Nýlega fór fram einstaklega áhugavert fræðslukvöld í Saltfisksetrinu í Grindavík undir yfirskriftinni „Reykjanesfólkvangur – Reykjaneshryggur“. Fræðslukvöldið var liður í Viðburðardagskrá Grindavíkur 2008. Efni kvöldsins átti einkar brýnt erindi til áhugasamra sveitarstjórnarmanna, en enginn þeirra lét sjá sig. Viðstaddir gestir voru engu að síður mjög ánægðir.
Sigrún Helgadóttir líf og umhverfisfræðingur og dr. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskólans héldu sinn hvorn fyrirlesturinn um Reykjanesskagann, annars vegar þann hluta hans er fellur undir Reykjanesfólkvang og hins vegar framhald hans til suðurs, Reykjaneshrygginn.
Sigrún lýsti mjög vel núverandi möguleikum Reykjanesfólkvangs, bæði sem víðerni og nálægð við þéttbýliskjarna, og möguleika hans til næstu framtíðar. Fram kom að mikilvægt væri að reyna að skila svæðinu eins óröskuðu og nokkurs væri kostur til komandi kynslóða því verðmæti þess munu aukast í réttu samhengi við ásókn fólks í óspillt umhverfi.

Reykjanesfólkvangur – loftmynd.
Stofnun Reykjanesfólkvangs er samofin sögu náttúruverndar á Íslandi. Framkvæmdir við Grænavatn í Krýsuvík áttu þátt í að menn áttuðu sig á mikilvægi þess að almenn náttúruverndarlög giltu í landinu. Hugmynd að stofnun fólkvangs á Reykjanesi var samþykkt samhljóða í borgarstjórn Reykjavíkur árið 1969 og lögð áhersla á að land frá Elliðavatni til Krýsuvíkurbergs yrði gert að friðlýstu útivistarsvæði fyrir almenning. Fólkvangurinn var stofnaður 1. des. 1975.
Fólkvangar eru í umsjón sveitarfélaga ólíkt öðrum friðlýstum svæðum á Íslandi. Landið er í lögsögu Grindavíkur, Hafnarfjarðar, Álftaness og Garðabæjar en vegna mikilla hagsmuna annarra þéttbýlisbúa standa Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Reykjanesbær og Grindavík saman að fólkvanginum.
Hvert sveitarfélag skipar einn fulltrúa í fólkvangsstjórn og fjárframlög eru í hlutfalli við íbúatölu sveitarfélaganna. Fulltrúi Reykjavíkur er formaður stjórnar. Frá 1981 hefur verið starfsmaður í hlutastarfi á sumrin til eftirlits.
Svæðið fellur ekki að íslenskum eða alþjóðlegum skilgreiningum á fólkvangi en er þjóðgarðsígildi og hluta þess mætti friðlýsa sem víðerni. Jarðfræði svæðisins er merkileg á heimsvísu en þar eru plötuskil með tilheyrandi eldstöðvum af ýmsum gerðum og gömlum og nýjum hraunum. Svæðið var byggt frá landnámi fram á síðustu öld og þar er mikið af minjum um lífshætti fólks á fyrri tímum til lands og sjávar.
Landið var vel gróið en hefur verið ofnýtt og gróður er nú mjög illa farinn, mikil ofbeit og landeyðing. Það er enn notað sem beitiland bæði er þar lausaganga búfjár og beitarhólf fyrir hross og sauðfé. Ýmsir áhugahópar hafa helgað sér svæðið m.a. til torfæruaksturs utan vega og er landið víða mjög illa farið af þeim sökum. Mikilvægt er að ná tökum á þessum vandamálum. Stefnt skyldi að friðun fólkvangsins fyrir beit og utanvegaakstri og leitast við að endurheimta fyrra gróðurfar (vistheimt).

Djúpavatnsvegur um Stóra-Hamradal.
Vegir í fólkvanginum eru að mestu malarvegir. Sumir þeirra eru illa færir fólksbílum. Verið er að undirbúa lagningu Suðurstrandarvegar þvert í gegn um fólkvanginn. Tilkoma vegarins mun auka mjög umferð um fólkvanginn og nauðsynlegt er að bregðast við auknum gestafjölda með merkingum, upplýsingum og annarri þjónustu. Þá þjónustu þarf að veita um allan fólkvanginn, fyrst og fremst þarf að merkja áhugaverða staði og stika fjölbreyttar leiðir.

Þegar borin eru saman fjárframlög og stuðningur við Reykjanesfólkvang og önnur útivistarsvæði í nágrenninu, s.s. Bláfjallafólkvang og Heiðmörk, sést að fólkvangurinn er mikið olnbogabarn. Svæðið verður þó sífellt mikilvægara til útivistar fyrir þéttbýlisbúa SV-lands. Það gæti einnig haft mikið aðdráttarafl fyrir þá erlendu ferðamenn sem sækjast eftir menningarlegri og fræðandi útivist. Það form ferðmennsku er nú í mikilli sókn. Sú sérstaða að hægt sé að upplifa víðernisáhrif á daginn en stunda menningarlíf og fá góða þjónustu í þéttbýli um kvöld og nætur er mikill styrkleiki fyrir nálæg sveitarfélög.

Reykjanesfólkvangur – þrívíddarkort.
Sigrún kvað Reykjanesfólkvang vera um 300 km2 að stærð og langstærsta friðlýsta svæði sinnar tegundar hér á landi. Mikið er um jarðhitasvæði og margskonar náttúruminjar innan fólkvangsins. Árið 2004 tók Sigrún saman mjög ítarlega skýrslu fyrir stjórn Reykjanesfólkvangs um upphaf fólkvangsins og þær væntingar og hugmyndir sem fólk hafði um mikilvægi svæðisins og möguleika þess í framtíðinni. Hún sgði frá skýrslunni, niðurstöðum hennar og hugmyndum.

Sigrún Helgadóttir.
Í erindi sínu fjallaði Sigrún um aðdraganda og efnisöflun skýrslunnar, en í henni kom fram hlutlaust mat hennar sem fræðimanns á öllum helstu þáttum fólkvangsins, væntingar og möguleika til framtíðar. Í kjölfarið urðu umræður um núverandi stöðu og þá staðreynd að á 33 ára afmæli fólkvangsins hefði aldrei staðið fyrir dyrum önnur eins nýtingaráform á svæðinu og nú eru fyrirhuguð, virkjanir ,línulagnir, og Suðurstrandarvegur, og gengdarlaus utanvegaakstur svo eitthvað sé nefnt.
Gestum var tíðrætt um þá sýn sem við blasir á ferð um fólkvanginn, allir hlutir sem miða að því að bæta aðgengi að náttúruskoðun eru skemmdir og eyðilagðir, ekki hefst undan að laga nauðsynlegustu skilti er miðla upplýsingum.
Í máli Óskars Sævarsson, fulltrúa Grindavíkur í stjórn fólkvangsins, kom fram að allt til ársins 2005 hefur ráðstöfunarfé nefndarinnar verið af afar skornum skammti, eða um 2 miljónir á ári, og því lítið svigrúm gefist til framkvæmda.

Óskar Sævarsson.
Á borði núverandi stjórnar biðu því fjölmörg verkefni sem biðu úrlausna. Í dag hefur stjórnin náð að tvöfalda þetta fjármagn og verkefnavinna er hafin í tengslum við það. Má nefna tjaldstæði í Krókamýri sem útbúið var á síðasta ári og verður fullklárað í sumar, fjölmörg upplýsingarskilti fara á sinn stað, fólkvangsvörðurnar verða lagaðar, ruslamálum verður komið í lag og landvörslu verður sinnt á árs grundvelli.
Dr. Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskólans sagði frá rannsóknum á Reykjaneshrygg sem fram fóru sumarið 2007.
Verkefnið hlaut m.a. styrk frá „National Science Foundation“ í Bandaríkjum og rannsóknarsjóð Háskóla Íslands. Notast var við sérhannað skip, R/S Knorr, til jarðfræðilegra rannsókna á sjó. Leiðangrinum lauk 15 júlí ´07 og var gagnasöfnunin mjög árangursrík. Í leiðangrinum var lokið við að kortleggja Reykjaneshrygginn upp að landgrunnsbrún. Þá kom meðal annars í ljós gríðarmikil megineldstöð í landgrunnsbrúninni, sem nefnd hefur verið Njörður. Megineldstöðin er á stærð við Reykjanes, eða um 50 km í þvermál. Fróðlegt verður að heyra dr. Ármann segja frá leiðangrinum og ná fram umræðum um þessa mikilvægu fiskislóð Íslendinga.
Þessi rannsókn Jarðvísindastofnunnar voru umfangsmestu rannsóknir á Reykjaneshryggnum í 40 ár.

Reykjaneshryggur.
Reykjaneshryggur er einn áhugaverðasti hlutinn af hryggjakerfi heimsins fyrir þrjár sakir. Í fyrsta lagi er hann samfeldur með skásettu reki frá Bight-þverbrotabeltinu í suðri að Reykjanesi í norðri. Í öðru lagi hafa myndast misgamlir V-laga hryggir sem vísa út frá Íslandi og í þriðja lagi ber hann mörg einkenni háhraða gliðnunarbeltis þrátt fyrir að vera hægfara. Skýringarnar er talið að megi meðal annars rekja til heita reitarins undir Íslandi og þeirrar kvikuframleiðslu sem þar er umfram kvikumyndun hryggjarins. Í núverandi hryggjakerfi jarðar er Reykjaneshryggurinn undir mestum áhrifum heits reits. Þrátt fyrir öll þessi merkilegu einkenni er tilfinnanleg eyða í vísindalegri gagnasöfnun sem má rekja frá Íslandi og suður á 62° norðlægrar breiddar.

Ármann Höskuldsson.
Leiðangrinum lauk 15 júlí síðastliðinn og var gagnasöfnunin mjög árangursrík. Veðursæld einkenndi miðin á rannsóknartíma sem að eykur til muna gæði þeirra gagna sem safnað var. Frumniðurstöður rannsóknarinnar sýna að enn má sjá móta fyrir gömlu rekbeltunum tveim sem að stjórnuðu upphleðslu á Vestfjörðum og Snæfellsnesi. Vestfjarðarbeltið er afmarkað af misgengjum með allt að 400 m falli, en Snæfellsnes rekbeltið kemur aftur á móti greinilega fram á landgrunninu með um 100 m misgengi. Misgengi þetta hefur verið nefnt Suðurkantar á sjókortum. Neðan við landgrunnsbrúnina kom í ljós gríðarmikil megineldstöð sem nefnd hefur verið Njörður. Megineldstöðin er á stærð við Reykjanes, eða um 50 km í þvermál. Í toppi hennar má greina öskju, eða sigketil sem er um 10 km í þvermál.
Núverandi rekás Reykjaneshryggjar liggur í gegnum Njörð. Aðstæður við Njörð eru því svipaðar og í Kröflu, þar sem að megineldstöðin og sigketill hennar er klofin af Kröflusprungusveimnum.
Nú fer í hönd nákvæmari greining á gögnum og úrvinnsla, Gera má ráð fyrir áframhaldi á gagnasöfnun innan 2 ára, mun rannsóknum þá verða beint að varmauppstreymi, jarðhitakerfum, gossögu og bergfræði eldstöðvanna á rannsóknarsvæðinu.
Verkefnið hlaut styrk frá National Science Foundation í Bandaríkjum Norður Ameríku að upphæð um 30 miljónir króna og skipastyrk að upphæð 70 miljónir. Verkefnið er ennfremur styrkt af vísindasjóði Háskóla Íslands.
Ármann fór í gegnum alla gossögu svæðisins og var einkar fróðlegt að sjá staðsetningar á eldsumbrotum á flekamótunum neðansjávar í gegnum tíðina. Tilurð þessara íslensku brotabelta er vel þekkt. Hryggjakerfi Norður-Atlantshafs rekur til vest-norðvesturs tæpan sentimetra á ári miðað við heita reitinn og með því að flæði möttulefnis undir Íslandi út frá þessari miðju er helsti drifkraftur flekahreyfinga, þá „leitast“ rekbeltin við að vera yfir heita reitnum. Í 15 milljón ára jarðsögu Íslands hefur slíkur gosbeltaflutningur orðið að minnsta kosti þrisvar.
Þverbrotabelti einkenna allt rekhryggjakerfi jarðar, sem er um 60.000 km langt, og skiptist í búta sem hnikað er til hverjum miðað við annan. Almennt tengjast þverbrotabeltin ekki heitum reitum, heldur virðast þau hafa myndast um leið og rekhryggurinn sjálfur og haldast síðan nokkuð stöðug. Myndun þeirra er því sennilega háð spennusviðinu sem ríkti þegar hryggurinn var að myndast.

Um miðjan september 2013 lauk mánaðarlöngum rannsóknarleiðangri á Reykjaneshrygg með rannsóknarskipinu Marcus G. Langseth. Í leiðangrinum var syðsti hluti Reykjaneshryggjar kortlagður með fjölgeislamælitækni í fyrsta sinn.Reykjaneshryggur er lengsti samfelldi rekhryggur jarðar.
Það er því heimsviðburður að í lok leiðangurs er hryggurinn að fullu kortlagður.
Ármann sýndi gestum kort og myndir af undraheimum Atlantshafshryggjarins. Reykjaneshryggurinn var kortlagður, sem fyrr segir, frá landgrunnsbrún. Stórkostlegt landslag kom þá ljós með fjöllum og eldstöðvum á stærð við Reykjanes allt að 50 km í þvermál, hæstu fjöll hryggsins eru um 600 metra há.
Fjörlegar umræður um svæðið fóru fram í lok erindis, m.a. um hitasvæði í sjó gasuppstreymi og olíu ( sem þarna er). Vænlegustu svæðin eru sunnan undan Grindavík, þ.e. þau svæði, sem líklegast munu nýtast til orkuöflunar í nánustu framtíð.
Ljóst er að Reykjanesfókvangur hefur á ýmislegt að bjóða áhugasömu fólki.
Heimildir m.a.:
–www.jardvis.hi.is/
-grindavik.is

Reykjanesskagi.
Helgusel – Helgufoss – Helgusteinn
Í örnefnalýsingu Jóns Halldórssonar um Bringur segir m.a.:
jarðlagið, sem eru síblautir og nefnast Dýjapallar. Þar hjá er Helluhóll. Niður af honum er Mýrdalur. Í framhaldi af honum er grasflötin Fossvöllur við Helgufoss, er sést frá bænum. Áin heitir Kaldakvísl og er á landamerkjum Hraðastaða og Bringna. Vestan við Mýrdal er Melhryggur. Næst við hann er Lautin. Vestar eru Eystri- og Vestri-Hvammur. Upp í austanverðum Eystri-Hvammi er lítill hvammur, er kallast Sætið. Við ána í Eystri-Hvammi er Hrafnaklettur, sem er standberg ármegin. Milli hvammanna er mjór hryggur, Huldufólksrani“.
Helgusel er niður undan Bringum, á bökkum Köldukvíslar, er rennur með Grímarsfelli. Tilgátur eru um það að örnefnið hafi breyst úr heilagt sel (var frá Mosfelli, kirkjustaðnum) í Helgusel. Gengið var að selinu að norðanverðu. Þá er komið beint niður að Hrafnakletti. Milli hans og hlíðarinnar eru líklegar rústir, þrjár að tölu, hlið við hlið. Sú nyrsta er lengst og virðast langveggir vera sveigðir. Syðri tóftirnar eru ógreinilegri og minni. Allar eru tóftir þessar orðnar nánast jarðlægar, en þó má sjá marka fyrir grjóti í veggjum. Stærsta tóftin virðst hafa verið stekkur.
Við Helgusel er upplýsingaskilti. Á því stendur m.a.: „Hér í svonefndum Helguhvammi eru rústir Helgusels. Landssvæðið og selið tilheyrðu prestsetrinu á Mosfelli á fyrri tíð og var selið notað á sumrin til að mjólka lambær og framleiða mjólkurafurðir, t.d. smjör og skyr.
Gunnlaugur festi sér Helgu á næstu dægrum til kvonfangs í þrjá vetur meðan hann fór utan til að læra til skálds og víkings. Þetta var árið 993. Gunnlaugur ferðaðist m.a. til Noregs, Svíþjóðar og Englands; öðlaðist frægð og frama, auk gersema að launum. Hann hitti m.a. Hrafn Önundarson, sjálflært skáld. Tókust þeir á um athygli konungs Svíþjóðar – og tapaði Hrafn þeirri orrahríð. Fór hann heim til Íslands og bað Þorstein um að fá að „kaupa“ Helgu. Þorsteinn færðist undan og bað hann um að koma aftur að ári þar sem þriggja vetra biðtíma Gunnlaugs væri ekki enn lokið, sem og Hrafn gerði. Gunnlaugur tafðist í Englandi um ve
„Bærinn stendur í suðvesturenda Bæjarholts. Suður og austur af bænum er hið upphaflega tún. Niður af því austanverðu eru pallar í
Ágúst Ólafur Georgsson kom með svohljóðandi ábendingar við örnefnaskrána: „Klettur sá, sem er neðan við Helgufoss í Köldukvís, á móts við Bringur, sem oft er kallaður Helguklettur (m.a. af Magnúsi Grímssyni), segir Halldór Laxness alltaf hafa verið kallaðan Hrafnaklett af Bringufólkinu. Í Hrafnakletti var álfabyggð. Sagt var, að þar byggi huldukona. Kveðst Halldór hafa þetta eftir Jórunni Halldórsdóttur frá Bringum. Jórunn ku hafa haft einhver samskipti við huldukonu, sem þar bjó, snemma á þessari öld [síðustu öld]. Kveðst HKL hafa heyrt þetta, er hann var krakki, en annars ekki lagt sig neitt eftir slíku, er „óinteressant“ að hans mati.“
Tóftir Helgusels, sem eru skammt austar, eru vel greinilegar, einkum fjárborg framan við selið. Norðaustur undir Helguhól (Hrafnakletti) sést móta fyrir hlaðinni kví. Austan hennar eru fyrrefndar þrjár tóftir. Sú nyrsta er lengst og stærst. Efst í henni er þvergarður er bendir til þess að þarna hafi verið stekkur. Hinar tvær virðast hafa verið kvíar og þá í tengslum við selið og stekkinn. Ef svo hefur verið þá styrkir það líkur á að um tvö selstæði hafi verið í Helguseli á sama tíma.
Gömul munnmæli herma að Helgusel sé kennt við Helgu Bárðardóttur, en frá henni segir í Bárðar sögu Snæfellsáss. Helga yfirgaf mannlegt samfélag og eigraði um landið eins og segir í sögunni: „Litlu síðar hvarf Helga þaðan í burt og fór víða um Ísland og festi hvergi yndi. Var hún og alls staðar með dul, en oftast fjarri mönnum. Fleiri örnefni tengjast Helgu á þessum slóðum, Helgufoss blasir við okkur og hér við ána er grjóthóll, sem heitir Helguhóll (einnig nefndur Hrafnaklettur). Þar á að vera Huldufólksbyggð og segir sagan að Helga Bárðardóttir hafi horfið í hólinn í elli sinni og ekki komið út síðan. Aðrir hafa hafnað þessum nafnaskýringum og telja að Helgusel merki upphaflega hið helga sel. Er sú kenning studd þeim rökum að selið hafi verið í eigu Mosfelsstaðar“.
Stöldrum við og skoðum framangreint aðeins nánar, ekki síst út frá Gunnlaugs sögu ormstungu. Nefndur Gunnlaugur var sonur Illuga, svarta, sonar Egils Skallagrímssonar. Helga var dóttir Þorsteins, hvíta, sonar Egils Skallagrímssonar, bróður Illuga. Þorsteinn bjó með föður sínum að Borg í Borgarfirði. Egill átti þá einnig Mosfell í Mosfellsdal, auk fleiri jarða. Egill var mikils metinn; enda þá bæði „mesta skáld Íslendinga“ og sá „Íslendingur, sem flesta útlendinga hafði drepið hér á landi“. Draumur hafði opinberast konu Egils. Hann var reyndar í svart/hvítu og á þessa leið: Svanur hafð tillt sér á bæjarburstina. Tveir ernir mættust þá yfir bænum, þeir börðust og svo fór að báðir féllu dauðir til jarðar. Að því búnu flaug svanurinn á brott með val er bar þar að.
Eftir umleitan Hrafns að framangreindum tíma loknum fékk hann loks samþykki Þorsteins fyrir „kaup“ ástmögursins á Helgu, sem þá var talin fegursta kona Íslands – „og þótt víða væri leitað“.
Þau Hrafn og Helga fluttust, að loknu vetrarbrúðhlaupi þeirra, að Mosfelli. Helga réði öllum ráðum sínum af ráðdeild að Mosfelli – og nýtti m.a. hið fagra umhverfi til eigin ánægju sumarlangt til hins ýtrasta. Fór svo þó um veturinn á eftir að Helga ákvað að fara aftur ein að Borg í Borgarfirði til langdvalar, en Hrafn sat eftir að Mosfelli. Ástæðan var einfaldlega sú að Helga hafði enn ást á þeim er hafði unað henni í „hvamminum“ fyrrum. Margir þekkja síðan framhaldið; einvígi Hrafns og Gunnlaugs, síðasta „löglega“ einvíginu hér á landi, einvígi þeirra í framhaldi af því á landamærum Noregs og Svíþjóðar þar sem báðir létu lífið fyrir hvors annars falsatlögur. Í kjölfarið fylgdi giftusamband Helgu og Þorkels með fimm barna auðn og samstöðu um langa framtíð.
Af framangreindu er alls ekki svo ólíklegt að örnefnin „Helgufoss“, „Helgusel“ og „Helguhóll“ hafi verið nefnd miklu mun fremur til heiðurs framangreindri Helgu Þorsteinsdóttur, barnabarni Egils Skallagrímssonar, en sá hinn sami eyddi síðustu æviárum sínum á landaeign sinni að Mosfelli í Mosfellsdal (þar sem hann gróf að lokum silfursjóð þann er Egilssaga grundvallast á (og nú er táknmerki Mosfellsbæjar)).
Helgusel – Helgufoss ofar.
Hrísbrúarsel – Litla-Mosfellssel
Hér verður lýst leifum tveggja selja: Litla-Mosfellssels og Hrísbrúarsels, en þau eru bæði norðan Mosfells, sunnan Leirvogsáar.
Litla-Mosfellssel
„Stóra- og Litla-Sveinamýri eru neðarlega við Leirvogsá. Þar er allmikið flæmi öðru nafni nefnt Selflatir. Selás er við Sveinamýrar“ (Ari Gíslason). Gróðurlítill ás á syðri bakka Leirvogsár, sem liggur ca. í A-V. Norðurhluti hans er allgrýttur og vaxinn mosa. Svæðið milli ássins og fjallsins er þýft mýrlendi (Ágúst Ó. Georgsson).
Magnús Grímsson, prestur á Mosfelli (d. 1865), segir að á þessum ás hafi staðið selrúst. Skrásetjari gekk um allan ásinn og víðar þarna í nágrenninu. Var þetta eina rústin, sem fannst á eða við ásinn. Kemur lýsing Magnúsar, hvað staðsetningu varðar, vel heim og saman. Hús þetta hefur byggt verið úr torfi og grjóti (Ágúst Ó. Georgsson). Einar Björnsson, Litla-Landi og Guðmundur Þorláksson, Seljabrekku, vissu um þessar rústir. Telja þeir, að um selrústir sé að ræða. Eru þær beint niður undan s.k. Gatkletti, sem er austan í Mosfelli og sést greinilega frá veginum sem liggur norðan við Leirvogsá. Ekki hafa þeir heyrt sagnir um, hvaða sel þetta hafi átt að vera.
(I) Rústin stendur á lágum hól, sem sker sig nokkuð úr umhverfinu. Hóllinn er talsvert þýfður og grasi vaxinn. Norðan hans rennur Leirvogsá um 30-40 m í þá átt. Hóllinn er á mörkum graslendis og grýtts mosavaxins svæðis. Tóftin er um 2,5 x 4,5 m að innanmáli. Veggjaþykkt er 1-1,5 m. Hæð veggja er víðast um 0,4 m, nema NV-veggur, sem er um 0,7 m. Við NV-gafl á suðurlangvegg eru dyr en tóftin skiptist í tvo hluta.
Litla-Mosfellssel – uppdráttur ÓSÁ.
„Stóra- og Litla-Sveinamýri eru neðarlega við Leirvogsá. Þar er allmikið flæmi öðru nafni nefnt Selflatir. Selás er við Sveinamýrar“ (Ari Gíslason). Gróðurlítill ás á syðri bakka Leirvogsár, sem liggur ca í A-V. Norðurhluti hans er allgrýttur og mosavaxinn. Svæðið milli ássins og fjallsins er þýft mýrlendi (Ágúst Ó. Georgsson).
(II) Um 100 m SA við [123716-240-16] er annar hóll og á honum eru tvær rústir. Önnur rústin er án efa af kvíum. Er hún grafin niður í hólinn en veggir eru úr grjóti. Innanmál eru um 2 x 5 m. Fast við er hústóft og er hún staðsett þannig að bakgafl (suðurgafl) hefur þjónað sem aðrekstrarveggur. Innanmál eru um 2 x 3 m. Veggjaþykkt er ca 1 m og veggjahæð um 0,5 m og hæð ca. 0,7 m (dýpt).
Má láta sér detta í hug að húsið, sem fjær er, hafi verið íveruhús eða svefnskáli (Ágúst Ó. Georgsson). Rúst I [123716-240-16] og II virðast álíka gamlar að sjá. Þó svo langt sé á milli þeirra (um 100 m) má vel ætla að þær eigi saman. Um 100 m norðan við þessar rústir rennur Leirvogsá. Ekki skal fullyrt frá hvaða bæ sel þetta var notað, en líklega hefur það verið Mosfell (Ágúst Ó. Georgsson). Einar Björnsson, Litla-Landi og Guðmundur Þorláksson, Seljabrekku, vissu um þessar rústir. Telja þeir, að um selrústir sé að ræða. Eru þær beint niður undan s.k. Gatkletti, sem er austan í Mosfelli og sést greinilega frá veginum, sem liggur norðan við Leirvogsá. Ekki hafa þeir heyrt sagnir um, hvaða sel þetta hafi átt að vera.
Hrísbrúarsel
Í heimild frá árinu 1704 segir: „Selstöðu á jörðin í heimalandi. Landþröng er ef ei er brúkuð selstaða“ (Jarðabók Árna og Páls III, bls. 325-326). Í Örnefnalýsingu Hrísbrúar er getið um sel: „Að norðanverðu meðfram frá merkjum heita fyrst Selflatir. Þær munu hafa tilheyrt selinu í gamla daga. Þetta eru fallegar flatir, af sumum nefndar Blómsturvelli“ (Ari Gíslason).
Við sunnanverða Leirvogsá, á móts við bæinn Gröf er holt eða hæð. Kveðst Guðmundur hafa séð einhverjar rústir þar. Líklega er um seljarústir að ræða en gæti þó verið stekkur. Skoðaði hann þetta ekkert nánar, heldur sá rústirnar úr fjarlægð. Á herforingjaráðskortinu danska er svæði þarna rétt hjá kallað Sveinamýri. Sagt er að svæðið sem rústirnar eru á kallist Selflatir. Ágúst Ó. Georgsson merkti Selflatir inn á ljósrit af 1:50000 korti, skv. tilsögn Guðmundar Skarphéðinssonar, bónda á Hrísbrú. Ber þeim Guðmundum saman um hvar Selflatir hafi verið. Rústin er sem sagt norðan við Mosfell (fjallið), nálægt ánni (Leirvogsá) og á móts við bæinn Gröf í Kjalarneshreppi.“
Lítil kvos, öll grasi vaxin og áberandi græn. Sker sig þannig vel frá umhverfinu. Hvammur þessi er um 30 m breiður. Hér er um eina rúst að ræða sem telja má nokkurn veginn örugga. Stærð hennar að innan er um 2 x 4 m. Dyr hafa verið á miðjum vestur langvegg. Tóft þessi er að hluta grafin inn í brekkuna, sem er á bakvið (austanvið). Veggir eru útflattir og breiðir. Hæðin er ca. 0,5 m en þykktin ca 1-2 m. Við hlið þessarar rústar að norðan mótar fyrir einhverju, sem verið gæti önnur tóft. Sé hér um tóft að ræða, hefur hún verið um 2 x 2-3 m að innanmáli. Þessi „tóft“ er samsíða fyrst töldu rústinni og hefur haft dyr móti vestri. Sunnan við fyrstnefnda rúst mótar ógreinilega fyrir einhverju, sem verið gæti tóft. Sé svo hefur hún verið að innanmáli um 2 x 2-3 m. Inngangur hefur að líkindum verið á móti vestri. Um 8 m vestan við síðasttöldu rúst er eitthvað. Hér gæti verið um einhver mannaverk að ræða. Þarna virðist hafa verið grafið ofan í brekku, sem hallar lítið eitt til norðurs. Stærð þessa er um 3,5 x 5 m, dýptin um 0,5 m, opin til norðurs, en fyrir framan opið er nokkurn veginn slétt flöt. Allar þessar rústir eru fornlegar að sjá. E.t.v. gætu þetta verið selsrústir frá Hrísbrú (sbr. skrá um menningarminjar bls. 65). Niðurgrafna tóftin hefur þá verið kvíar en hinar selið (Ágúst Ó. Georgsson).
Munnmæli: Guðmundur Þorláksson, bóndi Seljabrekku, sagði 25.7.1980:
Leifar einnar selstöðu enn eru norðan Mosfells, líklega einnig forn selstaða frá Hrísbrú (sjá síðar).
Heimildir:
-Skráning fornleifa í Mosfellsbæ 2006.
-Agnes Stefánsdóttir, Rúna K. Tetzschner, Guðmundur Ólafsson, Ágúst Ó. Georgsson, Kristinn Magnússon og Bjarni F. Einarsson. Reykjavík 2006 – Þjóðminjasafn Íslands.
Heimildaskrá:
-Ari Gíslason. Minna-Mosfell. Örnefnastofnun Íslands. ópr.
-Ari Gíslason. Hrísbrú. Örnefnastofnun Íslands. ópr.
-Ágúst Ó. Georgsson. Fornleifaskráning í Mosfellssveit 1980-1982. Skráningarbók 1604.
-Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns III. Gefin út af hinu íslenzka fræðafélagi í Kaupmannahöfn. Kaupmannahöfn 1923-1924.
Munnlegar heimildir:
-Einar Björnsson, bóndi Litla-Landi.
-Guðmundur Þorláksson, bóndi Seljabrekku.
Safn til Sögu Íslands og ísl. bókmennta (athugas. við Egils Sögu) , bls. 272.
Bænhús og kirkjur
Á miðöldum voru hátt á annað þúsund bænhús og kirkjur á Íslandi.
Kapella í Kapellulág.
Elstu húsin eru frá seinni hluta víkingaaldar og hafa nokkur þeirra verið grafin upp, m.a. á Stöng í Þjórsárdal, Neðra Ási í Hjaltadal og Þórarinsstöðum í Seyðisfirði. Elstu húsin eru öll lítil, innanvið 5 m á lengd, og eru lítið frábrugðin yngri bænhúsum og smákirkjum sem grafnar hafa verið upp, t.d. á Varmá í Mosfellssveit og Kúabót í Álftaveri, eða standa enn, eins og bænhúsinu á Núpsstað. Það bænhús hefur verið varðveitt og er haldið við. Í sama stærðarflokki eru einnig vegakapellur frá miðöldum en tvær slíkar hafa verið grafnar upp, ein á Hraunssandi austan við Hraun ofan við Grindavík og önnur í Nýjahrauni (Kapelluhrauni) í Hafnarfirði, ofan við Straumsvík. Fyrrnefnda kapellan var grafin upp af Kristjáni Eldjárn o.fl. á sjötta áratug 20. aldar og sú síðarnefnda um svipað leiti af sömu aðilum. Í fyrstu var haldið að tóftin við Hraun væri dys, en við uppgröftin kom bænhúsið í ljós. Á báðum stöðunum fundust ýmsir gripir. Bænhúsið við Hraun var að nýju orpið sandi eftir uppgröftin, en bænhúsið í Nýjahrauni var endurhlaðið, reyndar ekki ferkantað eins og tóftin leit út, heldur sporöskjulagað. Þá var það ekki hlaðið úr grjótinu, sem hin gamla rúst hafði gefið af sér, heldur að mestu með grjóti úr nágrenninu. Einungis gólfið er upprunalegt. Öðruvísi og mun stærri kirkjur hafa verið grafnar upp í Skálholti og á verslunarstaðnum Gásum en engin sóknarkirkja hefur enn verið rannsökuð á Íslandi. Yfirstandandi uppgröftur í Reykholti miðar að því að stoppa í það gat.
Rannsóknin
Kapella í Kapelluhrauni.
Rannsókn á kirkjum og bænhúsum er grunnrannsókn sem miðar að því að skrá og kortleggja allar kirkjur, öll bænhús og alla kristna grafreiti á Íslandi. Á grundvelli ritheimilda, örnefna og fornleifafunda (einkum mannabeinafunda) er reynt að staðsetja kirkjur, bænhús og grafreiti eins nákvæmlega og hægt er og þar sem mannvirkjaleifar eru sýnilegar á yfirborði eru þær mældar upp. Skráning er langt komin á Suður- og Austurlandi og benda fyrstu niðurstöður til að hægt verði að staðsetja rúman helming slíkra staða, en aðeins í undantekningartilvikum eru tóftir enn sýnilegar. Áhersla er lögð á að staðsetja kirkjur og bænhús í samhengi við bæjarstæði, leiðir og landamerki en í ljós hefur komið að þó að sóknarkirkjur séu undantekningalítið á hlaði bæjar eru smákirkjur og bænhús ýmist á hlaði, í túni, við túnjaðar eða fjarri bæ, jafnvel við gamlar þjóðleiðir líkt og bænhúsin við Hraun og í Nýjahrauni ofan við Straumsvík.
Stjórnandi rannsóknar er Orri Vésteinsson, Háskóla Íslands.
Heimild:
-www.instarch.is/instarch
Kapellan með friðlýsingaskilti framan við.
Járngerður öll?
Loksins hefur Járngerður gamla, sú er Járngerðarstaðahverfið í Grindavík hefur dregið nafn sitt af, fengið varanlega hvíld. Fyrst eftir niðursetninguna stóð dys Járngerðar við gömlu sjávargötuna milli Járngerðarstaða og Norðurvarar (Fornuvarar). Vermenn gengu þöglir framhjá dysinni, staðnæmdust, lutu höfði og fóru með sjóferðarbæn.
varanlegri gata (Verbraut) fyrir sjálfrennireiðina framhjá dysinni. Eftir það stóð einungis eitt horn hennar út undan götunni. Nú (árið 2008) hefur gatan verið kyrfilega aðlöguð nútímakröfum, verið breikkuð og undirbúin undir malbikun. Þar með hefur Járngerðarleiðið horfið undir flatneskjuna – tákn hinna nýju tíma.
Það er að segja frá Járngerðar karli að hann drukknaði á Járngerðarstaðasundi. Þá varð Járngerður afar grimm og mælti svo um að þar skyldu síðan farast tuttugu skip á réttu sundi. Segja menn að nú sé fyrir víst nítján drukknuð, en þá er eitt eftir og má búast við að það farist þá og þá. Á götu þeirri sem til skips var gengin frá Járngerðarstöðum er leiði Járngerðar.“
Það er að segja frá Járngerðar karli að hann drukknaði á Járngerðarstaðasundi. Þá varð Járngerður afar grimm og mælti svo um að þar skyldu síðan farast tuttugu skip á réttu sundi.” Segja fróðir menn að þetta hafi gengið eftir. Leiði kvennanna má sjá í hvoru hverfi. Þorkötluleiði mun vera á túninu austan Þórkötlustaðavegar nr. 11 sem og dysjar hunds og smala.
einn pott eru sett örnefni og þjóðsögur frá Grindavík. Þorbjörn og Hafur-Björn koma við sögu ásamt ruplandi Tyrkjum og hinum ægilega Ægi á Sandi sem er bæði örlátur og grimmur.
bæjarins. Ef satt er þarf Jafnréttisráð að sýna að það eigi til snör viðbrögð. Þessi aðför að Járngerði virðist reyndar kalla á viðbrögð margra annarra aðila og stofnana er lagalegu hlutverki hafa að gegna í samfélaginu. Ólíklegt er þó, af fyrri reynslu að dæma, að viðbragðstími þeirra verði meiri en hraði snigilsins. Varla er t.a.m. hægt að ætlast til að Fornleifavernd ríkisins lyfti rassi frá stól vegna minja á Reykjanesskaganum frekar en fyrri daginn. Líklega er vænlegast, úr því sem komið er, að fá leyfi Gauja í Vík til að gefa eftir smá hornskika við veginn, efna til hugmyndarsamkeppni meðal grindvískra listamanna um minnisvarða um fyrrum frú Járngerði og koma honum síðan upp á staðnum fyrr en seinna.
Síðar var lögð
Í sjálfu sér hefði auðveldlega verið hægt að hlífa legstað gömlu konunnar, táknmerki hverfisins, og hafa þarna mjórri einstefnugötu, eða bara einfalda þrengingu til hraðatakmarkana, en bæjarfulltrúar Grindvíkinga virðast ekki hafa heyrt af slíkum möguleika, sem þó hefur verið algeng lausn í öðrum bæjarfélögum, bæði hérlendis og erlendis um langt skeið. Á næstunni er ætlunin, vegna þessara mistaka hinna mannlegu, að leggja táknrænan krans á malbik Verbrautar þar sem hin þjóðsögulega dys hefur verið í hugum forfeðra Grindvíkinga um aldir.
Þjóðsagan nefnir að „Þorkatla bjó á Þorkötlustöðum í Grindavík, en Járngerður á Járngerðarstöðum. Báðar voru þær giftar. Einu sinni sem oftar voru karlarnir þeirra báðir á sjó. Nú gjörði mikið brim og héldu báðir til lands. Þorkötlu karl fekk gott lag á Þorkötlustaðasundi og komst af. Þá varð Þorkatla fegin og mælti hún svo fyrir að á því sundi rétt förnu skyldi aldrei skip farast ef formann þess brysti hvorki hug né dug, og menn vita ekki til að þar hafi farizt skip á réttu sundi.
Önnur heimild kveður á um að „Þorkatla hafi búið á Þorkötlustöðum í Grindavík, en Járngerður á Járngerðarstöðum. „Báðar voru þær giftar. Einu sinni sem oftar voru karlarnir þeirra báðir á sjó. Nú gjörði mikið brim og héldu báðir til lands. Þorkötlu karl fekk gott lag á Þorkötlustaðasundi og komst af. Þá varð Þorkatla fegin og mælti hún svo fyrir að á því sundi rétt förnu skyldi aldrei skip farast ef formann þess brysti hvorki hug né dug, og menn vita ekki til að þar hafi farizt skip á réttu sundi.
Í vangaveltum heimamanna segir að „Járngerður hafi reiðst þegar bóndi hennar drukknaði á Járngerðarstaðasundi og lagt á að 20 skip skyldu farast á sundinu. Járngerður gæti hafa verið gift Þorsteini hrugni og búið á Járngerðarstöðum (þrjú hús standa nú á Járngerðarstaðatorfunni). Munmæli herma að Járngerðarleiði, sem Járngerður er sögð hafa verið heygð sé við veginn, rétt við bæinn Vík (sunnan götunnar suðaustan við Vík).“
Þann 21. nóvember árið 2007 stofnuðu grindvískir atvinnuleikarar formlega til félagsskaparins GRAL. GRAL er skammstöfun á GRindvískir AtvinnuLeikarar. Meginmarkmið félagsins er að taka þátt í þjóðfélagsumræðum, hafa áhrif á listalíf í landinu (og þá helst í Grindavík) og álykta í hinum ýmsu málum á opinberum vettvangi.
Á verkefnaskránni framundan er einmitt „Járngerður og Þórkatla“; barnaleikrit sem fjallar um skessurnar Járngerði og Þórkötlu sem tvö hverfanna í Grindavík eru nefnd eftir. Í
GRAL hefur gert munnlegt samkomulag við Erling Einarsson sem stendur að uppgerð Flagghússins á Járngerðarstöðum um sýningar á loftinu þar haustið 2008. Bæjarfulltrúar Grindavíkurbæjar hafa lofað framtakið og eru tilbúnir að veita verkefninu brautargengi. Svo virðist sem áherslan sé, um þessar mundir, meiri á orð en varanleika.
En HVAÐ UM JÁRNGERÐARLEIÐIÐ? Það að jarða þá gömlu endanlega undir slétt malbik hlýtur að senda ungum Grindvíkingum og öðrum þau skilaboð að öllum sé skítsama um fornar sögur og sagnir á svæðinu….
Draga verður í efa að löglegt leyfi hafi legið fyrir eyðileggingunni frá viðkomandi yfirvöldum. Hafi slíkt leyfi verið fyrir hendi væri fróðlegt að fá að sjá það… Þjóðminjalög gilda jú líka í Grindavík – þau nýjustu frá árinu 2001. Að vísu getur veður hamlað umferð um Reykjanesbraut og Grindavíkurveg, en nýjustu lagabreytingar ættu þó a.m.k. að berast á áfangastað með vorskipunum.
Einhver hafði á orði að framangreind framkvæmd gæti lýst ákveðinni kvenfyrirlitningu ráðamanna
Þess má geta að þegar Vesturbraut var grafin upp vegna sömu framkvæmda kom verktakinn niður á hlaðið garðlag. Sá hafði uppi snör handtök, fjarlægði garðinn og mokaði yfir. Vitni urðu þó að atvikinu. Skv. Þjóðminjalögum hefði verktakanum borið að tilkynna fundinn til Fornleifaverndar ríkisins. Ekki er ólíklegt að ætla að þarna hafi verið uma ð ræða leifar af gamla bænum á Járngerðarstöðum, þeim er kom við sögu „Tyrkjaránsins“. Af meðfylgjandi loftmynd að dæma liggur Vesturbrautin í gegnum gamla veggstæðið. Eðlilegt er því að spyrja: „Í ljósi gildandi laga; hvers vegna var ekki gert ráð fyrir að minjar myndu finnast á þessu svæði áður og á meðan á framkvæmdunum stóð og hvers vegna var ekki fylgst með hvort svo væri?“
Járngerðarstaðir.
Akstur utan vegar – þörf á úrbótum
„Ég er viðriðinn hagsmunamál mótorhjólamanna og núna stöndum við í smá stappi við fulltrúa sýslumannsins á Reykjanesi. Forsaga málsins er sú að Bæjarstjórn Grindavíkur gaf mótorhjólamönnum bráðabirgðaleyfi til æfinga við norðurenda Kleifarvatns með þeim skilyrðum að gengið yrði frá svæðinu 1. júní og það ekki notað meira í sumar. Þetta var gert í ljós þeirrar reynslu sem fékkst í fyrrasumar þegar lögreglan á Reykjanessvæðinu eltu uppi þá sem voru að reyna að æfa sig og hrökktu þá upp til fjalla og inn í afskekkta dali.
Sandfellsklofi – ummerki eftir utanvegaakstur.
Afleiðingin varð hreint út sagt skelfileg, því á þessum tíma árs er Kleifarvatnssvæðið og Reykjanesið eini staðurinn sem hægt er að hjóla á. Í staðinn fyrir að hafa eitt svæði til að hjóla á voru litlar brautir lagðar ólöglega um allt Reykjanes og miklar landskemmdir unnar.

Nú hefur bæjarstjórn Grindavíkur verið gert að afturkalla þetta bráðabirgðaleyfi á þeim forsendum að sýslumaður þurfi að gefa leyfi, nema fyrir liggi leyfi frá landeiganda, Reykjanesfólkvangi og einhverjum fleiri aðilum. Það er því ljóst að ætlunin er að kæfa þetta mál í pappírshrúgum kerfisins og þannig draga málið fram á sumar, en þá verður engin þörf á þessu bráðabirgðaleyfi. Það eina sem þetta hefur í för með sér er að ágangur á Reykjanesið mun halda áfram að aukast og skemmdir af völdum mótorhjóla ekki minnka.
Ég geri mér grein fyrir að enginn vill sjá mótorhjólaför um alla koppagrundir. Ein af þeim leiðum sem okkur hefur dottið í hug til að verja Reykjanesið fyrir landskemmdum er að vekja athygli á þessu máli og gera þeim sem stjórna grein fyrir þeim miklu andstæðum sem þarna eru í gangi. Það er nefnilega ekki bæði hægt að vernda náttúruna og loka æfingarsvæðum.“Í lögum um Náttúruvernd er fjallað um akstur utan vega. Þar segir m.a. að „bannað er að aka vélknúnum ökutækjum utan vega. Þó er heimilt að aka slíkum tækjum á jöklum, svo og á snjó utan vega utan þéttbýlis svo fremi sem jörð er snævi þakin og frosin. Umhverfisráðherra kveður, að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar í reglugerð á um aðrar undanþágur frá banninu, m.a. vegna starfa manna við landbúnað, landmælingar, línu- og vegalagnir og rannsóknir.“ Jafnframt að „ólögmætur akstur utan vega varðar refsingu.“ Þar segir að „hver sá sem veldur á ólögmætan hátt spjöllum á náttúru landsins, hvort heldur er af gáleysi eða ásetningi, skal sæta refsingu.“
Í Umferðarlögum (1987 nr. 50 30. mars) er fjallað um akstur utan vega, en einungis í þéttbýli. Þar er einungis kveðið á um að ökumenn skulu aka eftir akbrautum. Í lögunum eru ákvæði um akstursíþróttir og aksturskeppni. Þar segir að ráðherra geti sett reglur um akstursíþróttir á sérstökum afmörkuðum svæðum utan vega. „Eigi má efna til aksturskeppni, nema með leyfi lögreglustjóra.“ „Ráðherra setur nánari reglur um aksturskeppni.“
Í Umferðarlögunum eru sérstök og reyndar svolítið skondið ákvæði um tofærutæki, því skv. því má í rauninni hvorki aka þeim utan vegar, en þó jafnframt „skemmstu leið eftir vegi eða yfir veg, sem ekki er einkavegur.“ Reyndar er átt við akstur þegar snjór þekur jörð, þótt það komi ekki beinlíns fram í ákvæðinu.
Í reglugerð um akstur í óbyggðum segir m.a. að „öllum er skylt að sýna varúð svo að náttúru landsins sé ekki spillt að þarflausu. Spjöll á náttúru landsins, sem framin eru með ólögmætum hætti af ásetningi eða gáleysi, varða refsingu.“ Jafnframt að „allur akstur utan vega og merktra slóða þar sem náttúruspjöll geta af hlotist er bannaður.“ Með náttúruspjöllum er meðal annars átt við spjöll á gróðri, jarðvegi og jarðmyndunum, myndun nýrra slóða, hvort sem er á grónu landi, þar með töldu mosavöxnu landi, eða ógrónu og skiptir ekki máli hvort líkur eru á varanlegum skaða eða tímabundnum. Á friðlýstum svæðum gilda auk þess sérákvæði um akstur, sbr. friðlýsingarákvæði.
Utanvegakastur milli Hraunssels og Sandfells.
Í undanþáguákvæði reglugerðarinnar segir að „nauðsynlegum akstri utan vega í óbyggðum skal jafnan hagað svo að engin náttúruspjöll eða lýti á landi hljótist af. Með nauðsynlegum akstri utan vega er átt við akstur vegna rannsókna, björgunarstarfa og þess háttar.“
Í reglugerð um akstursíþróttir og aksturskeppni segir að „eigi má efna til aksturskeppni nema með leyfi lögreglustjóra. Án samþykkis vegamálastjóra má eigi heimila aksturskeppni á þjóðvegi. Keppni utan vega er eigi heimil án samþykkis sveitarstjórnar. Leyfi til aksturskeppni skal einungis veita skipulagsbundnum samtökum er hafa akstursíþróttir á verkefnaskrá sinni.“
Aldrei virðist nógu oft áréttað að allur akstur utan vega og merktra slóða er bannaður á Íslandi. Jaðvegur landsins er viðkvæmur og óratíma getur tekið fyrir hjólför að hverfa. Þá eru hjólför eftir bíla og önnur ökutæki oft upphafið að atburðaráðs rofs og uppblásturs sem valdið getur gríðarlegum skemmdum og landeyðingu. Einnig er margsannað að ein slóð kallar á aðra því sá sem á eftir kemur og sér slóð kann að álykta að þarna megi aka.
Akstur utan vega virðist vera vaxandi vandamál á Íslandi. Falleg náttúra Íslands verður því miður oft fyrir óbætanlegum spjöllum vegna illrar umgengni ökumanna á vélknúnum ökutækjum. Jarðrask getur valdið varanlegu landrofi og ómældum skaða.
Dómur gekk í máli manns árið 2002, sem ók utan vegar og olli spjöllum á gróðri. Honum var gert að greiða 20.000 kr. sekt eða dúsa þrjá daga í fangelsi ella.
Utanvegaakstur.
Ljóst er að mikilvægt er að finna lausn á vanda þeim er bréfritari vekur athygli á. Það er mat FERLIRs að koma þurfi mótorhjólafólki sem og öðrum er stunda utanvegaakstur af viðkvæmum svæðum Reykjanesskagans, s.s. í Stóru-Sandvík, hlíðum Sveifluháls og Fagradalsfjalls, Skolahrauns og Djúpavatnssvæðinu svo einhver svæði séu nefnd er þegar liggja undir talsverðum skemmdum. Mótorhjólafólk hefur unað sér vel á vatnasvæði Lambhagatjarnarinnar norðan Kleifarvatns sem og á sandströndinni við vatnið sunnan Syðrihöfða. Ekki er að sjá að það hafi valdið spjöllum þar því vatnið virðist jafnan færa umhverfið í rétt horf á ný. Þá er hið ákjósanlegasta æfingasvæði í Folaldadölum í Sveifluhálsi. Með jákvæðu viðhorfi og í góðri samvinnu við mótorhjólafólk ættu yfirvöld samgöngu- og umhverfismála auðveldlega að geta náð samkomulagi um viðhlítandi aðstöðu á svæðinu, hugsanlega með einhverjar laga- og reglugerðarbreytingar að markmiði. Það er reyndar alveg ótækt að leyfa innflutning á slíkum tækjum, en gera á sama tíma ekki ráð fyrir að þeim verði ekið eins og „þau eiga kyn til“. Með góðri samvinnu væri hægt að laða fram hugarfarsbreytingu um skaðsemi utanvegaaksturs hjá a.m.k. þeim tiltekna hópi ökumanna, sem hér er um rætt. Það er til mikils að vinna og því nauðsynlegra að hugsa málið í lausnum en vandamálum.
Ekið utan vegar við Oddafell.
Það er reyndar grátbroslegt að sjá og heyra opinberar nefndir og ráð leggja fram lítt ígrundaðar tillögur um úrbætur og síðan innihaldslítil loforð embættismanna um framkvæmdir – án markvissar eftirfylgju. Á meðan svo er gerist fátt annað en utanvegaaksturinn heldur áfram með tilheyrandi varanlegum afleiðingum fyrir umhverfið.
Aðspurður á fundi ferðaþjónustuaðila um aðgerðir lögreglu til að spyrna gegn utanvegaakstri á Reykjanesskaganum svaraði sýslumaðurinn í Keflavík því til að slíkur akstur þekktist ekki á svæðinu og því væri ekki ástæða til sérstakra aðgerða. Í ljósi aðgerðarleysis liðinna ára eru sérstakar aðgerðir og eftirlit ríkislögreglustjórans með utanvegaakstri á landinu kærkomin viðleytni til að bregðast við aðsteðjandi vanda og sýnilegri eyðileggingu á dýrmætri náttúru landsins.
Heimildir m.a.:
-http://www.ust.is/Natturuvernd/aksturutanvega
-http://www.althingi.is
-http://www.landvernd.is/frettirpage.asp?ID=1348
-http://www.icetourist.is/displayer.asp?cat_id=343
-Umferðarlög.
-Lög um náttúrvernd.
-Reglugerð um akstur í óbyggðum.
-Reglugerð um akstursíþróttir og aksturskeppni.
Utanvegaakstur.
Sel
Eftirfarandi „Frá sunnlenskum sveitabónda“ um sel birtist í Fjallkonunni 1890, 7. árg., 31. tbl., bls. 122-123:
það óefað teljast afturför í landbúnaðinum, að hafa ekki í seli, þar sem svo stendr á, að gott er um selstöður enn heimaland rýrt. Fyrst er nú það, að málnytan verðr meiri og betri í seljunum og skepnurnar þó oftast feitari og holdþéttari enn heima; og í öðru lagi „hvílast“ heimalöndin svo að beitin verðr drýgri og betri á þeim haust og vetr; enn fjallabeitin, sem ekki næst í nema um miðhluta sumarsins, vinst betr upp enn ella.
„Selstöður eru, nú orðið, því nær ekkert notaðar hjá því sem var á fyrri öldum. Eins og enn er ástatt með jarðræktina hér á landi, má
Líklega er það aðalástæðan fyrir mörgum, að nota ekki selstöður, að það sé of kostnaðarsamt með fólkshald, áhöld og hesta til selflutnings, fyrir ekki fleiri málnytupening enn á flestum búum er. Enn þessi ástæða hyrfi ef menn kæmu sér saman um félagsskap í þessu sem fleiru. Ef 3 bændr, sem eiga um 50 ær, legðu saman í sel, og legðu til einn mann hver (2 í selið, 1 til flutninga), og annan tilkostnað eins að hlutfalli, mundi það til lengdar verða miklu kostnaðarminna enn heimagæsla víðast hvar, því heima þyrftu þeir sinn smalann hver, auk allra annara tafa við málnytuhirðinguna, þó ekki væri búist við neinum mismun að öðru leyti. Selfólkið getr líka oft haft einhver smávegis aukastörf, ef tími er til, t. d. safnað fjallagrösum m. fl.
Kýr ætti að hafa í seli eigi síðr enn ær.“
Þerneyjarsel.
Sandgerði – skemmri skírn
Lýsing Sandgerðis einkennist af ESSum, hvort sem litið er til sögu eða staðhátta.
Hjarta Reykjaness.
Sandgerði er staðsett þar sem Sandgerðisvíkin skerst inn í Rosmhvalanes. Skerjaklasi skilur að Sandgerðisvíkina að sunnan (Bæjarskerseyri), en Sundið er á millum. Sýndist sumum siglingin um það stundum þrautarsund fyrrum. Sjávarströndin er sendin og skerjótt. Steinunn gamla sigldi fyrstur staðarmanna inn á svæðið, skuldlaus fyrir stakk. Sjósókn og sauðfjárhald hafa einkennt sveitina frá sköpun. Seinustu misserin hafa skil milli gamalla hverfa beggja vegna Sandgerðis, Bæjarskerja og Flankastaða, skolast út og þau orðið að mestu sambyggð.
Efra-Sandgerði.
Sandgerðisbærinn gamli er við Sandgerðistjörnina ofan við Sandgerðisvörina. Þar bjó Sveinbjörn Þórðason ásamt sonum sínum. Sumir segja að Sandgerði hafi áður heitið Sáðgerði, samanber kornrækt. Sandfok setti strik í reikninginn, en stórátak í sáningu melgresis á árunum 1930-´50 skipti sköpum. Steyptur sjóvarnargarður 1935 setti stefnuna á ný sóknarfæri í sjávarútvegi.
Sandgerði er stór smábær, með rúmlega sautján sinnum sjötíuogsjö íbúa. Setrið, öðru nafni Fræðasetrið, er í stöðugri sókn. Í Setrinu er ekki bara seli að sjá heldur og settlegan rostung, steina, stoppaða sjófugla, skrautlegar skeljar og smádýr svo eitthvað sé nefnt. Sjónaukar bjóðast þar til skoðunar fugla.
Stofan, eða Náttúrustofa Reykjaness, er undir sama þaki og Setrið. Sækjendum sem og sérfræðingum fjölgar stöðugt.
Skólar eru í Sandgerði fyrir skemmri stigin, sundlaug með sól- og setbekkjum og stækkun íþróttahússins hefur sagt til sín. Sveitarfélagið er í samvinnu um byggingu svæðismiðjunnar þar sem gert er ráð fyrir setu sjórnsýslunnar. Sveinsson fær það aðstöðu.
Hvalsnesgata.
Skýjaborg er samkomustaður smáfólksins, stráka og stúlkna. Söngvakeppnir eru skipulagðar þar og sjálfhælnir söngvarar, jafnvel prinsessur, sækja í staðinn til setu búa sinna. Sparkfélagið Reynir er í stöðugri framför, enda stuðningurinn stöðugur. Sigurstranglegir og á góðu skriði. Sköpun listar fer fram í listgallerýi og stærðar skírnarkerti, svo dæmi sé tekið, eru framleidd í Jöklaljósi. Skátar standa styrkum stoðum í Sandgerði og stunda staðfastir skátamót landsins.
Sveit Sigurvonar sýnir sjaldnast ónóg viðbrögð, slökkviliðið stendur sig vel og starf sjálfstæðra félaga, s.s. Lions, er stöndugt í Sandgerði.
Smekklegir eldri borgar hafa sannaralega komið sér vel fyrir í sérsmíðuðum húsum og safn bókanna hefur sameinast skólanum. Skil á bókum eru stöðug og haldast í hendur við útlán.
Sandgerði.
Slitlag er á vegum í og við Sandgerði. Stækkun hafnarsvæðis er stanslaust í gangi, en Suðurnesjafiskmarkaðurinn er staðsettur við höfnina.
Stórfengleg sýn listaverksins Álög eftir Steinunni Þórarinsdóttur er við suðurinnkomuna í Sandgerði. Þar stendur maðurinn andspænis sænum. Listaverkið er til minningar um látna sjómenn, sett upp á afmæli Miðneshrepps 1986.
Sögustaðir eru ófáir – Hunangshella – þar sem skepna var skotin er hún sleikti þar sýrópið, eða var það hunangið. Í Þórshöfn sló í brýnu með Englendingum og Þjóðverjum. Þórshöfn var einn helsti verslunarstaður þjóðverja á 15. og 16. öld. Skipakomur hófust þangað á ný á 19. öld . Jamestown strandaði þar 1881. Skipið var með allra stærstu seglskipum sögunnar. Sagan segir og að bellestin hafi verið silfurgrýti. Hugsanlega er silfursjóður þar á sjávarbotni.
Básendar – festarhringur.
Básar eða Bátsendar hýstu útgerð og verslun. Um siðaskiptin tók Viðeyjarklaustur útgerðina í sínar hendur. Skúli fógeti deildi þar við einokunarkaupmann danskan. Sjávarflóð 1799 lagði staðinn af.
Sakamenn voru hengdir í Gálgum, segir sagan.
Stafnes, fjölmennasta verstöð Suðurnesja á 17. og 18. öld. Þar strandaði Jón forseti 1928. Slysið leiddi til stofnunar slysavarnafélagsins Sigurvonar í Sandgerði og síðar Slysavarnarfélags Íslands.
Steinn Steinunnar Hallgrímsdóttur er Í Hvalsneskirkju. Altaristaflan er eftir Sigurð málara.
Melaberg.
Á Melabergi segja sumir að sonur ekkju hafi orðið strandarglópur á skeri Geirfugla, en bjargast ári síðar. Sór sá fyrir faðerni barns sækvynnu úr skerinu. Steyptist hann þá í Stakksfjörð þar sem nú stendur Stakkur.
Másbúðir eru m.a. kunnar fyrir fyrsta byssubardaga Íslandssögunnar og Fulgavík safnaði fólk sölum samhliða fiskveiðum og notaði í skepnufóður.
Hér segir einungis af skemmriskírn Sandgerðis. Vilji sagnasjóðir sækja í safaríkara efni er best að leita í Setrið, þar sem allt slíkt fæst svo að segja ókeypis.
Lindarsandur neðan Melabergs.
Reykjanesfólkvangur – Reykjaneshryggur
Nýlega fór fram einstaklega áhugavert fræðslukvöld í Saltfisksetrinu í Grindavík undir yfirskriftinni „Reykjanesfólkvangur – Reykjaneshryggur“. Fræðslukvöldið var liður í Viðburðardagskrá Grindavíkur 2008. Efni kvöldsins átti einkar brýnt erindi til áhugasamra sveitarstjórnarmanna, en enginn þeirra lét sjá sig. Viðstaddir gestir voru engu að síður mjög ánægðir.
Sigrún Helgadóttir líf og umhverfisfræðingur og dr. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskólans héldu sinn hvorn fyrirlesturinn um Reykjanesskagann, annars vegar þann hluta hans er fellur undir Reykjanesfólkvang og hins vegar framhald hans til suðurs, Reykjaneshrygginn.
Sigrún lýsti mjög vel núverandi möguleikum Reykjanesfólkvangs, bæði sem víðerni og nálægð við þéttbýliskjarna, og möguleika hans til næstu framtíðar. Fram kom að mikilvægt væri að reyna að skila svæðinu eins óröskuðu og nokkurs væri kostur til komandi kynslóða því verðmæti þess munu aukast í réttu samhengi við ásókn fólks í óspillt umhverfi.
Reykjanesfólkvangur – loftmynd.
Stofnun Reykjanesfólkvangs er samofin sögu náttúruverndar á Íslandi. Framkvæmdir við Grænavatn í Krýsuvík áttu þátt í að menn áttuðu sig á mikilvægi þess að almenn náttúruverndarlög giltu í landinu. Hugmynd að stofnun fólkvangs á Reykjanesi var samþykkt samhljóða í borgarstjórn Reykjavíkur árið 1969 og lögð áhersla á að land frá Elliðavatni til Krýsuvíkurbergs yrði gert að friðlýstu útivistarsvæði fyrir almenning. Fólkvangurinn var stofnaður 1. des. 1975.
Hvert sveitarfélag skipar einn fulltrúa í fólkvangsstjórn og fjárframlög eru í hlutfalli við íbúatölu sveitarfélaganna. Fulltrúi Reykjavíkur er formaður stjórnar. Frá 1981 hefur verið starfsmaður í hlutastarfi á sumrin til eftirlits.
Landið var vel gróið en hefur verið ofnýtt og gróður er nú mjög illa farinn, mikil ofbeit og landeyðing. Það er enn notað sem beitiland bæði er þar lausaganga búfjár og beitarhólf fyrir hross og sauðfé. Ýmsir áhugahópar hafa helgað sér svæðið m.a. til torfæruaksturs utan vega og er landið víða mjög illa farið af þeim sökum. Mikilvægt er að ná tökum á þessum vandamálum. Stefnt skyldi að friðun fólkvangsins fyrir beit og utanvegaakstri og leitast við að endurheimta fyrra gróðurfar (vistheimt).
Fólkvangar eru í umsjón sveitarfélaga ólíkt öðrum friðlýstum svæðum á Íslandi. Landið er í lögsögu Grindavíkur, Hafnarfjarðar, Álftaness og Garðabæjar en vegna mikilla hagsmuna annarra þéttbýlisbúa standa Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Reykjanesbær og Grindavík saman að fólkvanginum.
Svæðið fellur ekki að íslenskum eða alþjóðlegum skilgreiningum á fólkvangi en er þjóðgarðsígildi og hluta þess mætti friðlýsa sem víðerni. Jarðfræði svæðisins er merkileg á heimsvísu en þar eru plötuskil með tilheyrandi eldstöðvum af ýmsum gerðum og gömlum og nýjum hraunum. Svæðið var byggt frá landnámi fram á síðustu öld og þar er mikið af minjum um lífshætti fólks á fyrri tímum til lands og sjávar.
Djúpavatnsvegur um Stóra-Hamradal.
Vegir í fólkvanginum eru að mestu malarvegir. Sumir þeirra eru illa færir fólksbílum. Verið er að undirbúa lagningu Suðurstrandarvegar þvert í gegn um fólkvanginn. Tilkoma vegarins mun auka mjög umferð um fólkvanginn og nauðsynlegt er að bregðast við auknum gestafjölda með merkingum, upplýsingum og annarri þjónustu. Þá þjónustu þarf að veita um allan fólkvanginn, fyrst og fremst þarf að merkja áhugaverða staði og stika fjölbreyttar leiðir.
Þegar borin eru saman fjárframlög og stuðningur við Reykjanesfólkvang og önnur útivistarsvæði í nágrenninu, s.s. Bláfjallafólkvang og Heiðmörk, sést að fólkvangurinn er mikið olnbogabarn. Svæðið verður þó sífellt mikilvægara til útivistar fyrir þéttbýlisbúa SV-lands. Það gæti einnig haft mikið aðdráttarafl fyrir þá erlendu ferðamenn sem sækjast eftir menningarlegri og fræðandi útivist. Það form ferðmennsku er nú í mikilli sókn. Sú sérstaða að hægt sé að upplifa víðernisáhrif á daginn en stunda menningarlíf og fá góða þjónustu í þéttbýli um kvöld og nætur er mikill styrkleiki fyrir nálæg sveitarfélög.
Reykjanesfólkvangur – þrívíddarkort.
Sigrún kvað Reykjanesfólkvang vera um 300 km2 að stærð og langstærsta friðlýsta svæði sinnar tegundar hér á landi. Mikið er um jarðhitasvæði og margskonar náttúruminjar innan fólkvangsins. Árið 2004 tók Sigrún saman mjög ítarlega skýrslu fyrir stjórn Reykjanesfólkvangs um upphaf fólkvangsins og þær væntingar og hugmyndir sem fólk hafði um mikilvægi svæðisins og möguleika þess í framtíðinni. Hún sgði frá skýrslunni, niðurstöðum hennar og hugmyndum.
Sigrún Helgadóttir.
Í erindi sínu fjallaði Sigrún um aðdraganda og efnisöflun skýrslunnar, en í henni kom fram hlutlaust mat hennar sem fræðimanns á öllum helstu þáttum fólkvangsins, væntingar og möguleika til framtíðar. Í kjölfarið urðu umræður um núverandi stöðu og þá staðreynd að á 33 ára afmæli fólkvangsins hefði aldrei staðið fyrir dyrum önnur eins nýtingaráform á svæðinu og nú eru fyrirhuguð, virkjanir ,línulagnir, og Suðurstrandarvegur, og gengdarlaus utanvegaakstur svo eitthvað sé nefnt.
Gestum var tíðrætt um þá sýn sem við blasir á ferð um fólkvanginn, allir hlutir sem miða að því að bæta aðgengi að náttúruskoðun eru skemmdir og eyðilagðir, ekki hefst undan að laga nauðsynlegustu skilti er miðla upplýsingum.
Í máli Óskars Sævarsson, fulltrúa Grindavíkur í stjórn fólkvangsins, kom fram að allt til ársins 2005 hefur ráðstöfunarfé nefndarinnar verið af afar skornum skammti, eða um 2 miljónir á ári, og því lítið svigrúm gefist til framkvæmda.
Óskar Sævarsson.
Á borði núverandi stjórnar biðu því fjölmörg verkefni sem biðu úrlausna. Í dag hefur stjórnin náð að tvöfalda þetta fjármagn og verkefnavinna er hafin í tengslum við það. Má nefna tjaldstæði í Krókamýri sem útbúið var á síðasta ári og verður fullklárað í sumar, fjölmörg upplýsingarskilti fara á sinn stað, fólkvangsvörðurnar verða lagaðar, ruslamálum verður komið í lag og landvörslu verður sinnt á árs grundvelli.
Verkefnið hlaut m.a. styrk frá „National Science Foundation“ í Bandaríkjum og rannsóknarsjóð Háskóla Íslands. Notast var við sérhannað skip, R/S Knorr, til jarðfræðilegra rannsókna á sjó. Leiðangrinum lauk 15 júlí ´07 og var gagnasöfnunin mjög árangursrík. Í leiðangrinum var lokið við að kortleggja Reykjaneshrygginn upp að landgrunnsbrún. Þá kom meðal annars í ljós gríðarmikil megineldstöð í landgrunnsbrúninni, sem nefnd hefur verið Njörður. Megineldstöðin er á stærð við Reykjanes, eða um 50 km í þvermál. Fróðlegt verður að heyra dr. Ármann segja frá leiðangrinum og ná fram umræðum um þessa mikilvægu fiskislóð Íslendinga.
Dr. Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskólans sagði frá rannsóknum á Reykjaneshrygg sem fram fóru sumarið 2007.
Þessi rannsókn Jarðvísindastofnunnar voru umfangsmestu rannsóknir á Reykjaneshryggnum í 40 ár.
Reykjaneshryggur.
Reykjaneshryggur er einn áhugaverðasti hlutinn af hryggjakerfi heimsins fyrir þrjár sakir. Í fyrsta lagi er hann samfeldur með skásettu reki frá Bight-þverbrotabeltinu í suðri að Reykjanesi í norðri. Í öðru lagi hafa myndast misgamlir V-laga hryggir sem vísa út frá Íslandi og í þriðja lagi ber hann mörg einkenni háhraða gliðnunarbeltis þrátt fyrir að vera hægfara. Skýringarnar er talið að megi meðal annars rekja til heita reitarins undir Íslandi og þeirrar kvikuframleiðslu sem þar er umfram kvikumyndun hryggjarins. Í núverandi hryggjakerfi jarðar er Reykjaneshryggurinn undir mestum áhrifum heits reits. Þrátt fyrir öll þessi merkilegu einkenni er tilfinnanleg eyða í vísindalegri gagnasöfnun sem má rekja frá Íslandi og suður á 62° norðlægrar breiddar.
Ármann Höskuldsson.
Leiðangrinum lauk 15 júlí síðastliðinn og var gagnasöfnunin mjög árangursrík. Veðursæld einkenndi miðin á rannsóknartíma sem að eykur til muna gæði þeirra gagna sem safnað var. Frumniðurstöður rannsóknarinnar sýna að enn má sjá móta fyrir gömlu rekbeltunum tveim sem að stjórnuðu upphleðslu á Vestfjörðum og Snæfellsnesi. Vestfjarðarbeltið er afmarkað af misgengjum með allt að 400 m falli, en Snæfellsnes rekbeltið kemur aftur á móti greinilega fram á landgrunninu með um 100 m misgengi. Misgengi þetta hefur verið nefnt Suðurkantar á sjókortum. Neðan við landgrunnsbrúnina kom í ljós gríðarmikil megineldstöð sem nefnd hefur verið Njörður. Megineldstöðin er á stærð við Reykjanes, eða um 50 km í þvermál. Í toppi hennar má greina öskju, eða sigketil sem er um 10 km í þvermál.
Núverandi rekás Reykjaneshryggjar liggur í gegnum Njörð. Aðstæður við Njörð eru því svipaðar og í Kröflu, þar sem að megineldstöðin og sigketill hennar er klofin af Kröflusprungusveimnum.
Ármann fór í gegnum alla gossögu svæðisins og var einkar fróðlegt að sjá staðsetningar á eldsumbrotum á flekamótunum neðansjávar í gegnum tíðina. Tilurð þessara íslensku brotabelta er vel þekkt. Hryggjakerfi Norður-Atlantshafs rekur til vest-norðvesturs tæpan sentimetra á ári miðað við heita reitinn og með því að flæði möttulefnis undir Íslandi út frá þessari miðju er helsti drifkraftur flekahreyfinga, þá „leitast“ rekbeltin við að vera yfir heita reitnum. Í 15 milljón ára jarðsögu Íslands hefur slíkur gosbeltaflutningur orðið að minnsta kosti þrisvar.
Nú fer í hönd nákvæmari greining á gögnum og úrvinnsla, Gera má ráð fyrir áframhaldi á gagnasöfnun innan 2 ára, mun rannsóknum þá verða beint að varmauppstreymi, jarðhitakerfum, gossögu og bergfræði eldstöðvanna á rannsóknarsvæðinu.
Verkefnið hlaut styrk frá National Science Foundation í Bandaríkjum Norður Ameríku að upphæð um 30 miljónir króna og skipastyrk að upphæð 70 miljónir. Verkefnið er ennfremur styrkt af vísindasjóði Háskóla Íslands.
Þverbrotabelti einkenna allt rekhryggjakerfi jarðar, sem er um 60.000 km langt, og skiptist í búta sem hnikað er til hverjum miðað við annan. Almennt tengjast þverbrotabeltin ekki heitum reitum, heldur virðast þau hafa myndast um leið og rekhryggurinn sjálfur og haldast síðan nokkuð stöðug. Myndun þeirra er því sennilega háð spennusviðinu sem ríkti þegar hryggurinn var að myndast.
Um miðjan september 2013 lauk mánaðarlöngum rannsóknarleiðangri á Reykjaneshrygg með rannsóknarskipinu Marcus G. Langseth. Í leiðangrinum var syðsti hluti Reykjaneshryggjar kortlagður með fjölgeislamælitækni í fyrsta sinn.Reykjaneshryggur er lengsti samfelldi rekhryggur jarðar.
Það er því heimsviðburður að í lok leiðangurs er hryggurinn að fullu kortlagður.
Ármann sýndi gestum kort og myndir af undraheimum Atlantshafshryggjarins. Reykjaneshryggurinn var kortlagður, sem fyrr segir, frá landgrunnsbrún. Stórkostlegt landslag kom þá ljós með fjöllum og eldstöðvum á stærð við Reykjanes allt að 50 km í þvermál, hæstu fjöll hryggsins eru um 600 metra há.
Fjörlegar umræður um svæðið fóru fram í lok erindis, m.a. um hitasvæði í sjó gasuppstreymi og olíu ( sem þarna er). Vænlegustu svæðin eru sunnan undan Grindavík, þ.e. þau svæði, sem líklegast munu nýtast til orkuöflunar í nánustu framtíð.
Ljóst er að Reykjanesfókvangur hefur á ýmislegt að bjóða áhugasömu fólki.
Heimildir m.a.:
–www.jardvis.hi.is/
-grindavik.is
Reykjanesskagi.
Stekkjarhraun – Nónklettar
Ætlunin var að skoða Stekkjarhraunið (nú á millum Berga og Hlíðar í Setbergshverfi) og leita uppi nokkur örnefni og minjar, sem þar er að finna. Þá átti að ganga upp á Setbergshlíð og skoða svonefna Nónkletta, sem þar eru, eyktarmark frá Urriðakoti.
Búrfellshraun kemur úr gígnum Búrfelli sem er um það bil 7 km austan við Hafnarfjörð. Sjá á korti litað grænt, merkt H 105. Búrfell tilheyrir eldstöðvakerfi kennt við Krýsuvík. Búrfell er hringlaga gígur úr hraunkleprum. Gígurinn er 179 metrar yfir sjó þar sem hann er hæstur og 140 metrar að þvermáli milli barmanna. Dýptin hefur mælst 58 metrar frá hæsta og 26 metrar frá lægsta barmi. Mismunurinn á barmi gígsins stafar af misgengi sem átti sér stað eftir að eldvarpið hlóðst upp.
Búrfellshraun er innan marka Garðabæjar og Hafnarfjarðarbæjar. Tveir megin hraunstraumar hafa komið frá Búrfelli. Það sem aðgreinir þessar kvíslir er Helgadalshraun. Búrfellið gengur undir ýmsum nöfnum eftir því hvar það er. Sá hraunstraumur sem er Hafnarfjarðarmegin hefur eftirfarandi nöfn: Næst Búrfelli er Smyrlabúðahraun (kennt við fuglinn smyril sem gerði sér hreiður þarna), Gráhelluhraun, Lækjarbotnahraun, Stekkjarhraun, Sjávarhraun, Arnarhraun og vestar heitir það Flatarhraun. Garðabæjarmegin er fyrst Garðahraun, Urriðakotshraun, Vífilstaðahraun, Hraunholtshraun, Gálgahraun og Balahraun. Hraunið er stórbrotið apalhraun og meðalþykkt þess er ekki undir 20 metrum. Samkvæmt aldursákvörðun á mó sem kom í ljós hjá Bala á Álftanesi er það um 7240±130 C14 ára. Stærð hraunsins er um 18 km2.
Sá hraunstraumur sem runnið hefur í Heiðmörk og niður í Garðabæ hefur runnið eftir fallegri hrauntröð sem nefnist Búrfellsgjá. Búrfellsgjá þykir með fallegri hrauntröðum landsins. Gjáin er 3,5 km á lengd með meginstefnu í norðvestur. Búrfellsgjá er mjóst upp við gíginn eða um 20-30 metrar milli barma en breikkar þegar lengra dregur og verður mest 300 metrar. Í hrauninu út með Vífilsstaðahlíð grynnkar hrauntröðin og hverfur, sá endi Búrfellsgjár nefnist Selgjá. Á köflum eru gjárveggirnir
þverhníptir og mynda sums staðar grunna hellisskúta sem eru með snarhöllu þaki. Barmar, veggir og botn hrauntraðarinnar er allt úr Búrfellshrauni.“
„Stekkurinn“ er reyndar þrír slíkir í Stekkja[r]hrauni; einn frá Hamarskoti, annar frá Görðum og sá þriðji frá Setbergi, austan markanna. Línan lá um Lambadrykk í Sýlingahellu. Líklega hefur nafnið þótt eftirbreytanlegt því sama örnefni er á hrauntanga vestan Urriðakotsvatns, sbr.: „Mjóitangi er ystur og þar um liggur landamerkjalínan. Rétt innan við, yst á tanganum, er svonefndur Kriki og líið eitt norðar eru Kvíar og Kvíanef. Hér liggur Lambhagagarður þvert yfir tangann. Þá er nokkur norðar Sýlingahella og liggur þar um landamerkjalínan og úr henni Klofavörðusteinn og þaðan í Stórakrók. „
Þá segir í örnefnalýsingum fyrir Setberg. „Hér vestur af og neðan hraunsins rann Hamarskotslækur. Þar var rafveitustíflan og rafveitutjörnin þar ofan við. Þegar læknum er fylgt um Setbergsengjarnar, mætir hann svo Botnalæk og tekur hann þá þverstefnu og nefnist þá Þverlækur. Þar var Þverlækjarstíflan og Þverlækjarlónið um 1917 til 1930, en fyrr meir voru hér Þverlækjarstiklur og Þverlækjarbrú, sem farið var um, þegar syðri Setbergsstígurinn var farinn til Hafnarfjarðar.
Lækjarbotnalækurinn saman við læk, sem kemur úr gagnstæðri átt og á upptök í Urriðakotsvatni, sem er á mörkum Setbergs og Urriðakots. Eftir að lækirnir koma saman rennur lækurinn, sem þeir mynda og þá fær nafnið Þverlækur, vestur í hraunið og til sjávar í Hafnarfirði og hét þar Hamarskotslækur.
Í raun eru miklu mun fleiri minjar á þessu svæði en skráðar hafa verið. Má þar nefna brúarhleðslur á gömlu leiðum, vatnsveituminjar frá fyrstu tíð rafvæðingar í Firðinum, búsetuminjar frá fyrri öldum og eyktarmörk svo eitthvað sé nefnt. Fátt af þessu hefur verið skráð, en fjölmörgu spillt vegna áhugaleysis – a.m.k. fram til þessa.
Búrfell gaus einu sinni, það var flæðigos og framleiðslan var fyrst og fremst Búrfellshraun. Meginuppistaðan í eldvarpinu eru kleprar, þeir eru lagskiptir og hallar lögunum bratt niður í gíginn. Rofist hefur ofan og utan úr Búrfelli og hefur myndast hvasst egg á toppi fjallsins sem er úr lausri gosmöl.
Stekkjarhraun er nú friðlýst sem fólkvangur. Tilgangurinn er að vernda útivistarsvæði í fögru hraunumhverfi þar sem jafnframt er athyglisvert gróðurlendi og sérstakar menningarminjar. Stekkjarhraun er hluti af fyrrnefndum hraunum sem runnu í Búrfellseldum fyrir um 8000 árum. Hraunið er í beinu framhaldi af Gráhelluhrauni og hefur hraunið runnið um þröngan farveg milli Setbergshlíðar og Mosahlíðar. Aðgengi að svæðinu er gott og er það því ákjósanlegt til fræðslu og útikennslu. Með friðlýsingunni er einnig verið að vernda votlendisbletti við Lækinn þar sem hann rennur með Stekkjarhrauni, en þar vaxa m.a horblaðka og starir sem eru fágætar tegundir í þéttbýli. Hraunið dregur nafn sitt af stekk eða stekkjum frá Hamarskoti og Görðum, sem enn má sjá leifar af.
Hraunið vestur af Setbergsholti heitir Stekkjarhraun. Milli hraunsins og holtsins rennur lítill lækur úr suðri, Lækjarbotnalækur. Við engjarnar, sem voru neðan við túnið, kom
Landamerkjalínan mun fyrrum hafa legið með læknum og hér suður fyrir í kletta, sem nefndust Sýlingahella. Héðan lá svo línan suður yfir Stekkjarhraun upp í Markaþúfu á holtinu austan Aldanna og þaðan í Lækjarbotna. Nánar tiltekið lá landamerkjalínan í garðsenda og síðan í fyrrnefnda Sýlingahellu.
Sunnan við suðurtúngarðinn er upp undir holtinu Setbergskot eða Austurkot; þar sér enn rústir eftir [nú horfnar]. En neðan kotsins er Kotamýri. Út á Stekkjarhrauni er Stekkurinn. Í bréfi frá 1670-80 segir, að Hamarskot og Garðar hafi haft þarna stekk. Rétt hjá er vatnsból, nefnist Lambadrykkur. Vestan undir hrauninu eru hvammar tveir. Nefnast þeir Atkeldan nyrðri og Atkeldan syðri, en frá þeim rennur Atkeldnalækur. At til litunar var tekið í þessum stöðum. Botnalækur kemur í Lækjarbotnum.“
Í örnefnaskrám fyrir Setberg er getið um Nónkletta: „Setbergsholt er allt holtið kallað vestan frá hömrunum og austur eða suður um. Upp frá fjárhúsinu var Fjárhúsholt og þar efst á holtinu Nónklettar, en þeir voru eyktamörk frá Urriðakoti.“ Í dag eru Nónklettar einungis „stekkur“ því flestir þeirra hafa verið fjarlægðir og notaðir í garða bæjarbúa líkt og svo margt annað er tilheyra liðinni sögu Hafnarfjarðar, sbr. Hraunaréttinn, sem „hvarf“. Allt hefur það verið athugasemdalaust til þessa dags.
Við friðlýsingu Stekkjarhrauns var þess gætt að friðlýsa allt hraunssvæðið, en engar áætlanir hafa verið gerðar að merkja sýnilegar minjar eða merkileg jarðfræðifyrirbæri á svæðinu, áhugasömum bæjarbúum til upplýsingar og fróðleiks.
Frábært veður. Gangan tók 1 klst og 1 mín.
Heimild m.a.:
-Örnefnalýsing fyrir Setberg.
-Örnefnalýsing fyrir Urriðakot.
Stekkjarhraun – kort.
Skjólklettur – Langiklettur – Strýtuklettur – Dirgirabotnar
Í landi Reykjatorfu í Ölfusi í Árnessýslu er örnefnið Dirgirabotnar, mýrarbrúnin þar sem Ölfusborgir standa (Árbók Ferðafélagsins 2003:128). Þar eru einnig tveir Dirgiralækir, syðri og nyrðri, og Dirgiramýri.
Örnefnið Dirgirabotnar er í örnefnaskrá Örnefnastofnunar einnig stafsett Dyrgirabotnar með ypsíloni. Ekki verður séð í fljótu bragði hvaða skýringu væri hægt að gefa á örnefnaliðnum Dirgira-. Það virðist ekki skylt neinu íslensku orði eins og það er stafsett og ekki verður það fundið í orðabókum. Athugandi er hvort rithátturinn með -y- gefi frekar merkingu. Hugsanlegt væri þá að orðið *dyrgir (kk.et.) hefði verið til og þá haft um læk, hugsanlega skylt orðinu dorg. Lækirnir tveir hefðu þá verið nefndir Dyrgirar (beyging eins og hellir – hellirar) og lækjabotnarnir eftir þeim Dyrgirabotnar. Orðið dorg getur merkt auk ‘handfæris’, ‘skán á mjólkurbyttu, myglu- eða óhreinindaskán á íláti’, sbr. nýnorsku dorg ‘kvista- og mosarusl’ (Ásgeir Blöndal Magnússon, Íslensk orðsifjabók). Til samanburðar má nefna að þrjár ár í Noregi heita Dørja (Dørgja) og hefur það nafn verið sett í samband við dorg í merkingunni ‘handfæri’ (Norsk stadnamnleksikon). Tæplega er þó hægt að hugsa sér það í tengslum við Dirgiralækina í Ölfusi, sem ekki er vitað að séu eða hafi verið neinir dorgstaðir.
Annar kostur væri að líta á orðið „dyrgir“ sem orð samsvarandi dyrgja ‘digur kona’ og dvergur, og þá átt við e-ð lágvaxið og durgslegt. Þá væri e.t.v. átt við kletta í nágrenninu. Þar er reyndar Strýtuklettur og Strýtuklettsdý en vatn úr þeim rann í Dirgiralækinn syðri, og Skjólklettur, en Skjólklettsmýri er á milli Dirgiralækjanna, nefnd öðru nafni Dirgiramýri. Á þessum slóðum er líka Langiklettur. Hugsanlegt er að þessir klettar hafi verið nefndir Dyrgirar, þó að það ætti illa við Strýtuklett. Annað er að munnmæli hermdu að Skjólklettur væri álfakirkja og „sannorðir“ menn sögðust hafa heyrt þar söng. Ekki er vitað hvort einhverjir dvergar voru þar á ferð.
Bæði lækir og klettar geta haft nöfn með viðskeytinu -ir, t.d. Gegnir sem lækur og Kleykir sem klettur. Hér gæti því hvort heldur verið, að Dyrgir væri nafn á læk eða kletti.
Þegar komið var að svonefndum „Langakletti“ datt einhverjum strax í hug örnefnið „Hryggur“ eða Hryggjarklettur“, en Langiklettur skal hann heita….
Heimild:
-http://dagskra.ruv.is/vittogbreitt/islenskt_mal/slenskt_ml_4_oktber_20075/
Ölfusborgir og nágrenni.