til 1. júní 1880. Honum sýndist tóftin “halda sínu upprunalega lagi” og “eru gaflhlöðin einkum skýr”. Samkvæmt mælingu hans er tóftin 104 fet (32,4 m) á lengd NA-SV, en 24 fet (7,58m) á breidd NV-SA. Eystri langveggurinn var óskýr, en dyr á vestri vegg, nær nyrðri enda54. Sigurður lýsir uppgreftinum svo: “Ég lét grafa umhverfis tóttina að utan þannig, að steinarnir í ytri hleðslunni, eða undirstaðan að utan kom öll í ljós, og svo skurð fyrir utan undirstöðusteinana líka allt í kring um tóttina.”
Þingvellir til forna.
Í ljós kom steinaröð með steinum af misjafnri stærð, sem af lýsingunni að dæma virðist víðast hafa verið tvær raðir, en sumstaðar meira eða minna tveföld, enda, ef til vill, meir, sumstaðar einföld. Út úr eystri vegg, við NA-horn er útbygging, um 20 fet (6,26 m) á hvorn veg, með dyr til austurs: “Í búðarkróknum út úr syðra vegg útbyggingarinnar sýndist að hafa verið grjótbálkur áfastur við útbygginguna. Hann er… [um] 16 feta [ 5 m] á annan veg, og eins eða meira á hinn. Hér um bil í miðjum bálkinum fannst mikið af öskumold og ösku og nokkuð af viðarkolum, sem eg geymi, einnig fundust þar tvö eða þrjú stykki af nautsbeinum með fleira smálegu, er eg geymi einnig. Ofan að grjótinu var misjafnlega djúpt, eftir því sem til hagar.”
Svo virðist sem grafinn hafi verið skurður utan og innan með veggjunum, en ekki innan úr tóftinni. Sigurður nefnir ekki hvort tóftin virðist hafa verið umbyggð, og hann nefnir ekki gólfskán eða önnur merki. Síðar í skýrslunni er sagt að öll (ystu) gaflhlöð tóttanna hafi verið meira eða minna hálfhringlaga, þ.e. ekki bein heldur lítillega sveigð út á við.
Matthías Þórðarson skoðaði tóftina og verksummerki eftir uppgröftinn (1922?) og lýsti svo: “Nú er þetta allt vallgróið aftur, og óljóst, hvar verið hafi hleðslur þær, er Sigurður Vigfússon nefnir, nema gaflhlöðin eru bæði greinileg enn og allhá. Fyrir nyrðri hliðvegg sér og nokkuð, einkum vestan-til; sömuleiðis má sjá, hvar þær dyr hafa verið, sem Sigurður getur um, 11-12 fet (um 3,50 m) frá austurgafli að innan. … Fyrir útbyggingunni sér nær ekki; má þó sjá, við hvað Sigurður hefur átt, enda segir hann ljóst til þess”.
“Njálsbúð”
Dagana 4. til 7. júní gróf Sigurður Vigfússon upp stóra tóft sem stendur þar sem er dálítið nef á vesturbakka Öxarár gegnt Þingvallabæ, um 80 m vestan við Valhöll. Sigurður lýsir tóftinni svo fyrir uppgröft: “Eftir því sem hún lítur nú út, hefir hún öll fornleg einkenni, þar sem engin nýrri hleðsla sést innan í eða ofan á henni.” Tóftin liggur því sem næst í NNA-SSV. Samkvæmt mælingum Sigurðar er hún 86 feta (26,95m) löng og 25-27 feta (7,83-8,45 m) breið. Uppgraftaraðferðin við þessa tóft var önnur en sú sem notuð var við Biskupsbúð. Þar hafði hann grafið með veggjum hringinn í kring, en hér voru þeir breiðir og ógreinilegir, einkum langveggirnir.
Þingvellir – Njálsbúð.
Við hliðvegggina beitti hann sömu aðferð og áður, þ.e. að grafa einskonar ræsi með veggjunum utan og innan, en hann gróf hinsvegar ofan af norðaustri til suðvesturs. Matthías Þórðarson lýsir tóftinni sem ferhyrndri grjótdreif: “Er hér nú engin upphækkun og engir veggir, en grjótið sýnir, hvar veggirnir hafa verið. Þeir virðast hafa verið um 1,5 m að þykkt, og lengdin er nú um 25,50 m, en breiddin 8,5 m að utanmáli.”
“Snorrabúð” svonefnd er norðan við götuna sem liggur í skarðinu um eystri brún Almannagjár.
Sigurður Vigfússon gróf í tóftina 7. og 8. júní 1880. Hann getur þess í skýrslu sinni að tóftin hafi verið óaðgengileg til rannsóknar “því marghlaðið er innan í hana og seinast var þar stekkur, sem öllum er kunnugt og var allt fullt af grjóti á víð og dreif umhverfis búðina”. Tóftin snýr A-V og er 70 fet (21,93 m) á lengd og 30 fet (9,39 m) á breidd að utan máli samkvæmt mælingum Sigurðar.
Hann virðist hafa grafið frá austur- og vesturenda hennar, bæði innan og utan veggja. Í skýrslunni segir að hann hafi einkum rannsakað “nyrðra gaflhlaðið”, en sennilega hefur átt að standa “eystra”, því norðurhliðin er langhlið, ekki gafl, og af samhenginu að dæma er þar átt við hliðina sem snýr frá Almannagjá. Lítið eða ekkert hefur verið grafið frá hliðveggjum, því Sigurður taldi að upprunaleg hleðsla þar væri horfin. Austan megin fann hann djúpt ræsi fyrir utan (ysta) vegginn og “þar virtust mér koma í ljós þrjár grjóthleðslur hver innan í og upp af annarri; þó þóttist ég nokkurn veginn viss um, að eg komst út fyrir hina ystu, og ef til vill, upprunalegu hleðslu.” Vestan megin, þ.e. sem snýr inn í gjána, fundust einnig “þrjár hleðslur á sama hátt, og er þar einnig grafið ræsi fyrir utan.” Ystu gaflhleðslurnar eru hálfhringmyndaðar. Ekki nefnir Sigurður neina gripi, öskudreif eða önnur ummerki.
Er Daniel Bruun skoðaði ummerki á Þingvöllum um aldamótin síðustu sá hann garðlag utan við austurenda tóftarinnar og taldi vera leifar virkis. Hann var áhugamaður um hernaðarmannvirki leitaði að virkisleifum víða.
Þetta garðlag er ekki nefnt í lýsingu Sigurðar, enda mun það ekki vera veggur eða virkisleifar, heldur uppkastið úr rannsókninni 1880. Matthías lýsir þessari sömu tóft svo: “Búð þessi er mjög veggjaþykk og glögg, en hleðslur þó úr lagi gengnar…. Austur-gaflhlað fláir mjög að neðan og verður bogamyndað neðst, og er grjótdreif umhverfis með jarðvegi nokkurum milli steina.” Samkvæmt mælingum Matthíasar er tóftin 10,3 m að lengd og 5,6 m að breidd að utanmáli, en 6,50 m x 2,30 m að innanmáli, með dyrum á suðurvegg.
Þingvellir – búðir.
Talsvert ósamræmi er á mælingum þeirra Sigurðar. Tóft þessi er tvískipt, en það nefndi Sigurður ekki. Við vesturenda hennar er lítil tóft, jafnbreið, en lægri og um 5,40 m að lengd að utanmáli, en um 2,5 m að innamáli. Matthías telur ólíklegt að stekkur hafi verið settur í tóftina, því Öxará ræður merkjum og er tóftin því í landi Brúsastaða og allfjarri bæ.
Hleðsla við “Lögberg”. Þann 7. og .8. júní 1880 gróf Sigurður Vigfússon í hleðslu á gjábakkanum skammt norðan við “Snorrabúð”, þar sem sumir fræðimenn álíta að Lögberg hafi verið. Samkvæmt lýsingu hans var þar e.k. pallur 59-67 fet ( um18,5-21 m) að lengd c. N-S, og um 51 fet (16m) A-V. Sigurður gróf 3ja álna breiðan (1.88m) skurð frá gjábarmi og til austurs í gegnum mannvirkið út á brún.
Á brúninni kom í ljós “mikil og breið grjóthleðsla (þriggja álna breið [ 1.88m] og hálf önnur alin [0,94m] á hæð), sem þó er töluvert úr lagi gengin.” Grafið var frá henni að neðan beggja vegna á 48 feta [15 m] löngu bili. Í miðju mannvirkinu rakst Sigurður á lítinn og stuttan grjótbálk. Sigurður gróf síðan annan skurð langsum eftir miðju mannvirkinu, álíka breiðan, um fjórar álnir (2,5m) en heldur mjórri við norðurenda. Nær suðurenda (að því er virðist) fann Sigurður óreglulegan grjótbálk “margir stórir steinar, en sem allir virtust vera úr lagi gengnir”, voru sumir í moldinni en aðrir niður við bergið.
Þingvellir – búð við Lögberg.
Ekkert fannst nema mold norðanmegin, en sunnantil, u.þ.b. miðja vegu milli grjótbálkanna, kom Sigurður niður á mikið öskulag, þar í var skora stór og full af ösku. Öskulagið lá niður við bergið og er því eldra en upphækkunin, sem er úr mold, um 60-90 sm þykk. Þar var gjóta niður í bergið og taldi Sigurður hana hafa verið notaða fyrir eldstæði. Í öskunni voru viðarkol og beinaska. Að áðurnefndum hleðslum frátöldum er mannvirkið úr mold. Í miðju mannvirkinu fann Siguður “glerbrot rúma hálfa alin [rúmlega 31,33 sm] niður í moldinni; það er líkast því, sem það væri úr bumbunni á lítilli könnu með eftirgjörðu hálfgrísku lagi, líkt og tíðkast hefir á seinni tímum. Hálsinn á kerinu hefir verið gyltur utan og innan.
Utan á brotinu er upphleypt rós, leggir og blöð, gjört eftir náttúrunni, en grunnurinn er gulur. Gyllling og öll yfirhúð á brotinu lítur mjög nýlega út.” Það var niðurstaða Sigurðar að þetta mannvirki væri ekki Lögberg, heldur hugsanlega leifar af búðarvirki Orms Svínfellings sem nefnt er í Sturlungu. Margir aðrir fræðimenn, þ. á m. Matthías Þórðarson álíta að þarna hafi Lögberg verið.
Rannsóknir á 20. öld
Þingvellir – skilti.
Fræðilegur áhugi á Þingvöllum var mjög almennur um aldamótin og takmarkaðist ekki eingöngu við deilur um staðsetningu Lögbergs. Um þetta leyti naut minjastaðurinn hins vegar engrar sérstakrar friðhelgi. Á ársfundi Fornleifafélagsins 1901 fór Finnur Jónsson hörðum orðum um ástand minjaverndar í landinu. Gagnrýndi hann m.a. vegaframkvæmdir í Almannagjá og þá eyðileggingu sem rannsóknir Sigurðar Vigfússonar höfðu í för með sér og hvatti til þess að friðhelgi fornleifa yrði virt66. Finni varð að ósk sinni er Alþingi samþykkti árið 1907 lög um verndun fornmenja, þar sem þjóðminjaverði var m.a. heimilt að friðlýsa fornleifar.
Ekki var leitast við að skera úr um Lögbergsdeiluna með fornleifauppgrefti á nýjan leik, en kortagerð og yfirborðsathuganir héldu áfram. Herforingjaráðið lét gera uppdrátt af Þingvelli 1908, og var hann gefinn út 1910. Á honum eru merktar sumar búðartóftir, en ekki t.d. mannvirkið á Spönginni eða áhleðslan þar sem Lögberg var talið vera. Var úr þessu bætt er Samúel Eggertsson og Matthías Þórðarson gerðu nýjan uppdrátt af þingstaðnum 1929. Byggði hann á ítarlegum vettvangsathugunum Matthíasar.
“Þorleifshaugur”
Friðrik VIII og fylgdarlið á Þingvöllum.
Er vegurinn („Konungsvegur“) var lagður austur um Þingvallahraun 1907 í tilefni af heimsókn Friðriks 8., var tekinn jarðvegur ofan af hraunbungu og hól skammt vestan við veginn þar sem hann liggur um suðurenda Brennugjár. Voru sagnir um að þetta væri haugur Þorleifs jarlsskálds: “Hann var sýnilega gamalt mannvirki, lausagrjót mikið í honum, borið saman af mönnum, og var jafnvel enn í nokkrum hleðslulögum, og miklar moldir.
Lítilsháttar varð vart við ösku og leifar af birkikolum… Enn fremur fundust mjög óverulegar beinaleifar, örfúnar og lítill silfurpeningur…mjög eyddur og gegnsýrður svo að hann molnaði í sundur áður en hann yrði ákveðinn. …Einnig fundust óverulegar leifar af járnnagla og lítill járnmoli. Grjótdyngjan öll í hólnum aðgreindist í bálk, sem var í miðju, og þústir sem voru, hvor sínu megin, að austan og vestan við hann. Var dyngjan öll um 5 ½ m á lengd frá austri til vesturs og nær 4 m á hinn veginn”. Taldi Matthías líklegt ekki ekki fullvíst að þarna hafi verið haugur og leit út fyrir að hann hafi þegar verið grafinn áður og í honum rótað.
Árið 1927 voru öll gömull mannvirki á Þingvöllum, beggja vegna Öxarár friðlýst af þjóðminjaverði, svo og rústir eyðibýlanna Grímsstaða, Bárukots, Múlakots, Litla-Hrauntúns, Ölkofrastaða og ónefnds býlis undir Hrafnabjörgum. Ári síðar setti Alþingi lög um verndun þjóðgarðsins á Þingvöllum69. Margvíslegar athuganir voru gerðar á næstu árum á Þingvöllum og næsta nágrenni. Voru það einkum náttúruskoðun og örnefnaskráning.
Rannsóknir á síðustu árum
Þingvellir – búðartóft.
Engin rannsókn með uppgrefti var gerð á Þingvöllum frá því er Matthías athugaði meint kuml vestan Brennugjár 1920 þar til tilkynnt var um óvæntan fornleifafund í Þingvallatúni 1957. Þá var verið að grafa fyrir jarðstreng og m.a. tekinn skurður skammt norðan við eystri enda Öxarárbrúar (neðri). Þar fannst s.k. tá-bagall á 43 sm dýpi. Gísli Gestsson gerði þar lauslega athugun og sá að hluturinn hafði komið úr jarðlagi með viðarkolaleifum.
Þingvellir – Öxará undir Öxarárbrú.
Undir því lagi voru mannvistarlög niður á eins metra dýpi í skurðinum. Tá-bagallinn er að mati Kristjáns Eldjárns skreyttur með víkingaaldarstíl, sem nefndur er Úrnesstíll, og er frá ofanverðri 11. öld. Er þessi fundur mjög merkur fyrir margra hluta sakir. Tá-bagall er tignarmerki biskupa og ábóta og gat Kristján þess til að hann hefði verið í eigu trúboðs- eða farandbiskups eða jafnvel eins af fyrstu biskupum Íslands. Er hann skreyttur í anda þeirrar listar sem stóð í blóma á lokaskeiði víkingaaldar, áður en hin rómanska kirkjulist miðalda ruddi sér til rúms. Loks ber að geta að þetta er ekki eingöngu eini tábagallinn sem fundist hefur á Íslandi, heldur og sá eini sem fundist hefur á Norðurlöndum.
Er Gísli athugaði betur jarðstrengsskurðinn sá hann ummerki um húsbyggingar um 13 metrum norðar og nær Þingvallabæ. Fann hann þar m.a. gólflag á tæplega 10 m löngum kafla. Er ljóst að skurðurinn hefur farið í gegnum fornar byggingar sem ekki sér til á yfirborði. Þjóðminjasafnið hugðist gera frekari rannsókn í Þingvallatúninu, en aldrei varð af því vegna anna starfsmanna og bíður þessi staður þess enn að gerð verði athugun á minjunum. Varð og enn langt hlé á fornleifaathugunum á Þingvöllum.
Árið 1985 hélt Landvernd ráðstefnu um Þingvelli 198573. Þar hélt Guðmundur Ólafsson deildarstjóri fornleifadeildar Þjóðminjasafns erindi um uppgrefti á Þingvöllum. Árið eftir hóf hann síðan uppmælingu á sýnilegum fornleifum á Þingvöllum. Mælingunum var haldið áfram 1987 og 1988, en engin skýrsla var gerð um árangurinn. Ekki er því unnt að fjalla nánar um þær athuganir hér, en þó skal þess getið að fram hefur komið að uppmælingin leiddi í ljós að á Þingvöllum væru fleiri búðaleifar en áður var talið. Samkvæmt lýsingum Matthíasar Þórðarsonar taldi hann um 37 búðaleifar á Þingvelli. Við athuganir 1986-1988 kom fram að þar væru a.m.k. 50 búðatóftir og tóftabrot.
Þingvellir Öxarárfoss.
Árið 1993 var gerð tilraun til að nota jarðsjá við fornleifaleit á Þingvöllum að ósk þjóðgarðsvarðar og Þingvallanefndar. Rannsóknin takmarkaðist við spildu NNA við Valhöll og var gerð í því augnmiði að kanna ytri mörk „Njálsbúðar“ og athuga hvort aðrar mannvistarleifar leyndust þar. Af þeim sjö sniðum sem mældu voru, náðu tvö þeirra yfir „Njálsbúð“ og er niðurstaða mælinganna talin sýna að núverandi göngustígur þar nái yfir austurhluta hennar. Þess skal getið hér að á yfirborði er augljóst að stígurinn nær yfir austurlanghlið og norðausturhorn búðarinnar.
Þingvellir – kort.
Önnur helsta niðurstaða mælinganna var sú að talið er líklegt að þær gefi vísbendingar um tvær búðir á svæðinu sem áður voru ókunnar. Á yfirborði er þar að sjá lága hóla sem standa upp úr mýrinni, en þeir hafa enga skýra tóftalögun. Auk jarðsjárinnar var notaður járnteinn og hann rekinn niður í svörðinn til að kanna hvort þar kynni að leynast grjót, sem gæti verið hleðslugrjót í veggjum. Sú athugun sýndi að grjót var m.a. að finna á þessum tveimur stöðum. Þó túlka beri niðurstöður jarðsjármælinga mjög varlega, þá er ekki ósennilegt að hólarnir í mýrinni séu búðaleifar. Er það gagnleg áminning um að fornleifar, og jafnvel þingstaðaleifar er víðar að finna á Þingvöllum en þar sem sjá má búðatóftir með berum augum. Í því sambandi má benda á að Vellirnir norðan við Öxará voru sléttaðir fyrir alþingishátíðina 1930 en þar geta vel hafa verið búðlaleifar.
Árið 1998 hóf Þingvallanefnd undirbúning að nýjum rannsóknum á Þingvöllum og fól Fornleifastofnun að taka saman heimildir um staðinn og greinargerð um stöðu rannsókna og gera tillögur um nýjar rannsóknir.76 Sama ár gerði Adolf Friðriksson lítilsháttar vettvangsathugun til að skoða álitlega rannsóknarstaði og ástand fornleifa. Meðal þeirra staða sem voru skoðaðir voru mannvirkið á Spönginni, “Biskupsbúð”, “Njálsbúð”, “Snorrabúð” og áhleðslan á “Lögbergi”.
Tóftin á Spönginni er enn talsvert greinileg, en óljóst mótar fyrir meintum hring. Hinsvegar er ljóst að landið liggur hærra í kringum tóftina en bæði sunnan og norðan við. Enn má nokkurnveginn sjá hvar Sigurður gróf skurði sína. Staðurinn hefur orðið fyrir lítilsháttar skemmdum, því troðinn gönguslóði liggur frá suðurenda Spangarinnar til norðurs og þvert í gegnum hringinn og yfir tóftina. Er slóðinn sumsstaðar djúpur og rof í bökkunum.
Snorrabúð.
Biskupsbúð virðist ekki hafa orðið fyrir hnjaski síðan Sigurður gróf ár 1880. Njálsbúð liggur á árbakkanum og lá slóði yfir austurhluta hennar, en liggur nú vestan við búðina. Veggirnir eru ógreinilegir og gengnir í sundur víða. Snorrabúð virðist lítið hafa breyst frá því Matthías Þórðarson lýsti henni fyrr á öldinni. Enn má sjá móta fyrir skurðum Sigurðar. Um áhleðsluna á Lögbergi er sömu sögu að segja. Þar sjást rásir í upphækkuninni sem eflaust eru skurðir Sigurðar frá 1880. Ofar hefur verið sett niður flaggstöng en ekki ljóst hvort sú framkvæmd hafi valdið einhverju raski.
Árið 1999 var gerð minniháttar athugun við Þingvallakirkju árið eftir, að ósk vísbendinga um eldri kirkjur á staðnum, og hvenær fyrsta kirkjan var reist á þeim stað sem hún stendur nú (síðan 1859). Eins var markmiðið að kanna ástand jarðvegs, varðveisluskilyrði og útbreiðslu gjóskulaga með tilliti til frekari rannsókna síðar. Grafinn var 10 m langur og 2 m breiður skurður til norðurs, við norðausturhorn kirkjunnar. Í ljós kom að jarðvegur er þar fremur grunnur, og undir er hraunklöpp. Þar fundust grjótundirstöður eldri kirkna og svo heppilega vildi til að vel varðveitt gjóskulög í jarðveginum gáfu skýra niðurstöðu um aldur hennar. Eldri lög, s.s. frá 871, 920 og 934 sáust ekki, enda hefur lítill jarðvegur verið á klöppinni á þeim tíma, en sjá mátti yngri lög ofar: Utan við undirstöðuna hefur verið grafinn skurður og sker hann Kötlulag frá c. 1500, en ekki yngra lag, sem er einnig Kötlulag, frá 1721. Af afstöðu laganna að dæma, hefur kirkjan verið reist á 16. öld.
Nýjar rannsóknir
Þegar litið er yfir rannsóknarsögu Þingvalla í heild blasir við að athuganir á mannvistarleifum þar hafa litlu bætt við þekkingu á staðnum. Mestu fræðilegu púðri hefur verið eytt í að bera saman 13. aldar frásagnir um atburði á söguöld við sýnilegar minjar á staðnum, sem eru líklega flestar frá 18. öld. Einnig hefur lengi verið deilt um hvar Lögberg hafi verið, en lítið er t.d. vitað um aldur eða gerð mannvirkja. Því fer fjarri að fullreynt sé að nota fornleifafræðilegar vísbendingar til að fylla þá mynd sem eldri rannsóknir hafa dregið upp af staðnum. Athyglisvert er að þrátt fyrir allt sem skrifað hefur verið og skrafað um Þingvelli til forna, þá eru engar traustar fornleifafræðilegar heimildir fyrir hendi um forsögu þingstaðarins, þ.e. 10. og 11. öld, áður en ritöld hefst á Íslandi.
Er áðurnefndur tá-bagall eina undantekningin frá þeirri reglu. Umfjöllun um forn mannvirki á Þingvöllum hefur að miklu leyti snúist um þjóðsögur, ágiskanir lærðra og leikra og jafnvel hreinan tilbúning. Áhrifa þessa gætir enn. Jón Ólafsson segist hafa velt niður steinum sem hann áleit hafa verið úr lögréttunni fornu og eru þau minjaspjöll á „þessum helgustu fornleifum landsins“, enn hörmuð. Hins vegar er engan veginn víst að Jón hafi haft rétt fyrir sér um eðli og aldur þessara minja, enda um hreina ágiskun að ræða af hans hálfu. Athuganir á svonefndum dómhringum víða um land hafa leitt í ljós að allskyns tóftir og jafnvel náttúrumyndanir hafa verið skýrð sem minjar um forna dóm- og þingstaði án þess að nokkur fótur sé fyrir því. Einnig er það áberandi einkenni á rannsóknum, skráningu og kortagerð á Þingvallaminjum að þær hafa takmarkast við minjasvæðið á Hallinum og á Spönginni auk stöku bletta austan ár, en heildarkönnun á fornleifum í landi Þingvalla hefur ekki enn verið gerð. Rannsóknir síðustu ára, þ.e. fjarkönnun 1993 og 1999 og uppgröfturinn norðan kirkju sýna að frekari fjarkönnun og uppgröftur gætu skilað verulegum árangri. Í næsta kafla verður fjallað um helstu forsendur og markmið nýrra rannsókna.
Rask á þingstaðnum
Á s.l. árþúsundi hefur orðið margvíslegt rask á Þingvöllum, bæði af völdum náttúru og manna. Svo sem kunnugt er hefur mikið landssig átt sér stað síðan frá landnámi og hefur það eflaust breytt ásýnd staðarins. Öxará rann áður vestan Almannagjár en var í fornöld veitt niður á vellina og hefur þar breitt úr sér. Hafi forn mannvirki staðið á völlunum skammt austan Öxarár má ætla að mörg þeirra séu nú horfin í rofi. Einnig er rof í bökkum vestanmegin, þar sem búðarleifar eru enn. Lét þjóðminjavörður dýpka aðalfarveg árinnar á þriðja áratugnum í því skyni að verja minjastaðinn.
Er nútíminn hélt innreið sína varð Þingvöllur að sérstökum áningarstað. Um s.l. aldamót (1897) var lagður vegur í Almannagjá til að auðvelda þar aðgang fólks að þessum merka sögustað. Eins og áður var getið harmaði Finnur Jónsson þessi náttúru- og fornminjaspjöll þegar árið 1901. Engu að síður héldu gáleysislegar vegaframkvæmdir þar áfram og árið 1907 var lagður vegur um þvera vellina og grafnar miklar gryfjur til beggja handa. Á árunum 1920-21 og 1923-24 lét þjóðminjavörður fylla þessar gryfjur á ný, taka af og þekja veginn og troðninga en leggja þess í stað nýjan akveg.
Síðan 1927 hafa fornleifar á Þingvöllum verið friðlýstar, og nýtur staðurinn aukinnar verndunar sem þjóðgarður. Engu að síður hafa minjaspjöll haldið þar áfram að nokkru leyti, m.a. vegna framkvæmda við undirbúning að Alþingishátíðum. Á Völlunum efri voru fornar reiðgötur sem nú sjást ekki lengur því undirbúningsnefnd Alþingishátíðarinnar 1930 lét slétta vellina og síðar voru þeir teknir til ræktunar. Var svo gert þrátt fyrir andstöðu þjóðminjavarðar84. 1929 voru bæjar- og peningshús tekin ofan, túnið stækkað til suðurs og lagður vegur yfir Fjósagjá, um Miðmundatún og vestur að Valhöll undir Hallinum.
Skömmu fyrir lýðveldishátíðina 17. júní 1944 var kirkjugarðinum á Þingvöllum umturnað, gömul, grasi-gróin leiði voru jöfnuð út eða færð í kaf. Árið 1940 var vígður nýr grafreitur austan við kirkjuna, en ekki er ljóst hvort fornleifar hafi komið þar fram.
Ýmsar húsbyggingar fyrr og síðar á 20. öld, ásamt framkvæmdum við lagnir og aðra skurðagerð sem ábúð og mannavist fylgir, hafa eflaust valdið raski á fornminjum, þó ekki sé um það kunnugt. Fornleifafundurinn í Þingvallatúni 1957, þá er grafið var fyrir jarðstreng, ber um það glöggt vitni að fornleifar geta víða leynst þó ekki sjái til þeirra á yfirborði. Á þeim stað (Miðmundatún) og víðar hefur nú einnig verið plantað trjám og hafa rætur þeirra eflaust spillt fornleifum.
Meðal framkvæmda fyrir 1930 var að setja steina í nokkrar búðir með áletruðum búðanöfnum. Var það gert í því skyni að auðvelda ferðamönnum að átta sig á þingstaðnum. Þar eru merktar búðir sem hafa verið taldar búðastæði Snorra goða og Njáls, en einnig voru merktar búðir nokkurra embættismanna frá 18. öld. Má til sanns vegar færa að þær merkingar hafi litla þýðingu fyrir þjóðgarðsgesti, enda eru menn litlu nær að vita t.d. að tiltekin búð hafi verið búð Jens Madtson Spendrup sýslumanns.
Á sjötta og sjöunda áratugnum komu af og til upp hugmyndir um að byggja eftirlíkingar af þingbúðum á staðnum til að laða að fleiri ferðamenn og gefa þeim nánari hugmynd um hvernig var umhorfs við þinghaldið til forna. Var alloft sveigt að Kristjáni Eldjárn þjóðminjaverði í blöðum fyrir aðgerðaleysið, enda búðirnar „engum til gagns“ eins og þær væru nú. Töldu sumir nauðsynlegt að reisa „virðulegt minnismerki“ á Lögbergi. Þar þyrfti að rétta af hallann sem er á Lögbergsflatanum, rækta þar gras og setja blómabeð, og „byggja Lögréttu í fornum stíl“. Þó svo að hún „hafi aldrei verið staðsett upp á Lögbergshæðinni“ þá yrði Lögréttubyggingin þar verðugt minnismerki engu að síður. Aðrir lögðu áherslu á að reisa „fróðlega og gagnlega eftirmynd af búðum til forna“, því það gæfi ekki aðeins útlendingum hugmynd um þinghaldið, heldur væri þetta „nauðsyn“ fyrir Íslendinga sjálfa, einkum æskuna sem annars notar staðinn fyrir fylleríssamkomur. Kristján stóð gegn framkvæmdum af þessu tagi, og taldi sér fátt óskyldara en „að búa til fornleifar“. Á síðustu árum hefur orðið kúvending í þessum málum og nú er ekki hreyft við steini á Þingvelli án tilskilins og undirbúnings og eftirlits. Lagðir hafa verið göngustígar þar sem ekki er kunnugt um fornleifar og umferð beint frá viðkvæmum svæðum.
Þingvellir – kort.
Ein af þeim fræðilegu spurningum sem eru hvað brýnastar er sú hver séu í raun takmörk þingstaðarins. Það veit enginn og ljóst er af skurðgrefti vegna veitulagna, nýlegum athugunum með fjarsjá og uppgrefti að fornleifar leynast víða á Þingvöllum. Auk þess hafa búðakönnuðir á 19. og 20. víða bent á staði þar sem þeir telja líklegt að leynist fleiri þingbúðir, en það hefur ekki verið kannað. Sumar þessara minja tilheyra vitaskuld Þingvallabæ og búskap þar, en aðrar munu vera þingminjar. Sú mynd sem almenningur hefur af staðnum byggir vitaskuld á því sem sést á yfirborði, en eflaust er heildarmyndin flóknari og einfaldlega stærri, ef svo má að orði komast. Brýnt er að gera almenna úttekt á ástandi minja á svæðinu, kanna rof í tóftarbrotum eða skemmdir vegna jarð- eða trjáræktar. Einnig er nauðsynlegt að skrá Þingvallaland í heild, og kortleggja þannig allar sýnilegar minjar, auk þeirra minja sem heimildir eru til um, en ekki eru sýnilegar á yfirborði. Þannig verður m.a. unnt að ákvarða takmörk þingstaðarins og gefa forsendur fyrir skipulagsvinnu og framtíðarráðstöfun jarðnæðis innan þjóðgarðsmarka. Búðir hafa verið beggja vegna árinnar og er mikilvægt, með könnunargrefti og fjarsjármælingar að staðsetja sem flesta minjastaði.
Rannsókn á Þingvöllum 2002
Snorrabúð á Þingvöllum.
Samkvæmt upphaflegri áætlun var ráðgert að gera forkönnun á átta stöðum á Þingvöllum árið 2002, þ.e. vestan ár, á mannvirkinu á svonefndu Lögbergi, s.k. Snorrabúð, s.k. Njálsbúð og svæðinu sunnan Njálsbúðar, og austan ár, á Miðmundatúni þar sem tábagall fannst 1957, á Biskupshólum, á árbökkum Öxarár norðan Biskupshóla og á Spönginni.
Vegna fjárskorts var athugunum á Snorrabúð, Lögbergi og mannvirkjaleifum á Spönginni frestað, en lögð áhersla á að ljúka forkönnun á öðrum stöðum. Grafinn var könnunarskurður á þessum stað og fannst þá veggur sem væntanlega tilheyrir áður óþekktri búðartóft. Undir grasrótarlaginu (190) var fremur ljósleitur, brúnn og leirkenndur moldarjarðvegur (191) og í honum vottaði fyrir torfi. Þar undir var dökkbrún mold (192) og stóð vatn í á 30 sm dýpi. Syðst í skurðinum voru allnokkrir steinar, eflaust úr vegghleðslu, sem er talsvert hrunin.
Engar vísbendingar fundust um aldur mannvirkisins, og óvíst er um lögun þess og stærð, enda sjást lítil merki á yfirborði. Grafa þyrfti búðina upp til að sjá lögun hennar, en svæðið er blautt og því erfitt að stunda þar fornleifauppgröft. Þessi niðurstaða staðfestir engu að síður, að suðurmörk þingstaðarins austan ár eru einfaldlega óþekkt, því búðir kunna að hafa staðið hér og hvar á þessu svæði. Ummerki um mannvirki eru horfin því þau hafa sokkið í blautan jarðveginn. Finnist fleiri minjar á þessum slóðum mun það breyta heildarmynd þingstaðarins.
Fornleifakönnun austan ár – Miðmundatún
Þingvellir – Öxarárfoss.
Árið 1957 var grafið fyrir jarðstreng á Miðmundatúni, skammt frá norðausturhorni brúarsporðsins, þar sem nú er trjálundur. Þar fannst fyrir tilviljun sjaldgæfur dýrgripur, s.k. tábagall frá 11. öld – tignarmerki biskupa. Við skyndiathugun það ár komu í ljós mannvistarlög sem bentu til að þar hafi staðið e.k. mannvirki, en þau voru ekki athuguð frekar. Ekki hefur verið vitað til þess að þingbúðir hafi staðið á þessum slóðum, en vissulega er fundurinn óvenjulegur og mannvistarlögin gefa fullt tilefni til frekari rannsókna.
Niðurstöður
Sumarið 2002 hófust rannsóknir á fornleifum á Þingvöllum. Grafnir voru prufuskurðir á Miðmundatúni, Biskupshólum, austurbakka Öxarár skammt norðaustan Biskupshóla, og í svonefnda Njálsbúð og aðra tóft skammt vestan við hana. Helstu niðurstöður rannsóknanna eru þær fjöldi meintra búða er meiri en áður var talið. Áður óþekktar búðir komu í ljós á öllum þessum stöðum. Ljóst er nú að á Biskupshólum og þar í kring hefur ekki aðeins staðið ein búð, heldur mikil búðaþyrping, sem ekki sér lengur móta mikið fyrir á yfirborði nema að mjög litlu leyti. Svo virðist sem þar séu mannvirki allt frá 10.-11. öld. Elstu mannvirkin eru gerð úr voldugum veggjum með torfhleðslum og stóru grjóti. Ekki er hægt að segja frekar til um aldur eða hlutverk þessara mannvirkja, en þessi staður er vænlegur til rannsókna með uppgrefti. Hér hefur hlaðist upp talsverður jarðvegur, en eldri minjar virðast ekki hafa spillst af búðagerð frá síðari tímum, eða raski vegna búskapar né af náttúrulegum ástæðum. Eru vegghleðslurnar reyndar óvenjuheillegar, og vottar fyrir gólflögum. Eins fundust þar gjóskulög og varðveisluskilyrði í jarðvegi eru ágæt.
Önnur helsta niðurstaða sumarsins er sú að minjar á Þingvöllum sem öðrum þingstöðum eru víða að spillast af völdum náttúrunnar, einkum af völdum vatnsaga eða trjágróðurs, t.a.m. í mýrinni sunnan við búðaþyrpinguna vestan ár, við trjálundinn á Miðmundatúni og á bökkum Öxarár. Við athuganir á vorþingstöðum á Vestfjörðum kom í ljós að þeir hafa allir raskast að verulegu leyti, vegna vegagerðar, skriðufalla, trjágróðurs, rofs, vatnsaga og byggingaframkvæmda. Engu að síður eru upplýsingar um mannvirki á þessum stöðum mikilvægar við rannsóknir á eðli þingminja.“
Heimild:
-Þinghald til forna – Framvinduskýrsla 2002 – Adolf Friðriksson (ritstjóri). Höfundar efnis: Adolf Friðriksson, Garðar Guðmundsson og Howell M.Roberts, Reykjavík 2002.
http://www.nabohome.org/uploads/fsi/FS183-02141_Thinghald_til_forna.pdf
Þingvellir – Almannagjá.
Þríhnúkagígur – fyrirhugað aðgengi
Á vefsíðu VSÓ má m.a. sjá eftirfarandi upplýsingar um Þríhnúkagíg, aðgengi, varðveislu og athugunum á að gera hann aðgengilegan almenningi.
Árni B. Stefánsson augnlæknir, Björn Ólafsson og Einar K. Stefánsson stofnuðu árið 2004 félagið ”Þríhnúka ehf.” með það að markmiði að vinna að frumathugun á raunhæfi þess að gera Þríhnúkagíg aðgengilegan almenningi – en jafnframt og ekki síður að tryggja að gígurinn og umhverfi hans verði varðveitt.
Félagið fól VSÓ Ráðgjöf að stýra vinnu við frumathugun á raunhæfi og fýsileika verkefnisins. Markmiðið með vinnunni er að gefa út skýrslu sem svarar flestum þeim spurningum sem upp munu koma hjá væntanlegum framkvæmdaraðila eða fjárfestum s.s. varðandi skipulagsmál, leyfisveitingar, kostnað o.s.frv. Einnig er sérstök áhersla lögð á öryggismál s.s. hrunhættu, jarðskjálfta o.fl. að ógleymdum ýmsum álitaefnum varðandi umhverfismál og náttúruvernd.
Þríhnúkagígur er stærsta og merkilegasta náttúrufyrirbrigði sinnar tegundar á jörðinni. Tröllaukið holrými, falið undir norðaustasta Þríhnúknum, á hálendisbrúninni 4-5 km vestur af skíðasvæðinu í Bláfjöllum og 20 km suðaustur af Reykjavík. Allmikil umfjöllun var um gíginn í fjölmiðlum vorið 1991, en þá hafði risavaxin gíghvelfingin og tengdar rásir verið kannaðar og mældar eins og kostur var. Ítarleg grein um niðurstöður birtust í Náttúrufræðingnum 1992. Gígurinn hefur verið kynntur á alþjóðlegum ráðstefnum um hraunhellafræði og alþjóðlegum ritum um hellafræði.
Enginn aðgengilegur sýningarhellir er hér á landi með göngustígum og raflýsingu. Slíkan sýningarhelli skortir sárlega. Íslenskir hraunhellar bjóða sumir uppá slíkt. Þeir eru margir hverjir stórmerkilegir, en iðulega óaðgengilegir fyrir almenning.
Tveir fegurstu hellar hérlendis Jörundur og Árnahellir hafa verið friðlýstir sérstaklega og hefur þeim verið lokað fyrir nánast allri umferð. Aðgengi hefur verið takmarkað að Víðgelmi. Almenningur hefur sýnt þessu mikinn skilning og nauðsyn lokunar og leyndar almennt viðurkennd, þegar viðkvæmir hellar eiga í hlut. Til eru þau augljós dæmi um að „lokunarsinnar“ hafi gengið of langt í að loka hellum, einkum á Reykjanesskaganum.
Þríhnúkagígur er ein merkilegasta náttúrumyndunum landsins. Hvorki meira né minna. Gígurinn er með afbrigðum óaðgengilegur og hrollvekjandi og þannig ekki beint aðlaðandi. Fátt er um myndir úr gíghvelfingunni og engar góðar myndir eru til úr gíghálsinum vegna tæknilegra örðugleika við myndatöku. Fjárhagslegt bolmagn er til staðar í samfélaginu fyrir framkvæmd, sem aðgengi Þríhnúkagígs er.
Í gegnum tíðina hefur oft verið leitt að því hugann hvernig gera má hann aðgengilegan. Að almenningur og ferðamenn geti notið þessarar einstæðu myndunar án skaða á sjálfum sér, eða gígnum sjálfum. Þær hugmyndir sem komið hafa fram til þessa eru ekki fýsilegar. Í þeim skrifuðu orðum; að „hanga þar eins og dordingull“ fæddist sú hugmynd sem sett var fram í Mbl. 04.01. s.l. Að setja þar, nákvæmlega þar, á 56-60 m dýpi, stálgrind. Horfa niður í gegnum grindina og af grindinni niður og upp. Á þessum stað, í miðju eldgígsins, er upplifun þessa tröllaukna gímalds svo sterk, að með ólíkindum er. Hæðin niður á urðarsöðulinn er svipuð og séð niður úr Hallgrímskirkjuturni, eða af þaki 20 hæða háhýsis. Er hæðin meiri til hliðanna. Gígrásirnar beint upp eru álíka. Eða eins og að horfa af Skólavörðuholti upp á útsýnissvalir kirkjunnar.
Gera þarf um 200 m löng jarðgöng frá norðri, eða norðaustri með 4-6° halla. Göngin opnist í einum eða tveimur munnum, á um 64 m dýpi, eða í um 56m hæð frá botni. Þversnið gígrásarinnar er sporöskjulaga á þessum stað og NA endinn undir lokuðum gígstrompi í vari fyrir hugsanlegu hruni. Líklega er æskilegast að koma jarðgangaopum fyrir í NA og SV enda gígrásarinnar vegna meiri styrks jarðlaga þar. H laga stálbitar eru boltaðir í gangagólfið og standa út í rýmið. Á bitunum er komið fyrir stálgrindasvölum í hvorum enda með stíg á milli, með austurlangvegg gíghálsins.
Frágangur grindanna er þannig, að sem best sjáist í gegn. Hengihringstigi, eða tveir, er festur í NA svalirnar við vegginn og um þá gengt niður á botn. Vídd gígrásarinnar er á þessum stað nægileg til að rúma töluverðan fjölda fólks. Lykilatriði er að aðeins sé gengið í eina átt (hring). Upprunalegar hraunmyndanir eru á þessum stað hvað sérstæðastar. Engin hætta er að fólk skaði þarna viðkvæmar myndanir, þar sem ekki næst til þeirra. Jarðgöngin, eitt eða tvö pínulítil 3 ½ x3m op, skaða gíginn ekki á þeim skala sem hann er (1/1000 veggflatar), svalirnar ekki heldur. Frá þessu sjónarhorni nýtur lokaði strompurinn upp af NA hluta hvelfingarinnar sín afar vel. Hann er skreyttur rauðleitu hraunfrussi, sem hangir fagurlega niður í stuttum dropsteinsdrönglum á stóru svæði. Hvergi í veröldinni er hægt að horfa upp um gosrásir af þessari stærðargráðu. Frá sjónarhorni þess í neðra, eða þar fyrir að horfa ofan í aðra eins gíghvelfingu. Þó stærri hvelfingar finnist í kalksteinshellum er þetta aldeilis engu líkt. Nákvæmlega á þessum stað er gígurinn svo magnaður að ekki verður með orðum lýst.
Jarðgöngin verða að vera 3-4 m víð og hallinn ekki meiri en svo að hjólastólum sér fært. Rafmagnslína liggur um jarðgöngin í kapli og niður með hringstiganum. Útfærslu á lýsingu þarf að hugsa vel. Hún er þó ekki ýkja flókin. Ljósgjafar mega ekki sjást nema afar takmarkað, ef á annað borð. Lýsingin verður að vera óbein og um leið dulúðug. Möguleikar verða að vera á breytilegri lýsingu. A.m.k. 15-20 þús. watta lýsingu þarf, ef vel á að vera. Lyfta kemur til greina en varla í fyrstu atrennu. Hugsanlega má setja 12000W Krypton kastara með 0.3° geisla á botn með lýsingu beint upp um gosrásirnar og uppúr gígnum. Einnig mætti setja hann á svalir með lýsingu beint upp eða niður eftir því sem við á.
Ekki má raska NA Þríhnúknum, eða upprunalegum hraunmyndunum í gígrásunum á nokkurn hátt, ef undan eru skilin jarðgangaopin og svalirnar í gíghálsinum, ásamt handriði við gígopið og stígagerð. Satt að segja þarf að lagfæra nokkuð. Hreinsa þarf til á yfirborði. Gera þarf stíg á hnúkinn að norðan og merkja vandlega með stikum, eða sem betra er, afmarka hann með línum eða keðjum. Sjá þarf til þess að viðkvæmur gróður í hlíðum hnúksins jafni sig. Setja þarf upp skilti með helstu upplýsingum um gíginn á viðeigandi stað. Útsýn frá Þríhnúkum til Reykjavíkur og Snæfellsness er hreint frábær. Rétt er að geta þess að þarna er á takmörkuðu svæði mikið af skoðunarverðum náttúruminjum, eldgígum, hrauntröðum og fleiru. Gosminjarnar eru margar hverjar um 1000 ára gamlar, eða frá því eftir landnám.
Full ástæða er að gera svæðið aðgengilegt göngu- og öðru útivistarfólki. Stutt frá bílastæði við gangamunna má gera 3-400 fermetra aðkomubyggingu, sem tengist göngunum og fellur inní landið. Útgröftur úr göngunum gæti nýst í vegagerð. Kostnaður af aðkomubyggingu gæti deilst á þá aðila sem nýta hana eða náðst í formi langtímaleigu á aðstöðu. Þar gæti verið móttaka, kynning á hraunmyndunum og gosminjum, minjagripasala og hugsanlega veitingar. Vel má hugsa sér sérstök sýningar, eða kynningarsvæði, t.d. fyrir Norrænu Eldfjallastöðina, Náttúrufræðistofnun, ferðaþjónustuaðila o.fl. Jafnvel gosminjasafn.
Mikla sérþekkingu og reynslu þarf af hellum, sérþekkingu í sigtækni, verkfræðikunnáttu, fjármagn og áræðni til að af þessu verkefni verði. Ekki er endilega heppilegast opinberir aðilar, ferðaþjónustuaðilar, eða Bláfjallanefnd komi að verkefni sem þessu, nema óbeint, með velvilja, stuðningi og nýtingu. Ef leitað er að sérþekkingu erlendis frá og hún keypt fullu verði sem og verkleg sérkunnátta mun kostnaður líklega fara verulega úr böndum. Þekking og geta er til staðar hérlendis. Þó lögð hafi verið drög, þ.m.t. með þessari grein, hafa þeir kraftar enn ekki verið samhæfðir.
Framkvæmd sem þessi er auðvitað ekki möguleg nema í samvinnu við ráðandi aðila og fjölda annarra aðila. Óbein eða bein þátttaka velviljaðra stuðningsaðila er nauðsynleg til að þetta gangi upp. Gæti hún goldist í þeirri beinu og óbeinu auglýsingu sem gígurinn er og framkvæmdin hefur. Auglýsingagildið er feiknalegt. Bein fjárframlög má hugsa sér.
Hugmyndin er að takast á við þetta á sama hátt og í ferðirnar 1974 og 1991. Það er ekki svo, að þær ferðir og rannsóknarniðurstöðurnar ´91 hafi ekkert kostað. Reiknað á núvirði, í vinnustundum og öðru framlagi hleypur það á milljónum og meir sé vel reiknað. Þær upplýsingar sem fyrir liggja byggjast á áhuga og frjálsu framlagi fjölda einstaklinga og nokkurra fyrirtækja. Þannig er líklega rétt að halda áfram. Nú er auðvitað ekki verið að tala um að gera þetta ókeypis. Það er ekki hægt. Til þess er framkvæmdin of dýr. Hugsunin er, að framkvæmdin verði sjálfbær. Kostnaður í fyrstu greiddur með frjálsum framlögum og styrkjum opinberra aðila og fyrirtækja meðan verið er að kanna hvort þetta er gerlegt. Á síðari stigum, sé framkvæmdin fýsileg, með lánum og að lokum verði kostnaður greiddur með aðgangseyri. Líklega er hentugast að sjálfeignarstofnun, eða sérstakt fyrirtæki taki að sér framkvæmdina. Spölur gæti t.d. verið viss fyrirmynd, eða verið til hliðsjónar. Höf. er tilbúinn að koma að, eða jafnvel leiða það starf.
Aðdráttaraflið verður meira en menn geta almennt ímyndað sér. Líklegt er að mikill fjöldi Íslendinga og stór hluti erlendra ferðamanna muni heimsækja gíghvelfinguna. Líklegt er að þessi tröllaukna gíghvelfing muni jafnvel hafa meira aðdráttarafl en nokkuð annað náttúrufyrirbrigði á landinu. Með nálægð sinni við Reykjavík er gígurinn innan seilingar. Fjölmargir munu vilja heimsækja þetta einstæða náttúrundur. Að standa inni í miðjum eldgíg af þeirri stærðargráðu sem Þríhnúkagígur er, er einfaldlega með ólíkindum. Líklegt er að bæði gíghvelfingin sjálf og það afrek sem framkvæmdin í raun er, muni hafa ófyrirséð áhrif á íslenska ferðaþjónustu. Varðveisla myndunarinnar verður að sitja í fyrirrúmi og mannvirki að standast ítrustu kröfur um öryggi og útlit.
Tilfinning sú sem hver upplifir við gígopið og í gígnum mun gera þann sama næmari fyrir eigin smæð og forgengileik. Hún mun um leið auka virðingu hans fyrir þeirri jörð sem hann byggir. Náttúruvernd er ekki alltaf fólgin í því að gera ekkert, þó slíkt geti vissulega átt við, í völdum tilvikum. Náttúruvernd er að sýna náttúrunni fulla virðingu og skilja ætíð svo við, að hún og þeir sem landið erfa, njóti. Megaborgir spretta nú upp víða um veröld, eins og gorkúlur að áliðnu sumri. Þrátt hið nýja borgarlíf, peningahyggju og vissa firringu, þá erum við mennirnir og verðum, hluti af náttúru þeirrar jarðar sem við byggjum. Af jörðu ertu kominn, að jörðu muntu aftur verða! Við sem nú lifum erum aðeins litlir hlekkir í endalausri keðju kynslóða. Tími er afstæður, hamingja og gleði einnig. Þó mörg okkar láti annað njóta vafans, dveljum við, eftir því sem best er vitað aðeins einu sinni á þessari jörð.
Hugmyndin sem sett var fram í Mbl 04.01. s.l. byggir á persónulegri reynslu við könnun gígsins, mikilli vinnu og er í raun ávöxtur áratugaíhugana. Tilgangur hugmyndarinnar er upplifun eigin smæðar ásamt mikilfengleik þessa merka náttúrufyrirbrigðis. Til að fá raunhæft mat á möguleikum til jarðgangagerðar er talið afar æskilegt að herða upp á vel unninni jarðfræðikortlagningu Kristjáns Sæmundssonar með því að ná borkjörnum úr hraunlagastaflanum á nærsvæði gígsins. Ekki kemur til greina að raska landi og hraunum vegna slíkra rannsókna og því hefur ávallt verið gert ráð fyrir því að koma tækjum á staðinn á harðfenni. Slíkar aðstæður hafa ekki verið fyrir hendi undanfarin ár en afar mikill snjór er nú á svæðinu og miklar líkur til þess að góðar aðstæður muni gefast innan tíðar.
Gert er ráð fyrir að niðurstöður verkefnis um opnun og aðgengi að Þríhnúkagíg verði kynnt á opnum fundi fyrir haustið 2008. Á undanförnum mánuðum hefur félagið aflað fjölmargra gagna, upplýsinga og álits sérfræðinga á málefnum sem snúa að aðgengi gígsins.
Tillögur um opnun gígsins, aðkomu og skipulag munu byggja á niðurstöðum náttúrufarsrannsókna, samráði við helstu hagsmunaaðila og úttektum sem gerðar hafa verið í tengslum við verkefnið. Forsendur innan Bláfjallafólkvangs hafa verið skoðaðar með tilliti til samnýtingar þjónustu og lagna, auk þess sem ferðamannaleiðir í nágrenni hafa verið kortlagðar. Markmið verkefnisins er að skilgreina hvernig stýra megi framkvæmdum við opnun Þríhnúkagígs þannig að sem minnst röskun verði á aðliggjandi landi og á hvern hátt koma megi mannvirkjum fyrir þannig að sem best falli að landslagi. Til að skaða náttúrufyrirbærið sem minnst, upplifa stærð og mikilfengleik sýna rannsóknir að aðkoma og upplifun ferðamannsins verði best útfærð með aðkomugöngum inn í miðjan gíginn.
Staðsetning Þríhnúkagígs gerir það að verkum að engin ein leið virðist liggja í augum uppi sem besti og eini kostur í aðkomu og aðgengi að gígnum. Var þannig stillt upp mörgum kostum sem teknir voru til samanburðar.
Innkomuleiðir hafa verið skoðaðar og eftir greiningu áhættuþátta og lýsingu þeirra sem sigið hafa í hellinn er dregin sú niðurstaða að mest og best megi skoða gíginn ef komið er inn í hann miðjan í um 480 m hæð, eða um 50-60 m undir gígopinu (valkostur B). Sá kostur er jafnramt sá sem telst heppilegastur m.t.t. jarðgangagerðar. Gert er ráð fyrir að ferðamaðurinn geti gengið inn í fjall og sjái hvernig fjallið opnast í stórkostlega hvelfingu, upplifi náttúrulegan “stromp”- og geti í jarðgöngunum séð myndrænt fyrir sér mótun landsins.
Frumtillögur arkitekta liggja fyrir sem sýna hvernig koma megi fyrir aðkomuhúsi í hrauninu án þess að ásýnd landsins breytist verulega. Tillögur miða að því að aðkomuhús verði fellt inn í hraunstafn austan við gíginn í um 300 m fjarlægð frá gígopinu. Aðkomuleið frá Bláfjöllum lægi um hellasvæðið í Strompahrauni og eftir það að mestu á grágrýti að hraunstafninum. Í þessum valkosti felst hins vegar allumfangsmikil vegagerð á ósnortnu hrauni sem er viðkæmt mál m.t.t. náttúruverndar. Var því ákveðið að taka til samanburðar valkost D sem felur í sér stuttan veg frá veginum að Hafnarfirði og jarðgöng með lyftu inn á botn gíghvelfingarinnar. Auk ofangreinds hefur verið velt upp hugmyndum um að draga verulega úr umfangi aðkomuleiða, nýta bílastæði í Bláfjöllum og leggja áherslu á gönguleiðir og stíga þar sem gestir væru fluttir með vagni að aðkomuhúsi.
Það verður spennandi að fylgjast með frekari framþróun verkefnisins.
Helstu heimildir:
-Morgunblaðið. Þríhnúkagígur. Stórbrotið náttúrurundur. 07.07.1991, bls. c 15-16.
-Borges, X., Y. Silva and Z Pereira 1991. Caves and pits of the Azores etc. Angra Do Heroismo 1991. 6th. International Symposium on Vulcanospeleology Hilo-Hawai, USA.
-Árni B. Stefánsson 1991, Þríhnúkagígur ferðin. Surtur ársrit 1991, 10-15, 1991.
-Árni B. Stefánsson 1992, Þríhnúkagígur. Náttúrufræðingurinn 61. ár 3-4 hefti 229-242, 1992.
-Árni B. Stefánsson 1992, The Þríhnúkagígur Pit of southwest Iceland. NSS News vol 50, no 8, 202-208, August 1992.
-Árni B. Stefánsson 2004 , Leyndardómar Þríhnúka, Mbl. 04.01.’04, bls 20-23.
-Ljósmyndir og efni eru m.a. af vefsíðu VSÓ (sjá http://vso.is/Verkefni/valin-verkefni-Thrihnukagigur/1-Thrihnukagigur.html)
Í Þríhnúkagíg.
Garðakirkja á Álftanesi – Árni Óla
Í Jarðabókinni 1703 eru Garðar á Álftanesi sagðir eiga selstöðu við Kaldá, væntanlega í Kaldárseli. Nú er að mestu búið að eyðileggja minjar hennar, en líklegt má telja að selstaðan geti verið allt frá því á 16. eða 17. öld. Minjar annarrar selstöðu í Garðalandi eru í Helgadal. Þar hefur verið kúasel af tóftunum að dæma, líklega frá miðöldum. Leifar þriðju selstöðuna, og þá elstu, sennilega allt frá landnámi, er að finna á Garðaflötum. Þar má einng sjá, að því er virðist fjós, skála og eldhús.
Í Hrafnkels sögu Freysgoða eru Garðar á Álftanesi orðnir til þegar á 10. öld og bjó þar Þormóður Þjóstarsson, bróðir voldugra manna sem veittu óvinum söguhetjunnar lið. Hann er látinn vera eiginmaður Þórdísar, dóttur Þórólfs Skalla-Grímssonar en þar eð Hrafnkatla er rituð um 1300 og varðveitt í ungum handritum verður henni ekki treyst. Konan mun hafa heitið Þuríður Þorleifsdóttir eins og segir í Landnámu en þar fæst raunar staðfesting á því að þeir feðgar, Þjóstar og Þormóður, bjuggu á Álftanesi. Bústaðurinn er þó ekki tilgreindur nánar. Hvað sem því líður hafa Garðar snemma orðið kirkjustaður og prestssetur því skv. Kirknaskrá Páls biskups Jónssonar var risin þar kirkja árið 1200 ef ekki fyrr og þjónaði sú einnig Bessastöðum.
Garðar – Túnakort 1918.
Fram eftir 13. öld var staðurinn þó áfram í höndum veraldlegra höfðingja og birtist með ýmsum hætti í heimildum frá þeim tíma. Árið 1230 er getið um Þorvald Gissurarson Viðeyjarkanoka „at boði j Görðvm“ og má vera að gestgjafi hans hafi verið Einar Ormsson sem að sögn Sturlungu bjó a.m.k. á staðnum árið 1243 og skaut skjólshúsi yfir frænda sinn, Þórð Bjarnarson. Sá var liðsmaður höfðingjans Þórðar kakala, á flótta undan fjandmönnum, og Ormur sá til þess að vel fór um hann í Görðum. Er m.a. getið um bað á staðnum en kvöld eitt þegar þeir frændur hugðust njóta þess réðust óvinirnir til inngöngu. Þórður fékk að tala við prest, væntanlega þann sem gegndi embætti á staðnum, en var síðan miskunnarlaust höggvinn í ytri stofu bæjarins. Næst eru Garðar nefndir árið 1264 þegar Gissur Þorvaldsson jarl gisti hjá Einari: „var honum þar vel fagnat, ok var þar nokkurar nætr“. Þangað bárust Gissuri varnaðarorð og talaði við sendimanninn „í kirkjugarðinum þar í Görðum“.
Í Morgunblaðinu árið 1955 fjallar Árni Óla um sögu Garða: „Garðar á Álftanesi eru ekki taldir með landnámsjörðum, en þó mun hafa verið sett byggð þar þegar á landnámsöld.
Jörðin er í landnámi Ásbjarnar Özzurarsonar, bróðursonar Ingólfs Arnarsonar, og eftir því sem næst verður komizt, hét sá Þjóstarr, er þar bjó fyrstur. Hann var kvæntur Iðunni dóttur Molda-Gnúps, landnámsmanns í Grindavík, og er talið að þau hafi átt þrjá sonu. Einn þeirra var Þorkell, er fór einhver fyrstur manna hér á landi alla leið suður til Miklagarðs, dvaldist þar nokkur ár og var „handgenginn Garðskonunginum.“
Garðar og nágrenni – örnefni. ÓSÁ.
Annar sonur Þjóstars var Þormóður, er bjó að Görðum eftir föður sinn. Hann var kvæntur Þuríði dóttur Avangurs ins írska, er fyrstur byggði að Botni í Hvalfirði, og smíðaði sér haffært skip úr skógi þeim er þar var þá. Getið er tveggja barna þeirra Þormóðar, Barkar er átti Hallvöru dóttur Odda Ýrarsonar, og Jórunnar. —
Landnáma segir frá því, að þeir Illugi rauði og Hólm-Starri hafi haft skifti á jörðum, konum og lausafé. Sigríður kona Illuga hengdi sig þá í hofinu á Hofstöðum í Reykholtsdal, „því að hún vildi ekki mannakaupið“. Ekki er getið um konu Starra, en líklega hefur hann tekið hana aftur þegar þannig fór um Sigríði, því að upp úr þessu fekk Illugi Jórunnar frá Görðum.
Um þessar mundir bjó í Vælugerði í Flóa sá maður er Öra hét. Svo er sagt að eftir ráðum Marðar gígju hafi hann orðið sekur þannig að hann skyldi falla óheilagur fyrir sonum Önundar bílds, nema í Vælugerði og örskotshelgi við landeign sína. Einu sinni rak Örn naut úr landi sínu og var þá veginn, og heldu allir að hann hefði fallið óheilagur. En ÞorJeifur neisti bróðir hans, keypti að Þormóði Þjóstarssyni í Görðum, er þá var nýkominn út á Eyrarbakka, að hann helgaði Örn. „Þormóður skaut þá skot svo langt af handboga, að fall Arnar varð í örskotshelgi hans“. Má á þessu sjá. að Þormóður hefur verið íþróttamaður og nafnkunnur bogmaður. Synir Þjóstars hafa því þegar gert garðinn frægan, þótt ekki fari af þeim neinar sögur. Og allt frá þeim tíma hafa Garðar verið merkur staður.
Kirkja hefur sennilega verið reist þar skömmu eftir kristnitöku. Var hún helguð Pétri postula og er til skrá um presta þar síðan 1284. Þar var í gamla kirkjugarðinum svonefndur „vökumaður“. Var það trú hér á landi um eitt skeið, að sá, sem fyrstur væri grafinn í kirkjugarði, rotnaði ekki, heldur heldi stöðugt vörð um garðinn. Segir sagan, að eitt sinn er verið var að taka gröf í útnorðurhorni kirkjugarðsins, áður en hann væri færður inn“, þá var komið niður á rauðklæddan mann, órotinn, og skipaði prestur að byrgja gröfina þegar. Þetta hefur átt að vera einhver fornmaður í litklæðum, og hann vakir enn yfir kirkjunni, sem nú er líka utangarðs.
Garðakot.
Torfkirkja var í Görðum öld fram af öld. En um miðja fyrri öld er komin þar timburkirkia. Hún entist illa og var orðin óhæf til messugerðar 1878. Þá var Þórarinn Böðvarsson prestur að Görðum. Hann vildi að söfnuðurinn tæki að sér kirkjuna og flytti hana til Hafnarfjarðar, en þar var þá meginhluti safnaðarins. Sóknarnefndin mun ekki hafa treyst sér til þessa, og varð það því úr, að ný kirkja var reist að Görðum og var hún hlaðin úr steini. Þvkir mér líklegt að notað hafi verið kalk úr Esjunni til þess að líma griótið saman. Var kalkbrennslan í Reykjavík þá í fullum gangi, og þeir munu hafa verið vel kunnugir Egill Egilsen forstjóri kalkbrennslunnar og séra Þórarinn Böðvarsson. Kirkja þessi var reist árið 1879. Þótti hún merkilegt hús.
Garðakirkja 1956.
Þegar kom fram yfir aldamótin var farið að tala um það í fullri alvöru að reisa nýa kirkju í Hafnarfirði, og var séra Jens Pálsson því mjög fylgjandi. Hann átti þá 2500 kr hjá kirkjunni, en bauðst til þess að láta þá skuld falla niður, ef söfnuðurinn vildi taka kirkjuna að sér og reisa nýtt guðshús í Hafnarfirði. Varð það svo úr, að með samningi gerðum 6. marz 1910, afhenti hann sóknarnefnd Garðakirkju til umsjónar og fjárhalds, og með þessum samningi gaf hann eftir skuld kirkjunnar við sig. Eigi varð þó úr því þá þegar að farið væri að reisa kirkju í Hafnarfirði. En það sem reið baggamuninn í því efni var stofnun fríkirkiusafnaðar í Hafnarfirði veturinn 1913, og að hafin var bygging fríkirkju bar þegar á sama ári. Þá vildi þjóðkirkjusöfnuðurinn ekki láta sitt eftir liggja og reisti þar kirkju árið eftir. Var þá ákveðið að leggia Garðakirkju niður og flytja gripi hennar í nýu kirkjuna.
Seinasta guðsþjónusta var haldin í Garðakirkju 23. sunnudag eftir trinitatis 1914 (15. nóvember), en þjóðkirkjuna nýju í Hafnarfirði vígði Þórhallur Bjarnarson biskup 20. desember sama ár.
Kom nú til orða að selja Garðakirkju til þess að afla fjár vegna kirkjubyggingarinnar, en það fórst þó fyrir. Stóð nú Garðakirkja auð og hrörnaði óðum, svo að blöskraði öllum þeim, sem báru hlýjan hug til hennar. Og árið 1916 bundust 10 menn samtökum um að bjarga kirkjunni. Það voru þeir: Ágúst Flygenring kaupmaður, Carl Proopé kaupmaður, Chr. Zimsen umboðsmaður, Einar Þorgilsson kaupmaður, Gunnar Egilsson skipamiðlari, Jes Zimsen kaupmaður, Jón Einarsson verkstjóri, dr. Jón Þorkelsson, Sigurgeir Gíslason verkstjóri og Þórarinn Egilsson útgerðarmaður. Eru þeir nú allir látnir, nema inn síðast nefndi. Einhver viðgerð fór nú fram á gömlu kirkjunni, en dugði lítt. Tímans tönn nagaði viði kirkjunnar jafnt og þétt, þótt lítið bæri á.
Seinast var svo komið, að menn óttuðust að turninn mundi hrynja. Þá var hann rifinn, þakið tekið af og allt rifið úr kirkjunni innan veggja. Síðan hefur steintóttin staðið þarna gnapandi um langa hríð, en hún hefur látið furðu lítið á siá. Vindar hafa gnauðað á henni, regnið hefur lamið hana, frost og snjór hafa kreist hana köldum greipum, en hún stóðst allt þetta. Má á því sjá hve vel hefur verið gengið frá veggjunum. Eru þeir og snilldar vel hlaðnir, og skyldi steinninn hafa verið límd ur með kalki úr Esjunni, þá þarf engan að undra þótt kirkjurústin hafi staðið af sér öll veðraáhlaup um mörg ár, því að það kalk hefur reynzt óbilandi. Sama sumarið og Garðakirkja var reist, var reist steinhús í Reykjavík og límt með Esjukalki. Það stendur enn í Lækjargötu og sér ekki nein ellimörk á því, enda þótt það sé 75 ára gamalt. Eins hefði kirkjan getað staðið enn hnarreist og tíguleg, ef henni hefði verið sómi sýndur.
Stifnishólar.
Þótt marga tæki það sárt hvernig fór um Garðakirkju, þá var eins og örlög hennar væri orpin þögn og hyldist í einhverri móðu. Það var engu líkara en að Hverfisdraugarnir sem séra Guðlaugur Þorgeirsson í Görðum, setti niður í Stíflishólum á leiðinni milli Hafnarfjarðar og Garða fyrir tvö hundruð árum, hefði losnað og villtu nú mönnum sýn hálfu meir en þeir höfðu áður gert. Það var eins og aðalsöfnuðurinn, sem nú átti heima í Hafnarfirði, gæti ekki séð út að Görðum. En öldruðu fólki úr Garðahverfinu, sem fór til kirkju inn í Hafnarfjörð, vöknaði jafnan um augu er það gekk fram hjá rústum Garðakirkju. Nú er niðurlægingar tímabil gömlu Garðakirkjunnar senn á enda. Hún verður bráðum færð í sinn fyrra búning. Árið 1053 var Kvenfélag Garðahrepps stofnað, og á stofnfundi þess var þegar rætt um, að eitt af því sem félagið ætti að beitast fyrir, væri að reisa Garðakirkju úr rústum.
Síðan hafa 60 samhuga konur unnið að þessu í kyrrþey. Og þar sem konurnar leggjast á sveif, á við gamla vísan: Fram skal ganga haukur núna hvort hann vill eður ei. Hér mun og svo fara. Það er eins og sérstök blessun hafi fylgt þessu máli. Fjöldi manna, sem ber hlýjan hug til Garðakirkju, en hafði gleymt henni, hefur nú vaknað við, er konurnar voru komnar á stað, og ýmist lagt fram fé, eða lofað fé til viðreisnar kirkjunni. Aðrir munu á eftir koma. Og sóknarnefndin hefur þegar afhent félaginu kirkjurústina til eignar. Konurnar hafa fengið sérfróða menn til þess að athuga veggina til þess að ganga úr skugga um, að þeir sé enn svo sterkir að forsvaranlegt sé að byggja ofan á þá. Og veggirnir hafa staðizt prófið. Verður nú brátt hafizt handa um að gera við veggina og koma þaki á kirkjuna. Er það ætlan Kvenfélagsins að gera kirkjuna aftur sem allra líkasta því er hún var áður, meðan hún var ein af snotrustu og merkilegustu kirkjum landsins. En þegar því er lokið er það annarra en Kvenfélagsins að ákveða hvort hún skuli gerð að sóknarkirkju aftur.
Garðahverfi – horft frá Hvaleyri 2024.
Margar minningar eru bundnar við Garða, og sú ekki sízt, að þar fæddist Jón biskup Vídalín árið 1666. Finnst mönnum ekki eðlilegt að kirkja ætti að vera einmitt á þeim stað, þar sem áhrifamesti kennimaður íslands fæddist? Garðakirkja var upphaflega helguð Pétri postula, þeim mikla kennimanni frumkristninnar. Nú þegar hún rís af grunni aftur, þá mætti hún vel heita Vídalínskirkja. – Á. Ó.“
Heimild:
-Ísl. fornr. XI: 112.
-Ísl. fornr. I: 58-9, 78, 332.
-Ísl. fbrs. XII: 9.
-Ísl. fbrs. I: 498.
-Ísl. Fbrs. I:41-2, 313.
-Lesbók Morgunblaðsins 25. sept. 1955, bls. 519-521.
Fimmta eldgosið ofan Grindavíkur á sex mánuðum
Eldgos hófst af miklum krafti við Sundhnúk ofan Grindavíkur klukkan 12:46 í dag, 29. maí 2024.
Sundhnúkur, eldgos 29. maí 2024.
Gosmökkurinn var mikill í upphafi goss og náði upp í um 3,5 km hæð. Gosið er greinilega stærst gosanna í þessari hrinu. Umfangs hraunsins gæti orðið um 5-5,5 ferkílómetrar. Væntanlega mun draga úr gosinu fljótlega. Nú þegar er kominn upp meira en helmingur þeirrar kviku sem hafði safnast á svæðinu.
Þetta er áttunda hrinan í röð eldgosa á sama sveimi síðan 2021. Þrjú hinna áttu uppruna sinn í Fagradalsfjalli skammt norðaustar – hæfilega fjarri byggð. Eða eru þetta bara eitt og sama gosið – með hléum?
Sundhnúkur – eldgos 29. maí 2024.
Fyrsta eldgosalotan ofan Grindavíkur var 18. desember 2023, önnur 14. janúar 2024, þriðja 8. febrúar 2024 og það fjórða 16. mars 2024. Fyrstu goshrinurnar þrjár voru skammvinnar, vöruðu einungis í rúman sólarhring og sú fjórða varði í u.þ.b. tvo mánuði – lauk þann 9. maí sama ár, eftir 54 daga dugnað.
Líklegt er að þessi hrina verði svolítið langlífari í tíma talið, þótt skammvinn verði, að mati sérfræðinga. Eitt er þó víst – við getum átt von á nýju landslagi ofan Grindavíkur með nýjum ófyrirséðum framtíðarmöguleikum.
Sundhnúkur – eldgos 29. maí 2024.
Gosið er nokkrun veginn á sömu slóðum og fyrri gos á þekktri sprungureininni. Það ætti að þykja heppileg staðsetning m.t.t. byggðarinnar í Grindavík og að merkilegri megininnviðum standi tiltölulega lítil ógn af gosinu. Fyrstu klukkustundirnar munu þó skera úr um það. Hraunið er óvenju þunnfljótandi og rennur því hratt undan hallandi landinu í átt að mikilvægum innviðum, s.s. ratsjárstöð sjóhers Bandaríkjanna. Eyði hraunflæðið stöðinni hefur farið fé betra. Hún er byggð í áður eyddum Eldvörpum er nýst geta til uppbyggingar bæjarins til lengri framtíðar litið.
Náttúruöflin eru ólíkindatól. Þótt þetta eldgos, líkt og hin fyrri, hafi virst óálitlegt tilsýndar, við fyrsti sýn, getur það boðið upp á nýja og óvænta möguleika. Spurningin er bara, fyrir okkur hin, að reyna að hugsa til lengri framtíðar og nýta það sem í boði verður…
Sjá myndir úr eldgosunum fimm við Sundhnúk.
Sundhúkur – eldgos…
Hverafuglar
Árni Óla fjallar um „Hverafugla“ í Lesbók Morgunblaðsins árið 1972:
„Ein af furðum Íslands eru hinir svonefndu hverafuglar. Engar frásagnir höfum vér um, hve langt er síðan menn veittu þeim fyrst eftirtekt, en fyrir 200—250 árum er þeirra viða getið. Þeirra hefir helzt orðið vart í Árnessýslu, en ekki ber lýsingum manna nákvæmlega saman um hvernig þeir eru í hátt. Öllum ber þó saman um, að þetta séu sundfuglar ogr dökkir á lit og líkja flestir þeim við litlar endur. En það einkennilegasta við þá er þetta, að þeir hafast við á bullandi heitum hverum, synda þar og stinga sér jafnvel niður i ólguna.
Reykjanes – Gunnuhver.
Þetta hefir nú mörgum þótt ótrúlegt, sem von er, og í héruðum sem þeirra hefir ekki orðið vart, neita menn algjörlega að trúa því að þeir séu til og kalla þetta ofsjónir. En sögur um fuglana hafa endurtekið sig í sífellu, því að menn hafa séð þá hvað eftir annað, og þar á meðal glöggir og málsmetandi menn, sem ekki er gott að væna um ósannsögli. Ég mun nú rekja það helzta, sem ég hefi fundið skráð um þessa undarlegu fugla, og klykkja svo út með frásögnum tveggja núlifandi manna, sem hafa séð þá…
Hálfdan Jónsson lögréttumaður á Reykjum í Ölfusi ritaði lýsingu sveitarinnar 1703. Þar minnist hann á hver, sem sé rétt við alfaraveginn frá Hveragerði upp á Hellisheiði. Hann segir að hver þessi sé með bergi að austanverðu en sandmel annars staðar, en þar sé um tveggja álna hátt niður að vatni.
Hverinn sé kringlóttur og víður sem lítið hús. Hann er bullandi með smásuðu, djúpur mjög og dimmur að sjá. Á þessum hver hafa skilríkir og sannorðir menn, sem um veginn fóru, séð tvo fugla synda, að vexti sem litlar andir, með kolsvörtum lit og hvítum baugum kringum augun. Þá þessir fuglar hafa um litinn tíma synt á hvernum, hafa þeir stungið sér og síðan komið upp aftur öllum, sem fuglana hafi séð, beri saman um þetta. Snorri Björnsson prestur á Húsafelli ritaði bækling um náttúru Íslands. Hann segir að hverafuglar séu algengir, en mjög styggir.
Austurengjahver.
Þó hafi þeir nýlega verið skotnir á Reykjum í Biskupsbungum, og höfundurinn lýsir einum, sem nafnkunn skytta, Teitur Björnsson, hafi skotið á Gunnuhver á Reykjanesi. Segir hann að fuglar þessir syndi á sjóðandi vatni og stingi sér í það. Kroppur þeirra soðnar ekki í heitu vatni, en ef ísköldu vatni er á þá hellt, þá verða þeir eftir 1 1/2 klukkustund sem soðnir séu. Fuglar þessir eru þó ætir, en nokkuð kuldabragð er að þeim.
Jón Ólafsson Grunnvíkingur segir frá hverafuglum í Ölfusi, og segir að einfaldir menn haldi, að þeir séu sálir fordæmdra.
Hengill – heitir hverir.
Ekki segist hann mundu hafa trúað því að slíkir fuglar væru til, ef ráðvandir og trúverðugir menn hefðu eigi sagt sér, og þeir jafnvel sumir lærðir. En eflaust sé margt í náttúrunni, sem vér ekki skiljum, og ekki sé alltaf rétt að neita einhverju, af því að menn hafi ekki séð það sjálfir.Þorsteinn Magnússon sýslumaður ritaði lýsingu Rangárvallasýslu 1744. Hann segir um hverafugla, að þegar þeir stingi sér, sjáist þeir ekki aftur á sama hver í það sinn.
Brynjólfur Sigurðsson sýslumaður ritaði lýsingu Árnessýslu 1743 og talar þar um hverafugla á Reykjalaug í Ölfusi, segist reyndar ekki hafa séð þá, en áreiðanlegir menn hafi sagt sér frá þeim. Þeir stinga sér á kaf í hverinn og eru á stærð við tittlinga, svartir með dökkum dröfnum.
Segir hann að fuglar þessir hafi horfið við jarðskjálftann 1734 og ekki sézt síðan. Eggert Ólafssyni verður talsvert skrafdrjúgt um hverafuglana og segir svo frá í Ferðabókinni: Grafarhver í Hreppum er víður og sýður mikið í honum. Það er merkilegt við hver þennan, að menn fullyrða, að þeir hafi séð fugla synda þar á sjóðandi vatninu. Ef þetta er satt, þá er þar um að ræða einn af leyndardómum náttúrunnar. Menn eru ekki á eitt sáttir um stærð þessara fugla. Sumir segja að þeir séu á stærð við hrafna, aðrir að þeir séu eins og litlar andir, og enn halda sumir því fram, að þeir séu ekki stærri en lóur. Sjaldan sjást fleiri en tveir í einu.
Litnum gátu menn heldur ekki lýst með neinni nákvæmni, en flest um kom þó saman um að þeir væru dökkleitir. Akrahvera (í Hveragerði) er oft getið í sambandi við hina svonefndu hverafugla. Okkur auðnaðist ekki að sjá þá. Fórum við þó oft að hverunum og biðum þar tímunum saman. En bæði núlifandi menn og eins forfeður þeirra þykjast hafa séð fugla þessa bæði á Akrahverum, Grafarhver og Hvernum eina í Gullbringusýslu og fleiri stöðum. Hálfdan Jónsson staðfestir það um hverina í Ölfusi, að margir skilorðir menn, ýmist nýdánir eða samtíðarmenn hans, hafi séð þessa fugla greinilega.
Kleifarvatn – botnhverir.
Enn lifa menn, sem hafa séð hverafugla og fullyrða þeir, að fuglarnir syndi ekki einungis, heldur stingi þeir sér, þegar komið sé nálægt hvernum og séu langan tíma i kafi og komi stundum ekki upp aftur. Þeir sjást ekki að staðaldri og oft líða 3—4 mánuðir milli þess að þeir sjást og sumir, sem búa þar í grennd, hafa aldrei séð þá. Þeir sjást einungis á tilteknum hverum og helzt á stórum hverum og djúpum og sjást þeir einnig á vetrum.
Hverafuglar er sagt að oft hafi sézt á Hvernum eina. Er hann þá eini leirhverinn, sem slíkt fágæti er sagt um. Sagt er að þeir stingi sér, þegar menn koma á hverbarminn, en þeim er lýst með nokkuð öðrum hætti hér en annars staðar. Þeir eru sagðir alsvartir, að eins á stærð við smáendur, fiðurlausir, með litlum vængjum.
Þessar ólíku lýsingar gera allar sagnir um hverafuglana grunsamlegar. Af þeirri orsök o.fl. hefir Horrebow ekki viðurkennt hverafuglana, og er honum það ekki láandi. Við erum enn í vafa um þá. Annars minnist ég þess, að maður á Reykjum í Ölfusi sagði mér, að ekki hefðu sézt fuglar á Reykjahver síðan jarðskjálftinn 1734 breytti landinu, en fyrir þann tíma hefðu þeir verið algengir.
Síðan segir Eggert frá eigin brjósti: Hver má trúa því, er honum trúlegast þykir um hverafugla þessa. Langfæstir Íslendingar trúa því, að hér sé um raunverulega fugla að ræða. Sumir halda að þetta sé einungis ímyndun eða missýningar, fram komin af myndum þeim, sem stundum koma fram í hveragufunni yfir vatninu. Aðrir haldi að það séu draugar, en fáeinir, og það helzt gamlir menn halda að fuglarnir séu sálir framliðinna, sem fengið hafa þessa mynd á sig. Er sú trú víst ævagömul. Við viljum ekki blanda okkur í þær deilur. En við treystumst ekki til að bera brigður á almenna sögn, sem staðfest er með frásögn af því, sem fjöldi trúverðugra manna hefir séð — og segja að þetta sé ekki neitt.
En ef við hins vegar ætlum að telja þetta náttúrulega fugla, þá veldur það allmiklum vandræðum, jafnvel þótt fuglarnir haldi sig ekki í sjóðandi vatni, heldur syndi aðeins skamma stund á því og stingi sér ef til vill aðeins til þess að skriða niður í holur í jörðinni, líkt og keldusvínið. Fiður þeirra Og hin harða húð á nefi þeirra og fótum, gæti ef til vill þolað hitann og jafnvel haldið vatninu frá líkama þeirra. En hvað á þá að segja um augun? Þau hlytu að vera með allt öðrum hætti en augu annara dýra, er menn þekkja, ef þau ættu að þola þennan hita. Því kynni að vera svarað þannig, að salamöndrur hafi einnig augu, en nú hafa nýjustu rannsóknir sýnt, að þær dveljast alls ekki í eldi, heldur hlaupa einungis af skyndingu gegnum bál. En þetta eru þó ekki einu vandræðin, sem leysa þarf úr. Enn mætti einnig spyrja hversu hátt að væri blöði þessara fugla.
Blóð fugla er yfirleitt létt og margir sjófuglar geta ekki kafað vegna þess hve léttir þeir eru. En þar til má svara því, að hveravatn er öðru vatni léttara, en andir eru yfirleitt þungir fuglar. Hitinn í hverunum veldur þó mestum erfiðleikum, ef skilja á, að lifandi fuglar geti haldizt við í þeim. En þótt fiður fuglanna og líkami hrindi vatninu frá sér, þá hlýtur það þó að hitna, en ef hitinn í umhverfi dýranna, hvort heldur það er loft eða annað, verður meiri en innihiti: dýrsins, er hann því banvænn.
En þetta á einkum við um blóðheit dýr, eða þau sem hafa tvíhólfa hjarta og anda að sér lofti.
Hreindýr.
Ef menn hins vegar vilja gera skriðdýr úr hverafuglum, þá er ef til vill auðveldara að skýra tilveru þeirra. En ef þetta eru venjulegir fuglar, þá eru þeir í sannleika mikil og furðuleg nýjung í náttúrufræðinni. Þannig fórust þá hinum kunna vísindamanni orð. Hann viðurkennir, að tilvera þessara hverafugla sé sér óskiljanleg, en hann er svo samvizkusamur, að hann við ekki dæma ósanna vitnisburði fjölda manna, kalla þá skrök, ofsjónir eða ímyndanir, eins og mörgum er hætt við þegar líkt stendur á.
Nær hálfri annarri öld seinna ferðaðist annar íslenzkur vísindamaður um allt Ísland, dr. Þorvaldur Thoroddsen. Hann minnist á hverafugla í ritum sínum og segir á einum stað: Þessi þjóðsaga um hverafugla hefir lengi haldizt.
Ég hefi sjálfur talað við alþýðumenn, sem eru sannfærðir um, að slíkir fuglar séu til og þykjast jafnvel hafa séð þá. Og trúin á hverafugla lifir áfram í landinu, studd af nýjum og nýjum vitnisburðum manna, sem höfðu séð þessa kynjafugla.
Árið 1955 kom út bókin „Dulrænar smásögur“, sem fræðimaðurinn Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi hafði safnað, en Guðni mag. Jónsson sá um útgáfu bókarinnar. Sjöundi kafli hennar nefnist „Dulardýr“ og fylgir honum svolátandi athugasemd: „Því er þessi flokkur látinn fylgja hér með, að enn sem komið er vantar vísindalega vissu fyrir tilveru slíkra dýra, eða hvernig er á því háttur, að menn hafa orðið þeirra varir. Og á meðan verða þau að teljast með hinu dularfulla.“
Hverir við Kleifarvatn.
Þarna eru meðal annars frásagnir manna og kvenna af hverafuglum sem þeir höfðu séð. Fer þar ekkert milli mála, því að Brynjúlfur hafði skráð frásagnirnar af þeirra eigin munni. Hér skal nú rakið efnið í sögum þessum:
Fyrstu söguna hefir Brynjúlfur eftir Vigfúsi Þorvarðarsyni í Hákoti í Flóa. Vigfús sagði svo frá, að hann var eitt sinn að koma úr skreiðarferð og var kominn austur yfir Hellisheiði að Hveragerði. Kom hann þá að „tæra hvernum, sem er milli gamla vegarins og nýja“.
Og sem hann kom þar, sá hann fugl synda á hvernum, móbrúnan að lit og litlu stærri en spóa. Þegar Vigfús átti eftir 9—10 faðma að hvernum, stakk fuglinn sér og sá Vigfús á eftir honum ofan í vatnið, og bar hann svo brátt að hvernum að hann sá einnig hvernig loftbólur komu upp af fuglinum. — „Hann var stilltur maður og fámáll og talinn áreiðanlegur,“ segir Brynjúlfur, „og eið kvaðst hann geta lagt út á þetta.“
Næsti sögumaður var Gísli sýslnefndarmaður Magnússon í Króki í Grafningi. Hann sagði svo frá, að vorið 1887 hefði hann verið að smala kindum sínum til rúnings og var kominn kl. 8 að morgni að Ölkelduhálsi, að stóra hvernum „sem er til hægri handar, þegar menn fara veginn milli hrauns og hliða úr Grafningi til Reykjavíkur.“
Hverir við Kleifarvatn.
Og er hann átti eftir 12—14 faðma að hvernum, sá hann fugla þar á sundi. Hann segir að sér hafi brugðið svo við þessa sýn, að hann hafi lokað augunum til þess að vita hvort þetta væri ekki missýning. En er hann lauk upp augunum aftur, sá hann að fuglarnir voru þarna enn og lýsti hann þeim svo: „Mér virtist stærðin á þeim vera heldur frekari en á litlu stokkönd. Liturinn var dökkmógrár, lítið ljósari á bringunni og undir kverkinni. Nefið sýndist mér frammjótt og hvasst. Þeir höfðu nokkuð hratt sund. Ekki sá ég þá hreyfa vængina. Þegar ég færðist nær, stungu þeir sér báðir þar nálægt, sem suðan bungaði mest upp í hvernum. Ég sá þá ekki aftur, enda stanzaði ég ekki við hverinn.“
Síðan lýsir hann hvernum, en segir að hann hafi breytzt nokkuð í jarðskjálftanum 1896, en haldi þó að mestu sama útliti og áður.
Þriðja sagan er höfð eftir Steinunni Guðmundsdóttur, vinnukonu á Ölfusvatni. Hún mundi ekki fyrir víst hvenær hún sá fuglana, en taldi að það mundi hafa verið um 1857. Hún var þá að raka slægju rétt hjá stóra hvernum á Ölkelduhálsi (þar sem Gísli sá fuglana). Kvaðst hún hafa orðið hrædd, er hún sá þá synda á sjóðandi vatninu. Sagði hún að þeir hefðu verið dökkgráir að lit, með beinan háls nokkuð háan. Hún sá þá synda lengi á hvernum, en hvorki sá hún þá stinga sér né fljúga og ekki hreyfa vængi.
Ölfusölkelda.
Fjórða sagan er höfð eftir Sigríði Hannesdóttur húsfreyju í Króki í Grafningi. Kvaðst hún hafa heyrt Ámunda heitinn Einarsson, í Miðengi í Grímsnesi, segja frá því, að hann hefði séð tvo fugla á hvernum á Ölkelduhálsi synda þar saman og síðan stinga sér í suðuna. Hún kvaðst hafa spurt Jón Hjaltalin landlækni hvaða fuglar þetta hefðu getað verið, og hafi hann þá svarað, að það væri sérstakt andakyn.
Af tilviljun hafði ég spurnir af tveimur mönnum, sem enn eru á lífi og hefir hlotnazt sú reynsla, oftar en um sinn, að sjá hverafugla. Annar þeirra er Ingólfur Þorsteinsson yfirlögregluþjónn í Reykjavík, en hinn er Guðmann Ólafsson bóndi á Skálabrekku í Þingvallasveit. Ég fór á fund Ingólfs og spurði hann hvað hæft væri í þessu. Hann sagði mér þá fróðlega og ítarlega frá reynslu sinni, og auk þess útvegaði hann mér umsögn Guðmanns um hvað fyrir hann hafði borið.
„Mér þykir vænt um,“ sagði Ingólfur, „að þú skulir vera að forvitnast um þetta. Mér er engin launung á því að ég er sannfærður um, að hverafuglar eru til, hvað sem almannarómur segir um það. Ég trúi betur mínum eigin augum heldur en því sem aðrir fullyrða um það, sem þeir hafa hvorki séð né heyrt. Um hitt vil ég ekkert fullyrða hvers kyns þessir hverafuglar eru, og í vitund minni er hér ekki um neina furðufugla að ræða, að öðru leyti en því, að þeir þola að synda og kafa í sjóðandi vatni. Annars býst ég við því, að þeir séu svipaðir öðrum fuglum og það muni sannast þegar náttúrufræðingum tekst að koma höndum á þá.“
Ingólfur ólst upp á Nesjavöllum í Grafningi, uppeldissonur hjónanna Brynjólfs Magnússonar og Þóru Magnúsdóttur, sem þar bjuggu lengi. Hann vandist öllum sveitastörf um í æsku, og vegna fjárgæzlu átti hann margar ferðir fram og aftur um landareignina, jafnt uppi í fjöllum sem á láglendi, og var því gjörkunnugur á þessum slóðum.
Og það var einmitt í landi Nesjavalla að hann komst í kynni við hverafuglana. En frásögn hans um það er á þessa leið: Þegar ég var á 11. og 12. árinu sá ég tvívegis fugla synda á sjóðandi hver og stinga sér hvað eftir annað í ólgandi suðuna. Þessir atburðir gerðust með rúmlega eins árs millibili á hverasvæðinu norðan í Hengli, en það hverasvæði er í landi Nesjavalla.
Ölfusölkelda.
Í fyrra skiptið sem ég sá þessa fugla, var ég að smala og var einn á ferð. Það var vorið 1911. Ég var á gangi meðfram læk, sem rann eftir hvera svæðinu og var vatnið í honum snarpheitt, en ekki sjóðandi, þótt nokkur hluti þess væri kominn úr sjóðandi uppsprettum.
Allt í einu flugu þá tvær andir þarna upp af læknum, örskammt frá mér, en ég hafði ekki veitt þeim athygli fyrr en um leið og þær flugu upp af læknum. Ég hafði oft farið um þetta hverasvæði áður, en aldrei séð þar neina sundfugla, og sreip mig: þegar undrun að fuglar skyldu vera þarna á læknum svo heitur sem hann var. Auk þess var lækurinn svo lítill að ekki var líklegt að fuglar gætu synt á honum nokkuð að ráði, þótt auðvelt hefði verið fyrir þá að baða sig í honum.
Undrun mín varð þó enn meiri er ég sá fuglana fljúga beinustu leið að stærsta hvernum þarna á hverasvæðinu og hlamma sér niður á hann. Ég hefi þá verið í aðeins 40—50 metra fjarlægð frá hvernum þeim. Hann var langstærstur hveranna þarna og allir vissu að hann var sjóðandi heitur. Suðuólgan var svo mikil í honum, að hvinurinn í henni heyrðist góðan spöl í allar áttir. Hann er um 5 metrar að þvermáli, eða jafnvel meira. Umhverfis hann eru nokkuð háir, leirkenndir moldarbakkar, og vatnið í honum er mjög leirborið. Ég flýtti mér á eftir fuglunum til þess að athuga það nánar hvort þeir hefðu steypt sér beint niður í sjóðandi hverinn. Og þegar ég kom að hverabakkanum, sá ég að fuglarnir syntu fram og aftur um hverinn og svo stungu þeir sér hvað eftir annað á miðjum hvernum á meðan ég gekk umhverfis hann. Aldrei voru þeir nema örstutta stund í kafi hverju sinni, en augljóslega stungið þeir sér til þess að forðast mig, eins og algengt er að sundfuglar geri á vötnum og tjörnum, þegar þeir verða varir mannaferða. Ég gekk aðeins einn hring umhverfis hverinn og lofaði fuglunum síðan að vera í friði.
Hverasvæði.
Svo var það á engjaslætti sumarið 1912, að ég sá þarna alveg sams konar fugla öðru sinni á sama stað. Þá var í fylgd með mér unglingspiltur, einu eða tveimur árum eldri en ég. Hann hét Sigurbergur Elísson og var á sínum efri árum verkstjóri hjá Gatnagerð Reykjavíkur. Við höfðum verið sendir til að snúa heyi, sem slegið hafði verið á nokkrum grasblettum þarna á hverasvæðinu. Leið okkar lá meðfram fyrrgreindum læk og flugu þá fuglarnir upp af læknum á svipuðum stað og í fyrra skiptið, og enn flugu þeir hratt og beint á stóra hverinn og settust á hann. Við strákarnir eltum þá þangað og sáum þá báðir, þar sem þeir syntu á hvernum. Þeir stungu sér þá einnig, hvað eftir annað, eins og áður og höguðu sér blátt áfram á sama hátt og þeir höfðu gert, er ég sá þá í fyrra skiptið.
Fuglarnir voru á stærð við litlar endur, móbrúnir á lit og þó fremur dökkir, en aðeins ljósari framan á bringunni og á hálsinum. Þeir flugu með mjög hröðum vængjablökum, eins og öndum er tamt. Vængir voru stuttir, en um vaxtarlag og hreyfingar líktust þeir mjög algengum andategundum af álíka stærð.
Í fyrra skiptið sem ég sá fuglana, sagði ég fósturmóður minni frá því þegar heim kom. Hún bað mig þá að segja engum frá þessu, því að þetta gæti ekki verið rétt. Annað hvort hlyti mig að hafa dreymt þetta, eða missýnzt hrapallega. Ég var hins vegar sannfærður um, að hvorki var um draum né missýningu að ræða, heldur hafði ég með fullri rænu og með mínum eigin augum horft þarna á lifandi fugla og athæfi þeirra, þótt það þætti ótrúlegt. Afstöðu fóstru minnar hefi ég þó fullkomlega skilið og gert mér grein fyrir því, að það getur verið mjög óheppilegt fyrir mann að segja frá því, sem enginn getur trúað, þótt hann viti sjálfur að dagsatt sé.
Ölkelduháls – hverasvæði.
Það var ekki fyrr en nokkrum áratugum eftir að ég sá þessa fugla, að ég varð þess vísari, að til voru staðfestar frásagnir annarra manna, sem höfðu séð fugla synda á sjóðandi hverum, og þessar frásagnir las ég í bókinni „Dulrænar smásögur“ eftir Brynjúlf frá Minna-Núpi.
Enn var það nokkrum árum seinna, að ég fór sem oftar að heimsækja vin minn Guðmann Ólafsson á Skálabrekku. Hann hefir búið þar um margra ára skeið, en átti áður heima í Hagavík í Grafningi og er það næsti bær við Nesjavelli. Foreldrar hans bjuggu þar á þriðja og fjórða tug aldarinnar.
Hengill og hverasvæðið norðaustan í honum sést mjög vel frá Skálabrekku þegar bjart er veður. Og er ég nú var þar staddur, bar mikið á gufu upp af hverasvæðinu. En það er misjafnt og fer eftir veðurfari hvað gufan er áberandi.
Ég hafði því orð á því við Guðmann, að í æsku hefði mér verið sagt að það vissi á rigningu, þegar mikill gufureykur væri úr hverunum. Guðmann tók ekki undir þetta, en leit einkennilega til min og sagði: „Heyrðu, sást þú aldrei fugla á hverunum í Henglinum?“ Mér kom þetta á óvart, því að á þetta hafði aldrei verið minnzt okkar í milli, þrátt fyrir kynni okkar og vináttu allt frá barnsárum. Ég mun því hafa litið eitthvað kankvíslega til Guðmanns er ég svaraði bonum og sagði: „Sást þú þá kannski líka?“ Þá sagði Guðmann, að þegar hann var í Hagavík og var í smalamennsku á vorin, hefði hann margsinnis séð fugla synda á sjóðandi hverum, og man ég að hann nefndi sérstaklega í því sambandi stóra hver inn á Ölkelduhálsi.
Nú stóð svo á, þegar við vorum að ræða um þetta, að við sáum einnig mikla gufu upp af stóra hvernum á Ölkelduhálsi, sem er nokkuð austan við Hengil, og vissum við báðir hvar þessi stóri hver var. Ég spurði Guðmann hvort hann hefði komið oft að hvernum og kvaðst hann hafa komið þar nokkrum sinnum, en ekki muna með neinni vissu hve oft hann hefði séð þar hverafugla.
Guðmann lýsti fyrir mér fuglinum, sem hann sá og virtist mér sú lýsing eins geta átt við fuglana, sem ég sá á hverasvæðinu í Hengli. Það kom einnig fram í þessu samtali okkar Guðmanns, að þessi vitneskja um hverafuglana hafði verið honum, ekki síður en mér, nokkurt feimnismál, sem varhugavert væri að tala um við nokkurn mann, enda hafði móðir Guðmanns, er hann sagði henni frá fuglunum, tekið alveg sömu afstöðu til þess eins og fóstra mín. En móðir Guðmanns og fóstra mín voru systur, og báðar vel greindar konur.
Í Landmannalaugum.
Þannig sagðist Ingólfi frá. Og þá bað ég hann að reyna að ná til Guðmanns og fá sjálfs hans frásögn af hverafuglunum. Ekki stóð á því, og Guðmann sendi bréflega eftirfarandi frásögn: Ég var barn að aldri er ég heyrði fyrst talað um hverafugla, eða endur, sem syntu á heitum hverum. Margar sagnir eru um þessa fugla og einhvers staðar las ég frásögn um að prestur nokkur austan úr sveitum hefði verið á ferð í Hveragerði og séð þar fugla synda á hver. Almenningur trúði ekki þessum sögnum. Þær voru sem þjóðsögur. En margt getur verið satt í þjóðsögunum. Sjálfur hefi ég séð andir synda á sjóðandi hverum. Það var annaðhvort sumarið 1923 eða 1924 að ég sá þessa fugla fyrst í Hagavíkurlaugum við Hengilinn. Þa syntu þeir á tærum hver, eina tæra hvernum á þessu hverasvæði. Ég sá þá úr nokkurri fjarlægð en fór ekki nógu gætilega, því að þeir flugu upp áður en ég komst nálægt þeim. Mér sýndist þetta vera fremur litlir fuglar, dökkir á lit. Þessi tæri hver var svo heitur, að enginn maður þoldi að dýfa hendi niður í hann.
Eftir þetta fór ég að hafa mikinn áhuga á þessum fuglum og oft lagði ég lykkju á leið mína, ef ég fór nálægt hverum. Mörg ár liðu og aldrei gat ég komið auga á þessa fugla. Einu sinni hafði ég þó heppnina með mér. Það var um sumar laust fyrir 1930. Ég var þá á leið að Kolviðarhóli „milli hrauns og hlíða,“ sem kallað var. Á svonefndum Ölkelduhálsi er stór leirhver og er hann spölkorn frá götunni. Ég hafði oft komið að hver þessum áður, en í þetta sinn syntu tveir fuglar á honum. Nú komst ég svo nærri þeim, að ég sá þá greinilega. Þeir voru litlir, dökkir, þó ekki alveg svartir, heldur stærri en 1óa, en ekki beint líkir henni, stélstuttir, hálsinn beinn upp og fremur stuttur, bústnir, með áberandi slétt fiður. Þarna syntu þeir á sjóðandi heitum hvernum.
Í þriðja og síðasta skipti sá ég fuglana 1934 eða 1935, og voru þeir á tæra hvernum í Hagavíkurlaugum, en þá komst ég ekki eins nærri þeim og á Ölkelduhálsinum. Ég hefi oft athugað endur, sem ég hefi séð á vötnum og ám, en aldrei rekist á neinar, sem líkjast þessum fuglum.
Þannig eru þá frásagnir þessara tveggja manna, sem enn eru uppi og voru svo heppnir að sjá hverafugla, en báðir látið hljótt um það, vegna þess að þeim var bannað á heimilunum að segja frá því. Þeir sáu þessa fugla á árunum 1911—1935. Vel má vera, að síðan hafi ýmsir orðið varir við fuglana, en þagað um það, svo að þeir ættu ekki á hættu að verða fyrir háðsglósum vegna hjátrúar og missýninga. Fordómar almennings eru oft bitrir og illt að fá þá yfir sig, nema menn minnist þess, hvernig þeir Grunnavíkur-Jón og Eggert Ólafsson tóku í þetta mál.
Innstidalur – Hveragil.
Nafnið hverafuglar mun vera orðið nokkuð gamalt, en það gefur enga bendingu um hver sú fugdategund er, sem það á við. Fuglarnir eru aðeins kenndir við hveri, en það er villandi, vegna þess að það gæti bent til þess, að fuglar þessir hafi aðsetur við alla hveri á landinu. En því fer fjarri. Þeirra hefir ekki orðið vart nema á tiltölulega litlu svæði og aðallega í Árnessýslu og jafnvel virðast þeir ekki vera að staðaldri á þeim hverum, þar sem þeirra hefir orðið vart, heldur bendir allt til þess, að þeir komi þar aðeins við endrum og sinnum. Á öðrum tímum hljóta þeir því að hafast við annars staðar.
Lýsingum á fuglunum ber ekki saman, nema um sumt, og fátt um þá vitað með vissu annað, en þetta eru sundfuglar sem geta kafað, og að þeim svipar mest til andarkyns um vaxtarlag og flug, enda munu þeir upphaflega verið nefndir hveraandir. Það nafn hefir þó lagzt niður, líklega vegna þess að ekki hefir þótt viðeigandi að ættfæra þá þannig. Í Orðabók Blöndals eru þeir kallaðir hverafuglar og fylgir þar þessi skýring: „Samkvæmt þjóðtrúinni eru það einhverjir fuglar, sem talið er að hafist við á heitum hverum.“ Og samskonar upplýsingar er að fá í Orðabók Árna Böðvarssonar. Það væri fróðlegt að vita hvenær nýjar fregnir berast af þessum hverafuglum, og hvort menn verða þá ekki einhverju nær um hvers kyns þeir muni vera.“
Heimild:
-Lesbók Morgunblaðsins 28. maí 1972, bls. 2-3 og 14 og 16.
Kleifarvatn – hverir.