Árni Óla, blaðamaður, grúskari og samhengishugsuður, skrifaði eftirfarandi um „Krýsuvík“ í Lesbók Morgunblaðsins árið 1932:
„Krýsuvík er landnámsjörð. Þar nam Þórir haustmyrkur land. Þá hefir byggðin sennilega verið vestar en nú er, eða þar sem kölluð er gamla Krýsuvík. Eru bæjarrústir þar í hrauni og sandi sem nú er óbyggilegt. Um skeið var Krýsuvík höfuðból með mörgum hjáleigum. Nú er lítið orðið eftir af fornri frægð.
Þegar fara skal hjeðan til Krýsuvíkur er nú um tvær leiðir að velja. Önnur er sú, að fara í bifreið til Grindavíkur. Þaðan er ruddur bílvegur austur að Ísólfsskála og bílar hafa klöngrast alla leið þaðan til Krýsuvíkur. en slæmur mun vegurinn víða vera, aðalega vegna lausagrjóts. Þeir sem fara þessa leið mega því búast við því að verða að ganga milli Ísólfsskála og Krýsuvíkur.
Hin leiðin, sem farin hefir verið frá öndverðu liggur frá Hafnarfirði, um Kaldársel og síðan „undir hlíðum“, sem af því hafa dregið nafn og kallast nú Undirhlíðar. Hefjast þær rjett fyrir vestan Helgafell og ná saman við Sveifluháls, en hann teygir sig alla leið suður undir sjó á milli Ísólfsskála og Krýsuvíkur. – Fremst er hnúkur, sem heitir Mælifell, og er hann tilsýndar að norðan mjög svipaður Keili.
Vegurinn meðfram hlíðunum er sljettur og liggur milli hrauns og hlíða alla leið. Mætti þar ryðja góðan bílveg. Undirhlíðar eru fallegar og stinga mjög í stúf við grátt og grettið hraunið. Þær eru talsvert grónar og skjógarkjarr í þeim virðast og mikið af þröstum í skóginum. Ómar hinn dillandi söngur þeirra hátt og lágt í hlíðunum.
Fyrst í stað er útsýn lítil, en þegar kemur suður með Sveifluhálsi er úti í hrauninu Fjallið eina (223 m) og þá Hrúthólmi (200 m). Hjá Sandfelli er nokkur brekka upp Sandfellsklofa upp á Norðlingaháls og blasa þá við í hrauninu Mávahlíðar (237 m) og hálf svipill fjöll þar fyrir vestan, Trölladyngja (393 m) og Grænadyngja (390 m). Vegurinn heitir Ketilsstígur og dregur nafn af kvos nokkurri eða skál, vestarlega í Sveifluhálsi, og heitir hún Ketill. Þar liggur leiðin yfir hálsinn til Krýsuvíkur, Er hálsinn allhár og er sagt að fallegt og einkennilegt sje að sjá af honum yfir Kleifarvatn og Krýsuvíkursveit. Nú eru menn að vísu hættir að fara þessa leið, heldur er farið milli Undirhlíða og Sveifluháls yfir Vatnsskarð upp að norðurbotni Kleifarvatns og svo suður með því að vestan.
Þriðja leiðin, sem ókunnugir ættu að vara sig á, liggur frá Katlinum suðvestur með hlíðum að Vigdísarvöllum. Þar voru áður tveir bæir. Stóðu þeir á völlum nokkrum í krika milli Vigdísarháls (230 m) og Núpshlíðarháls (354 m). Annar bærinn hefir nú lengi verið í eyði og hinn um nokkur ár. Þeir töldust til Krýsuvíkursóknar, þótt þeir væru vestan Sveifluháls. Þar er gríðarstórt tún og nær eggsljett, en nú er kominn mikill mosi í það af órækt. Það hefir verið girt af með voldugum túngarði og er hann víða stæðilegur enn. Eftir húsatóftum að dæma, hefir þarna verið stórt bú. En uppi úr nokkru af rústunum hefir verið bygð fjarrjett.
Í Krýsuvík er nú í rauninni aðeins einn bær bygður, Nýibær. Sjálft höfuðbólið Krýsuvík er að vísu í ábúð, en það er hreinasta rányrkja.

Bærinn hefir staðið í eyði á vetrum og er nú orðinn svo hrörlegur, að ekki er hægt að búa í honum lengur. Hjálpast þar að viðhaldsleysi og rottugangur mikill. Hafa rotturnar grafið allan bæinn sundur. Kirkja var þarna fyrrum, en hún var lögð niður fyrir fjórum árum. Stendur þó húsið enn, ofurlítill kumbaldi úr timbri. Og nú ætlar ábúandi að búa í henni í sumar, hefir rifið úr henni bekki, altari og prjedikunarstól og hefir bekkina fyrir rúmbríkur. – Túnið er komið í megna órækt og hefir ekki verið slegið síðast liðin sumur. Er það því ekki nema tímaspurnsmál hvenær Krýsuvík leggst algerlega í eyði, því að hvorki eigandi nje ábúandi munu hafa hug á því að bygja upp staðinn. Og þegar húsin eru fallin, getur enginn hafst þar við.
Í Stóra-Nýjabæ er bygging fremur ljeleg, en þó hefir ábúandi bygt þar baðstofu og mikið af peningshúsum. Hann hefir nú búið þarna í 37 ár samfleytt og komið þar upp 17 mannvænlegum börnum, 10 dætrum og 7 sonum.
Þegar hann kom að Nýjabæ voru 8 bændur í Krýsuvíkurhverfinu og var þá Krýsuvík enn höfuðból. En nú er sem sagt allar jarðirnar komnar í eyði nema Nýibær. Jeg spurðu hann hvernig á þessu stæði og sagði hann að jörðinni hefði hrakað stórum síðan hann kom þangað, og Kleifarvatn ætti sinn drjúga þátt í því.
Kleifarvatn er hinn mesti kenjagripur, vex ýmist eða lækkar stórkostlega, án þess að menn viti glöggar orsakir til þess. Í mestu leysingum á vorin sjer varla neinn mun á því að það hækki, en svo vex það máske smám saman ár frá ári, og svo kemur aftur tímabil að alt af minnkar í því. Fyrir allmörgum árum var ágætt flæðiengi sunnan við vatnið. Fengust af því 500 hestar af stör og um 100 hestar af eltingu á bökkunum. en svo tók Kleifarvatn að vaxa, flæddi yfir alt þetta engi og lá á því samfleytt 8 ár. Þá var vatnið svo mikið að ekki varð komist með fram því öðru vísu en hleypa á sund fyrir forvaða. Fyrir nokkrum árum tók vatnið svo að lækka og hefir lækkað ár frá ári. Þar sem hið góða starengi var áður, er nú ægisandur og rýkur úr honum yfir engjarnar, sem eftir eru efst í dalnum, og spillast þær af því ár frá ári. Nú er svo lítið í Kleifarvatni að stórt fjöruborð er undir forvöðum þeim þar sem áður va á sund. Lambatangi, sem áður var eyja langt úti á vatni, er nú landfastur fyrir löngu. Þar verptu áður álftir á hverju ári, en nú hafa þær ekki frið þar lengur og hafa flutt sig búferlum að Arnarvatni, sem er uppi á Sveifluhálsi, rjett hjá veginum frá Katli og er 278 metra yfir sjávarflöt. – Í botni Kleifarvatns eru margir heitir hverir, og eru nú tveir þeirra komnir upp úr því að sunnan. Í fyrra var
hitinn í vatninu mældur og reyndist 9-20 stig. Er það því útvalinn sundstaður, og eflaust stærsta sundlaug hjer á landi. en vegna hitans í vatninu er talið að silungur geti ekki þrifist þar, þótt lífskilyrði sje að öðru leyti góð fyrir hann. Áður fyrri var þó silungur í vatninu, að því er Eggert Ólafsson segir í ferðabók sinni, en nú sjest þar ekki branda, og hefir ekki sjest langa lengi. Silungurinn hefir orðið aldauða, og má vera að það stafi af því að hverir hafi komið upp í vatninu og orðið silungunum að bana. En þrátt fyrir það þótt Kleifarvatn sje svona hlýtt, leggur það landa milli á vetrum og þarf ekki ýkja mikið frost í logni til þess að helluís komi á þa og hefir oft verið farið með hesta yfir það á ísi, þvert og endilangt.

Annað, sem bóndinn á Nýjabæ taldi jörðinni til foráttu, er sívaxandi ágangur sauðfjár og hesta. Streymir þangað fje úr Grindavík, Höfnum, Stafnesi og víðar og stóð af Ströndinni. Á seinni árum hefir sauðfjárrækt aukist mjög í Grindavík, en þar eru engir hagar og streymir fjeð því þegar á vorin á Krýsuvíkurheiði og eru oft þúsundir fjár þar í heimalandinu. – Girðingar eru engar til þess að bægja þessum stefnivarg frá og má heita ógerlegt að verja tún og engjar. Fjeð gengur þarna umhirðilaust alt vorið og þar bera ærnar. Þegar fram á sumar kemur, eru gerðir út fjölda margir menn til þess að smala fjenu saman og marka lömb. Er alt safnið rekið í stóra rjett og veit enginn hvað hann á af lömbum, hve margar ærnar eru tvílembdar, hver margar lambgtur eða geldar. Í rjettinni eru ærnar látnar helga sjer lömbin meðan til vinst, eða meðan nokkur skepna jarmar. Lömbin eru jafnóðum mörkuð og ærnar helga sjer þau, en alt af vera margir ómerkingar eftir, eigi færri en 60 í fyrra. Eins og nærri má geta er ullin farin að trosna á rollunum og í þrengslunum og troðningnum í rjettinni slitnar hún svo af þeim, að alt rjettargólfið er eins og einn ullarbingur að kvöldi og vaða menn þar ullina eins og lausamjöll. Þannig gengur nú sauðfjárræktin á þeim stað, en auðvitað yrði Grindavíkur og Hafnamenn í vandræðum með sitt fje, ef Krýsuvíkurland væri afgirt.
Krýsuvík hefir verið ágæt sauðajörð, enda hafa bændur lifað þar aðallega á sauðfjárrækt, því að tún hafa verið fremur lítil og ljeleg. Í Nýjabæ var alt túnið ákaflega stórþýft þegar núverandi ábúandi kom þngað. Var það líkast því sem há upphlaðin leiði væri hvert við annað. Nú hefir mestur hluti túnsins verið sljettaður og er í góðri rækt, svo að bóndi getur haft þar þrjár kýr. Auk þess hegir hann komið þar ipp góðum matjurtargörðum, en þeir þektust ekki, er hann kom þangað. Fær hann nú árlega um 20 tunnur af kartöflum og nokkuð af rófum. Þrífast kartölfur þar vel og er þó enginn hiti í jörð þar sem garðarnir eru.
Hlunnindi eru lítil; trjáreki er þó nokkur, og eggja og fuglatekja í Krýsuvíkhrubergi, en síga verður eftir hverju eggi og hverjum fugli. Í Geststaðavatni, sem er þar uppi í heiðinni, er dálítil silungsveiði. Var silungurinn fluttur þangað fyrir mörgum árum að ráði Bjarna Sæmundssonar og hefir hann þrifist þar vel.
Það hefði einhvern tíma verið kallað gott bú hjá bóndanum í Nýjabæ, 3 kýr, 14 hross og rúmlega 400 fjár framgengið. En hvað er gott bú nú?
-Jeg hefi reynt að halda í horfinu, segir hann, og búið hér ekki gengið saman. en nú er svo komið, að það er einskis virði, nema að eins það, sem fæst af því til heimilisins. Í haust sem leið fekk jeg 200 krónur fyrir jafnmargar kindur og lögðu sig á 1100 krónur á stríðsarunum. Ull og gærur telur maður ekki lengur. Fyrir 10 pd. sauðargæru fekk jeg t.d. að eins kr. 1.50 í haust. –
Eins og áður er sagt er gott sauðland í Krýsuvík og verður því að treysta mest á sauðfjárrækt. Útbeit er ágæt, þótt engin sje fjörubeit, en fjeð þarf nákvæmrar hirðingar og verður maður alt af að fylgja því á vetrum. Er það nokkur furða þótt menn trjenist upp á því, þegar þeir sjá að til einskis er barist? Eina vonion er að úr rætist um sölu sauðfjárafurða, og þess má ekki lengi bíða, ef fjöldi sauðfjárbænda á ekki að hverfa frá búskapnum og jarðirnar að leggjast í eyði, í viðbót við þann eyðijarðafjölda sem fyrir er.

Fyrir mörgum árum starfræktu Englendingar brennisteinsnámur í Krýsuvíkurhjeraði. Bygðu þeir þar nokkur stór hús og sjer enn móta fyrir því hvar þau hafa staðið. En þetta fyrirtæki fór á höfuðið og hafði verið eytt til þess miljónum. Brennisteinninn gekk til þurðar þessi árin og nú erfitt að finna mikið af hreinum brennisteini, þar sem námurnar voru. En leifar mannvirkjanna eru þar þögull vitnisburður um mishepnað erlent fyrirtæki hjer á landi. Að minstu leyti mun þó fje það, sem námafjelagið tapaði, hafa runnið í vasa Íslendinga. Íslenskir verkamenn fengu eina krónu á dag vor og haust en hálfa krónu um sláttinn, og hestleiga mun hafa verið 1-2 krónur á dag. (Brennisteinninn var allur fluttur á hestum til Hafnarfjarðar).
Ferðamenn, sem fara til Krýsuvíkur, ætti að skoða Kleifarvatn, brennisteinsnámurnar og þó fyrst og fremst stóra leirhverinn, sem kom upp árið 1925. Hver sá er skamt ofan við Nýjabæ, norðan í svokölluðum Tindhól, og er skamt rá veginum. Þarna var áður dálítil velgja í jarðveginum, en enginn hver.
Svo var það einn morgun að fólkið í Nýjabæ vaknaði við vindan draum – svo snarpan jarðskjálfta, að það kastaðist til í rúmunum, en brak og brestir voru í hverju bandi, eins og kofarnir ætluðu niður að ríða. Jarðskjálfti þessi stafaði af því að hinn nýi hver braust út. Varð það með svo geisilegum krafti að stór spilda sprakk úr hæðinni og þeyttist langar leiður, en sjóðandi leðja úr hverjum vall alla leið noðrur að Kleifarvatni og tók alveg af læk, sem engjafólk var vant að sækja drykkjarbatn í. Gríðarstór steinn, sem var uppi á melnum, fleygðist langar leiðir í burtu og stendur nú nokkuð frá hvernum sem talandi tákn þessara hamfara náttúrunnar.
Hver þessi mun tvímælalaust vera stærsti og hrikalegasti leirhver í heimi. Englendingur nokkurð, sem skoðað hafði brennisteinshverina í Ítallíu og Nýja Sjálandi, varð alveg höggdofa og mállaus af undrun, er hann sá þennan hver. Enda mun flestum fara likt er þeir sjá hann, að þeir verða orðlausir af undrun og hryllingi, því að hann er ægilegur, og krafturinn svo óskaplegur, að enginn getur gert sjer í hugarlund nema sá, er sjer hann. Hverinn mun lílkega vera um 8-10 m. í þvermál og þarna þeytast óaflátlega upp ótal leðjustrókar, mannhæðar eða tveggja mannhæða háir. Leðjan byltist þannig og gýs í æðisgegnum hamförum, en gufumörkkurinn er svo þjettur, að ekki sjer í sjálfan hverinn, nema vindur sje og gufuna legi frá. Þegar logn er stígur gufumökkurinn svo hátt í loft upp, að hann sjest hjeðan frá Reykjavík yfir fjöllin. Uppi í melnum, ofan við sjálfan hverinn, eru gufuhverir nokkrir, og þeytist gufan þar út af svo miklum krafti að líkast er þegar skip „blása af“ sem ákafast, og er hvinurinn svo mikill að vart má heyra mannsins mál. Er melurinn sundur soðinn af gufunni og þessum óskaplega hita. Fyrir neðan hverinn eru þrír eða fjórir aðrir hverir. Sá næsti er stærstur, hringmyndaður og sljettur á yfirborðim nema hvað alt af kraumar í honum og með nokkuru millibili skvettist upp úr honum dálítið gos á einum stað, eons og hann sje að reka út úr sjer tunguna framan í áhorfanda.

Einn ef hverum þessum er ákfalega heitur og hvín látlaust í honum, en ekki er gott að komast að honum.
Síðan þessi mikli hver myndaðist, hafa menn tekið eftir því, að hverirnir í fjöllunum beggja vegna hafa kólnað að mun og sumir þegar orðið kaldir.
Það er engin leið að giska á hver ægikraftur leysist þarna úr læðingi og eyðist engum til gagns. Ágiskanir geta orðið fjarstæða á hvora sveifina sem er, en trúa myndi jeg, væri mjer sagt það, að kraftur þessi mundi nægja til þess að framleiða nóg rafmagn handa Suðurlandi, svo vítt, sem giskað er á að afl Sogsfossanna muni nægja.
Væri góður bílvegur til Krýsuvíkur, er enginn efi á því að útlendir ferðamenn mundu streyma þangað hópum saman til þess að skoða hver þenna, enda mun varla upp á meiri náttúrundur að bjóða hjer á landi.“
Frásögn þessi er ekki síst athyglisverð í ljósi umræðna um sveiflukennt vatnsborð Kleifarvatns, ágang búfjár í Krýsuvík og virkjunarmöguleika á svæðinu.
Eiríkur Tómasson frá Járngerðarstöðum í Grindavík skrifaði „Athugsasemdir“ við ofangreinda grein í Morgunblaðið þannn 30.08.1932:
„Í Lesbók Morgunblaðsins, frá 26. júní s.l., er ritgerð um Krýsuvík eftir Árna Óla. Þar er sumt sagt á þann hátt að valdið getur misskilningi hjá þeim, sem hjer eru ókunnugir, ef engin athugasemd fylgir, hygg jeg það stafi af því að höfundurinn taki heimildarmanninn helst til bókstaflega.
Hið fyrsta, sem jeg hygg rangt með farið er það, að mjer vitanlega hefir enginn bíll farið enn milli ísólfsskála og Krýsuvíkur, en frá Hafnarfirði fór bíll í fyrrasumar þangað.
Það í umræddri grein, sem jeg vil aðallega gera athugasemdir við eru ummæli þau, er höfundurinn hefir eftir Nýjabæjarbóndanum um Grindvíkinga og sauðfje þeirra. Það, sem fyrst skal tekið fram er það, að sauðfje í Grindavík mun ekki hafa fjölgað á síðustu árum.
Þá er það ekki rjett, að Grindavík eigi ekkert beitiland. Það er að vísu ekki mikill gróður í því eftir stærðinni að dæma, en hið sama má segja um Krýsuvíkurland, það er víða ærið hrjóstugt þó gróður sje þar meiri en í Grindavíkurlandi. — Grindavíkurland er geysistórt. Það nær vestan frá Valahnúkamöl á Reykjanesi, liggja landamörkin þaðan um Sýrfell, Stapafell, Kálffell, Vatnskatla í Fagradalsvatnsfelli og Sogasel, þaðan suður Núpshlíðarháls og að sjó í Seltöngum. Að dæma alt þetta svæði haglaust, er vægast sagt þarflausar ýkjur, enda gengur þar margt af fje Grindvíkinga og sjest það best er smalað er til rjetta á haustin, fæst þá góður samanburður á því fje, sem kemur úr Grindavikurlandi og því er frá Krýsuvík kemur, og er það alltaf lítill hluti heildarinnar samanborið við heimasafnið. En þetta er þar að auki mál, er fyrir allmörgum árum hefir náðst samkomulag um, þar sem Grindvíkingar borga árlega hagatoll til ábúandans í Krýsuvík og auk þess leggja þeir til milli 20 og 30 menn við fjársöfnun í Krýsuvíkurlandi til rjetta á hverju hausti.
Það, sem sagt er um smölun á vorin er sumt hreinasta bull, t.d. það, að menn viti ekki hve margar ær þeirra eru geldar eða búnar að missa. Það er að vísu satt, að menn vita það ekki fyr en í rjettirnar kemur, en þá er vönum fjármönnum auðvelt að ganga úr skugga um hvort ær eru með lambi eða ekki; hitt er oft að menn vita ekki hvaða ær eru með einu eða tveimur lömbum, en aðferðir til ap komast að því, og oft heppnast, þekkja vanir fjármenn, að minsta kosti þar, sem fje gengur saman úr fleiri sveitum um sauðburðinn.
Jeg tel það mjög vafasamt að Nýjabæjarmenn hafi nokkurn tíma hirt um að telja lömb þau, er afgangs verða þar við aðrekstra á vorin, en hafi þeir talið þau í fyrra og þá reynst að vera 60, þá mun það vera óvenju margt, en svo ber þess að gæta að nokkuð af móðurlausum lömbum kemst til mæðra sinna eftir að öllu fjenu hefir verið sleppt í hvert sinn.
Það verður ekki annað sjeð en öllu þessu fje sje safnað á vorin í einn rekstur, sem allur sje rekinn í eina geysistóra rjett, en svo er ekki. Á hverju vori smala Grindvíkingar tvisvar Krýsuvíkurland með Nýjabæjarmönnum, með nokkru millibili. Í hvorri ferð er rekið að, til rúnings og mörkunar, á fjórum stöðum, svo lambatalan deilist á 8 aðrekstra og þar af leiðir að meiri líkur eru til að fleiri af lömbunum hitti mæður sínar, heldur en ef um eina rjett og einn aðrekstur væri að ræða.
Um ullina í „rjettinni“ ef það að segja, að hún er að vísu nokkur, en ekki meiri en annars staðar þar, sem jeg hefi komið undir svipuðum skilyrðum. Það, að „rjettar“-gólfið sje eins og „ullarbyngur“, og menn vaði ullina eins og lausamjöll“ eru þær ýkjur, sem sverja sig í ættina til heimildarmannsins. Annars þarf hann ekki að taka það sárt þó aðkomufje skilji eitthvað af ull eftir í „rjettinni“, því það mundi með öllu reiðilaust, af eigendum þeirra lagða, þó hann hirti þá og hagnýtti sjer.

Stóri-Nýibær í Krýsuvík.
Þeir, sem lesa umrædda grein munu vænta þess að Nýjabæjarmenn forðuðust af fremsta megni að ómerkingar þeirra og fje í ull lenti í þessum vandræðarjettum, t.d. með því að ganga til ánna nm sauðburðinn og marka lömbin og hirða ullina jafnóðum og ær eru rýjandi. Þetta virðist vel framkvæmanlegt, í fyrsta lagi af því, að mestur hlutinn af ám þeirra gengur um sauðburðinn á engjunum og syðrihluta SveifluháJs, sem er skamt frá bænum og ekki víðáttumikið og í öðru lagi eru þar venjulega heima 4 eða 5 karlmenn og drengir til að smala, en þeir, sem þessum málum eru kunnugir vita, að lömb þeirra koma venjulega langflest ómörkuð til rjetta og fje þeirra leggur til sinn skerf af ull í „bynginn“ á rjettargólfið.
Að mínu áliti er það hvorki ágangur Kleifarvatns nje aðkomufjenaðar, sem aðallega hefir lagt Krýsuvík í eyði, að svo miklu leyti sem orðið er, þó hvort tveggja hafi átt nokkurn þátt í því. Aðalorsökin hygg jeg sje hve jörðin er mannfrek og erfitt til aðdrátta, en á síðari árum hafa það reynst verstu gallar á jörðum.“ – Eiríkur Tómasson, Járngerðarstöðum.
Heimild:
-Árni Óla – Krýsuvík – Lesbók Morgunblaðsins sunnudaginn 26. júní 1932.
-Morgunblaðið, 199. tbl. 30.08.1932, Athugasemdir, Eiríkur Tómasson – Járngerðarstöðum, bls. 2.

Grein Árna Óla um Krýsuvík í Lesbók Morgunblaðsins 1932.
Krýsuvík – Árni Óla 1932

Grindavík 1944
Lífið í Grindavík haustið 1944 virðist hafa verið bæði sælt og friðsamt. Í bók Agnars Þórðarsonar, Í leiftri daganna, sem kom út hjá Máli og Menningu árið 2000 segir frá bréfi sem Gunnlaugur Scheving, listmálari, skrifaði Agnari frá Grindavík haustið 1944, þegar Agnar lá á Vífilsstaðahæli. Í bréfinu, sem er bráðskemmtilegt, segir m.a. eftirfarandi frá menningarlífinu í Grindavík:
„Ég hef verið hér lengst af hjá Sigvalda Kaldalóns og loks nokkra daga á Hrauni hjá Gísla. Fyrir nokkru síðan komu hér stórkarlar úr Reykjavík, biskupinn (ég sá hann ekki), Páll Ísólfsson og Eggert Stefánsson. Þeir komu að Hrauni, ég var þá þar. Stemningin var stórkostleg. Jetnir voru þorskhausar með smjeri. Eggert varð snortinn af hápatríótískri harðfiskrómantík. -Þetta er Íssland-. Á fínasta hóteli í París er ekki hægt að fá þorskhaus -ekki heldur í Búdapest eða London. Aðeins Íssland á þorskhaus -aðeins Íssland á þessa Aaa-rómu (hakan út í loftið). Þessa dásamlegu þjóðlegu stemningu, þennan yndislega há-ísslenska þorskhausaintelligens og harðfiskvísindi Guðmundar Finnbogasonar -þar var tekið í nefið. Sveitasæla, smjerskaka. -Yndislegt.
Svo komu sögur af þorskhausalestarferðum í gamla daga. -(Dásamlegt-dásamlegt). Ekkert gat stöðvað svona lest nema þegar einhver hryssan eignast folald- (Nú hver andskotinn) -Þá var skal ég segja ykkur stansað í einn dag -svo var folaldið bundið inn á milli, og síðan haldið á stað. (Dááásamlegt) Hugsið ykkur -þorskhausar á ferð gegnum hraun, gegnum endalausan brunasand -og svo glænýtt folald inn á milli. Þetta er Ísland -framtíð þjóðarinnar og listarinnar er að fólkið skilji þetta, gútjeri þessa stemningu.
Blessaðir jetið þið meira smjer, meiri þorskhaus. -Yndislegt.
Á eftir þorskhausunum kom kaffi með nýbakaðri köku -nýtt smjer -allskonar bakkelsi. -Ný stemning. Þessi ísslenska flatbrauðsstemning -með endurminningar um gamlar hlóðir í sveitinni -þegar maður var smali. -Ha -ekkert land í veröldinni á slíkan flatbrauðskúltúr og Ísland. Það er eins og að svífa til himins á vængjum morgunroðans. -Yndislegt.
Að síðustu var veislunni slitið. Innileg handabönd með hristingi. Stundin var búin og horfin út í eilífðina. Bíllinn hikstaði á hlaðinu og svo var haldið af stað.
Ég hef sem sagt haft það gott og skemmtilegt. Engin dagblöð -ekkert útvarp -það er jarðnesk sæla nú á dögum. Fréttir hef ég engar að segja þér. Ég bið þig að heilsa öllum heima og svo Gunnlaugi -ég kveð þig svo með ósk um góðan bata.
Þinn einl. – Gunnlaugur“
Hvort fæði það, sem boðið var upp á í Grindavík á þessum tíma, var eitthvað annað og meira en þorskhausar skal ósagt látið – en ljóst er að jafnan var listafólki og öðru aðkomufólki vel boðið þar á bæjum á þeim tímum – sem endranær.
Heimild:
-Agnar Þórðarson – Í leiftri daganna – Mál og menning 2000, bls. 79-80.
(Haukur Ólafsson – FERLIRsfélagi – framsendi frá London).
Grindavík – loftmynd.
Skothúsið á Bessastaðanesi
Í Andvara árið 2005 má lesa eftirfarandi um Skothúsið á Bessastaðanesi:
um það. Benedikt Gröndal skipaði sér ekki síður undir merki hennar. Hann var í hópi síðustu Bessastaða-stúdenta vorið 1846 og þeirra neðstur. Hann lýsir viðskilnaði sínum við skólann með þessum orðum: „Lesturinn minn á skólalærdóminum varð allur í molum eins og vant var, og þegar voraði, þá lá ég heila daga í fögru veðri úti í Bessastaðanesi uppi á skothússhólnum með byssuna mína og Hómer; ég horfði yfir landið og sjóinn; náttúran var svo mikil og fögur, að ég eins og ætlaði að gleypa hana alla; ég var fullur af löngun og ást: löngun eftir einhverju, sem ég ekkert vissi um, og ást á einhverju ósegjanlegu og ómælilegu; ég las Hómer og dreymdi vakandi drauma“. (Dægradvöl (1965), 100).“
„Rómantíska stefnan réð ríkjum í hugarheimi Bessastaðasveina og þarf ekki annað en lesa bréf Gísla Brynjúlfssonar til Gríms Thomsens þegar sá fyrrnefndi var í Bessastaðaskóla til að ganga úr skugga
Í „Reykjavík“ árið 1903 má auk þess lesa eftirfarandi:
Á Bessastaðanesi er „Skothúsið“, það er hóll eða hæð frammi á nesinu, og munu fálkarar hafa hafst þar við (eins og á Valhúsinu); þar er og Músarvík. Bessahólmi er þar sem Bessi á að vera grafinn (í miðri Bessastaðatjörn).
Heimild:
-Andvari, 130. árg. 2005, 1. tbl., Aðalgeir Kristjánsson, Bessastaðaskóli, bls. 73.
-Reykjavík, 4. árg. 1903, 42. tbl., bls. 1.
Bessastaðanes – skothús.
Kaldá
Kaldá er kristaltær lindá sem á upptök í Kaldárbotnum norðan við Helgafell. Hún á, líkt og margar aðrar lindár, upptök í lindum á hrauna-, móbergs- og grágrýtissvæðinu millum Kaldárhnúka. Lindár eiga sér jafnan glögg upptök, oft í ólgandi lindum eða úr stöðuvötnum.
Þess vegna leggur Kaldá sjaldan, en vatnsmagnið ræðst gjarnan af úrkomunni frá einum tíma til annars. Þegar þurrkar eru og heitt í veðri dregur verulega úr vatnsrennsli árinnar, bæði vegna minna vatnsmagns er fellur til og vatnsnotkunar Hafnfirðinga, en þeir sækja nú vatn sitt í lindina.
Árið 1909 kaus bæjarstjórnin nefnd til að vinna að gerð stærri vatnsveitu, sem þjóna skyldi öllum bæjarbúum – en ekki bara þeim er bjuggu út frá Strandgötunni. Varð úr að Hafnfirðingar keyptu rör til framkvæmdanna í félagi við Reykvíkinga sem um svipað leyti unnu að framkvæmdum við sína vatnsveitu. Ákvað nefndin að vænlegast væri að taka vatnið úr Lækjarbotnum, en þar eru upptök Hamarkotslækjar.
Flóð eru sjaldgæf nema þegar jörðin er frosin. Hitastig í lindám er jafnt allt árið um kring.
Náttúrulegar aðstæður í nágrenni Kaldár skýra af hverju svo mikið af vatni er í Kaldárbotnum. Eldgos í tugi þúsunda ára hafa hlaðið upp jarðmyndunum á svæðinu. Á meðan ísaldir ríktu hlóðust upp móbergsfjöll og bólstrabergshryggir. Á hlýskeiðum runnu hraun og gígir hlóðust upp en við öll þessi eldsumbrot brotnaði jarðskorpan og seig og reis. Þannig hafa myndast sigdalir og gapandi gjár, sem stundum fóru á kaf í ný hraun.
Kaldárbotnar sjálfir eru í bólstrabergsmyndun. Bólstrabergið er nokkuð gamalt á mælikvarða jarðmyndana á svæðinu og segja má að það sé umflotið ungum hraunum. Bólstrabergið er afburða góð náttúruleg sía ásamt því að vera mjög vel vatnsleiðandi, sérstaklega eftir sprungum.
Ástæður fyrir þessu mikla vatni sem kemur upp austan við misgengið eru því þrjár; vatnsleiðandi bergsprungur tengdar misgengjum, setfylling í megin misgenginu sjálfu og bólstrabergið.
Í eldgosi sem líklega varð á tólftu öld, rann örþunnt hraun niður í Kaldárbotna sjálfa og þaðan niður fyrir Kaldársel og nam þar staðar. Þetta hraun hefur líklega verið mjög heitt og þunnfljótandi því að það fyllti í allar lægðir á leið sinni og storknaði án þess að í því mynduðust kólnunarsprungur og gjótur. Þegar grunnvatnsborð í Kaldárbotnum lækkar niður fyrir efri brún hraunsins hverfur Kaldá. Þegar mest er í ánni rennur hún að hraunbrúninni skammt vestan Kaldársels þar sem hún fer hindrunarlaust undir það á tveimur stöðum. Þar undir eru að öllum líkindum myndarlegar rásir, sem áhugavert væri að kíkja inn í við tækifæri – þegar lítið er í ánni.
Hafnfirðingar voru í fararbroddi í upphafi síðustu aldar. Árið 1904 var Vatnsveitufélag Hafnarfjarðar stofnað af nokkrum framtakssömum einstaklingum í bænum, með héraðslækninn fremstan í flokki. Lét félagið grafa brunn við svonefnt Kaldadý vestan í Jófríðarstaðaholtinu og leggja þaðan vatnsleiðslur um bæinn. Þótti framtak þetta hið besta og göfugasta, en fljótlega varð ljóst að gera þurfti betur.
Haustið 1909 lauk framkvæmdum við Lækjarbotnaæðina. Var hún einungis þriggja tommu breið og flutningsgetan því takmörkuð. Var hún enda orðin of lítil innan fárra ára. Var þá gripið til ýmissa bráðabirgðaráðstafanna, s.s. byggingu vatnsgeymis og lagningu nýrra aðfærsluæða, en ekki var þar tjaldað til margra nátta.
Strax árið 1916 fengu Hafnfirðingar augastað á Kaldá sem framtíðarvatnsbóli bæjarins og ári síðar ákvað bæjarstjórnin að freista þess að veita vatni úr Kaldá yfir á Lækjarbotnasvæðið, með það að makmiði að tryggja vatnsveitunni og vatnsaflsvirkjuninni í Hamarkotslæknum nægilegt vatn.
Vatnið úr Kaldá var leitt mestan hluta leiðarinnar í opinni trérennu. Trérennan var lögð yfir Hjallamisgengið og hraunið en vatninu var síðan sleppt við suðurenda Setbergshlíðar þar sem hraunið byrjar að falla að Lækjarbotnum í þeirri von um að jarðlög undir hrauninu skiluðu vatninu í Lækjarbotna sem það og gerði eftir nokkra daga. Þegar þetta var ekki fullnægjandi var lögð breiðari pípa. Við þá aukningu höfðu flestar götur bæjarins nægilegt vatn. Það dugði samt ekki lengi því að eftir nokkur ár fór svo aftur að bera á vatnsskorti. Ástæðan fyrir því var m.a. sú að rennan úr Kaldá gekk smá saman úr sér og úreltist og þá minnkaði stöðugt vatnsmagnið sem hún gat flutt. Einnig var þetta vegna þess að þrýstingurinn í vatnsleiðslunum í bænum var ófullnægjandi og náði vatnið þá ekki upp í þau hús sem hæst stóðu.
aldá, affall neysluvatnsvirkjunarinnar í Kaldárbotnum, rennur ofan á hrauninu en hverfur niður í og inn undir það um 1000 metrum neðar. Það sem veldur því að Kaldá kemur þarna upp á yfirborðið er misgengi sem hefur hindrað grunnvatnsstreymið. Misgengi þetta er kallað Helgadalsmisgengið og liggur eftir Undirhlíðum og norður um Búrfell. Það hefur þvingað vatnið upp á yfirborðið í Kaldárbotnum og þegar langvarandi úrkoma hefur verið kemur vatn líka upp á yfirborðið austan undan misgenginu. Eftir mikla þurrka getur Kaldá horfið að fullu.
Þá var ákveðið að leggja vatnsæð úr Kaldárbotnum. Nokkrar endurbætur voru svo gerðar á henni þegar húsum í bænum fór að fjölga. Þegar grunnvatnsyfirborðið fór að lækka ört vegna minnkunar á úrkomu, voru nokkrar holur boraðar við Kaldárbotna og þær tengdar við vantsveituna. Orsakir hinnar miklu vatnsnotkunar í Hafnarfirði voru taldar vera vegna mikils fjölda fiskvinnslustöðva, göllum í gatnakerfi bæjarins, óhóflegrar vatnsnotkunar og vegna skemmda og bilana á heimilislögnum. Árið 1967 rættist svo úr þessu. Vatnsmagnið í vatnsbólinu í Kaldárbotnum jókst vegna aukinnar úrkomu og ýmsar endurbætur voru gerðar á vatnsveitunni.
K
Vatn hefur líklega aldrei þrotið í Kaldárbotnum. Þó er það þekkt. Hafnarfjörður varð vatnslaus af og til á árunum 1965-68. Við vatnsskorti lá einnig 1979 og 1986.
Grunnvatnsrennsli af Kaldársvæði er um 2500 lítrar á sekúndu. Vatnsnotkun er um 190 lítrar á sekúndu en vatnsrennsli í Kaldá er að meðaltali um 1300 lítrar á sekúndu og vatnsnotkun er um 190 lítrar á sekúndu. Hiti vatnsins í Kaldárbotnum er 3,2°C allt árið um kring.
Kaldá sprettur, sem fyrr segir, fram undar Kaldárhnúkum (Kaldárhöfða). Talið er að hún renni í sjó fram við Straumsvík og hraunin sunnan Hafnarfjarðar. Kaldárstraumur á upptök í sunnanverðum Bláfjöllum og Lönguhlíð. Hann streymir þaðan til norðvesturs um Húsfellsbruna og Heiðmörk. Grunnvatnsskil liggja frá Straumsvík og í vesturenda Lönguhlíðar. Sprungur auka mjög vatnsleiðni og hafa afgerandi áhrif á grunnvatnsstreymið. Sprungurnar eru hluti af sprunguskara sem kenndur hefur verið við Krýsuvík. Þær beina grunnvatninu úr sunnanverðri Heiðmörk til suðvesturs í átt til Kaldárbotna. Athyglisvert er að fyrir vikið streymir grunnvatnið á þessum slóðum ekki hornrétt á grunnvatnshæðarlínur, eins og algengast er, heldur skálægt á þær. Straumþunginn fylgir því sprunguskaranum.
Í Kaldárbotnum sést örlítið brot af því vatni sem þarna er á ferð. Meðalrennsli Kaldár skammt neðan upptakanna er 800 l/s samkvæmt mælingum í vatnshæðarmælinum vhm 124, en sveiflur eru miklar í rennslinu. Kaldá er einskonar yfirfall úr grunnvatnsstraumnum. Áin verður lengst um einn kílómetri á lengd því hún hverfur þar inn undir hraunið og hverfur til grunnvatnsins á ný. Neðan við Undirhlíðar sveigir grunnvatnið út úr sprunguskaranum og flæðir um hraunin til norðvesturs uns það birtist í fjörulindum í Straumsvík og í Hraunsvík, en svo nefnist bugurinn milli Hvaleyrarholts og Straumsvíkur. Þar upp af ströndinni eru vatnsból Álversins. Sennilegt er að einungis minnihluti lindarennslisins komi í ljós í fjörulindum þegar lágt stendur í sjó en að meirihluti þess sé jafnan í flæðarmálinu sjálfu eða neðan þess. Kaldárstraumur er langmesti grunnvatnsstraumurinn á höfuðborgarsvæðinu.

Þjóðsagan segir að fyrrum hafi Kaldá komið úr Þingvallavatni en eftir að Ingólfur landnámsmaður gróf Soginu farveg úr því, þar sem síðan heitir Grafningur, hafi Kaldá þorrið. Önnur saga segir að tveir synir fjölkunnugs karls nokkurs hafi drukknað í ánni og eftir það hafi hann kveðið hana niður. Þriðja sagan segir að hún hafi þornað eftir mikið eldgos.
Hugmynd Eggerts Ólafssonar var þess efnis að áin renni neðan jarðar all aleið vestur á Reykjanestá og þar til hafs, en af straumi hennar myndist Reykjanesröst. Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi sagði það almælt að á fyrri öldum hafi á sú runnið úr Þingvallavatni, „eitthvert hið mesta vatnsfalla á Íslandi“. Hún á að hafa runnið norðan við Hengil og ofan þar, sem nú eru Fóelluvötn, og svo suður með hlíðum og í sjó á Reykjanesi. „Sé sagt, að hún komi upp í Reykjanesröst og að Kaldá hjá Helgafelli sé úr henni“. „En svo þurfti að fá skýringu á því, hvernig stóð á því stóð, að þetta mikla vatnsfall skyldi hverfa, og eru um það ýmsar sögur. Ein er sú, að karl nokkur, sem var kraftaskáld, missti í ána tvo sonu sína, og kvað hana þá niður. Önnur sögn, og öllu vísindalegri, er sú, að Kaldá hafi horfið eitt sinn, er suðurfjöll brunnu, svo einn var eldur ofan úr Hengli og út í sjó á Reykjanesi og hafi þá jörðin gengið upp fyrir sunnan Elliðavatn.“
Heimildir m.a.:
-Haukur Hafsteinsson.
-Eggert Ólafsson.
-Brynjúlfur Jónsson.
-Vatnsveita Hafnarfjarðar.
Bessi í Bessahólma
Í Árbók Hins íslenska fornleifafélags árið 1981 segir Kristján Eldjárn frá minjum og örnefnum næst íbúðarhúsunum á Bessastöðum:
„Heima við bæjarhúsin, norður af flötinni milli húss og kirkju, þar sem fánastöng stendur nú, er hóll með snarbrattri brekku norður af, og segir Benedikt Gröndal (og Björn Erlendsson) að þetta heiti Bessastaðahóll, og voru nýsveinar látnir velta þar niður heldur ómjúklega á dögum skólans. Á jökulruðningnum sem áður var nefndur er þetta greinilegasta hólmyndunin, og mundi það ef til vill segja sína sögu um nafn bæjarins. Frá kirkju og vestur að Lambhúsum var nefndur Langivöllur, og var það þó einkum sunnanmegin (Lambhúsatjarnarmegin), sunnan heimreiðar en nú er þetta nafn haft um allt vesturtúnið.
þarna hafa verið uppsátur, Bessastaðavör. Af öllu þessu sést aðeins votta fyrir leifum af gömlum garði sem sjór hefur brotið af meðan enn flæddi inn í tjörnina. Þessi nöfn mega nú heita óþekkt. Norður frá bílstjórahúsi (sem nú er) var hólmynd í túninu og nefndist Smiðjuhóli og minnir á smiðjuna, en sést ekki lengur. Þarna norður frá bústjórahúsi og bílstjórahúsi nær sjó heitir nú Prentsmiðjuflöt, sem er nafn frá dögum Skúla Thoroddsen, enda sér þar enn steyptan grunn undan prentsmiðjuhúsi hans.
Í norður og norðaustur af Bessastaðahól, niðri við tjörnina, voru áður fyrri allmikil ummerki eftir ýmiss konar búsumstang, og lýsir Benedikt Gröndal því nokkuð, en ummerki þessi eru nú að mestu horfin, meðal annars af því að sjór hefur brotið þarna mikið land, og er því erfitt að marka nákvæmlega fyrir hvar hvað eina var. Traðir lágu ofan að smiðju og þar var Sjóbúðarflöt, og þar var Skevingstún, kennt við Hallgrím Scheving kennara á Bessastöðum.
Hjá Sjóbúðarflöt var tóft sem víst var kölluð Sjóbúð, og enn fremur mun
Í Bessastaðatjörn er áðurnefndur hólmi þar sem æður verpur og nefnist hann Bessahólmi í landamerkjaskránni og það nafn nota bæði Benedikt Gröndal og Björn Gunnlaugsson. Það á því mikinn rétt á sér, en nú er hólminn stundum kallaður Bessi í daglegu tali og einnig heyrist nafnið Bessastaðahólmi, sem kynni að vera það upprunalegasta. Björn Erlendsson telur að Bessastaðahólmi sé algengast og hermir þau munnmæli, að Bessi bóndi á Bessastöðum sé heygður þar. Í tíð Ásgeirs Ásgeirssonar forseta var hólminn mikið stækkaður til suðurs með því að aka að honum grjóti og hnausum á ís. Lítill hólmi er nær Eyvindarstöðum og var hann einnig gerður að undirlagi Ásgeirs Ásgeirssonar, sem kallaði hann Kóra eftir fæðingar stað sínum, Kóranesi á Mýrum. Ásgeir lét einnig grafa skurð þvert yfir tangann norður af bílstjórahúsi og búa þannig til ey eða hólma, sem kallast Sandey, en nýtt er þetta nafn að sjálfsögðu. Allt hefur þetta verið gert vegna æðarfuglsins. Ósinn út úr tjörninni hét Dugguós, en hann er nú úr sögunni, síðan stíflan var gerð. Áður fyrri, meðan enn fjaraði í tjörninni, kom upp með fjöru klettahryggur eða brík frá tanganum áðurnefnda (nærri Prentsmiðjunni) og að Stekkjarmýrarhól í Breiðabólstaðalandi og var þessi leið oft farin, ekki síst ríðandi. Þetta var kallaður Steinboginn.“
Heimild:
-Árbók Hins íslenska fornleifafélags, 78. árg. 1981, bls. 136-138.
Bessastaðatjörn.
Sandgerðisvegur – gönguleiðabæklingur
Í bígerð er að gefa út fleiri sambærilega bæklinga um aðrar þekktar leiðir á Reykjanesskaga, s.s. Garðsveg, Skipsstíg, Árnastíg, Hvalsnesveg o.fl.
Örnefna- og minjakort fyrir Grindavík
Kortin eru unnin með hliðsjón af örnefnalýsingum sem og bestu upplýsingum elstu núlifandi manna og kvenna í Grindavík. Á þeim er getið um helstu örnefni á svæðunum og reynt að draga upp allar sýnilegar minjar frá fyrri tíð. Þá hefur verið reynt að endurvekja eldri minjar, sem nú eru horfnar.
Útgefnum kortum hefur verið komið fyrir á sérstökum upplýsingaskiltum á sérhverjum stað. Þar er fjallað nánar um búsetu- og atvinnusöguna og tengsl minjanna og örnefnanna við hvorutveggja.
Kortin fást í Saltfisksetri Íslands.
Grindavík – sögu og minjakort.
Hraun – Hraunsheiði – götur – Litlaland
Ætlunin var að rekja gamla þjóðleið frá mótum Ölfusár (ferjustað við Hraun) yfir Hraunsheiði og áfram áleiðis að Litlalandi þar sem hún tengist Ólafsskarðsvegi. Að öllum líkindum tengist hún þjóðsögunni um Draugshelli, sem var áningarstaður ferðamanna á þessari leið fyrr á öldum, auk þess sem hún kemur við sögu lykla bryta í Skálholti.
Draugshellir – opið.
Gatan er ekki merkt inn á kort. En þrátt fyrir sandfok á heiðinni mun gatan enn augljós, ef vel er að gáð.
Þjóðsagan er um Björn Jónsson í Haga. „Eitt sumar sem ofar ferðaðist Björn um lestatímann til skreiðarkaupa suður í Garð. Venjulegur áfangastaður ferðamann var þá eins og enn viðgengst á svokölluðum Rifjabrekkum millum Breiðabólstaðar og Litlalands í Ölvesi. Þótti mörgum illt þar að vera vegna draugs þess er oft gjörði ferðamönnum er á brekkunum lágu usla og ónáðir og hélt sig í helli þeim er síðan er við hann kenndur og kallaður Draugshellir. Reif hann og tætti sundur tjöld og fans fyrir sumum, en fældi hesta og jafnvel drap fyrir sumum. En ekki er þess getið að hann réðist á menn, en marga dreymdi þar illa í tjöldum sínum, en enginn var sá er vogaði að leggjast í hellirinn þótt tjaldlaus væri.
Björn var við annan mann; voru þeir tjaldlausir, taka nú af hestum og bera saman farangur nærri hellinum draugsins. Þetta var að áliðnum degi. Regn var mikið. Förunautur Björns spyr þá hvursu hann hugði þeim um umbúnað, kvað það eitt tiltækilegt að þeir gjörðu sér skýli í farangrinum til að sofa í. Björn kvað þá í hellinum mundu taka á sig náðir. Förunautur hans var þess allófús, en kvaðst þó hans forsjá hlíta mundu. „Bessaleyfi hér á híbýlum,“ segir Björn. Ganga þeri síðan í hellirinn, búast þar um, tóku að snæða og lögðust til svefns. Var nú allt kyrrt. Lagsmaður hans sofnar skjótt, Björn vakir og verður var við er draugsi kom inn og litast um eins og hann undrist dirfsku komumanna er leyfðu sér að taka á sig náðir í hans híbýlum leyfislaust, en var annars óvanur að mæta þar gestum. Draugurinn ræðst síðan að förunaut hans og ætlar að kyrkja hann.
Björn stóð þá upp, hratt draugnum frá og tók manninn í fang sér og bar hann út og lagði hann niður undir farangur þeirra, vakti hann því næst og bað hann gæta hesta þeirra, kvað drauginn hafa fælt þá í burtu, „en ég mun,“ segir hann, „fara að hitta betur húsbóndann fyrst hann gat ekki setið á sér við oss með eljarglettingar sínar.“
Björn fer að hitta aftur drauginn, spyr hann hvurnig á honum standi og því hann hafðist við hér við í helli þessum. Draugur svarar: „Sagt get ég þér sögu mína. Ég var ungur maður og þótti heldur ódæll. Ég átti heima austur í Fljótshlíð; var ég sendur suður í Njarðvíkur í skreiðarferð og sýktist á heimleiðinni og lagðist fyrir í helli þessum og dó á þriðja degi og fundu menn mig hér nokkru síðar. Var ég fluttur að Hjallakirkju og grafinn þar, en ég þoldi ekki í jörðu og gekk aftur og vitjaði hellis míns. Hefi ég síðan hér verið og gjört ferðamönnum ýmsar óspektir um átta ár.“
Björn spyr hvursu lengi hann ætli framvegis hér að verða. Draugur svarar: „Tuttugu ár og mun ég jafnan fara versnandi.“. „Fyrst þú fórst að gjöra mér glettingar skal ég vísa þér á bug héðan,“ segir Björn. „Hellir er í Hengilshömrum, þangað stefni ég þér. Skaltu þaðan aldrei út fara né nokkurn mein gjöra.“ Draugnum brá svo við að hann hljóp í skyndi út og tók á rás upp á fjall. Hefur síðan aldrei orðið vart við reimleik á Rifjabrekkum.“
Ólafsskarðsvegur er nefndur eftir samnefndum bryta í Skálholti. Í frásögn Brynjúlfs Jónssonar frá Minna-
Núpi segir að einni sinni hafi lyklakippa Skálholtsstaðar týnst, og fannst hún hvergi. Varð að smíða aðra lykla. Leið síðan fram, þangað til 12 ár voru liðin og lyklatapið farið að gleymast, þá fundust lyklarnir í Lyklafelli hjá Fóelluvötnum. Kom þá upp hið sama, að ráðsmaður (eða bryti) staðarins hafði haft lyklana á sér, er hann reið í Reykjavíkurkaupstað, og hafði týnt þeim í fellinu, er hann áði.
Í frásögn Brynjúlfs Jónssonar frá Minna-Núpi segir að einni sinni hafi lyklakippa Skálholtsstaðar týnst, og fannst hún hvergi. Varð að smíða aðra lykla. Leið síðan fram, þangað til 12 ár voru liðin og lyklatapið farið að gleymast, þá fundust lyklarnir í Lyklafelli hjá Fóelluvötnum. Kom þá upp hið sama, að ráðsmaður (eða bryti) staðarins hafði haft lyklana á sér, er hann reið í Reykjavíkurkaupstað, og hafði týnt þeim í fellinu, er hann áði.
Um Lyklafell fjallar og þekkt þjóðsaga af sama meiði. Hún er um nefndan Ólaf bryta í Skálholti. Á að hafa soðið upp úr milli hans og ráðskonunnar á staðnum. Hún var ótúlegt skass og skaut honum svo skelk í bringu að hann lagði á blindan flótta og nam ekki staðar fyrr en við Lyklafell og kastaði þar búrlyklunum. Síðan hélt hann um Ólafsskarð upp úr Jósefsdal, Ólafsskarðveg, og heitir skarðið eftir honum. Steðjaði hann austur sýslur á Mælifellssand syðri. Þar kom hann að vatnsfalli, er hann ætlaði að stökkva yfir. Stökkið mistókst, hann féll í ána og drukknaði. Hún heitir síðan Brytalækir.
Fleiri sagnir eru af tilurð nafngiftar Lyklafells. Hér verður nefnd ein til viðbótar. Sagan greinir frá því, að einhverju sinni áttu hungraðir förumenn leið um þennan veg að næturlagi og gengu þá fram á tjaldbúðir Skálholtsmanna, sem voru þar á ferð með marga hesta og mikinn farangur. Höfðu þeir valið sér þarna náttstað. Förumennirnir sáu, að bunga var á einni tjaldsúðinni og hugðu þeir að þar fyrir innan væri sekkur fullur af mat.

Ákváðu þeir að ná honum. Tók einn þeirra upp hníf, og skar á tjaldið, þar sem bungan var. En um leið og hnífsblaðið skar á dúkinn, kvað við hátt og skerandi öskur innan úr tjaldinu. Í stað þess að stinga í matarsekkinn, var hnífnum stungið í sitjandann á ráðsmanni Skálholtsstóls, sem svaf þar fyrir innan. Í fátinu og írafárinu sem varð nú í tjaldbúðunum við þetta óhappaverk, týndist lyklakippa ráðsmannsins og fannst ekki fyrr en löngu síðar. Þannig skýra sagnir nafnið á Lyklafellinu.
Í örnefnalýsingu fyrir Hraun segir m.a. um þetta svæði: „Norðvestur frá Stekkatúni er varða sem heitir Beinteinsvarða. Stendur hún við götuna þar sem skiptast leiðir, upp á eystri Hlíðarbæina, og syðri gatan, á ytri Hlíðarbæi. Á klöppina sem Beinteinsvarða stendur á er klappað M. Norðaustur frá Beinteinsvörðu er hólaþyrping sem heitir Miðþúfur, eða í eintölu Miðþúfa. Fyrir framan Sandamót er áberandi varða suðvestur frá bænum, hún heitir Nónvarða.“
eitir Siggulág. Suðvestan við hana eru Þrívörður, og í norður frá Þrívörðum er Stekkjartún, ekki langt fyrir sunnan þjóðveginn, suður frá Langamóa. Í vestur frá Stekkjartúni eru enn klappir skammt fyrir sunnan þjóðveg. Þeir heita Klapparhólar. Vestastur þeirra er stakur hóll, kross-sprunginn. Hann heitir Hádegishóll.
Örnefnalýsing fyrir Litlaland: „Niðri á Sandi, niður undir Leirum, er varða í mörkum Litlalands, Breiðabólsstaðar og Þorlákshafnar. Hún heitir Varða í Hálfförum. Um 50 m austan við Þorlákshafnarveg, álíka sunnarlega á Sandinum og nýnefnd varða, er lágur klapparhóll, sem Guðmundur Jónsson frá Læk, lengi vinnumaður í Þorlákshöfn og Vindheimum, síðar bóndi í Þorlákshöfn segir að heiti Hálffarahóll .“
Örnefnalýsing Vindheima og Breiðabólsstaðar: „Vestan-suðvestan við Dagmálahæð er önnur klöpp, lægri og minni. Hún heitir Litla-Dagmála-hæð. Á milli Dagmálahæðanna er gata, engjavegur frá Austur-Hlíðarbæjunum í Naut-eyrar, og að Hrauni.
Suðvestur frá Dagmálahæð er lægð sem h
Fyrir austan Grænuflöt og Harðavöll liggur gata beinustu leið til Þorlákshafnar. Heitir hún Hafnarvegur. Vestan við götuna, rétt fyrir sunnan þjóðveginn er Músarhóll, lítill hóll með hundaþúfu á kolli, ofan við Sandamótin. Niðri á Sandi, ofan við Leirur, er varða sem heitir Hálffaravarða eða Varða í Hálfförum.“
Ólafsskarðsvegur er merktur til suðurs austan Geitafells og suður með vestanverðu Búrfelli. Þessi gamla gata liggur hins vegar til suðausturs austan Geitafells og niður heiðina vestan Litlalandsels (nokkru austan Búrfells) og sameinast framangreindri götu yfir Hraunsheiði að Ölfusá. Gatan er áberandi frá Litlalandi að Hrauni (með stefnu á „Vörðu í Hálfförum“), en hverfur í túninu ofan við bæinn. Á austari kafla götunnar hefur vagnvegur verið lagður ofan í gömlu reiðleiðina.
Skammt austan við Þorlákshafnarveg eru gatnamót vegar (Engjavegarins) að Breiðabólastað (Vindheimum), við svonefnda Beinsteinsvörðu. Skammt norðar er mest áberandi varðan í heiðinni, Nónvarðan. Gatnamótin eru á tveimur stöðum með skömmu millibili, en gatan sameinast á móts við núverandi þjóðveg að Þorlákshöfn. Mjög auðvelt er að fylgja götunni. Efst á Hraunsheiði er fallin varða við götuna, sem hefur verið kennileiti ef farið hefur verið frá Breiðabólsstað.
Frábært veður. Gangan tók 3 klst og 3 mín.
Heimild m.a.:
-Þjóðsögur Jóns Árnasonar, III. bindi, bls. 592-593.
-Eiríkur Einarsson: Örnefni og minjar í Hjallasókn, 1976.
-Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi.
-Herforningjaráðskort frá 1909.
Litlaland.
Minjar á Reykjanesskaganum – erindi
Eftirfarandi er megininntak erindis, sem einn FERLIRsfélaganna flutti á opinni ráðstefnu Landverndar um þá framtíðarsýn að Reykjanesskagi verði eldfjallagarður og
fólkvangur. Ráðstefnan var haldin í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju 24. febr. 2007:
Reykjanesskaginn geymir miklar náttúru- og mannvistarminjar – mikil verðmæti. Með sanni má segja að á svæðinu megi sjá minjar um svo til alla búsetu- og atvinnusögu þess frá upphafi landnáms hér á landi.
Aðrar hafa verið skemmdar án nokkurrar skynsamlegrar hugsunar.
Skaginn – hið forna landnám Ingólfs – er vestan línu sem dregin er frá Botni að Ölfusrárósum.
Á þessu svæði búa nú, árið 2007, um 207.000 manns. Það skapar bæði möguleika í verulegra góðri nýtingu, en einnig þörf á yfirveguðum varnaraðgerðum.
Hópur fólks, FERLIR, hefur endurkannað landnámið markvisst og skipulega í nokkur ár, leitað uppi minjar, skoðað, myndað og skráð þær.
“Reykjanesskaginn er alger auð“ og þar er ekkert merkilegt að sjá”. Þetta má sjá í ferðabók fyrr á öldum. Segja má að viðhorfið hafi lítið breyst – hjá mörgum.
Það sem flest fólk sér á ferð sinni um svæðið eru þjóðvegir og háspennumöstur – og kannski hraun og stöku fjall.
Svæðinu hefur verið raskað, oft að óþörfu og stundum án tilskilinna leyfa.
Margar hinna merkilegu mannvistaleifa eru vanræktar (Kapellan á Hraunssandi).
Svæðið hefur fjöldamargar mannvistaminjar að geyma. Segja má að hvar sem stigið er niður fæti megi sjá ummerki eftir forfeður og –mæður.
Minjarnar eru engu ómerkilegri en hin fornu handrit. Þau eru skráð í leður. Bæði letur og skinnin eru mannanna verk. Það eru aðrar minjar líka. Þær eru úr efni, sem fólkið nýtti sér, efni sem landið gaf af sér, mest grjót, torf og timbur. Úr því má enn lesa sögu fólksins, hagi þess og aðstæður á hverjum tíma. Engum dytti í hug að rífa blað úr fornu handriti. Með því hyrfi hluti sögunnar.
Fortíðin skiptir máli. Minjarnar eru áþreifanleg tengsl okkar við fortíðina.
Með sanni má segja að gömul hús eru bæði minnismerki um fortíðina og arfleifð fortíðar, einkum kirkjurnar.
Af sömu hvötum hefur verið reynt að gera upp gömul hús í upprunalegri mynd.
En uppruninn, algerlega ósnertur, liggur víðar. Áþreifanleiki hans felst í minjunum, sem víða leynast.
Í minjunum felast mikil verðmæti, bæði umhverfisleg og söguleg. Náttúruminjar gleðja augað, fylla okkur stollti á landinu okkar og skapa atvinnu. Mannvistaminjar eru áþreifanleg tengsl okkar við fortíðina.
Án fortíðar er framtíðin lítils virði.
Álftanes – varðskýli í Camp Brighton.
Saga Kolviðarhóls – Þorsteinn Bjarnason
Þorsteinn Bjarnason frá Háholti skrifar í Örnefnalýsingum um „Sögu Kolviðarhóls„:
„Hinn forni vegur yfir fjallgarðinn milli Ölfuss og Mosfellssveitar lá af Kambabrún sjónhending í skarðið milli vesturenda Skarðshlíðar og norðurenda Reykjafells. Lá vegurinn þar niður af Hellisheiði um Hellisskarð, yfir Bolavelli, vestur með Húsmúla, niður Norðurvelli með norðurbrún Svínahrauns hjá Lyklafelli, og var þá komið í byggð hjá Helliskoti í Mosfellssveit.
Sæluhúsið við Draugatjörn.
Á þessari löngu leið voru sama sem engar vörður. Austast á Hellisheiði voru vörðubrot og önnur vörðubrot vestast á heiðinni. Í ekkert hús var að venda nema smákofa, er var í Svínahraunstöglum, sem ganga út á Norðurvellina. Kofi þessi var illa ræmdur fyrir draugagang, og mynduðust meðal manna hinar fáránlegustu sögur um kofa þennan; munu nú flestar þessar draugasögur gleymdar. Heyrði ég í ungdæmi mínu haft eftir grobbnum karli, sem náttaði í kofa þessum, að hann sagðist hafa verið í áflogum við draug alla nóttina. „Hafði ég draugsa stundum undir, en hann slapp alltaf úr höndum mér, af því hvergi var eiginlega hægt að festa höndur á honum.“ Slíkar og þvílíkar sögur hafa skotið mönnum skelk í bringu, því draugatrú var á þessum tímum bráðlifandi. Forðuðust menn því kofann, og hefir óefað margur af því orðið úti. Í Þjóðólfi er þess getið, að svo megi telja, að á þessari leið hafi orðið úti maður annað hvort ár. Fóru menn nú að sjá, að þetta ástand var óþolandi.

Árið 1845 var nú kofinn í Svínahrauni fluttur upp á Kolviðarhól. Hvatamenn þess voru þeir séra Páll Matthíasson, prestur í Arnarbæli, Ölfusi, og Jón Jónsson, bóndi á Elliðavatni. Var að þessu mikil bót, fækkaði nú slysförum, því nú var hægara að finna kofann. Draugatrúin hvarf að mestu leyti; sagt var, að mörgum hafi verið illa við, að spýtur úr Svínahraunskofanum voru látnar í nýja kofann.
Nú liggur þetta sæluhúsmál niðri í 28 ár, en árið 1873 er það aftur vakið upp af þessum þrem mönnum; Guðmundi Thorgrímssen, verzlunarstjóra á Eyrarbakka, séra Jens Pálssyni, presti að Arnarbæli í Ölfusi, og Randrup lyfsala og konsúl í Reykjavík. Í örnefnaskrá frá því um 1700 í Þjóðskjalasafninu er Hellisskarð nefnt Nautaskarð, Bolavellir nefndir Hvannavellir, en Bolavellir strekki sig út frá Norðurvöllum. Þannig til orða tekið. Þ.B. þeirra er, að á Kolviðarhóli sé byggt svo veglegt hús, að í því geti búið gestgjafi, sem geti veitt móttöku vegfarendum og látið þeim í té rúm, mat og kaffi, ef með þarf. Ennfremur hey og hús handa hestum þeirra.
Hófu þeir nú fjársöfnun, en svo virðist sem undirtektir væru daufar, því ekki höfðu safnazt nema 10 rd. og 18 sk., þegar komið er langt fram á árið 1874. Þó ekki blási byrlega, gefast þeir ekki upp. Árið 1876 rita þeir enn um málið og skora nú fastlega á menn að gangast fyrir samskotum. Við árslok 1876 eru komnar í samskotasjóðinn 1378 krónur, 35 aurar.
Nú snúa þeir máli sínu til landshöfðingja og sækja um 1500 króna tillag úr landssjóði. Landshöfðingi svarar beiðni þeirra svo, að hann lofar 1000 króna framlagi úr landssjóði, þó með því skilyrði, að húsið væri byggt á næsta vori (þ.e. 1877). Því þora þeir ekki að lofa, því þeir álíta, að samskotaféð og þetta tillag landssjóðs verði of lítið, þar eð þeir höfðu einsett sér, að útveggir hússins yrðu byggðir úr steini. Skrifa þeir enn um þetta mál í Þjóðólfi og fara þungum orðum um undirtektir landshöfðingja í þessu máli.
Kolviðarhóll – loftmynd.
Árið 1877 eru samskotin orðin 2600 krónur. Þá eru þeir Björn Guðmundsson múrari og Helgi Helgason trésmiður fengnir til þess að gjöra áætlun um, hvað húsið muni kosta, og um leið að ákveða stærð hússins í samráði við séra Jens. Áætlunin varð 3600 krónur. Nú koma þeir landshöfðingja inn í málið í staðinn fyrir Randrup. Eflaust hefir landshöfðingi lagt fram fé úr landssjóði, sem á vantaði, því nú er ákveðið að byggja húsið, og er það fullgjört árið 1878. Húsinu er lýst þannig: Tvö herbergi niðri og annað með ofni, ennfremur eldhús með suðuvél. Uppi tvö herbergi, annað til geymslu, en hitt fyrir ferðamenn. Er nú loksins húsið komið upp eftir 5 ára látlausa baráttu. 27. ágúst 1878 er húsið auglýst til leigulausrar ábúðar. Þá flutti sig þangað frá Hreiðurborg í Flóa Ebeneser gullsmiður, sonur Guðmundar bókbindara og bónda á Minna-Hofi á Rangárvöllum, Péturssonar bónda s.st. Einarssonar bónda í Litla-Klofa á Landi, síðar á Minna-Hofi, Bergsteinssonar.
Á Kolviðarhóli átti Ebeneser við erfiðleika að stríða, og er það skiljanlegt, þar sem ekki var á öðru að lifa en greiðasölu til ferðamanna, sem ekki höfðu gjaldeyri nema af skornum skammti. Sezelja, kona Ebenesers, sagði sér hefði hvergi liðið eins illa um ævina. Þar hefði hún liðið bæði hungur og kulda. Vorið 1879 flytur Ebeneser frá Kolviðarhóli suður á Eyrarbakka.
Jón náði fljótt hylli ferðamanna, svo Sigurbirni var ekki viðvært; flúði hann burtu eftir 3ja mánaða dvöl á Kolviðarhóli við lítinn orðstír. Jón var af traustu bergi brotinn, og yfirvann hann erfiðleikana með dugnaði. Hann var fæddur á Minna-Mosfelli árið 1838; var Jón bróðir Arnórs föður prófessors Einars hæstaréttardómara; voru þeir bræður synir Jóns bónda á Minna-Mosfelli, fæddur 1810, Jónssonar bónda á Reykjanesi, Grímsnesi, fæddur 1771, Sigurðssonar bónda í Miðdalskoti, Laugardal, fæddur 1722, Sigurðssonar Skíðastöðum, Tungusveit, og Hofi í Skagafjarðardölum, fæddur 1670, Jónssonar Flatatungu, fæddur 1633, Sigurðssonar Flatatungu Jónssonar. Kona Jóns á Minna-Mosfelli, móðir Jóns á Kolviðarhóli, fædd 1804, var dóttir Jóns bónda á Neðra-Apavatni, dáinn 1839, Jónssonar og Ingveldar Jónsdóttur.
Eftir að þau hjón Jón og Kristín – var hún dóttir Daníels bónda á Hæðarenda í Grímsnesi – komu að Kolviðarhóli, heyrðust aldrei neinar kvartanir koma frá vegfarendum yfir því, að ekki fengist það, sem um var beðið. Þó kröfurnar væru ekki gjörðar háar af þeim vegfarendum, sem þá komu oftast að Kolviðarhóli, hefir þurft mikla fyrirhyggju til að sjá um, að undan engu væri að kvarta. Næturgreiði var mjög sanngjarn. Rúm kostuðu frá 25 aurum upp í 50 aura, kaffibolli brauðlaus 10 aura, með brauði 25 aura. Hey var dýrast, og var það að vonum, því dýr var flutningur á því austan úr Ölfusi. Jón og Kristín mörkuðu fyrstu sporin til þess, sem Kolviðarhóll varð síðar.
Árið 1895 fór Guðni, tengdasonur Jóns, að búa á Kolviðarhóli, hann átti Margréti Jónsdóttur. Guðni var fæddur á Arnarstöðum í Flóa 1863, sonur Þorbergs bónda þar, fæddur 1829, Helgasonar bónda á Lambastöðum hjá Hraungerði, fæddur 1795, Jónssonar bónda í Ölvisholti, Flóa, fæddur 1766, Einarssonar bónda í Götu, Selvogi, Jónssonar. Guðni og Margrét kona hans voru mjög vinsæl og hinir mætustu gestgjafar.
Guðni var dugnaðarmaður. Sótti hann um nýbýlarétt á Kolviðarhólnum til Ölfushrepps, sem honum var veittur. Innti hann af hendi allar þær skyldur, sem nýbýlaréttur áskilur. Stækkaði túnið og afgirti stórt land undir suðurhlíð Húsmúlans. Bætti húsakynni mikið. Eftir að Guðni tók við gistihúsinu, sótti hann um styrk af opinberu fé, til þess að afla heyja handa hestum ferðamanna. Mælti sýslunefnd Árnessýslu með því. Árið 1900 fékk Guðni 150 krónur úr jafnaðarsjóði. Síðar fékk hann 200 krónur úr amtsjóði, sem viðurkenningu fyrir jarðabætur. Árið 1906 selur hann jörðina Kolviðarhól Sigurði Daníelssyni, og flytur Sigurður þangað.
Kolviðarhóll – bæjarhóllinn 2008.
Brátt áunnu þau hjón sér virðingu og traust ferðamanna. Voru nú húsakynni orðin allgóð. 1910 voru tvö hús á Hólnum, timburhús og steinhús, þar að auki næg búpeningshús. Ég læt það öðrum eftir, að skrifa um þær miklu endurbætur, sem Sigurður gjörði á Kolviðarhóli, í jarðrækt og húsabyggingum.
Svo enda ég þessar línur með því að segja, að Suðurlandsundirlendið ásamt Reykjavík eru í mikilli þakkarskuld við þá menn, sem börðust fyrir því, að svo veglegt hús var byggt á Kolviðarhóli, að menn gátu búið í því, og þá ekki síður í þakkarskuld við þá þrjá búendur á Kolviðarhóli, Jón, Guðna og Sigurð, ásamt konum þeirra, sem gjörðu garðinn frægan. Nú taka aðrir við. „Eftir er yðar hluti“, sagði Skarphéðinn.“
Heimild:
-Örnefnastofnun, Árnessýsla Saga Kolviðarhóls, Ölfushreppur – Saga Kolviðarhóls eftir Þorstein Bjarnason frá Háholti.
Kolviðarhóll 1914.