Viðtal þetta við Gísla Sigurðsson um örnefni birtist í sunnudagsblaði Þjóðviljans árið 1965:
„Suður í Hafnarfirði býr maður sem les og skráir örnefni í Garðahreppi. Þeir fengu hann að láni úr annarri byggð, eins og raunar flesta rithöfunda sína. Að vísu réðu þeir hann ekki til slíks starfa, heldur til að handleika fyllibyttur, þjófa og aðra af slíku tagi. Og á þeim eftirlitsferðum lærði hann bæ sinn, Hafnarfjörð, utanað. Og svo tók hann að skrá nöfn gamalla húsa, upplýsingar um þau og fólkið sem í þeim bjó og brátt batt hann sig ekki við þenna litla blett hins forna Álftaneshrepps heldur lagði leið sína um Álftaneshrepp allan. Og nú skulum við líta heim til Gísla Sigurðssonar lögregluþjóns, í dalnum upp af Hafnarfirði, milli Ásfjalls og Setbergs.
— Þú skráir örnefni, Gísli, og sögu þeirra, er ekki fátt um forn heiti hér um slóðir? Og hvernig verða örnefni til?
— Þau tínast til. Hérna beint á móti okkur er Setberg, svarar Gísli, lítil hvilft milli lágra hamra, líkt og sæti milli þeirra, hamrarnir eins og armar á stól. Svo rís upp bær með þessu nafni, og margt skapast kringum hann: tún, traðir, engjar og tjarnir; þannig verða til mörg nöfn er bera þetta fornefni: Setbergs.
— Álítur þú að þetta sé gamalt nafn?
— Já, ég er sannfærður um að nafnið sé mjög gamalt, — frá fyrstu tíð mannavistar. Þú manst eftir sögunni um Ása-Þór, þegar hann keyrði hamar sinn og eftir varð far, kallað setberg. Þetta nafn mun því vera heiðið nafn.
Einhverstaðar í smágrein hef ég getið þess áður, að þar sem talað er um komu Hrafna-Flóka er sagt að Herjólf ur kom hingað fyrstur manna, — hann kom í Herjólfshöfn. Hafnir voru þá kallaðar litlar víkur eða lækjarósar þar sem þeir gátu lagt skipum sínum; hafnirnar voru litlir staðir, firðir stórir staðir, og Hafnarfjörður er fjörður Herjólfshafnar.
Hvaleyri heitir svo af því þeir fundu hval rekinn á tanganum utan fjarðarins.
Álftanes heitir svo af því álftir voru þar. En svo vandast málið út af Görðum og Garðahreppi. Nú halda margir að Garðar séu Skúlastaðir þar sem Ásbjörn Össurarson nam land að ráði frænda síns, Ingólfs Arnarsonar. Þá er ekki ósennilegt að ímynda sér að Garðar standi eitthvað í sambandi við kornrækt, það sé dregið af görðunum kringum sáðrækt. Úti á Álftanesi er fjöldi nafna er minnir á komrækt, t.d. Akurgerði, Akrakot, Tröð, Sviðholt — það er holtið þar sem landið var sviðið, skógurinn brenndur, áður en hafin var ræktun. Og hér í Hafnarfirði er Akurgerði.
— Þú ætlar þó ekki að halda því fram að það hafi verið ræktað korn hér í hrauninu!
— Jú! Akurgerði var eina túnnefnan hér — og fóðraði eina kú. Þessir smábollar hér voru mátulegir reitir til að hagnýta sér til akuryrkju — það er hlýtt í hraunbollunum og sprettur vel þar. Hér og suður í Hraununum er ákaflega mikið af gerðis-nöfnum, og mér þykir sennilegt að gerði hafi verið gerði um akur. Í Arnarnesi er garður fyrir ofan veginn sunnan í holtinu, hringmyndaður um 40 m í þvermál. Þarna tel ég að verið hafi akur.
— Telur þú að það hafi raunverulega verið það mikil kornrækt hér að þetta standist?
— Já. Þeir fluttu út korn, — það sannar bannið á að flytja út korn af Íslandi. En svo þurftu Danir að fara að selja okkur sína framleiðslu, sitt maðkaða korn. —
Það er mjög víða sem ég hef fundið nöfn sem minna á kornrækt.
Ég hef rætt þetta atriði við Björn Þorsteinsson sagnfræðing, sem heldur er ekki í neinum vafa um að hér á nesjunum var mikil kornrækt áður fyrr.
Hér, sem annarstaðar, eru það atvinnuhættirnir sem skapa örnefni mest og flest. Hér lá land að firðinum og flóanum, og hér hefur alla tíð verið geysimikil sjósókn, þar af koma allar varir, búðir og slík nöfn.
— Er mikið um slík nöfn?
— Já, það er alveg geysilegur fjöldi af vörum á allri strandlengju Álftaneshrepps, sem áður var, — en Álftaneshreppur náði áður frá Kópavogi og suður fyrir Hraun, eða suður fyrir Lónakot og þá var Hafnarfjörður í Garðahreppi.
— En eru þessar varir ekki flestar horfnar nú?
—Jú, þær eru flestar horfnar, að ekki sé talað um hve mikið er horfið af notagildi þeirra, það er nær búið að vera. Þó er það til enn að þeir lenda í Pálsvör, Kotavör, Hlíðarvör, Hausastaðavör og Dysjavör úti í Garðahverfi. Úti á Álftanesi eru Hliðsvör, Eyvindarstaðavör, já krökt af vörum. Hjá Bessastöðum er vör við Búðaflöt.
Svo koma öll sundin, sem eru kennd við stað sem er fjarlægur, en heita svo af því að taka varð mið af staðnum — á fjarlægum stað. T. d. Valahnúkasund úti á Álftanesi, sem kemur til af því að Valahnúka — sem eru hér langt fyrir ofan Hafnarfjörð — ber í Bessastaðastofu. Eins er suður í Hraununum, þar eru allskonar varir frá Lambhaga, Straumi, Óttarsstöðum, Lónakoti og kotunum í kring. — Allt minnir þetta á sjósókn, og fjöldi þessara nafna ber atvinnuháttunum glöggt vitni — að hér hafa menn sótt sjóinn af miklu kappi.
— En er nú ekki fátt um verulega forn nöfn á þessu landsvæði?
— Þau eru nokkur allt frá söguöld; Hafnarfjörður, Hvaleyri, Eyvindarstaðir, Sviðholt, Hlið, allt munu þetta vera ævafom nöfn. Melshöfði mun líka gamalt nafn. Vífilstættur og Vífilsstaðir, en sá staður ber nafn Vífils húskarls Ingólfs Arnarsonar, er hafði fengið bústað þar.
— Eru Bessastaðir kannski nefndir eftir einhverjum húskarli?
Engin vitneskja er um Bessastaði eða Bessa þann ef sá staður er við kenndur, enda er þetta ekki mikil jörð, aðeins 9 hundraða, — En Garðar voru stór jörð, með öllum hjáleigunum í kringum sig.
Hæð er suður í Hraunum sem heitir Hafurbjarnarholt. Sú er sögn að Björn, son Gnúpa-Bárðar dreymdi að bergbúi kom og bauð honum að gera helmingafélag um bústofn, og Björn gekk að því. Eftir það virtist sem tvö væru höfuð á hverri skepnu svo Björn varð fjárríkasti maður hér á nesinu og átti hafra ágæta og því kallaður hafur-Björn.
Hafur-Bjarnarstaðir eru í Garði og Hafur-Bjarnarholt í Hraununum — og má líklega telja að báðir þessir staðir séu kenndir við áðurnefndan Hafur-Björn.
Hafur-Björn og þeir feðgar tóku sér land frá Selvogi og allt út á nes. Þeir voru miklir menn og greindir og frá þeim er t.d. kominn Skafti Þóroddsson lögsögumaður. Bárður, faðir þeirra bræðra, Björns, Gnúps, Þórðar og Þorsteins hröklast austan úr Skaftafellssýslu undan gosi, þá orðinn gamall maður. Gnúpur setst að á Gnúpi, — er síðar hverfur undir Ögmundarhraun, Björn verður mikill fjárbóndi hér á skaganum og Þórður og Þorsteinn setjast að í Grindavík. Við Þórð þenna mun Þórðarfell kennt, en ég kannast ekki við neitt örnefni sem kennt er við Þorstein.
Þá, eins og gefur að skilja með þessu umhverfi hér, verða nöfn dregin af hrauni gífurlega mörg. Stærstu svæðin af því tagi eru Garðahraun, sem nú er kallað Hafnarfjarðarhraun, og Almenningur, sem nær frá Ásfjalli allt suður fyrir Hvassahraun, og jafnvel að Almenningur hafi náð yfir stærra svæði fyrrum, en það var skógarsvæði og þangað var sóttur skógviður til kolagerðar af öllum Suðurnesjum.
— Þú ætlar þó ekki að segja mér að hraunin hér fyrir ofan og sunnan hafi verið vaxin þeim skógi að byggðin á ströndinni sækti þangað eldsneyti sitt?
— Jú, en það var gengið á hann þar til hann þraut, en samt er birkikjarr þarna enn, og það hefur dafnað mikið, því miklu minna hefur verið beitt þarna en áður — og engin hrísla tekin til eldiviðar. Menn sem voru kunnugir í Hraununum áður segja að skógarkjarrið hafi breiðzt ótrúlega út á síðustu árum. Skógarsvæðin hér í hrauninu fyrir sunnan voru kölluð almenningur, því þangað sóttu allir eldivið, en svæðið þar sem Heiðmörk er nú var þá kallað Kóngsskógur, eftir að konungur hafði lagt undir sig flestar jarðir á þessu svæði, ásamt Viðey og Reykjavík. Á 16. öld tók kóngur Reykjavík af einum afkomanda Ingólfs Arnarsonar, og saga er til um það að hann hafi grátið þegar hann hafði látið jörðina af hendi.
Þegar kemur upp fyrir Hraunabæina taka við nöfn, eins og Skjól, þau eru í ótölulegum grúa, — það eru fjárskjólin, þar sem sauðfé gat leitað afdreps í illviðrum. Þarna eru mannvirki, sum e.t.v. allt frá landnámstíð, en það eru upphleðslur fyrir þessi skjól og fyrir hella. Í þessum skjólum í skútum og hellum er hvarvetna mikið tað. Á þessu svæði eru líka nokkrar fjárborgir: Óttarstaðaborg, — Kristínarborg, kölluð svo eftir Kristínu Sveinsdóttur húsfreyju á Óttarsstöðum um 1860—1870, mjög merkileg kona. Borg þessa hlóð hún um vetrartíma ásamt vinnumanni sínum. Þá er Þorbjarnarstaðaborgin, sem er hringborg og hefur átt að hlaðast upp í topp — þess vegna er stöpull í henni miðri sem átt hefur að bera uppi þakið. Ennfremur eru Kaldárselsborgin, Vatnsendaborgin og Hólmsborgin. Suður á etröndinni er enn ein borgin, stærst af þeim öllum. Víða eru hleðslur þar sem byrjað hefur verið á borgum en hætt við þær af einhverjum ástæðum.
Svo eru það selin; þau eru nokkuð mörg. Syðst er Lónakotssel, Óttarsstaðasel, Straumssel, Fornasel, sem er austur við skógargirðinguna, Gjásel, sem er inni í girðingu Skógræktarinnar, — og það nafnkunnasta: Kaldársel.
— Hvernig var hægt að hafa í seli í vatnslausum hraununum?
— Það einkennilega er að við þessi sel eru allstaðar vatnsstæði, þannig að á þessum stöðum þraut ekki vatn.
— Var þar nema regnvatn í smáholum?
— Vatnið er 1 skálum, hálfgerðum brunnum og 1—2 fet niður að því og vatnið 1—2 fet á dýpt. Það er ótrúlegt að þetta sé uppistöðuvatn, það hlýtur að renna einhversstaðar að — en hvaðan?
Gvenndarbrunnur er við gamla veginn fyrir ofan Óttarsstaði — hálfur í Óttarsstaðalandi, hálfur í Straumslandi.
— Er hann ekki óttaleg hola?
— Heldur er hann lítill, en nægilegur til þess að fénaður og vegfarendur gátu náð þar í vatn að drekka. Gvendarbrunnur er einnig í Arnarnesi, að ógleymdum Gvendarbrunni sem Reykvíkingar fá vatn sitt frá.
Og úr því við erum farnir að tala um vatn er rétt að geta þess, að á Hraunabæjunum þraut aldrei vatn, því í lónunum og Straumsvíkinni fékkst alltaf ferskt vatn, það kemur svo mikið af fersku vatni undan hrauninu.
— Segðu mér, Gísli, hve stórt svæði er það sem þú hefur safnað örnefnum á?
— Ég hef tekið fyrir hinn forna Álftaneshrepp.
— Ég er litlu nær fyrir það svar.
— Arnarnes er austasti bærinn í hreppnum og mörkin liggja við Kópavog suður um Rjúpnahæð, Kjóavelli, Sandahlíð, Arnarbæli, Húsafell og þaðan beina leið í Kóngsfell og þar eru sýslumörkin milli Gullbringu- Kjósar- og Árnessýslna.
Að vestan eru mörkin frá Lónakoti, þ. e. frá Hraunsnesi niðri við sjó, upp um Búðarvatnsstæði í Markhelluhól, en þar mætast lönd Óttarsstaða, Hvassahrauns og Krýsuvíkur. Frá Markhelluhól á Lönguhlíð við Kerlingargil, sem er Alftanesmegin, og þaðan yfir Lönguhlíðarfjall í Litla-Kóngsfell, og þar eru sýslumörk.
— Hefur nokkur kóngur prílað upp á þessi fell?
—Fráleitt, — nöfnin eru sennilega frá því að kóngur eignaðist allar jarðir hér í Álftaneshreppl, nema þær sem Garðakirkja hélt, — og einu jörðina sem aldrei lenti í klóm kirkju né kóngs, en það er Setberg, eina jörðin í hreppnum sem hefur verið bændaeign frá upphafi vega til þessa dags.
— Hvernig stóð á því að þú lagðir í svo mikið og tímafrekt verk?
— Þetta hófst með því að ég fór að safna gögnum varðandi frásagnir um Hafnarfjörð, það var um 1950, og tók þá að sjálfsögðu með upplýsingar um nágrennið.
— Hvernig vannstu að söfnuninni?
— Eg var svo heppinn að hitta fyrir ágæta menn, sem vildu bæði fórna tíma og fróðleik sínum um eitt og annað og ber fyrst að nefna Gústaf Sigurðsson, kenndan við „Eyðikotið“ í Hraunum, en þar ólst hann upp. Ég leitaði einnig upplýsinga hjá öðrum þeim sem fæddir voru á Hraunabæjunum en höfðu flutzt burt. Á Álftanesi leitaði ég til manna upprunninna þar. Þegar kom upp um landið og til fjalls varð Ólafur Þorvaldsson þingvörður mér drýgstur, og siðast en ekki sízt Guðbjörg Guðmundsdóttir frá Urriðakoti og maður hennar, Páll Kjartansson, er bæði fræddu mig um Setbergs-, Vífilsstaða- og Urriðakotslönd, kirkjulandið, þ. e. upprekstrarland Garðakirkju, Bessastaða og Álftaness. Ólafur Þorvaldsson er fæddur í Ási og fólk hans verið í hreppnum frá því um 1800 og hann hafði fræðslu margra kynslóða. Jófríðarstaðabræður, Þorvarður og Arnór Þorvarðarsynir fræddu mig mikið um Jófríðarstaði — þ. e. Ófriðarstaði.
— Höfðu engir safnað örnefnum á þessu svæði?
— Ari Gíslason fór hér um og ég gat minnt hann á margt. En eftir að hann hafði farið hér um varð ég þess var að margt hafði gleymzt svo ég fór í örnefnaeftirleit og þegar ég hafði safnað töluverðu setti ég mig í samband við Kristján Eldjárn, er hefur yfirumsjón með örnefnasöfnun á landinu og hvatti hann mig eindregið til að vinna að þessu.
Þó að mér væru sögð nöfn á ýmsum stöðum var mér það ekki nóg, heldur varð ég að ganga á örnefnin, — og það eru held ég mjög fá örnefni nú sem ég veit ekki hvar eru í Alftaneshreppi hinum forna. Sum nöfn í þessari skrá minni er hvergi að finna nema í Íslenzku fornbréfasafni og hef ég leitað bæði í annálum og fornbréfasafninu að örnefnum sem voru horfin, en sem hægt var að staðsetja vegna þess að þeim var lýst þannig í afstöðu til annarra örnefna þekktra. — Í þessu sambandi má það ekki gleymast að þeir Björn Þorsteinsson sagnfræðingur og Magnús Már Lárusson prófessor hafa báðir hvatt mig og aðstoðað í þessu verki.
Einn þátturinn í þessari skrá eru nöfn á öllum bæjum búðum og kotum, og þau eru 660—700.
Rembihnútinn rak ég svo á þetta með því að taka upp öll mið sem róið var á frá Álftanesi, Garðahverfi, Hafnarfirði og Hraunum, bæði til hrognkelsaveiða og annarra veiða. Gísli Guðmundsson á Hellu hjálpaði mér mest með mið Hafnfirðinga en um fiskimið Alftnesinga hef ég stuðzt mest við Erlend gamla á Breiðabólstað, og bók hans Sjósókn.
— Eru ekki misjafnlega mörg örnefni á jörðunum gömlu?
— Jú, í Arnarnesi eru þau 57, Lónakoti 79, Óttarsstöðum 225, Þorbjarnarstöðum 278, Garðahverfi 282, á Bessastöðum 50.
— Nokkur sérkennileg?
— J á , t.d. Steinhes, yngra nafn Steinhús, þar sem saman koma jarðir Áss, Jófríðarstaða, Hamarskots og Garðakirkju. Í gömlum bréfum er þessi staður nefndur Steinhes.
— Verða örnefnin merkt á kort?
— Á loftmynd sem ég fékk hjá Ágústi Böðvarssyni landmælingamanni hef ég merkt margt af örnefnum, svo fróðleiksfúsir menn eiga síðar að geta gengið á þau. Miðin ætla þeir hjá Sjómælingum og Vitamálastjórninni að draga á kort.
— Hve mörg örnefni eru þetta samtals?
— Þau eru um 4400.
— Og enn höfum við lítið minnzt á Hafnarfjörð, — eigum við að gera það seinna?
— Já, við verðum að fresta því að sinni. -J . B .“
Heimild:
-Sunnudagur, fylgrit Þjóðviljans, 5. árg. 1965, 17. tbl., bls. 194-196 og 202.

Vatnsendaborg.
Selkot – Kjálká – Selfjall – Selgil
Selkot er innan við Stíflisdal. Kjálká rennur framhjá kotinu. Austar er Selfjall. Milli þess og Búrfellshálsar er grösugur dalur. Innst í honum er Selgil. Ofar eru aðrir fallegir dalir, s.s. Búrfellsdalur, Kjálkárdalur og Hrossadalur. Örnefnin gáfu von um áður óþekktar tóftir.
Ein af gömlu götunum lágu um Stardal og Fellsendaflóa. Þaðan lá leiðin hjá Stíflisdalsvatni yfir Grjótá. Fyrir neðan Dalholt þar sem Nyrðridalur og Stíflisdalur mætast er talið besta vaðið á Grjótá, en hún kemur ofan úr Kjölnum og rennur í gljúfrum niður Nyrðridal og í Stíflisdalsvatn. Frá vaðinu er farið Selkotsveg svonefndan í Selkot, en Selkot var hjáleiga frá Stíflisdal og talið nýbýli árið 1840, byggt um 1830. Þarna var vetrarþungt en heyskapur hægur.
Á Teignum svonefnda meðfram Kjálkaá var engjastykki, sem spilltist mjög af umferð ríðandi manna. Sjálf er Kjálkaá alla jafna meinleysisleg, en í vatnavöxtum á vorin getur hún sýnt á sér klærnar og á vetrum lokaðist bærinn gjörsamlega inni milli ófærra lækja og áa. Þetta segir í örnefnalýsingu höfð eftir Bjarna Jónssyni, beyki. Þar segir: „Selkot lá mjög afskekkt. Vegir voru erfiðir, ófærir á vetrum og í leysingum. Þrjár leiðir lágu frá bænum. Leiðin til Reykjavíkur lá suður yfir Kjálkaá á tveimur vöðum, yfir Grjótá, og síðan aftur yfir Kjálkaá og suðvestur að Sigurðarhól í Stíflisdalslandi. Síðan lá hún vestur yfir Mosfellsheiði.“
Fyrsti bóndinn í Selkoti var Sigurður Þorkelsson. Hann bjó þar árin 1830 til 1890, en síðasti bóndinn Sveinn Abel Ingvarsson bjó þar frá 1937 til 1953. Hann er jarðsettur þar ásamt tveimur konum sínum, þeim Helgu Pálsdóttur og Ragnhildi Lýðsdóttur.
Selkot stendur eins og fyrr segir í Nyrðridal, en eftir honum rennur Kjálkaá. Innst tekur við svonefnt Gljúfur. Upp með því liggja reiðgötur austur á Þingvöll. Fyrir framan gljúfrið er Kirkjuflöt, en þar áði fólkið frá Fellsenda, Stíflisdal og Selkoti, Dalbæjunum svonefndu, þegar farið var í Þingvallakirkju. Langur kirkjuvegur hefur það verið og messur voru all tíðar í þá daga. Á Úlfljótsvatni í Þingvallasveit var t.d. messað þriðja hvern sunnudag á sumrin og fjórða hvern á vetrum.
Leiðin í Kjósina lá norðan Stíflisdalsvatns, niður með Stýfingum, austan ár, niður með Þórufossi og norður að Hækingsdal.
Þriðja leiðin frá Selkoti var raunverulega framhald leiðarinnar úr Kjósinni, þ.e. leið Kjósaringa til Þingvalla, Kjósarheiði. Guðný (dóttir Jóns Bjarnasonar ábúanda í Selkoti 1918-1936) kveðst þekkja það nafn, en þessi leið var aldrei kölluð annað en Heiði þ.e. að fara austur yfir Heiði, frá Selkoti að Kárastöðum, Brúsastöðum og Þingvöllum. Leiðin lá til austurs eða suðausturs frá Selkoti. Þar voru reiðgötur, en faðir Kristrúnar (önnur dóttir Jóns) lagði þar veg eins og þeir voru í þá daga síðustu árin, sem hann var í Selkoti.
Þess má geta að frá bænum Skálabrekku og upp að Selkoti og Stíflisdal eru gamlar götur, sem liggja um Skálabrekkusökk og upp á milli Hádegisholta. Eins lágu götur frá Heiðarbæ um Vestra-Hádegisholt. Um þessa heiði var mikil umferð hér áður fyrr, sérstaklega í sambandi við réttir á haustin.
Í Jarðabók Árna og Jóns segir að bóndinn í Stíflisdal sæki skóg til eldunar, kolagerðar og eins rafta í Þingvallaskóg, þó að það sé erfitt vegna „vonds vegar.“ Kirkjuvegur þótti langur og erfiður og förumannaflutningur sömuleiðis. Þetta orð förumannaflutningur hef ég ekki heyrt áður, en merkir kannski að bændur hafi komið förufólki af sér frá einum bæ til annars. Þannig vann innbyggð Tryggingastofnun þjóðarinnar í þá daga. Þetta förufólk var svo gangandi fréttablað eða Ríkisútvarp með allt það nýjasta á hraðbergi og slúður í bland.
Þrjú önnur eyðibýli eru á þessum slóðum: Álftabakki í Stíflisdal fyrir sunnan Kjálkárós, Melkot fyrir austan Stóragil rétt hjá Selkoti og Hólkot, en sá bær stóð sunnan við Kjálkaá, norðanundir Hádegisholti. Hólkot fór í eyði í Svarta dauða árið 1402, en í Melkoti var búið í nokkur ár um aldmótin 1900.
Frábært veður. Gangan tók 3 klst og 3 mín.
Heimild m.a.:
-Örn H. Bjarnason – Gamlar götur.
Selkotsvegur að Brúsastöðum.
Hvaleyrarvatn – nykur II
„Sagt er að nykur sé í Hvaleyrarvatni annað árið, en hitt árið í Kasthúsatjörn á Álftanesi.
Selstaða var áður fyrr við Hvaleyrarvatn, og sér enn tættur af selinu við vatnið. Eitt sinn voru í selinu karl og kona og gættu búpenings.- Konan fór sem oftar að sækja vatn, en kom ekki aftur. Seinna fannst lík hennar mikið skaddað rekið upp úr vatninu, og þótti líklegt, að nykurinn hafi drekkt konunni.
Eldri menn hafa oft heyrt mikinn skruðning og hávaða út í Hvaleyrarvatni, einkum þegar ísa leysir, og þykir líklegt, að það starfi af völdum nykursins.
Sagt er, að einu sinni hafi börn úti á Alftanesi, fjögur að tölu, verið að leika sér við Kasthúsatjörn og hafi þá séð dýr eitt, grátt áð lit, sem þau héldu að væri hestur og lá við tjörnina. Þau settust öll á bak nema eitt barnið; það sagðist ekki nenna á bak. Þegar barnið sagðist ekki nenna á bak, hristi dýrið börnin af sér og stökk út í tjörnina. Þóttust menn af þessu sjá, að þarna hefði nykurinn verið.“
Heimild:
-Alþýðublað Hafnarfjarðar. 14. árg. 1955, 2. tbl., bls. 8.
Kvöld við Hvaleyrarvatn.
Einbúi – Selskál – Sandakravegur – garðar – rétt – fjárborg
Á nýlegri landakortum er Sandakravegur sýndur liggja frá Drykkjarsteinsdal í austri, með vestanverðu Fagradalsfjalli til norðurs og síðan niður á Skógfellastíg úr Fagradal um Aura. Veginum var fylgt norður með Borgarfjalli, um Nátthagakrika, framhjá Einbúa og að Kastinu með viðkomu í Selskál, Borgarhraunsréttinni og Borgarhraunsborg.
Gengið um Sandakraveg.
Þegar gengið var af gömlu þjóðleiðinni frá Grindavík til Krýsuvíkur vestast í Drykkjarsteinsdal má sjá djúpa gróna holu innan við hraunkantinn. Þarna gæti hafa verið vatnsstæði eða brunnur. Erfitt er að greina götuna að ráði fyrr en komið er inn fyrir Borgarfjallið, en þegar komið er í Nátthagakrika fer að móta vel fyrir henni. Sunnan við Einbúa er gatan mjög skýr. Kastað hefur verið upp úr henni á kafla, auk þess sem hlaðin gerði eru á tveimur stöðum við götuna.
Haldið var inn í Selskálina og hún skoðuð.
Sel við Selskál.
Ekki var að merkja nein mannvirki í skálinni, enda hefur orðið þarna mikil jarðvegseyðing. Þó er á einum stað vel grasi gróið svæði, en ekki var gott að merkja á bakka, sem þar, hvort hann væri náttúrulegur eða gæti verið hluti af einhverju mannvirki.
Gengið var til suðvesturs með vesturbrún hraunkants. Utan í honum eru grasi grónar brekkur og bollar. Hlaðinn stekkur er þar utan í bakkanum, en við leit fundust ekki önnur sýnileg mannvirki. Þó er líklegt að þau kunni að leynast þarna ef vel væri að gáð.
Stefnan var tekin til suðurs inn á hraunið, að Borgarhraunsréttinni, sem kúrir þar heilleg undir suðurjaðri hraunsins. Sumur hafa viljað nefna réttina eftir Ísólfsskála þar sem hún er í hans landi, en Skálamenn þekkja ekki slíka nafngift.
Í Borgarhraunsborg.
Gengið var áfram til suðurs, að Borgarhraunsborg. Um er að ræða stóra fjárborg á grónum hraunhól. Hún er í rauninni í Litla-Borgarhrauni, skammt frá mynni Drykkjarsteinsdal.
Nafnið Selskál bendir til selstöðu og þá væntanlega frá Ísólfsskála. Stekkurinn í hraunkantinum gæti hafa verið hluti af henni. Nátthagakriki er enn ein vísbendingin og einnig Nátthagi skammt austar í Fagradalsfjalli.
Hugsanlega gæti gatan þar sem hún sést svo vel í krikanum og undir Einbúa einnig hafa verið hluti af selsstígnum. En hvað sem öllum vangaveltum líður fæst sennilega seint úr því skorið. Þetta svæði er hins vegar hið ákjósanlegasta göngu- og útivistarsvæði og margt að skoða.
Frábært veður. Gangan tók 2 klst og 22 mín.
Í Borgarhraunsborg.
Arnarsseturshraun – hraunrás – hellar – hleðslur
Gengið var um Arnarseturshraun frá megingígnum og stærstu hrauntröðinni fylgt til vesturs. Við hana eru m.a. nokkur hús vegarvinnumanna frá því að Grindarvíkurvegurinn var gerður á árunum 1914-1918.
Arnarsetur.
Arnarseturshraun, sem er apalhraun að mestu, er á leiðinni til Grindavíkur. Efsta bungan á veginum nefnist Gíghæð og er Arnarsetrið, gígurinn, austan við hana. Hraunið er frá sögulegum tíma sbr. annála úr Skagafirði. Vallholtsannáll segir frá gosi 1661, en við rannsókn kom í ljós að landnámslagið (dökkt að ofan og ljóst að neðan) er undir hrauninu og Kötlulag (1495-1500) er ofan á því. Hraun við Svartsengi og Grindavík eru ca. 2400 ára, en Arnarseturshraun er talið hafa runnið í Reykjaneseldunum árið 1226. Það er því eitt þeirra 12-15 hrauna á Reykjanesskaganum, sem runnu á sögulegum tíma.
Grindavíkurvegur fyrrum – uppdráttur ÓSÁ.
Hraunið hefur komið upp á sprungurein og bráðin bergkvika runnið frá eldstöðinni eftir yfirborði jarðar og storknað. Það hefur hlaðist upp á eldra hrauni, líklega frá Skógfelli. Jarðlagastafli Íslands er nær eingöngu orðinn til við slíka upphleðslu hrauna síðustu 20 milljón árin. Hraun geta verið ólík að útliti og stærð og stafar það af aðstæðum á gosstað, gerð kvikunnar og hegðun gossins. Eftir útliti eru hraun flokkuð í apalhraun og helluhraun.
Apalhraun kallast úfin hraun sem mynduð eru úr einu lagi. Yfirborðið er þakið gjallkenndu hraungrýti en neðar tekur við grófstuðluð samfelld hraunklöpp. Oft má greina stórgerða garða eða múga á yfirborðinu sem myndast þvert á rennslisstefnu hraunsins og kallast þeir svigður.
Jaðar apalhraunanna er jafnan mjög brattur þegar þau skríða eða velta fram og hrynur þá laust gjall úr honum og lendir undir hrauninu. Þannig myndast botnlag úr gjalli undir hrauninu og er það einkennandi fyrir apalhraun.
Hrauntjörn í Arnarseturshrauni.
Súr og ísúr kvika er ávallt seigfljótandi og myndar því jafnan mjög úfin apalhraun sem geta verið tugir metra á þykkt. Sem dæmi um slík hraun má nefna Afstapahraun, sem einnig rann á sögulegum tíma, líklega á 12. öld. Basísk kvika myndar einnig apalhraun einkum kvika sem rennur við blönduð gos á sprungum. Þegar líða tekur á gosin hafa hraunin oft náð mikilli útbreiðslu og er þá mestur hluti þeirra storknaður. Leitar kvikan þá í vissa farvegi á leið sinni út frá gígnum. Við lok gossins tæmast farvegirnir oft og tíðum og kallast þeir þá hrauntraðir. Slíkar hrauntraðir sjást víða t.d. í Arnarseturshrauni, í Gígnum sunnan Þórðarfell, frá Rauðhól undir Vatnsskarði og Búrfelli ofan Hafnarfjarðar.
Helluhraun.
Helluhraun eru hins vegar slétt og greiðfær yfirferðar. Þau myndast einkum þegar um hreint hraungos án kvikustrókavirkni er að ræða. Yfirborð hraunanna storknar oft og myndast þannig fremur þunn og seig skán sem sígur áfram með rennslinu á bráðnu undirlaginu. Við það gárast skánin þannig að yfirborðið verður alsett fíngerðum gárum sem líkjast helst kaðalhönk og kallast gárurnar því hraunreipi. Verði yfirborðsskánin þykkri brotnar hún oft upp í fleka við framskrið og hreyfingar á bráðnu undirlaginu. Við slíkar aðstæður myndast oft háir hólar í helluhraununum. Hólar og hæðir í helluhraunum stafa líka stafað af því að djúpir hraunstraumar kaffærðu hóla og hæðir sem fyrir voru í landslaginu. Mishæðirnar koma svo aftur í ljós þegar kvikan rennur undan storknaðri hraunskáninni í lok gossins. Kvika helluhraunanna kraumar oftast í kvikutjörn í gígnum. Frá gígnum rennur hún yfirleitt úr hrauntjörninni um göng og oft langar leiðir undir storknu yfirborðinu uns hún flæðir upp um augu á hraunþekjunni. Hraungöngin tæmast oftast eins og hrauntraðirnar að gosi loknu og verða þá til hraunhellar sem geta orðið mörg hundruð metrar á lengd. Nokkrir slíkir hellar eru í Arnarseturshrauni. Þegar hafa fundist um 15 þeirra, misstórir.
Gamli Grindavíkurvegurinn um Gíghæð – uppdráttur ÓSÁ.
Á síðastliðnum árum hefur ferðamannaþjónusta verið einn helsti vaxtarbroddur í íslensku atvinnulífi og hafa stjórnvöld bent á ferðamannaþjónustu sem vænlegustu leið okkar til nýsköpunar. Eldfjöllin draga til sín erlenda ferðamenn sem koma til þess að njóta ósnortinnar náttúru og fræðast um jarðfræðilega þróun landsins. Að „gera út á“ íslenska náttúru er meira í anda sjálfbærrar þróunar en að selja eldvörp í erlenda vegi.
Fjölbreytileiki íslenskra eldvarpa er eitt af einkennum landsins. Eldfjallaeyjan Ísland á engan sinn líka hvað varðar landslag, gosmyndanir og bergfræði. Þrátt fyrir ungan jarðfræðilegan aldur og tíða eldvirkni eru margar jarðmyndanir hérlendis mjög fágætar, einnig á alþjóðlegan mælikvarða. Og þótt Íslendingar telji sig vera ríka af þeim eldvörpum sem skópu landið í aldanna rás þá ber að minnast þess að margar þessar jarðmyndanir eru afar sjaldgæfar og jafnvel einstakar, svo sem hinar mörgu eldborgir á Reykjanesskaganum. Samkæmt upplýsingum frá Hauki Jóhannessyni hjá Náttúrufræðistofnun verða goshrinur á Reykjanesskaga á um þúsund ára fresti. Í hverri hrinu verða gos í flestum gosreinum á skaganum og hrinan varir í um 200–300 ár. Síðasta goshrinan gekk yfir á árunum 950–1240 en síðast runnu hraun á Reykjanesskaga árið 1226, þar má nefna Arnarseturshraun, Leitahraun og Eldvarpahraun.
Frábært veður. Gangan tók 1 klst og 11 mín.
Heimild m.a.:
-http://www.ismennt.is/not/gk/jfr/ordskyr/
Hrauntjörn í Arnarsetri.
Lagt á Fjallið
Eftirfarandi lýsing á leiðinni frá Reykjavík um Hellisheiði birtist í Eimreiðinni árið 1928:
Kolviðarhóls. En það var krókur að fara vellina, og þar gengu þá á sumrum mörg og stór naut þeirra Ölfusbænda. Eru til ýmsar sögur af viðureign ferðamanna við þau, því sum þeirra voru allmannýg.
Annars er það mjög furðulegt, hvað ferðamönnum var hætt við að skemma það, sem þeim átti að vera og var til þæginda svo sem þarna átti sér stað, og til skamms tíma hefur borið á, – svo sem að fella niður merkisteina og steina af hættuleg um vegabrúnum. Þegar Guðni bóndi Þorbergsson bjó á Kolviðarhóli, varðaði hann alla Hellisheiði og lét af nærgætni sinni tréhæl norðan í hverja vörðu og festi á hælinn tréplötu með raðartölu, varðanna frá Kolviðarhóli austur á Kambabrún. Var það hinn allra bezti leiðarvísir í dimmviðri, svo menn gátu glöggt vitað, hvar þeir voru staddir, þó viltir væru, ef þeir fundu einhverja vörðuna. En því miður leið ekki á löngu þangað til búið var að kroppa þetta merki úr hverri einustu vörðu.
„Þegar erindum var lokið í Hafnarfirði eða Reykjavík og nógu lengi búið að liggja, var lagt upp og haldið af stað austur upp hjá Lækjarbotnum. Þar mátti fá kaffi — og í það. Síðan var haldið um Vötnin, sem var áfangastaður góður, og annað hvort um hið þá illfæra Svínahraun eða Bolavelli til
Á Kolviðarhóli hafði verið bygt svo kallað sæluhús haustið 1843, af samskotum úr næstliggjandi héruðum, fyrir forgöngu Jóns bónda á Elliðavatni og fleiri. Hús þetta var kofi bygður úr torfi og grjóti og þakinn torfi. Loft var í honum og á því nokkur flet til þess að liggja í. Niðri var húsið óskift ætlað hestum. Naumast var hús þetta annað en nafnið. Á loftinu var alt skemt, sem hægt var að skemma, áhaldalítið, súð og annað útskorið og krassað, með rispuðum skammaryrðum og klámi, en niðri var aldrei hreinsað, svo hreinasta neyð var að láta þar inn nokkra skepnu.
Árið 1879 var búið að byggja steinhús á Kolviðarhóli, og fenginn maður til að setjast þar að með fjölskyldu. Skyldi hann sjá ferðamönnum fyrir húsnæði og greiða eftir föngum. Fyrsti bóndi þar var Ebeneser gullsmiður Guðmundsson.
Gengið um Hellisskarð ofan Kolviðarhóls.
Frá Kolviðarhóli var lagt á Hellisheiði — eða Fjallið, eins og það var venjulega kallað. Afarbratt var upp Hellisskarð, þar sem leiðin lá upp á fjallið að vestan, eins var niður Kamba, niður af því að austan, þar sem vegnefnan hlykkiaðist í ótal krókum niður að Hveragerði. Sjálfsagt var að gera vel að áður en lagt var á þessa kafla. Þótti það snildarlega gert, ef ekki þurfti að gera að aftur á leiðinni, upp eða niður, en langoftast fór annað hvort aftur af eða fram af einhverjum hesti á þessum köflum. Yfir Ölfusið var ekki mjög vondur vegur og ferjan á Laugardælum allgóð. En vegurinn yfir Flóann, eða réttara sagt vegleysan þar, var býsna slæm, sérstaklega kring um Krók og fyrir neðan Vælugerði, eintóm fen og foræði, og stór svæði útvaðin.“
Heimild:

-Eimreiðin, 34. árg. 1928, 1. hefti, bls. 31-32.
Að lesa örnefni – Gísli Sigurðsson
Viðtal þetta við Gísla Sigurðsson um örnefni birtist í sunnudagsblaði Þjóðviljans árið 1965:
— Þú skráir örnefni, Gísli, og sögu þeirra, er ekki fátt um forn heiti hér um slóðir? Og hvernig verða örnefni til?
— Þú ætlar þó ekki að halda því fram að það hafi verið ræktað korn hér í hrauninu!
Ég hef rætt þetta atriði við Björn Þorsteinsson sagnfræðing, sem heldur er ekki í neinum vafa um að hér á nesjunum var mikil kornrækt áður fyrr.
— En er nú ekki fátt um verulega forn nöfn á þessu landsvæði?
Hafur-Bjarnarstaðir eru í Garði og Hafur-Bjarnarholt í Hraununum — og má líklega telja að báðir þessir staðir séu kenndir við áðurnefndan Hafur-Björn.
— Jú, en það var gengið á hann þar til hann þraut, en samt er birkikjarr þarna enn, og það hefur dafnað mikið, því miklu minna hefur verið beitt þarna en áður — og engin hrísla tekin til eldiviðar. Menn sem voru kunnugir í Hraununum áður segja að skógarkjarrið hafi breiðzt ótrúlega út á síðustu árum. Skógarsvæðin hér í hrauninu fyrir sunnan voru kölluð almenningur, því þangað sóttu allir eldivið, en svæðið þar sem Heiðmörk er nú var þá kallað Kóngsskógur, eftir að konungur hafði lagt undir sig flestar jarðir á þessu svæði, ásamt Viðey og Reykjavík. Á 16. öld tók kóngur Reykjavík af einum afkomanda Ingólfs Arnarsonar, og saga er til um það að hann hafi grátið þegar hann hafði látið jörðina af hendi.
Svo eru það selin; þau eru nokkuð mörg. Syðst er Lónakotssel, Óttarsstaðasel, Straumssel, Fornasel, sem er austur við skógargirðinguna, Gjásel, sem er inni í girðingu Skógræktarinnar, — og það nafnkunnasta: Kaldársel.
— Arnarnes er austasti bærinn í hreppnum og mörkin liggja við Kópavog suður um Rjúpnahæð, Kjóavelli, Sandahlíð, Arnarbæli, Húsafell og þaðan beina leið í Kóngsfell og þar eru sýslumörkin milli Gullbringu- Kjósar- og Árnessýslna.
— Ari Gíslason fór hér um og ég gat minnt hann á margt. En eftir að hann hafði farið hér um varð ég þess var að margt hafði gleymzt svo ég fór í örnefnaeftirleit og þegar ég hafði safnað töluverðu setti ég mig í samband við Kristján Eldjárn, er hefur yfirumsjón með örnefnasöfnun á landinu og hvatti hann mig eindregið til að vinna að þessu.
„Suður í Hafnarfirði býr maður sem les og skráir örnefni í Garðahreppi. Þeir fengu hann að láni úr annarri byggð, eins og raunar flesta rithöfunda sína. Að vísu réðu þeir hann ekki til slíks starfa, heldur til að handleika fyllibyttur, þjófa og aðra af slíku tagi. Og á þeim eftirlitsferðum lærði hann bæ sinn, Hafnarfjörð, utanað. Og svo tók hann að skrá nöfn gamalla húsa, upplýsingar um þau og fólkið sem í þeim bjó og brátt batt hann sig ekki við þenna litla blett hins forna Álftaneshrepps heldur lagði leið sína um Álftaneshrepp allan. Og nú skulum við líta heim til Gísla Sigurðssonar lögregluþjóns, í dalnum upp af Hafnarfirði, milli Ásfjalls og Setbergs.
— Þau tínast til. Hérna beint á móti okkur er Setberg, svarar Gísli, lítil hvilft milli lágra hamra, líkt og sæti milli þeirra, hamrarnir eins og armar á stól. Svo rís upp bær með þessu nafni, og margt skapast kringum hann: tún, traðir, engjar og tjarnir; þannig verða til mörg nöfn er bera þetta fornefni: Setbergs.
— Álítur þú að þetta sé gamalt nafn?
— Já, ég er sannfærður um að nafnið sé mjög gamalt, — frá fyrstu tíð mannavistar. Þú manst eftir sögunni um Ása-Þór, þegar hann keyrði hamar sinn og eftir varð far, kallað setberg. Þetta nafn mun því vera heiðið nafn.
Einhverstaðar í smágrein hef ég getið þess áður, að þar sem talað er um komu Hrafna-Flóka er sagt að Herjólf ur kom hingað fyrstur manna, — hann kom í Herjólfshöfn. Hafnir voru þá kallaðar litlar víkur eða lækjarósar þar sem þeir gátu lagt skipum sínum; hafnirnar voru litlir staðir, firðir stórir staðir, og Hafnarfjörður er fjörður Herjólfshafnar.
Hvaleyri heitir svo af því þeir fundu hval rekinn á tanganum utan fjarðarins.
Álftanes heitir svo af því álftir voru þar. En svo vandast málið út af Görðum og Garðahreppi. Nú halda margir að Garðar séu Skúlastaðir þar sem Ásbjörn Össurarson nam land að ráði frænda síns, Ingólfs Arnarsonar. Þá er ekki ósennilegt að ímynda sér að Garðar standi eitthvað í sambandi við kornrækt, það sé dregið af görðunum kringum sáðrækt. Úti á Álftanesi er fjöldi nafna er minnir á komrækt, t.d. Akurgerði, Akrakot, Tröð, Sviðholt — það er holtið þar sem landið var sviðið, skógurinn brenndur, áður en hafin var ræktun. Og hér í Hafnarfirði er Akurgerði.
— Jú! Akurgerði var eina túnnefnan hér — og fóðraði eina kú. Þessir smábollar hér voru mátulegir reitir til að hagnýta sér til akuryrkju — það er hlýtt í hraunbollunum og sprettur vel þar. Hér og suður í Hraununum er ákaflega mikið af gerðis-nöfnum, og mér þykir sennilegt að gerði hafi verið gerði um akur. Í Arnarnesi er garður fyrir ofan veginn sunnan í holtinu, hringmyndaður um 40 m í þvermál. Þarna tel ég að verið hafi akur.
— Telur þú að það hafi raunverulega verið það mikil kornrækt hér að þetta standist?
— Já. Þeir fluttu út korn, — það sannar bannið á að flytja út korn af Íslandi. En svo þurftu Danir að fara að selja okkur sína framleiðslu, sitt maðkaða korn. —
Það er mjög víða sem ég hef fundið nöfn sem minna á kornrækt.
Hér, sem annarstaðar, eru það atvinnuhættirnir sem skapa örnefni mest og flest. Hér lá land að firðinum og flóanum, og hér hefur alla tíð verið geysimikil sjósókn, þar af koma allar varir, búðir og slík nöfn.
— Er mikið um slík nöfn?
— Já, það er alveg geysilegur fjöldi af vörum á allri strandlengju Álftaneshrepps, sem áður var, — en Álftaneshreppur náði áður frá Kópavogi og suður fyrir Hraun, eða suður fyrir Lónakot og þá var Hafnarfjörður í Garðahreppi.
— En eru þessar varir ekki flestar horfnar nú?
—Jú, þær eru flestar horfnar, að ekki sé talað um hve mikið er horfið af notagildi þeirra, það er nær búið að vera. Þó er það til enn að þeir lenda í Pálsvör, Kotavör, Hlíðarvör, Hausastaðavör og Dysjavör úti í Garðahverfi. Úti á Álftanesi eru Hliðsvör, Eyvindarstaðavör, já krökt af vörum. Hjá Bessastöðum er vör við Búðaflöt.
Svo koma öll sundin, sem eru kennd við stað sem er fjarlægur, en heita svo af því að taka varð mið af staðnum — á fjarlægum stað. T. d. Valahnúkasund úti á Álftanesi, sem kemur til af því að Valahnúka — sem eru hér langt fyrir ofan Hafnarfjörð — ber í Bessastaðastofu. Eins er suður í Hraununum, þar eru allskonar varir frá Lambhaga, Straumi, Óttarsstöðum, Lónakoti og kotunum í kring. — Allt minnir þetta á sjósókn, og fjöldi þessara nafna ber atvinnuháttunum glöggt vitni — að hér hafa menn sótt sjóinn af miklu kappi.
— Þau eru nokkur allt frá söguöld; Hafnarfjörður, Hvaleyri, Eyvindarstaðir, Sviðholt, Hlið, allt munu þetta vera ævafom nöfn. Melshöfði mun líka gamalt nafn. Vífilstættur og Vífilsstaðir, en sá staður ber nafn Vífils húskarls Ingólfs Arnarsonar, er hafði fengið bústað þar.
— Eru Bessastaðir kannski nefndir eftir einhverjum húskarli?
Engin vitneskja er um Bessastaði eða Bessa þann ef sá staður er við kenndur, enda er þetta ekki mikil jörð, aðeins 9 hundraða, — En Garðar voru stór jörð, með öllum hjáleigunum í kringum sig.
Hæð er suður í Hraunum sem heitir Hafurbjarnarholt. Sú er sögn að Björn, son Gnúpa-Bárðar dreymdi að bergbúi kom og bauð honum að gera helmingafélag um bústofn, og Björn gekk að því. Eftir það virtist sem tvö væru höfuð á hverri skepnu svo Björn varð fjárríkasti maður hér á nesinu og átti hafra ágæta og því kallaður hafur-Björn.
Hafur-Björn og þeir feðgar tóku sér land frá Selvogi og allt út á nes. Þeir voru miklir menn og greindir og frá þeim er t.d. kominn Skafti Þóroddsson lögsögumaður. Bárður, faðir þeirra bræðra, Björns, Gnúps, Þórðar og Þorsteins hröklast austan úr Skaftafellssýslu undan gosi, þá orðinn gamall maður. Gnúpur setst að á Gnúpi, — er síðar hverfur undir Ögmundarhraun, Björn verður mikill fjárbóndi hér á skaganum og Þórður og Þorsteinn setjast að í Grindavík. Við Þórð þenna mun Þórðarfell kennt, en ég kannast ekki við neitt örnefni sem kennt er við Þorstein.
Þá, eins og gefur að skilja með þessu umhverfi hér, verða nöfn dregin af hrauni gífurlega mörg. Stærstu svæðin af því tagi eru Garðahraun, sem nú er kallað Hafnarfjarðarhraun, og Almenningur, sem nær frá Ásfjalli allt suður fyrir Hvassahraun, og jafnvel að Almenningur hafi náð yfir stærra svæði fyrrum, en það var skógarsvæði og þangað var sóttur skógviður til kolagerðar af öllum Suðurnesjum.
— Þú ætlar þó ekki að segja mér að hraunin hér fyrir ofan og sunnan hafi verið vaxin þeim skógi að byggðin á ströndinni sækti þangað eldsneyti sitt?
Þegar kemur upp fyrir Hraunabæina taka við nöfn, eins og Skjól, þau eru í ótölulegum grúa, — það eru fjárskjólin, þar sem sauðfé gat leitað afdreps í illviðrum. Þarna eru mannvirki, sum e.t.v. allt frá landnámstíð, en það eru upphleðslur fyrir þessi skjól og fyrir hella. Í þessum skjólum í skútum og hellum er hvarvetna mikið tað. Á þessu svæði eru líka nokkrar fjárborgir: Óttarstaðaborg, — Kristínarborg, kölluð svo eftir Kristínu Sveinsdóttur húsfreyju á Óttarsstöðum um 1860—1870, mjög merkileg kona. Borg þessa hlóð hún um vetrartíma ásamt vinnumanni sínum. Þá er Þorbjarnarstaðaborgin, sem er hringborg og hefur átt að hlaðast upp í topp — þess vegna er stöpull í henni miðri sem átt hefur að bera uppi þakið. Ennfremur eru Kaldárselsborgin, Vatnsendaborgin og Hólmsborgin. Suður á etröndinni er enn ein borgin, stærst af þeim öllum. Víða eru hleðslur þar sem byrjað hefur verið á borgum en hætt við þær af einhverjum ástæðum.
— Hvernig var hægt að hafa í seli í vatnslausum hraununum?
— Það einkennilega er að við þessi sel eru allstaðar vatnsstæði, þannig að á þessum stöðum þraut ekki vatn.
— Var þar nema regnvatn í smáholum?
— Vatnið er 1 skálum, hálfgerðum brunnum og 1—2 fet niður að því og vatnið 1—2 fet á dýpt. Það er ótrúlegt að þetta sé uppistöðuvatn, það hlýtur að renna einhversstaðar að — en hvaðan?
Gvenndarbrunnur er við gamla veginn fyrir ofan Óttarsstaði — hálfur í Óttarsstaðalandi, hálfur í Straumslandi.
— Er hann ekki óttaleg hola?
— Heldur er hann lítill, en nægilegur til þess að fénaður og vegfarendur gátu náð þar í vatn að drekka. Gvendarbrunnur er einnig í Arnarnesi, að ógleymdum Gvendarbrunni sem Reykvíkingar fá vatn sitt frá.
Og úr því við erum farnir að tala um vatn er rétt að geta þess, að á Hraunabæjunum þraut aldrei vatn, því í lónunum og Straumsvíkinni fékkst alltaf ferskt vatn, það kemur svo mikið af fersku vatni undan hrauninu.
— Segðu mér, Gísli, hve stórt svæði er það sem þú hefur safnað örnefnum á?
— Ég hef tekið fyrir hinn forna Álftaneshrepp.
— Ég er litlu nær fyrir það svar.
Að vestan eru mörkin frá Lónakoti, þ. e. frá Hraunsnesi niðri við sjó, upp um Búðarvatnsstæði í Markhelluhól, en þar mætast lönd Óttarsstaða, Hvassahrauns og Krýsuvíkur. Frá Markhelluhól á Lönguhlíð við Kerlingargil, sem er Alftanesmegin, og þaðan yfir Lönguhlíðarfjall í Litla-Kóngsfell, og þar eru sýslumörk.
— Hefur nokkur kóngur prílað upp á þessi fell?
—Fráleitt, — nöfnin eru sennilega frá því að kóngur eignaðist allar jarðir hér í Álftaneshreppl, nema þær sem Garðakirkja hélt, — og einu jörðina sem aldrei lenti í klóm kirkju né kóngs, en það er Setberg, eina jörðin í hreppnum sem hefur verið bændaeign frá upphafi vega til þessa dags.
— Hvernig stóð á því að þú lagðir í svo mikið og tímafrekt verk?
— Þetta hófst með því að ég fór að safna gögnum varðandi frásagnir um Hafnarfjörð, það var um 1950, og tók þá að sjálfsögðu með upplýsingar um nágrennið.
— Hvernig vannstu að söfnuninni?
— Eg var svo heppinn að hitta fyrir ágæta menn, sem vildu bæði fórna tíma og fróðleik sínum um eitt og annað og ber fyrst að nefna Gústaf Sigurðsson, kenndan við „Eyðikotið“ í Hraunum, en þar ólst hann upp. Ég leitaði einnig upplýsinga hjá öðrum þeim sem fæddir voru á Hraunabæjunum en höfðu flutzt burt. Á Álftanesi leitaði ég til manna upprunninna þar. Þegar kom upp um landið og til fjalls varð Ólafur Þorvaldsson þingvörður mér drýgstur, og siðast en ekki sízt Guðbjörg Guðmundsdóttir frá Urriðakoti og maður hennar, Páll Kjartansson, er bæði fræddu mig um Setbergs-, Vífilsstaða- og Urriðakotslönd, kirkjulandið, þ. e. upprekstrarland Garðakirkju, Bessastaða og Álftaness. Ólafur Þorvaldsson er fæddur í Ási og fólk hans verið í hreppnum frá því um 1800 og hann hafði fræðslu margra kynslóða. Jófríðarstaðabræður, Þorvarður og Arnór Þorvarðarsynir fræddu mig mikið um Jófríðarstaði — þ. e. Ófriðarstaði.
— Höfðu engir safnað örnefnum á þessu svæði?
Þó að mér væru sögð nöfn á ýmsum stöðum var mér það ekki nóg, heldur varð ég að ganga á örnefnin, — og það eru held ég mjög fá örnefni nú sem ég veit ekki hvar eru í Alftaneshreppi hinum forna. Sum nöfn í þessari skrá minni er hvergi að finna nema í Íslenzku fornbréfasafni og hef ég leitað bæði í annálum og fornbréfasafninu að örnefnum sem voru horfin, en sem hægt var að staðsetja vegna þess að þeim var lýst þannig í afstöðu til annarra örnefna þekktra. — Í þessu sambandi má það ekki gleymast að þeir Björn Þorsteinsson sagnfræðingur og Magnús Már Lárusson prófessor hafa báðir hvatt mig og aðstoðað í þessu verki.
Einn þátturinn í þessari skrá eru nöfn á öllum bæjum búðum og kotum, og þau eru 660—700.
Rembihnútinn rak ég svo á þetta með því að taka upp öll mið sem róið var á frá Álftanesi, Garðahverfi, Hafnarfirði og Hraunum, bæði til hrognkelsaveiða og annarra veiða. Gísli Guðmundsson á Hellu hjálpaði mér mest með mið Hafnfirðinga en um fiskimið Alftnesinga hef ég stuðzt mest við Erlend gamla á Breiðabólstað, og bók hans Sjósókn.
— Eru ekki misjafnlega mörg örnefni á jörðunum gömlu?
— Jú, í Arnarnesi eru þau 57, Lónakoti 79, Óttarsstöðum 225, Þorbjarnarstöðum 278, Garðahverfi 282, á Bessastöðum 50.
— Nokkur sérkennileg?
— J á , t.d. Steinhes, yngra nafn Steinhús, þar sem saman koma jarðir Áss, Jófríðarstaða, Hamarskots og Garðakirkju. Í gömlum bréfum er þessi staður nefndur Steinhes.
— Verða örnefnin merkt á kort?
— Á loftmynd sem ég fékk hjá Ágústi Böðvarssyni landmælingamanni hef ég merkt margt af örnefnum, svo fróðleiksfúsir menn eiga síðar að geta gengið á þau. Miðin ætla þeir hjá Sjómælingum og Vitamálastjórninni að draga á kort.
— Hve mörg örnefni eru þetta samtals?
— Þau eru um 4400.
— Og enn höfum við lítið minnzt á Hafnarfjörð, — eigum við að gera það seinna?
— Já, við verðum að fresta því að sinni. -J . B .“
Heimild:
-Sunnudagur, fylgrit Þjóðviljans, 5. árg. 1965, 17. tbl., bls. 194-196 og 202.
Vatnsendaborg.
Drykkjarsteinn – saga II
„Alfaravegur lestamanna og vermanna að austan, er sóttu fiskifang til verstöðvanna á Suðurnesjum og vor fyrr á tímum eða stunduðu þar sjóróðra á vertíðum, lá með suðurströndinni um Þorlákshöfn, Selvog, Herdísarvík og Krýsuvík til Grindavíkur og þaðan til Hafna.
Drykkjarsteinn – stærsta skálin.
Við gömlu þjóðleiðina milli Krýsuvíkur og Grindavíkur um Drykkjarsteinsdal, og þó miklu nær Grindavík, í landi Ísólfsskála, greindist vegur þessi í tvær áttir. Liggur annar vegurinn áfram til Grindavíkur, en hinn yfir fjallgarðinn til Vogastapa. Þar, sem vegirnir skiptast, er steinn sá, er Drykkjarsteinn nefnist. Er hann mikill um sig, en ekki allhár, eða svo sem hálfönnur mannhæð þar sem hann er hæstur. Nafn sitt dregur steinninn af því, að í honum eru holur nokkurar, þar sem vatn safnast fyrir, og er svo sagt að í hinni stærstu þeirra þrjóti ekki drykkjarvatn nema í langvinnustu þerrum. Hefir þetta komið sér harla vel fyrir ferðamenn, er þarna áttu leið um, þar sem hvergi er vatn að fá á þessum vegi á löngu svæði, og menn og hestar voru því örmæddir af þorsta, er að Drykkjarsteini kom, og svaladrykknum sárlega fegnir. Var steinninn þannig langþráður áfangastaður ferðamönnum, og var ekki laust við, að á honum hvíldi helgi nokkur, þar eð varla þótti einleikið, hversu haldsamur hann var á drykkjarvatn, jafnvel í mestur langviðrum. Þó gat það borið við, að vatnið þryti í steininum, eins og þessi saga sýnir.
Drykkjarsteinn – skálar.
Einhverju sinni bar svo við sem oftar, að ferðamenn áttu leið um veg þennan. Ekki er þess getið, hvaðan þeir voru eða hvert ferðinni var heitið, en líklegra er, að þeir hafi verið á suðurleið. Þurrkar höfðu miklir á undan gengið, svo að hvergi var vatn að fá á leiðinni. Voru mennirnir mæddir af þorsta og hugðu því gott til að fá sér nægan svaladrykk, er þeir kæmu að Drykkjarsteini. en er þangað kom, bar nýrra við, því að allar holurnar voru tómar, og engan dropa að fá. Urðu mennirnir vonsviknir mjög, eons og vænta máti. Í gremju sinni tók þá einn þeirra til þess klækjabragðs, að hann ósæmdi í stærstu holuna. Segja sumir, að hann hafi migið í hana, en aðrir, að hann hafi gengið þar örna sinna. Eftir þetta brá svo við, að holan var jafnan þurr, og það engu að síður, þótt rigningum gengi. Liðu svo nokkur ár, sumir segja aðeins eitt ár, að ekki bar til tíðinda. Átti þá þessi sami maður enn leið um veg þennan, einn síns liðs, og var ferðinni heitið til Grindavíkur. Vissu menn það síðast til ferða hans, að hann lagði upp frá Krýsuvík. En fáum dögum síðar, er farið var um veginn, fannst hann dauður undir Drykkjarsteini, og kunni það enginn að segja, hvað honum hefði að bana orðið. En eftir þetta brá Drykkjarsteinn til sinnar fyrri náttúru, og hefir vatn eigi þrotið í honum síðan.
Saga þessi er skráð eftir sögnum gamalla Krýsvíkinga og Grindvíkinga með hliðsjón af frásögn síra Jóns Vestamanns í lýsingu Selvogsþinga 1840 (Landnám Ingólfs III, 108). – Handrit Guðna Jónssonar magisters).“
-Sagan er í Rauðskinnu hinni nýrri, II. bindi, bls. 120-122.
Drykkjarsteinn.
Refagildra í Svínahrauni
Ólafur Marteinsson fann hlaðna refagildru í gönguferð um Urriðavatnslandnám og Svínahraun 11.12.2005. Gildran er ca. 660 m frá Vífilstaðaspítala. Hann skoðaði síðan gildruna nánar þann 26.12.2005. Ólafur taldi gildruna, sem er utan alfaraleiðar, greinilega forna, „þakið á gildruhólfi er fallið að hluta en veggir heilir og inngangur sömuleiðis“.
Refagildran.
Við skoðun á mannvirkinu kom í ljós að þar gæti hafa verið um refagildru að ræða, en þar sem hún er hvorki í lægð undir brún, á brún eða á „tilleiðanlegum“ stað fyrir tófuna, heldur á litlum hraunhól, er líklegast að hún hafi verið gerð í tilteknum tilgangi. Þegar umhverfið er skoðað nánar má sjá að hlaðið hefur verið sunnan við gildruna, eins og umhverfis op á greni. Gildran sjálf er svo til hliðar við grenið. Þarna gæti verið komin skýringin á tilvist refagildrunnar á þessum stað. Hún hafi verið gerð til að leiða rebba „rétta“ leið að greninu og þá…. – tófubandið snarast af hælnum og lokhellan féll. Enn mátti heyra ámótlegt vælið í dýrinu.
Skoða mætti nánar hliðarhleðslurnar.
Í Svínahrauni.
Maríuhöfn – Búðasandur – Steðji
Stefnan var tekin á Hálsnes norðvestan við Neðri-Háls í Kjós. Langflestir, sem ekið hafa um Hvalfjörðinn, hafa gefið nesinu auga, en langfæstir hafa ekið út af þjóðveginum og gaumgæft það. Full ástæða er þó til þess því svæðið endurspeglar merkilega sögu. Þrátt fyrir það eru engar merkingar eða vísbendingar um hvar það gæti verið að finna. Þokkalegur malarvegur er niður á Búðasand, en þangað var ferðinni heitið að þessu sinni. Auk búðaminjanna við Búðasand var ætlunin að skoða Maríuhöfnina skammt utar sem og svæðið umhverfis svonefnda Hálshóla á sunnanverðu nesinu.
Maríuhöfn mun hafa verið mesti kaupstaður landsins á miðöldum, fram á 15. öld. „Rústir staðarins eru ofan við Búðasand og er Maríuhöfn við suðausturenda sandsins. Skip sem þangað komu voru dregin inn á poll inn af sandinum. Þarna er talið að haffær skip hafi verið smíðuð á landnámsöld, enda viður tiltækur. Árið 1402 kom skip (Hvala-) Einars Herjólfssonar í Maríuhöfn og flutti með sér svartadauða.
Laxá hafnar að lokum í Lax[ár]vogi. Vogur þessi hefur reyndar gengið undir ýmsum nöfnum. Sr. Sigurður Sigurðsson nefnir hann Laxavog (1840), Jón O. Hjaltalín kallar hann Hálsvík (1746) en Björn Bjarnarson segir Laxárvogur (1937). Í daglegu tali er hann nefndur Laxvogur. Þar er útfiri mikið og lífríki fjölskrúðugt og mikil náttúrufegurð. Fyrr á tímum áttu margir erindi að þessum vogi. Neðst í ánni er Sjávarfoss eða Sjóarfoss eins og hann hét áður fyrr. Skammt ofan við hann rennur Bollastaðalækur í ána, þar er og Bollastaðavað og ítið eitt neðar er annað vað, er Höklavað nefnist.
Akvegurinn liggur alveg niður á sandinn og hægt er að komast nánast að Maríuhöfn. Þarna er einstaklega fallegt og vel þess virði að gefa sér góðan tíma til að skoða sig um.
Maríuhöfn er við Lax[ár]vog. Þar eru “víðáttumiklar leirur og grunnsævi með fjölbreyttu lífríki, svo sem kræklingi og gróðri. Laxvogur er eitt frjósamasta grunnsævi við sunnanverðan Faxaflóa. Á Hvalfjarðareyri handan vogarins er fundarstaður baggalúta. Þarna má sjá setmyndunar- og rofferli án mikilla áhrifa mannsins.”
Í umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands um svæðið segir m.a.: “Svæðið hýsir sjaldgæfar tegundir og er viðkvæmt fyrir röskun; svæðið er mikilvægt vegna viðhalds sterkra stofna og hefur alþjóðlegt verndargildi; svæðið hefur jafnframt verulegt vísindalegt gildi.”
Rétt við Sjávarfoss norðan megin er klettur (Klöppin), sem bátar lögðust upp að fyrr á árum áður en bílfært varð fyrir Hvalfjörð. Á bátum þessum var fluttur varningur, fólk og á sumrin hey úr Kjósinni á vegum fólks úr Reykjavík, sem hafði slægjulönd á leigu í sveitinni.
Annar lendingarstaður var Harðbali, sem er sunnan við voginn um miðbik hans. Austan vogsins er Laxárnesland og bærinn Laxárnes í suðausturhorninu, norður af honum er Laxárnestangi en vestur af bænum er Suðurnes og síðan enn vestar Skorárvík, þar sem Skorá rennur til sjávar en hún kemur upp í Eyrarfjalli. Fyrir miðjum voginum blasir við félagsheimilið Félagsgarður undir Laxárnesásnum, það var tekið í notkun árið 1945.
Fyrr á þessari öld og raunar miklu lengur sóttu sjómenn af Suðurnesjum og víðar að krækling til beitu upp í Hvalfjörð. Einn staðanna er Laxvogur. „Þótti hvergi betra að taka krækling en þar“, segir Erlendur Björnsson í endurminningum sínum (Sjósókn, Rvík 1945). Þótti kræklingur þar feitur og skeljarnar hreinar að utan. Aðrir staðir voru Stampar, sem eru norðan við Hálsbæinn, þar var kræklingurinn hins vegar seinteknari og þurfti ætið að kafa eftir honum. Næsti staður var svo í Hvammsvík, þá Hvítanes, Fossá, Brynjudalsvogur og Botnsvogur. Nú tína menn helst krækling sér til matar við Fossá. (Sjá meira undir Beitufjara).
Frá fornu fari var höfn á Búðasandi samkvæmt heimildum. Aðrar hafnir voru á Hvalfjarðareyri vestan við Laxvoginn, í Laxvogi (Hálshólaskipalægi, sem Skúli fógeti nefnir svo, það er fyrrnefnt vestur undir Hálshólum) og loks var höfn í Hvammsvík. Höfnin á Búðasandi hét frá fornu fari Maríuhöfn. Hún er þó ekki eina örnefnið í Kjósinni, sem minnir á Maríu, en kirkjan á Reynivöllum var helguð Maríu guðsmóður og af þeirri ástæðu m.a. er þessu svo farið.
Utan til í Laxvogi, rétt sunnan við miðju, er Maríusker, sem tilheyrt hefur Reynivöllum frá alda öðli. Norðan til í voginum innanverðum er Hálshólmi neðan við Hálsbæina. Utan og norðan við þá er svo Búðasandurinn.
Hálsnesið blasir við, þegar litið er út Hvalfjörðinn. Þarna er einn merkasti sögustaður Kjósarinnar, Hálsbúðir. Búðasandur er fagur frá náttúrunnar hendi og einhver fegursti staðurinn í sveitinni. Upp af honum er fjörukambur og handan hans lón, sem talið er hafa grynnst og minnkað í tímans rás. Milli lónsins og fjörukambsins eru leifar gömlu búðatóftanna og hafa fornleifarannsóknir farið fram á þessu svæði undanfarið en ekki liggur ljóst fyrir um niðurstöður þeirra. Að öllum líkindum hafa búðirnar verið hlaðnir uppveggir, sem tjaldað hefur verið yfir.
Þegar gengið var um norðanverðan Búðasand sáust tóftir Hálsbúða greinilega. Þær hafa legið nokkuð þétt saman í einni samfellu. Byggður hefur verið sumarbústaður í nyrsta hluta tóftanna og trjám plantað utan og ofan í þær. Búðirnar virðast hafa verið margar, en erfitt er að greina fjölda þeirra af nákvæmni. Veggir standa víða grónir og dyr hafa gjarnan vísað að hafi. Tveir aumingjalegir tréstaurar standa í tóftunum með afmáðum áletrunum. Vísast hefur þar áður staðið „Friðlýstar fornleifar“.
Sunnarlega í röðinni hefur farið fram fornleifauppgröftur. Í rauninni er/var hann dæmigerður fyrir slíka framkvæmd hér á landi; allt skilið eftir ófrágengið og öðrum einskis nýt. Auðvitað á ekki að leifa fornleifauppgröft nema gera ráð fyrir frágangi svæðisins að honum loknum, þ.e. með viðhlítandi minjaskiljum, merkingum og upplýsingaskiltum. Sumir segja, grafendum til vorkunnar, að uppgröfturinn hafi verið stöðvaður í miðjum klíðum af ótta við þarna kynnu að hafa verið grafin lík frá tímum svartadauða.
Leiðir af Búðasandi austur á bóginn til Þingvalla og Skálholts voru einkum tvær. Hin fyrri var inn Kjósardalinn og um Kjósarskarð og Kjósarheiði austur til Þingvalla. Þessi leið er auðfarin þótt ekki megi gleyma því, sem gamlar lýsingar gera úr mýrum og þvílíkum farartálmum. Hin leiðin var inn Hvalfjörð og upp úr Brynjudal – eða Botnsdal – yfir Leggjarbrjót til Þingvalla vestan við Ármannsfell. Þarna hefur verið stærsti kaupstaður landsins? Eða svo telja menn nú, þar til annað réttara kemur í ljós. Álitið er að sigling hafskipa í Hvalfjörð hafi aukist mjög á síðari hluta 14. aldar og þar hafi aðalhöfn landsins verið í lok hennar. Heimildir greina frá því, að þar hafi oft verið mörg skip samtímis og ýmsir kaupsamningar, sem dagsettir eru í Hvalfirði, eru til frá þessum tímum. Höfn þar virðist hafa legið vel við, hvað varðar samgöngur, sem fyrr sagði. Á þessum tímum voru hafskipin lítil og grunnskeið svo auðvelt var að draga þau á land og búa þar um þau fyrir veturinn.
grunnt lón og fellur smálækur úr því til sjávar syðst á honum. Á flóði gengur sjór upp í lónið. Áður sagði að „Höfnin á Búðasandi hét frá fornu fari Maríuhöfn“. Fljótt á litið virðist bæði aðstaða og lending hin ákjósanlegasta utan við Búðafjöruna, sem er sendi, aflíðandi og löng. Staðsetning búðanna gefa sterklega til kynna að höfnin (legan) hafi verið utan við sandinn. Fjölmörg rök önnur mætti tína til, en skv. sumum fyrirliggajndi upplýsingum á höfnin sjálf, Maríuhöfn, að hafa verið sunnan við Búðasand. Höfði skilur höfnina frá sandinum.
Einnig segir: „Vestan við Ullarhól er gömul rétt við sjó. Þar er smámelur, sem heitir Réttarmelur, rétt innanvert við hólmann. Rétt fyrir innan Hálshóla, fyrir neðan bæinn á Hálsi er hóll, er heitir Ullarhóll.“
Á Búðasandi var samkvæmt rannsóknum dr. Björns Þorsteinssonar stærsti kaupstaður landsins á 14. öld. Þangað komu skip frá útlöndum og gátu haft vetursetu vegna lónsins, þangað sem þau voru dregin upp á haustin. Það var ekki hvað síst biskupsstóllinn í Skálholti, sem var mjög mannmargur, sem naut góðs af þessari höfn og hafði skip í förum, sem lögðu þarna upp. En að auki var þessi höfn, sem var hin besta frá náttúrunnar hendi, ákjósanlega í sveit sett til þess að koma varningi á eftirsóknarverðustu kaupstefnu þjóðarinnar, Þingvelli og Öxará um þingtímann, þegar mannfjöldinn safnaðist þar saman í stórum stíl. Telur dr. Björn, að þessi höfn hafi verið Skálholtsstól öllu hentugri en t.d. höfnin á Eyrarbakka fyrir þær sakir, að leiðin til Skálholts var auðfarnari úr Kjósinni en af Eyrarbakka. Þegar blaðað er í fornum annálum kemur í ljós, að biskupar koma til og frá Hvalfirði, þegar þeir fara utan.
Innan við kambinn (Búðasand) er
Í örnefnalýsingu fyrir Neðri-Háls eftir Ara Gíslason segir m.a. um Búðasand og tóftirnar þar: „Fallegur hvammur er nyrzt í Búðarsandi, þar sem búðirnar stóðu. Hálsbúðir eru stakkstæði grasi gróið, mjög gamalt. Orðmyndin Búðasandur er rétt að áliti G. (rangt Búðarsandur í stafrófsskrá og í skrá Einars Jónssonar). Á Búðasandi eru miklar tóftir, sem á þessu ári voru friðlýstar. [Skjal undirritað af ÞM 30.09.1975, þinglýst 02.10.1975]. Hálsbúðir eru framangreindar tóftir, sem nú hafa verið friðlýstar.
Hlein er klettasker, sem alltaf er upp úr. Hlein á að vera svo (ekki Hleinar eins og í stafrófsskrá). Allt svæðið fyrir norðan Búðasand er kallað Hlein.“
Gengið var yfir affallið úr lóninu næst ströndinni og yfir Búðahöfðann, vestast í Hálshólum. Ástæða er þó til að gefa honum gaum, ekki síst bergummyndunum, hrúðukörlum og öðrum náttúruverðmætum, sem þarna ber fyrir augu.
„Við Maríuhöfn í Laxárvogi var einn stærsti kaupstaður landsins fram á 15. öld. Þangað gengu skip Skálholtsstóls enda var höfnin vel í sveit sett gagnvart samgönguleiðum til Þingvalla og uppsveita Árnessýslu. Þangað barst svarti dauði til landsins árið 1402 en talið er að um þriðjungur íbúanna hafi látist af farsóttinni.
Annálar greina frá því að hún hafi komið með skipi í Hvalfjörð. þá var Maríuhöfn á Búðasandi við Laxárvog ein aðalhöfn landsins. Samkvæmt sömu heimildum tók Áli Svarhöfðason veikina og „deyði fyrstur af kennimönnum um haustið“ í Botnsdal ásamt sjö sveinum sínum. Síðan breiddist pestin um landið og er talið að látist hafi um 40 þúsund manns úr henni, eða nærri helmingur landsmanna.
Á upplýsingaskilti ofan við Maríuhöfn stendur eftirfarandi: „Maríuhöfn er forn verslunarstaður frá þjóðveldisöld og ein aðalsiglingarhöfn landsmanna á miðöldum. Í annálum er oft getið um að skip kæmu út í Hvalfirði og mun átt við þennan stað. Héðan er talið að drepsóttin svartidauði hafi borist til landsins 1402 og smitið borist með klæðum Einars Herjólfssonar. Hann andaðist úr sóttinni á skipi sínu í hafi en klæði hans voru afhent ættingjunum. Maríuhöfn er austan Búðasands en ofanvert við lónið milli sands og sjávar má sjá að Maríuhöfn hafi lagst af á 15. öld með breyttum skipakosti er skip urðu djúpskreiðari og þurftu því dýpri hafnir.“ Blómaskeið verslunar í Maríhöfn var fram yfir 1400.
Hlaðinn bryggja hefur verið í Maríuhöfn og sjást leifar hennar enn mjög vel. Sennilega hefur staðsetning þessi, þ.e. á Maríuhöfninni, komið til vegna mannvirkisins. Slíkt mannvirki er ekki að finna á Búðasandi. Fjarlægð búðatóftnanna frá þessum stað þarf þó ekki að útiloka að þarna hafi fyrrum verið hafnaraðstaða, enda bendir bryggjan til þess að svo hafi verið. Þá liggur gata ofan hafnarinnar, sem enn sést greinilega þar sem hún liggur vestast yfir Hálshólana.
Miðað við aðstæður á svæðinu verður að telja líklegra að skip frá þjóðveldistímabilinu hafi flatlent á Búðasandi og varningurinn borinn þar í land, stystu leið til búða. Síðar, þegar flytja þurfti varning frá hinum stærri skipum með smábátum, er líklegra að þau hafi legið utan við eða á svonefndi Maríuhöfn og varningnum verið færður að hinni hlöðnu bryggju í „Maríuhöfn“ innanverðri, sem hér hefur verið tilgreind, a.m.k. einhver hluti eða tilteknir hlutar hans. Með tilkomu bryggjunnar hefur verið hægt að koma varningnum strax fyrir á vögnum, sem ekki var hægt í malarfjörunni. Sjá meira um rannsóknir og heimildir um búðirnar á Búðasandi í meistararitgerð Magnúsar Þorkelssonar 2004.
Gengið var inn með voginum, en hann er þar sendinn og auðveldur yfirferðar. Fallin varða, sem einhverju sinni hefur verið stór, er uppi í Hálshólunum sunnanverðum, líklega markavarða.
Þá var stefnan tekin að ofanverðri Hvammsvík með það fyrir augum að berja augum jarðfræðifyrirbærið Steðja. Steðji og næsta umhverfi er eina svæðið sem friðlýst hefur verið í hreppnum; svæðið er friðlýst sem “náttúruvætti”. Ákveðnar reglur gilda um umgengni við Steðja og næsta umhverfi og tilgreindar voru í auglýsingu um friðlýsinguna: Steðji: “Steðji (Staupasteinn) á Skeiðhóli, Kjósarhreppi, Kjósarsýslu. Friðlýstur sem náttúruvætti með auglýsingu í Stjórnartíðindum B, nr. 218/1974. Stærð 7 ha. Sérkennilegur klettur á mjóum stöpli eins og staup í laginu. Ber mörg nöfn en er af flestum nefndur Staupasteinn. Skeiðhóll hefur verið vinsæll áningarstaður ferðamanna. Friðlýstur 1974.”
Skeiðhóll er undir miðju Hvammsfjalli í Hvalfirði. Milli hólsins og fjallsins er grunnt skarð þar sem ekið var um uns þjóðvegurinn var færður niður fyrir hólinn, nær sjónum. Sunnan í Skeiðhól stendur afar sérstæður klettur, líkastur glasi á mjóum stöpli. Á honum eru þekkt að minnsta kosti fjögur nöfn: Prestur, Steðji, Karlinn í Skeiðhól og Staupasteinn. Flestir kannast trúlega við klettinn sem Staupastein en á vegvísi við þjóðveginn, nálægt Hvammsvík, er hann nefndur Steðji. Kletturinn og næsta nágrenni er friðlýst sem náttúruvætti. Einbúinn okkar býr í klettinum sjálfum og í brekkunni þar hjá. Erla Stefánsdóttir sjáandi veit einungis um 8 einbúa sömu ættar á Íslandi. Auk okkar manns á Skeiðhóli, er slíkur einbúi við Brynjudalsá í Hvalfirði, tveir eru í Kópavogi og einn nálægt þjóðveginum við Blönduós, svo nokkrir séu nefndir.
Til eru nokkrar sagnir af íbúum í Steðja, en þær verða ekki raktar hér. Hafa ber í huga að staðurinn var vinsæll áningarstaður ferðalanga, svo vinsæll að Staupasteinsnafnið mun ekki hafa komið af engu. Eflaust hafa þá orðið til ýmsar sagnir, sem hver verður að hafa fyrir sig.
Í rauninni er miður að þjóðvegurinn skuli ekki liggja lengur framhjá Steðja, svo mikinn svip hefur hann sett á ferðalög og hugi ferðalanga í gegnum tíðina.
Frábært veður. Gangan tók 2 klst og 2 mín.
Heimildir m.a.:
-Mbl. 30. ágúst 1981.
-kjos.is
–Erlendur Björnsson, endurminningar, Sjósókn, Rvík 1945.
Eyvindarleiði – Álfhóll
Álfhólar eru nær óteljandi hér á landi. Örnefni er tengjast þeim má nánast finna í sérhverri örnefnalýsingu. Einn Álfhóllinn er suðaustan við Eyvindarstaði á Álftanesi. Honum hefur verið þyrmt þótt búið sé að byggja allt um kring.
Áður en lagt var af stað gaf Jónína Hafsteinsdóttir hjá Örnefnastofnun Íslands eftirfarandi upplýsingar um framangreint: „Í Örnefnalýsingu fyrir Eyvindarstaði segir: Eyvindarleiði er fast vestan við húsið í Akurgerði. Það eru tvær þúfur og er sú sem fjær er húsinu stærri. Þar á Eyvindur sá sem Eyvindarstaðir eru kenndir við að vera heygður og hundur hans í minni þúfunni. (Ath.: [Benedikt] Gröndal [Dægradvöl] getur þess að Eyvindur og kona hans hafi verið grafin í Eyvindarleiði).
Norðvestan við Eyvindarstaði á að vera Eyvindarleiði, haugur í túninu, að sagt er. Þá höfðu borist spurnir af örnefninu Kirkjuhóll þar skammt frá.
Álfhóll er u.þ.b. 60–70 m beint austur frá bæ. Álfhóll og Eyvindarleiði hafa verið vernduð í gegnum aldirnar, og eru nú friðlýst af eigendum landsins, þó ekki sé búið að merkja staðina. Hjátrú er bundin þessum stöðum; ekki mátti raska leiðinu og aldrei slá Álfhól eða skerða hann.
Eyvindarstaðir – Benedikt Gröndal 1902.
Íbúðarhúsið á Eyvindarstöðum var byggt 1922–3 og er úr steinsteypu. Áður stóð húsið fast fyrir norðan, þar sem íbúðarhúsið er nú. Komu þau nokkurn veginn horn í horn. Þar fyrir norðan, þar sem hóllinn var hæstur, mun gamli bærinn hafa staðið (þ.e. sá sem Sveinbjörn Egilsson bjó í).
Stefán (f:1936) benti óhikað á leiðið að baki bílskúrsins, fast vestan við íbúðarhúsið í Akurgerði eins og getið er um í örnefnalýsingunni. Hann kannaðist ekki við örnefnið „Kirkjuhóll“, en skv. lýsingunni mun það vera á sama stað og leiðið, „smá bunga við bílskúrinn í Akurgerði“. Réttina kvaðst Stefán ekki hafa heyrt nefnda og mundi ekki eftir spennistöð þarna nálægt. Á Álfhólnum kunni hann hins vegar góð skil.
búsetulandslag, byggðaleifar, bæjarstæði og bæjarleifar ásamt tilheyrandi mannvirkjum og öskuhaugum, húsaleifar hvers kyns, svo sem kirkna, bænahúsa, klaustra og búða, leifar af verbúðum, naustum, verslunarstöðum og byggðaleifar í hellum og skútum; b. vinnustaðir þar sem aflað var fanga, svo sem leifar af seljum, verstöðvum, bólum, mógröfum, kolagröfum og rauðablæstri; c. gömul tún- og akurgerði, áveitumannvirki og leifar eftir veiðar til sjávar og sveita; d. gamlir vegir, stíflur, brýr, vatnsvöð, varir, hafnir og bátalægi, slippir, ferjustaðir, kláfar, vörður og vitar og önnur vega- og siglingamerki ásamt kennileitum þeirra; e. virki og skansar og önnur varnarmannvirki; f. gamlir þingstaðir, meintir hörgar, hof og vé, brunnar, uppsprettur, álagablettir og aðrir staðir og kennileiti sem tengjast siðum, venjum, þjóðtrú eða þjóðsagnahefð; g. áletranir, myndir eða önnur verksummerki af manna völdum í hellum eða skútum, á klettum, klöppum eða jarðföstum steinum og minningarmörk í kirkjugörðum; h. haugar, dysjar og aðrir greftrunarstaðir úr heiðnum eða kristnum sið;“
Benedikt Gröndal getur þess, að nyrzti hluti hólsins hafi heitið Kirkjuhóll. Sennilega er átt við smá bungu við bílskúrinn í Akurgerði.
Auk þessa var Réttin í þessu landi og var hún notuð til þess að geyma þar hesta um nætur meðan tún voru ógirt (sjá Dægradvöl Ben. Gröndal). Þar sem réttin var stendur nú spennistöð rafveitunnar. Þarna mátti sjá hestasteina með krókum í til skamms tíma og e.t.v. má finna einhverja þeirra enn.“ Lýsinguna gerði Jóhanna Stefánsdóttir frá Eyvindarstöðum (f:1919).
Þá var gengið af stað og byrjað á því að taka hús á heimilisfólkinu að Eyvindarstöðum. Ólafur Sverrisson tók vel á móti þátttakendum. Sagði hann Eyvindarleiðið vera á bak við bílskúrinn í Akurgerði. Annars kynni Stefán Eyþórsson þar á bæ betri skil á örnefnum á svæðinu.
Frá upphafi fornminjaskráningar hér á landi hefur áhersla jafnan verið á hauga og álagabletti. Í „Lögum um verndun fornmenja“, dags. 16. nóv. 1907, er tiltekið hvað teljist til fornleifa (þ.e. staðbundnar), sbr. 2. grein: “
Til fornleifa teljast: a. Þingbúðarústir, gömul mannvirki á fornum þingstöðum, sögustöðum og öðrum merkisstöðum, sem nokkurs er um vert fyrir menningarsögu landsins, rústir af hofum, hörgum og hverskonar blótstöðum frá heiðni, af kirkjum og kirkjugörðum, kapellum og bænahúsum, forn vígi eða rústir af þeim, forn garðlög, rústir af fornum bæjum, seljum, búpeningshúsum, farmannabúðum, naustum og öðrum fornbyggingum, enn fremur fornir öskuhaugar.
b. Fornar grafir, haugar, dysjar og leiði i jörðu eða á, er menn hafa verið grafnir, heygðir eða dysjaðir í.“
Í nýjustu þjóðminjalögunum, frá 17. júlí árið 2001, má enn sjá hliðstætt ákvæði í 9. gr.: „Til fornleifa teljast hvers kyns leifar fornra mannvirkja og annarra staðbundinna minja sem menn hafa gert eða mannaverk eru á, svo sem: a.
Orðið haugur (kk) hefur verið skilgreindur sem „Legstaður heiðins manns sem einkennist af haugi, þ.e. jarðvegi eða grjóti sem hefur verið hrúgað eða hlaðið ofan á gröfina.“ Í fornritum er oft talað um legstaði fornmanna sem hauga. Eiginlegir haugar sjást þó sjaldan á Íslandi þótt örnefnin gefi annað til kynna. Því lagði Kristján Eldjárn til að hlutlausara orð væri notað: Kuml. Þau eru gjarnan þúfulaga kollar í jaðri fornra túna, á mörkum fornra jarða, við fornar leiðir eða á útsýnisstöðum jarðanna.
Frábært veður. Gangan tók 1 klst og 1 mín.
Heimildir m.a.:
-Lög um verndun fornmenja, dags. 16. nóv. 1907.
-þjóðminjalögun, frá 17. júlí árið 2001.
-Örnefnalýsing fyrir Eyvindarstaði – ÖÍ.
Álftanes, Bessastaðahreppur fremst, Reykjavík, Kópavogur, Garðabær og Hafnarfjörður,