Herdísarvík

Laugardaginn 15. júní 2013, kl 14:00, var afhjúpað minningarskilti um búsetu þjóðskáldsins Einars Benediktssonar og Hlínar Johnson, síðustu ábúendur í Herdísarvík í Selvogi. Nemendafélagið Grimmhildur, félag HÍ-nemenda (e. mature students) á Hugvísindasviði við Háskóla Íslands, hafði með stuðningi hollvina Herdísarvíkur látið útbúa minningarskiltið.

Einar Ben-229

Einar Benediktsson (1864 – 1940).

Sama dag, skömmu síðar, var og afhjúpað örnefna- og minjaskilti sem gönguhópurinn FERLIR hafði veg og vanda að – án þóknunar. Skiltastandurinn var hannaður hjá Martak í Grindavík að beiðni hópsins og myndflöturinn álprentaður hjá Stapaprenti í Keflavík. Á skiltinu er að finna margvíslegan fróðleik sem FERLIR hefur aflað á löngum tíma um staðhætti, tóftir sjóbúða og búskap á jörðinni, bæði með aðstoð örnefnalýsinga og staðbundnum leiðarlýsingum hinna elstu manna, s.s. Þórarins Snorrasonar á Vogsósum og Þórðar Sveinssonar úr Selvogi, er enn muna þá tíð er búskapur var í Herdísarvík. Auk þess veitti Ingólfur Árnason, barnabarn Hlínar góðar upplýsingar um svæðið.

Einar Benediktsson ánafnaði Háskóla Íslands jörðina Herdísarvík, sem í hans tíð var afskekkt. Með tilkomu Suðurstrandarvegar er Herdísarvík komin í alfaraleið. Við það opnast nýir möguleikar til að sinna verndun viðkvæmra sögu- og menningarminja sem þar eru. Uppbygging Herdísarvíkur getur orðið mikilvægt skref í átt til þess að minningu skáldsins sé haldið á lofti.

Hlin johnsson-229

Hlín Johnsson (1876-1965).

Á minningarskiltinu má m.a. lesa eftirfarandi: „Hér stendur síðasta heimili þjóðskáldsins Einars Benediktssonar og sómakonunnar Hlínar Johnson. Bæði voru þau sannir heimsborgarar sem fluttu til Herdísarvíkur, í lítið hús við sjóinn í afskektri sveit, þar sem útsærinn er á aðra hönd og klettahamrarnir á hina. Einar ánafnaði Háskóla Íslands jörðina með gjafarbréfi árið 1935.
Einar Benediktsson var fæddur 31. október 1864 að Elliðavatni, sonur hjónanna Benedikts Sveinssonar, sýslumanns og alþingismanns, og Katrínar Einarsdóttur frá Reynistöðum í Skagafirði. Einar nam við Lærða skólann og las síðan lög við Hafnarháskóla. Hann kvæntist Valgerði Zoëga (1881-1955) og varð þeim sex barna auðið. Þau skildu.
Einn þekktastur varð Einar Benediktsson fyrir skáldskap sinn en hann var einnig kunnur sem stórhuga frumkvöðull og lífskúnstner. Hann starfaði sem lögfræðingur og sýslumaður og var bæði fyrsti dagblaðsútgefandi og fasteignasali á Íslandi. Einar þótti örlátur og gjafmildur gleðinnar maður. Einar Benediktsson hefur verið kallaður „…einhver jötunefldasti andi sem fæðst hefur á Íslandi “ [Guðjón Friðriksson, 2000]. Síðustu átta árin dvaldi hann í Herdísarvík ásamt Hlín. Hér lést hann 12. janúar árið 1940.

Sandhaugar

Sandhaugar.

Hlín Johnson (f. 16.11.1876, d. 15.10.1965) fæddist að Sandhaugum í Bárðardal. Hún giftist Ingólfi Jónssyni frá Jarlsstöðum í sömu sveit og varð þeim átta barna auðið. Þau skildu. Hlín þótti listagóð saumakona, sem saumaði bæði kven- og  karlmannsföt. Þau Einar og Hlín kynntust árið 1927 og fluttu til Herdísarvíkur í júlí 1932 og tók Hlín við bústjórninni. Hér í Herdísarvík var búskapur með kýr, sauðfé, hænsni og endur. Fiskur var veiddur úr tjörninni og seldur til erlendra sjómanna, ásamt lagnaðarís úr tjörninni sem geymdur var í sérstöku íshúsi [nú horfið] hér á staðnum. Lambakjöt og bleikja var reykt í reykofni og var frægt að gæðum, ekki síður en göróttur landinn sem Hlín bruggaði.

Halldór Laxness

Halldór Laxness (1902 – 1998).

Halldór Laxness lýsti Hlín með þessum orðum: „…lík fornkonu, þolir ekki annað lögmál en sjálfrar sín, og þess vegna fer strandleingjan og fjallið og einveran og úthafið henni best“ [Björn Th. Björnsson]. Hlín bjó í Herdísarvík allt fram um 1960.
Höfundarverk Einars er æði mikið. Eftir hann liggja meðal annarra verka: Sögur og kvæði, Hafblik, Hrannir, Vogar og Hvammar, ásamt þýðingum, ritgerðum og fleiru. Margir íslenskir málshættir eiga rætur sínar í ljóðum Einars“.
Athöfnin var öllum opin. Erindi fluttu m.a. Halldór Blöndal, fyrrum alþingismaður, ráðherra og forseti Alþingis og Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra. Komst þeim báðum vel að orði, bæði til minningar um Einar og Hlín sem og tengsl þeirra við Herdísarvíkina á síðustu æviárum skáldsins. Lét Illugi þau orð falla í kjölfar tölu sinnar „að hann væri enn ekki búinn að venjast því að tala sem ráðherra“, en að teknu tilliti til tölunnar lærist honum það vonandi aldrei – því talan var bæði einstaklega einlæg og efnisrík.

 

Hlin - herdisarvik

Afkomendur Hlínar í Herdísarvík.

Jafnframt var á þessum degi afhjúpað örnefnaskilti í Herdísarvík.
Jóhann Davíðsson hélt „velkomst“ við sögu- og minjaskiltið og bauð síðan Guðrúnu Ásmundsdóttur, leikkonu að afhjúpa það. Að orðum hennar loknum var eins og við manninn mælt; tók þá svo til samstundis sólin að skína með tilheyrandi yl og hlýju.
Jóhann þakkaði sérstaklega Ómari Smára Ármannssyni fyrir hans framlag við gerð uppdráttarins. Sjá upptökuna HÉR.

Herdísarvík

Jóhann við athöfnina.

Í lok formlegrar afhjúpunar leiddi FERLIR stutta göngu um svæðið. Að henni lokinni var boðið upp á kaffihressing í húsi skáldsins og Hlínar.

Frá 1895 til 1927 bjó í Herdísarvík með fjölskyldu sinni Þórarinn Árnason, sonur Árna Gíslasonar stórbónda í Krýsuvík og fyrrum sýslumanns Skaftfellinga. Hafði Þórarinn gagnsamt bú og bjó við rausn að fornum hætti.

Herdísarvík

Ómar Smári Ármannsson, rólegur stjórnandi athafnarinnar, við athöfnina.

Árið 1908 eignast Einar skáld Benediktsson Herdísarvík (ásamt Krýsuvík, sem hann átti þó með erlendum mönnum), en mun lítt hafa skipt sér af högum landseta sinna. Árið 1927 leigir hann jörðina Ólafi Þorvaldssyni, síðar kunnum fræðimanni og rithöfundi, sem þar bjó með sinni fjölskyldu fram til 1933 en leigumáli hans var ekki endurnýjaður eftir það. Hafði Ólafi búnast prýðisvel á jörðinni og hefði, að eigin sögn, feginn vfljað vera þar lengur.

Herdísarvík

Guðrún Ásmundsdóttir afhjúpaði minja- og örnefnakort FERLIRs við Herdísarvík.

Í júlímánuði 1932 fluttist eigandi jarðarinnar, Einar Benediktsson, þá viðurkennt höfuðskáld þjóðarinnar með litríkan afhafna- og umsvifaferil að baki, til Herdísarvíkur ásamt sambýliskonu sinni, Hlín Johnson. Hófst þá smíði nýs íbúðarhúss (járnvarins timburhúss) á jörðinni, norðarlega í túninu og allnokkurn spöl frá gamla bænum. Var húsið fullbúið snemma í septembermánuði það ár. Stendur það enn, nú uppgert, og hefur um allmörg ár verið notað sem sumarorlofshús háskólastarfsmanna. Meðan á byggingu hússins stóð höfðust Einar og Hlín við í gamla bænum ásamt fjölskyldu Ólafs, en fluttu síðan inn í húsið nýja jafnskjótt og það varð íbúðarhæft. Yfirsmiður hússins var Sigurður Halldórsson úr Reykjavík, en allt byggingarefni var flutt sjóleiðina frá Reykjavík að Herdísarvík á strandferðaskipinu Skaftfellingi, en síðan á opnum báti frá skipshlið í lendingarvör. Bjuggu þau Einar og Hlín síðan í húsi þessu þar til Einar andaðist 12. janúar 1940, sem fyrr er getið, þá farinn að heilsu og kröftum eins og kunnugt er, en Hlín síðan, mest ein en stundum með aðkeyptri hjálp, nokkuð á annan tug ára, þar til hún brá búi og byggð lagðist af í Herdísarvík.“

Heimild:
-Morgunblaðið 15. janúar 2000, bls. 34-35.

Herdísarvík

Herdísarvík – skilti nemendafélags Grimmhildar.

Krýsuvík

Krýsuvík er ein fegursta náttúruperla Íslands og fjölbreytt litadýrð náttúrunnar á hverasvæðinu við Seltún hefur heillað margan ferðamanninn, auk listamanna. Stórbrotið landslag Krýsuvíkur er vel fallið til útivistar og náttúruskoðunar. Hér ber einna hæst sprengigíginn Grænavatn, leirhverina við Seltún og Kleifarvatn að ógleymdum Sveifluhálsi og síðast en ekki síst Krýsuvíkurbjarg, stórbrotinn útvörður svæðisins niður við ströndina. Margar gamlar gönguleiðir liggja út frá Krýsuvík, sem áhugavert er að huga nánar að.

Lifandi náttúra
HverKynngikraftur náttúrunnar blasir við augum í Krýsuvík. Höfuðskepnurnar eldur, vatn, loft og jörð hafa mótað umhverfið í aldanna rás. Gufustrókar stíga til himins, sjóðandi leirhverir leika taktfasta sinfóníu, hverahvammar skarta grænum, gulum og rauðleitum litum sem skipta um svipmót eftir veðrinu. Náttúruöflin eira engu í glímunni við gróðurinn, vatnsrof leikur stórt hlutverk þegar það rignir og ísa leysir. Vindurinn flettir þekjunni burtu og feykir jarðvegi á haf út þar sem öldur ólmast við klettaströnd og mola standbergið hvíldarlaust. Þetta er íslensk náttúra í öllu sínu veldi.

Litrík hverasvæði
BaðstofaHelstu hverasvæði Krýsuvíkur eru Seltún, Hverahvammur, Hverahlíð,  Austurengjar, suðurhluti Kleifarvatns og Sveifla undir Hettutindi, sem Sveifluháls heitir eftir. Við Seltún er Svunta og stór leirhver sem myndaðist þegar Drottningarhola sprakk haustið 1999. Fúlipollur er austan þjóðvegar og enn austar er Engjahver sem magnaðist við mikinn hverakipp 1924. Hann er líka nefndur Stórihver og svæðið umhverfis hann Austurengjahverir.

Land í mótun
Land í mótunVirka gosbeltið sem liggur eftir Reykjanesskaga er milli landreksflekanna sem kenndir eru við Evrópu og Ameríku. Elsti hlutinn eru Lönguhlíðarfjöll norðaustan Kleifarvatns sem sýna merki tveggja kuldaskeiða og tveggja hlýskeiða. Sveifluháls er móbergshryggur sem myndast hefur við gos undir íshellu á kuldaskeiði. Sunnan Krýsuvíkurhverfis milli Geitahlíðar og Sveifluháls eru nokkur lög af grágrýtishraunum, sum þakin jökulbergi, en efst ber mest á mó og mýrlendi. Jarðlögin sjást vel í Krýsuvíkurbergi. Rauðskriða á Krýsuvíkurheiði og Trygghólar eru leifar gamalla eldgíga sem hraun hafa runnið frá. Fyrir vestan og austan Krýsuvík eru yngri hraun, Litlahraun, Krýsuvíkurhraun og Ögmundarhraun sem eiga upptök sín í Brennisteinsfjöllum, gígum við Eldborgir sunnan Geitahlíðar og í gossprungum í Móhálsadal.

Sprengigígar kallast á
GrænavatnLandslag í Krýsuvík er mótað af umbrotum og jarðeldum. Grænavatn, Gestsstaðavatn og Augun eru sprengigígar sem myndast hafa við sprengigos á ýmsum tímum. Grænavatn er stærst um 46 m djúpt. Vatnið fær lit sinn af hveraþörungum og kristöllum sem draga grænan lit sólarinnar í sig. Gestsstaðavatn heitir eftir fornu býli sem fór í eyði á miðöldum. Beggja vegna þjóðvegarins eru lítil gígvötn sem kallast Augun.

Krýs og Herdís deila um landamerki
DysjarÞjóðsagan hermir að Krýsuvík sé nefnd eftir Krýs sem bjó í Krýsuvík. Hún átti í deilum um landamerki við grannkonu sína, Herdísi í Herdísarvík. Báðar töldu sig órétti beittar og ákváðu að skera úr í deilumáli sínu í eitt skipti fyrir öll. Sammæltust þær um að leggja af stað frá bæjum sínum við sólarupprás og ákveða mörk landa sinna  þar sem þær mættust. Þegar þær hittust á Deildarhálsi taldi Krýs að Herdís hefði lagt fyrr af stað en um var samið. Tóku þær að biðja hvor annarri óbæna ásamt jörðum þeirra. Herdís lagði það á Krýsuvík að allur silungur í Kleifarvatni skyldi verða að loðsilungi en Krýs mælti svo fyrir um að ein eða fleiri skipshafnir skyldu drukkna í Herdísarvíkurtjörn. Sagan um þessa landaþrætu kerlinganna hefur lifað meðal Krýsvíkinga í ýmsum myndum og sýnir kynngimagn Krýsuvíkur.

Fornminjar
TóftÍ landi Krýsuvíkur eru víða merkar fornleifar og búsetuminjar. Elstar eru Gestsstaðarústirnar, sennilega frá fyrri hluta miðalda. Mestar eru fornleifarnar í Krýsuvíkurhverfi undir Bæjarfelli þar sem höfuðbólið og flestar hjáleigurnar voru. Nútímavæðing hefur lítið komið við sögu og jörðin haldist nánast óbreytt frá fyrri tíð, en snemma á sjöunda áratugnum varð sögulegt slys á bæjarhólnum. Krýsuvíkurbærinn, sem stóð vestan kirkjunnar, var þá kominn að falli og voru stórvirkar vinnuvélar notaðar til að ryðja hólinn og slétta út minjar um þennan merka bæ. Neðan hólsins og allt í kringum hann eru gömlu túnin með túngörðum sínum ósnertum að mestu, tóftir gömlu kotanna og fleiri merkar fornminjar.

Dulúð regnsins
Það getur verið mjög votviðrasamt í Krýsuvík því þar gætir fyrst áhrifa frá lægðum sem nálgast landið úr suðvestri. Umhleypingar eru algengir með tilheyrandi úrkomu en í norð- og austlægum áttum má gera ráð fyrir þurrviðri í Krýsuvík. Þá skartar staðurinn sínu fegursta, en einnig getur dulúðin sem fylgir þokulofti og skýjuðu veðurfari búið yfir ólýsanlegri fegurð.

Einföld bændakirkja
KrýsuvíkurkirkjaKrýsuvíkurkirkju er fyrst getið í kirkjuskrá Páls Jónssonar Skálholtsbiskups um 1200. Margt bendir til að kirkja hafi risið í Krýsuvík á fyrstu áratugum kristni, en núverandi kirkju byggði Beinteinn Stefánsson á Arnarfelli 1857. Þetta er lítið guðshús einfaldrar gerðar, án turns, og eina húsið sem enn stendur á bæjarhólnum. Kirkjan var aflögð sem helgidómur og rúin öllum verðmætum 1929. Eftir það notaði einbúinn Magnús Ólafsson, síðasti íbúi Krýsuvíkur, hana sem íbúðarhús til 1945. Endurbygging kirkjunnar hófst 1957 og var hún endurvígð 31. maí 1964 og færð Þjóðminjasafninu til eignar. Árið 1997 var Sveinn Björnsson listmálari jarðsettur í kirkjugarðinum en þá voru liðin 80 ár frá síðustu greftrun þar. Á vorin er haldin messa í kirkjunni og altaristafla eftir Svein hengd þar upp, en tekin niður við messu á haustin og færð til vetrarvistar í Hafnarfjarðarkirkju.

Fuglalíf og eggjataka
KrýsuvíkurbjargUm 57.000 sjófuglapör verpa í Krýsuvíkurbergi, aðallega rita og svartfugl, sem skiptist í álkur, langvíur og stuttnefjur. Einnig verpir þar nokkuð af fýl, toppskarfi og silfurmáfi. Fyrrum var eggjataka mikil og máttu kotamenn taka tiltekið magn af fugli og eggjum úr berginu. Svo mikið fékkst af svartfuglseggjum á vorin að þau voru flutt á mörgum hestum heim til bæjanna. Sömu sögu var að segja af bergfuglinum sem gaf af sér kjöt og fiður. Á Krýsuvíkurheiði og í nágrenni Bæjarfells verpir mófugl, spói, heiðlóa, snjótittlingur og fleiri tegundir. Arnarfell og Arnarfellsstjörn eru kunn kennileiti á Krýsuvíkurheiði og á miðjum Sveifluhálsi eru Arnarvatn og Arnarnípa. Þessi nöfn vísa til þess að ernir hafi orpið á þessum stöðum í eina tíð.

Mannrækt í Krýsuvíkurskóla
KrýsuvíkurskóliUm miðjan áttunda áratuginn hófust miklar byggingaframkvæmdir á mel sunnan Gestsstaðavatns, en þar var ætlunin að reisa skóla fyrir unglinga sem þurftu á sérúrræðum að halda. Áður en byggingunni var lokið var fallið frá hugmyndinni og stóð húsið autt um margra ára skeið þar til Krýsuvíkursamtökin fengu það til afnota. Hafa þau rekið þar meðferðarheimili, uppeldis- og fræðslustofnun fyrir fíkniefnaneytendur.

Hnignandi gróður

Í Krýsuvík

Gróðri hefur farið mjög aftur í Krýsuvík á síðustu öldum. Talið er að jörðin hafi verið kjarri vaxin milli fjöru og fjalls af birkiskógi og víðikjarri, áður en Ögmundarhraun brann. Í jarðabók Páls Vídalín og Árna Magnússonar 1703 er sagt að skógur til kolagerðar nægi ábúendum. Skógurinn eyddist að mestu á harðindaskeiði sem gekk yfir landið í lok 19. aldar. Þá hófst landeyðing með miklum uppblæstri og vatnsrofi í landi Krýsuvíkur. Sauðfjár- og hrossabeit hafði einnig afdrifarík áhrif. Á Sveifluhálsi eru fáeinir grasbalar sem gefa til kynna að þar hafi verið mun grónara í eina tíð. Svæðið sunnan Kleifarvatns einkennist af miklu mýrlendi, slægjulandinu Vesturengjum og Austurengjum. Austan Arnarfells er Bleiksmýri og sunnan Trygghóla er Trygghólamýri.

Ritháttur Krýsuvíkur
TóftirÞegar gamlar sagnir frá Krýsuvík eru skoðaðar kemur glögglega fram að nafn víkurinnar er ætíð ritað með ý en ekki í eins og oft sést í seinni tíð. Örnefnið Krýsuvík er trúlega dregið af orðinu Crux sem merkir kross og hefur Krossvíkin hugsanlega verið við sjóinn nærri Húshólma í Ögmundarhrauni þar sem munnmæli herma að fyrsti bærinn hafi staðið. Mesta fuglabjarg Reykjaness Krýsuvíkurberg, mesta fuglabjarg Reykjaness, er um 7 km langt frá Bergendum við Keflavík í austri til Heiðnabergs vestan Hælsvíkur og 40 hektarar að flatarmáli. Bergið er um 50 m hátt á löngum kafla en Strandaberg, austasti hlutinn, er um 70 m hátt.
Rauðskriða er áberandi kennileiti á vesturhluta bergsins en neðan hennar var einstigið Ræningjastígur sem var eina gönguleiðin niður í fjöru. Meðan enn var farið á sölvafjöru var jafnan farið af sjó því bergið var ekki árennilegt öðrum en sigmönnum. Ræningjastígur var samt fær þeim sem treystu sér til að feta hann en nú er hann ófær með öllu.

Höfuðból og hjáleigur
KrýsuvíkurbjargKrýsuvík var heil kirkjusókn og eitt mesta höfuðból landsins með mörgum hjáleigum. Munnmæli herma að byggðin hafi upphaflega verið í Húshólma, óbrennishólma í austanverðu Ögmundarhrauni.  Þar er altént mjög fornt bæjarstæði sem kallað er Hólmastaður í eldri heimildum. Hjáleigur voru að jafnaði fimm til átta talsins en í gömlum heimildum er getið um 13 býli. Á heimajörðinni voru Suðurkot, Norðurkot, Snorrakot, Stóri-Nýibær, Litli-Nýibær, Arnarfell og nýbýlið Lækur. Fjær voru kotin Vigdísarvellir, Bali, Fitjar og Fell. Kaldrani stóð við suðvesturenda Kleifarvatns og Gestsstaðir sunnan Krýsuvíkurskóla.

Fiskisæld undir berginu
Sjósókn var alla tíð mikilvæg fyrir afkomu Krýsvíkinga. Undir Krýsuvíkurbergi, Hælsvík og lengra út með var löngum fiskisælt en þar er engin lending. Líklega hefur góð lending verið í Hólmastað eða gömlu Krýsuvík, en eftir að Ögmundarhraun rann tók hana af og eftir það var gert út frá Selatöngum. Biskupsskip frá Skálholti, skip útvegsbænda í Árnes- og Rangárþingum og sjávarbænda í Hraunum gengu frá Selatöngum með leyfi Krýsuvíkurbónda.  Krýsvíkingar stunduðu einnig útróðra frá Herdísarvík um aldir.

Kynlegt er Kleifarvatn
Krýsuvík 1810Kleifarvatn er 10 ferkílómetrar að flatarmáli og stærsta stöðuvatn á Reykjanesskaga. Það er á milli Sveifluháls í vestri og Vatnshlíðar í austri. Aðrennsli í vatnið er takmarkað og ekkert frárennsli er sjáanlegt ofanjarðar. Vatnsborðið fylgir grunnvatnsyfirborði svæðisins sem sveiflast um allt að 4 m á tugum ára. Félagar úr Stangveiðifélagi Hafnarfjarðar fluttu bleikjuseiði í Kleifarvatn um 1960 og dafnar fiskurinn bærilega í vatninu. Áður fyrr þóttust menn verða varir við kynjaveru líka stórum ormi í vatninu.

Sjá meira undir Krýsuvík – yfirlit HÉR og HÉR.

Heimild:
-visithafnarfjordur.is

Krýsuvík

Krýsuvík.

Grindavík

Í Sjómannadagsblaðinu árið 1978 er fjallað um „Minnisvarða um drukknaða menn frá Grindavík„.

Grindavík

Upphaflega hugmyndin af minnisvarðanum.

„Í janúar 1952 stofnaði Kvenfélag Grindavíkur „Minningarsjóð drukknaðra manna frá Grindavík“. Tekjur sjóðsins voru ágóði af sölu minningakorta.
Vegna verðbólgunnar varð sjóðurinn aldrei það afl, sem honum hafði verið ætlað að verða, þ. e. að standa undir kostnaði við gerð minnisvarða.
Á 25 ára afmæli sjóðsins, í janúar 1977, var samþykkt á fund í Kvenfélaginu að óska eftir samstarfi við bæjarfélagið og sjómannafélagið um að hrinda málinu í framkvæmd. Fékk málið góðar undirtektir og var skipuð 8 manna undirbúningsnefnd með þátttöku fyrrgreindra aðila og Útvegsbændafélags Grindavíkur, sem óskaði eftir aðild að málinu. Nefndina skipa: Sæunn Kristjánsdóttir, formaður og Ólína Ragnarsdóttir, ritari frá kvenfélaginu; Helga Emilsdóttir, gjaldkeri og Sigurpáll Einarsson frá bæjarstjórn; Kjartan Kristófersson og Haraldur Tómasson frá sjómannafélaginu og Tómas Þorvaldsson og Einar Símonarson frá útvegsbændafélaginu. Kom nefndin saman til fyrsta fundar 31. mars 1977 og hefur síðan unnið að undirbúningi málsins.

Grindavík

Minnisvarðinn „Vonin. Á skildinum stendur; „Í þolinmæði og trausti skal styrkur yðar vera; Jes. 30.15“. Kjartan Ragnarsson h.m.

Að undangengnum ýmsum athugunum og viðræðum m. a. við ýmsa listamenn var ákveðið að reisa minnisvarða eftir verki Ragnars Kjartanssonar myndhöggvara og voru 3 tillögumyndir eftir hann sýndar í Félagsheimilinu Festi á sjómannadaginn 1977. Var síðan ein þeirra myndi valin sem fyrirmynd varðans, og undirbúningsnefndinni falið hlutverk framkvæmdanefndar.
Samningur við listamanninn var undirritaður 12. desember s.l. og á hann að skila verkinu tilbúnu til afsteypu í brons um áramótin 1978 —79. Fer nú fram athugun á því hvar muni vera hagkvæmast að fá afsteypu af myndinni.
Gerð þessa minnisvarða er nefndarmönnum sem og Grindvíkingum öllum mikið metnaðarmál, en víst er að hún mun kosta mikið fé.
Fyrsta fjáröflun nefndarinnar fór fram í Festi 3. desember s.l. og vill nefndin þakka þeim mörgu sem studdu þetta málefni þá. Margir einstaklingar hafa gefið fé til minningar um látna ástvini. Verkalýðsfélag Grindavíkur gaf 500.000 kr. og Skipstjóra- og stýrimannafélagið Vísir í Keflavík 300.000 kr. Ýmsir aðrir, félög og einstaklingar, hafa lofað fjárframlögum og þakkar nefndin öllum þessum aðilum höfðinglegar gjafir og góðar undirtektir.“

Grindavík

Skjöldurinn á minnismerkinu.

Á sjómannadaginn 1980 var afhjúpaður minnisvarðinn Von, reistur eftir verki Ragnars Kjartanssonar, myndhöggvara. Minnisvarðinn „Von“ sýnir sjómannsfjölskylduna horfa út á hafið í von um að fjölskyldufaðirinn komist heill í höfn. Á minnisvarðanum stendur ritað: ,,Í þolinmæði og trausti skal styrkur yðar vera; Jes. 30.15″
Eftir hörmulegt sjóslys í janúar 1952 þar sem Grindvíkingur GK 39 fórst með fimm manna áhöfn við Hópsnes í ofsaveðri, ákvað Kvenfélag Grindavíkur að stofna sjóð til minningar um drukknaða sjómenn og var tekna aflað með ýmsu móti, m.a. með sölu minningarkorta. Sjómannafélag Grindavíkur, Útvegsmannafélag Grindavíkur og bæjarstjórn komu einnig að undirbúningi og framkvæmd málsins.

Heimild:
-Sjómannadagsblaðið, 1. tbl. 01.06.1978, Minnisvarði um drukknaða menn frá Grindavík, bls. 41.
-Sjómannadagsblað Grindavíkur árið 2000, 20 ár frá afhjúpun minisvarða drukknaðra manna, bls. 29.

Grindavík

Minnismerkið.

Dýrafjörður

Í riti LbhÍ (Landbúnaðarháskóla Íslands) nr. 131 fjallar Bjarni Guðmundsson, prófessor emeritus, um „Sel við Dýrafjörð„. Verulega fróðlegt er að bera skrif hans saman við fyrirliggjandi þekkingu FERLIRs á seljum og selstöðum á Reykjanesskaganum; hugtök, vinnubrögð, húsakostur og nýting virðist á báðum svæðum hafa verið með líkum hætti. Í ritgerðinni er samansafn gagnlegra heimilda almennt um sel fyrrum. Þrátt fyrir orðaskrúð fræðimannsins, sem skiptir í stóra samhenginu litlu máli, er, það sem skiptir öllu meira máli, að í ritgerðinni að finna upplýsingar manns er hafði a.m.k. fyrir því í framhaldinu að leita uppi minjarnar á vettvangi og bæði heimfæra þær upp á heimildirnar og lýsa þeim með hliðsjón af sögulegum og landfræðilegum aðstæðum. Þær eiga jafnt um fáu selstöðurnar við Dýrafjörð og þær u.þ.b. 440 er finna má á Reykjanesskaganum.

Dýrafjörður

Forsíða ritgerðarinnar um sel við Dýrafjörð eftir Bjarna Guðmumdsson.

„En frammi á fjöllum háum,
fjarri sævi bláum,
sefur gamalt sel.“ – Guðmundur Böðvarsson

Hvað er sel?

Dýrafjörður

Það er viðeigandi að byrja með nokkur hugtök og skilgreiningar á þeim. Styðjast má við Íslenska orðabók. Samkvæmt henni er sel útihús í högum langt frá bæjum þar sem búpeningur er látinn ganga á sumrum. Selstaða er það að hafa búpening í seli og selför ferð í sel en einnig sögulegur réttur jarðarábúanda til að hafa búpening í seli. Selland er land þar sem haft er í seli og selhöfn beitarland sem seli tilheyrir. Þá má nefna þótt ekki komi það við sögu fyrr en síðar að búsgagnið selskrína er ílát sem mjólk var hleypt í skyr, hæfilega stórt til að flytja skyrið heim úr seli. Og hugtökin eru fleiri. Hér munu orðin seljaþorp og seljaþyrping verða notuð um það þegar sel frá fleiri bæjum hafa verið sett á sama stað eða í nábýli. Með sínum hætti áréttar hinn ríkulegi orðaforði tengdur seljum mikilvægi búháttarins á ýmsum tímum þjóðarsögunnar.

Dýrafjörður
Lengst af skráðum tíma Íslandsbyggðar lifði þjóðin öðru fremur á kvikfjárrækt. Afurðir búfjárins, mjólk, ull og kjöt, voru ásamt fiskmeti þau verðmæti sem daglegt amstur fólks snerist um.

Þerneyjarsel

Þerneyjarsel á Reykjanesskaga.

Kvikfjárræktin fólst einkum í nýtingu beitilanda og árstíðabundinni framleiðslu afurða. Landið með gróðri sínum var sú auðlind sem afkoma fólksins í veigamiklum atriðum byggðist á. Fornar hefðir og margvíslegar aðstæður í umhverfi og landslagi mótuðu kvikfjáræktina og þá verkhætti sem við hana var beitt. Einn hátturinn var sá að hafa hluta kvikfjárins í seli fjarri heimabýli. Í norður-evrópsku ljósi er það eldforn aðferð eins og síðar verður sagt frá en er aðferð sem fyrir all löngu var lögð af hérlendis. Enn má þó víða í úthaga ganga fram á minjar þessa búháttar þar sem greinilegar eru rústir gamalla selmannvirkja, rétt eins og Guðmundur Böðvarsson skáld segir í ljóðlínunum sem þessi kafli hófst á. Urmull örnefna vitnar líka um sel og seljabúskap en í þessu tvennu lifir ekki síst minningin um þennan þátt í sögu íslenskrar kvikfjárræktar.

Rauðhólssel

Rauðhólssel sel frá Vatnsleysu á Reykjanesskaga.

„Dalabotnarnir voru alsettir seljum“, fyrirlas Páll Zóphóníasson nemendum sínum á Hvanneyri veturinn 1919-1920, „og enn má sjá þess ljós merki af tóftunum sem nú standa sem menjar um horfna frægð, því frægð var það að hafa manndóm í sjer til að hafa fjenað í seljum.“
Seljahugtakið hefur með árunum fengið á sig eilítið rómantískan blæ, ef til vill vegna ýmissa þjóðsagna sem seljum eru tengdar, legu þeirra í víðernum og frjálsræði fjarri byggð en sjálfsagt einnig vegna erlendra áhrifa, einkum frá Noregi, þar sem þessi búskaparháttur tengist í hugum margra fögru landslagi og sællegum selstúlkum.
Ýmsir kannast t. d. við lag Ole Bull, Sunnudagur selstúlkunnar, leikrit Riis: Upp til selja, sem mjög var vinsælt hérlendis á fyrri hluta síðustu aldar, og fleira mætti nefna úr flokki rómantískra lýsinga.
Skáldið Snorri Hjartarson orti til dæmis kvæði sem er verðugur fulltrúi þeirra, kvæði sem hann nefndi Mig dreymir við hrunið heiðarsel:

Mig dreymir við hrunið heiðarsel:
heyri ég söng gegnum opnar dyr,
laufþyt á auðum lágum mel?
Líf manns streymir fram, tíminn er kyr.
Allt sem var lifað og allt sem hvarf
er, það sem verður dvelur fjær
ónuminn heimur, hulið starf;
hús þessa dags stóð reist í gær.
Við göngum í dimmu við litföl log
í ljósi sem geymir um eilífð hvað
sem er, og bíður. Fuglinn sem flaug
framhjá er enn á sama stað.

Veruleiki selfólksins hérlendis og sennilega einnig í nágrannalöndum okkar mun þó ekki aðeins hafa verið gleði og rómantík. Víða var seljabúskapurinn hluti þess að komast af við þröng kjör og óblíða náttúru fyrri alda; enginn leikur heldur bláköld og oft mjög erfið lífsbarátta.

Selin í sögu og lögum
DýrafjörðurSeljabúskapur er eitt af einkennum fornrar norrænnar kvikfjárræktar. Sel og selför voru hluti hins dreifbæra (extensive) búskapar sem einkenndi hana. Hann var og er einnig þekktur í Alpahéruðum Evrópu, í Skotlandi, Írlandi og raunar í fleiri hornum heimsins (summer farming). Seljabúskapur var leið til þess að nýta fjarlæg en oft kostamikil beitilönd, gjarnan ofan skógarmarka, til framleiðslu mjólkur á hásumri með sauðfé, kúm og geitum. Mjólkin var unnin í ýmsar afurðir til heimaneyslu um ársins hring en gat einnig verið liður í öflun nauðsynlegs gjaldmiðils t. d. smjörs upp í land- og gripaleigu.
Seljabúskapur á einu eða öðru formi á sér fornar rætur er rekja má langt aftur til járnaldar. Þrennt mótaði seljabúskapinn: búfé, fólk og landkostir, einkum beitarkjörin.
Margar rannsóknir hafa verið gerðar á seljum og seljabúskap. Það eru ekki síst Norðmenn sem þar hafa verið afkastamiklir enda búhátturinn mjög algengur þar í landi.

Hans Reinton

Lars Reinton (1896-1987).

Hér verða þeim rannsóknum ekki gerð sérstök skil heldur látið nægja að vísa til yfirlitsverka, svo sem þriggja binda verks Lars Reinton skrifaði um sel og selfarir; skipulag, verklag og lið í framfærslu, búhátt lagaðan að hinum ýmsu landsháttum og landkostum Noregs og á ýmsum tímum. Þá hefur Karoline Daugstad fjallað um sel og selfarir í margbreytilegum formum sem mótandi þátt menningarlandslags svo og vitundar fólks og viðhorfa frá starfrænum og ekki síst fagurfræðilegum sjónarmiðum í listum og menningu.
Reinton skilgreindi hinn norræna seljabúskap (sæterbruk) þannig: Sæterbruk er det når ein gard (ein fast vinterbustad) har krøtera sine i sumarbeite på ein stad eit stykke frå garden der det er husvære og fast personale, så ein kan nytta ut større vidder til beite, som regel òg til slått og onnor fórsanking, og så ein kan spara på heimemarkene og nå i betre beite, føde fleire krøter over vinteren og skaffe forråd til levemåten på den faste bustaden (garden).
Dýrafjörður
Með nokkurri einföldun má segja að tvær kenningar hafi einkum staðið um upphaf og þróun hins norræna seljabúskapar: Fyrst sú að seljabúskapurinn hafi þróast úr hjarðmennsku (nomadism) og eigi sér rætur í hinum indóevrópska frumbúskap og fyrstu búsetu jarðyrkjufólks. Reinton var einkum talsmaður þeirrar kenningar en verk hans var lengi vel miðlægt í norrænni seljaumræðu. Hin kenningin er sú að seljabúskapur hafi á löngum tíma einkum þróast sem svæðabundið svar við breytilegri þörf fyrir beitilönd og fóður. Svo virðist sem síðari kenningin njóti nú meira fylgis þótt í raun séu þær sprottnar af sömu rót – þörfinni fyrir hagkvæma nýtingu takmarkaðra beitilanda til öflunar lífsnauðsynlegs matarforða.
Þótt álitið sé að vestur-norskir landnámsmenn hafi fært seljabúháttinn með sér til Íslands og mótað hann í fyrstu með hliðsjón af eigin reynsluheimi og áþekkum umhverfisaðstæðum virðist hátturinn hafa þróast með ólíkum hætti í löndunum tveimur.

Hraunssel

Hraunssel undir Núpshlíðarhálsi á Reykjanesskaga.

Cabouret segir Frostaþingslög geyma orðið sel í sömu merkingu og hin 200 árum yngri lög nota orðið setur/sætr. Upphaflega merkti sel aðeins lítið einsrýmis hús en setur dvalarstað. Það síðara taldi hann fela í sér hlutverkaskiptara mannvirki fyrir fólk og fé og til framleiðslu mjólkurafurða.
Ennfremur að það benti til þess að það hafi fyrst verið á hámiðöldum sem norski seljabúskapurinn var fullþróaður. Að baki því áleit Cabouret liggja byggðaþróun sem ýtti búfjárhaldi að sumarlagi það langt frá býlinu að hverfa varð frá mjaltastað svo nærri býli að í mesta lagi þurfti dálítið sel til næturhvíldar, ef fjarlægðin heim var þá ekki orðin það mikil að frágangssök var að fara heim á milli morgun- og kvöldmjalta. Cabouret benti á aðþað var aðeins heitið sel sem fluttist til Íslands, og að þess vegna megi reikna með því að þetta form seljabúskapar hafi verið hið algenga í Vestur-Noregi við landnám Íslands. Þegar støl/stöðull varð algengt heiti selja í Vestur Noregi bendir það til hins sama. Orðið táknar mjaltastað, upphaflega án búsetu. Á Íslandi er orðið aðeins þekkt í hinni upphaflegu merkingu, sem mjaltastaður. Það taldi Cabouret benda til þess að merkingar-breytingin hafi fyrst orðið í Noregi eftir fólksflutningana til Íslands.

Hraunssel

Hraunssel í Ölfusi – uppdráttur ÓSÁ.

„Hve afarmikla þýðingu selin hafa haft á fyrri öldum, sést af hinum óteljandi seljarústum, sem eru dreifðar um afdali og heiðar um allt Ísland“, skrifaði Þorvaldur Thoroddsen árið 1919 en hann er líklega sá, ásamt þjóðverjanum Hitzler, sem lengi vel átti rækilegasta yfirlitið um sel og selstöður á Íslandi.
Annars eru innlendar heimildir eru býsna ríkulegar. Þær byggjast bæði á sérstökum sagnfræði- og fornleifarannsóknum, sem gerðar hafa verið, sem og almennum frásögnum af seljum og seljabúskap í einstökum sveitum. Til viðbótar þeim heimildum, sem þegar hafa verið nefndar, má úr fyrri hópnum sérstaklega nefna rannsóknir þeirra Guðrúnar Ólafsdóttur og Guðrúnar Sveinbjarnardóttur. Þá ber úr þeim flokki að nefna afar athyglisverða heimasíðu með fróðleik um sel, selstöður og seljabúskap á Reykjanesskaganum. Þá birti Benedikt Eyþórsson samantekt um seljabúskap á Íslandi og í norrænu ljósi í tengslum við rækilega rannsókn sína á búskap og rekstri Reykholtsstaðar fyrr á öldum.
Beitarbúskapurinn, sem var grunnur að rekstri seljanna, gegndi miklu hlutverki í norrænum heimi, jafnvel svo að á vissum tíma sögunnar, svo sem á víkingaöld, hafa fræðimenn talið að [góðir] hagar hafi verið meginuppspretta auðs og valda, að: „The ultimate source of wealth and power was pasture, and the correlation between cattle, good grazing, and chieftainship is clear both in the historical and archaeological record.“ Ekkert minna.
DýrafjörðurFornar lýsingar selja hérlendis, svo sem í Laxdæla sögu, selin frá Sælingsdalstungu í Hvammssveit og Vatnshorni í Skorradal, bera með sér að þau hafi verið allmikil mannvirki þótt ekki lægju fjarri heimabæjum. Í Sælingsdalstunguseli var til dæmis sagt vera margt manna er einnig starfaði að heyskap: Selin voru „tvau, svefnsel og búr“, segir í sögunni. Höfundur sögunnar notar þannig heitið sel um hin einstöku hús svo sem talin er hafa verið hin upphaflega merking orðsins. Við stympingar í Vatnshornsseli rifu árásarmenn „ræfrit af selinu“ en „selit var gert um einn ás, ok lá hann á gaflhlöðum, og stóðu út af ásendarnir, og var einart þak á húsinu ok ekki gróit.“ Orðalagið einart þak má í þessu samhengi skilja sem þak einfaldrar gerðar.
Frásögnin bendir til þess að yfir selhússveggina hafi verið reft með einföldum hætti, hugsanlega aðeins til sumars í senn. Ekki er fráleitt að takmörkuð árleg notkun selhúsanna, og það á hlýjasta tíma sumars, hafi ýtt undir það að húsagerðin væri höfð einföld og að efni til þeirra væri sparað, til dæmis hvað snerti burðarviði þaks og árefti.

Selsvellir

Selsvellir – sel Grindvíkinga; uppdráttur ÓSÁ.

Í lögbókunum fornu, Grágás, lagasafni íslenska þjóðveldisins, og Jónsbók, sem samþykkt var á Alþingi árið 1281, er allvíða vikið að seljum og selförum. Er það mjög til marks um mikilvægi seljanna á gildistíma lögbókanna. Lögin geyma ýmis atriði varðandi umgengni um sel og selstöður svo og selfarir, atriði sem varpa gagnlegu ljósi á forsendur og framkvæmd þessa búháttar. Hér verður því nokkurra ákvæða lögbókanna getið með beinum tilvitnunum í texta þeirra:
319: OF SELFÖR. Ef maður hefir lönd fleiri undir bú sitt en eitt, og vill hann fara þar í sel yfir annars manns land, og á hann þar að fara með fé sitt tysvar á sumri til sels, en því aðeins oftar ef þar verða misgöngur fjár, þá á hann að reka heim smala sinn. Hann á fornar götur að fara, ef þær eru til.
Ef hann fer of engi manns, þá skal hann í togi hafa hið lausa hross. Ef þar eru keldur á götu hans, og á hann að gera brúar þar yfir og vinna þau áverk á annars manns landi. Ef maður fer yfir engi annars, og hlýtur hinn af því skaða, þá varðar honum það útlegð, enda skal hann bæta honum skaða, svo sem búar fimm virða við bók.
320: ENN OF SELFÖR. Ef maður fer annan veg til sels of annars manns land með smala sinn eða klyfjahross en áðan var tínt, og verður hann útlagur of það þrem mörkum, og bæta auvisla sem búar virða við bók. Ef fimm aura skaði verður að eða meiri, þá varðar fjörbaugsgarð. . .
330: . . . Eigi skal sel gera í afrétt. Ef gert er, þá er sel óheilagt, og eigu þeir að brjóta sel er afrétt eigu, enda verður sá útlagur er sel gerði eða gera lét við þá alla er afrétt eigu, og sinni útlegð við hvern þeirra.
146: . . . þá skal það boð hver bera en engi fella, og á það að fara með veturhúsum eftir boðburð réttum en eigi með sætrum…
147: Sá skal boð bera bæja í milli . . . En ef hjú eru öll af bæ gengin, þá skal ganga í seturhús bónda ef það er opið og setja niður í öndugi svo að eigi falli.
177: Engi maður skal fyrir öðrum brenna með heiftugri hendi hús né heyhlaða, sætur, búð né skip. En ef hann brennir og verður að því kunnur og sannur, þá er 178: hann útlægur og óheilagur og heitir brennuvargur, og hefir fyrirgert hverjum peningi fjár síns í landi og lausum eyri…

Hraunssel

Hraunsselsstígur.

186: [Hvervetna þar sem sætur eru til bæja manna, þá skulu menn fara með búfé sitt yfir annars land til sætra, fornar götur ef til eru, og hafa í togi laus hross ef yfir eng er að fara. En ef keldur eru á leið hans, þá má hann gjöra þar brú yfir og vinna þann áverka á jörðu hins]. Menn skulu fara úr húshaga með fé sitt þá er tveir mánaðir eru af sumri, utan þeim þikki öllum annað hentara er brottfærslu eigu.
En ef einhver situr lengur niðri, þá skal sá er að telur fyrirbjóða honum þarsetu. Nú situr hann heima eigi að síður, þá skal hann stefna honum héraðsþing fyrir rán og þarsetu. Þá eiga þingmenn að dæma konungi hálfa mörk fyrir grasrán en grönnum hans hálfa mörk fyrir grasverð þeim er gras missa. Nú skal hann æsta svo marga bændur liðs sem hann þarf að færa fé hins úr haga sínum. Sekur er sá hver tveimur aurum við konung er eigi fer, ef hann er til krafður. Slíkt hið sama liggur við ef maður fer heim í húshaga fyrir tvímánuð.
186: [Nú skal til sætra á fjöll upp vera merki sem að fornu fari hefir verið og færa sætur eigi úr stað utan hann færi öngum manni til skaða, og svo skulu þeir hið sama sætrum halda. Engi maður skal setja sætur sitt við annars land eður haga, þar sem eigi hefir að fornu verið. Þar skal mæta horn horni og hófur hófi.]
186: Þjóðgata og sæturgata og allir rekstrar skulu vera sem að fornu fari hafa legið . . . [187] … Ef maður rænir annan mann sæturgötu eður rekstri þeim sem að fornu fari hefir verið, bæti konungi hálfri mörk fyrir vegarán og hafi hinn þó götu sem áður.
Dýrafjörður198: . . . Sætur má hver maður gjöra er þann almenning á ef hann vill þar sitja í sumarsetri, ef það er úr búfjárgangi . . . Nú brennir maður sætur í almenningi, veiðibúð eður andvirki það sem þar er, þá sekist sá er það gerir þrimur mörkum við konung en tvígildi þeim er hann brenndi fyrir það sama aftur jafngott . . .
282: Ef maður brennir hús eður hey, sætur eður búð eður skip heiftugri hendi, þá er hann útlægur og óheilagur og heitir brennuvargur. . . .
284: Nú rænir maður mann sæturgötu eður rekstri, sekur hálfri mörk við konung fyrir vegarán.
284: Ef sætur eru ger í afrétt, þá sem eigi ná lög til, þá eru þau óheilög við broti og bæti skaða og landnám með hverj-[285]um er í þeim afrétt á.
Ákvæðin, sem eru áþekk í lögbókunum tveimur, bera með sér að réttur til selfarar hefur verið afar ríkur og sýnilega tengdur hefðum með fornar rætur.
Ekki mátti setja sel í afrétt eða almenning. Ákvæði Jónsbókar [186] fela í sér eiginlega skyldu til selfarar [. . . Menn skulu fara úr húshaga með fé sitt þá er tveir mánaðir eru af sumri. . . Slíkt hið sama liggur við ef maður fer heim í húshaga fyrir tvímánuð].

Litla-Botnssel

Litla-Botnssel í Hvalfirði.

Sýnilega er gert ráð fyrir að heimahögum sé hlíft í allt að tíu vikur um aðalsprettu- og heyskapartímann; frá Jónsmessu og fram til Höfuðdags. Óneitanlega er Jónsbókarhugtakið grasrán og viðurlög við grasráni í þessu sambandi athyglisvert. Grasið var auðlind sem ekki varð bæði notuð til beitar og slægna. Í sömu átt benda ákvæðin um rán selgötu – ef mönnum var meinað að koma búpeningi sínum í sel/sætur.
Þá eru líka athyglisverð þau ströngu viðurlög sem lágu við spjöllum á selmannvirkjum.
Ákvæði lagabálkanna tveggja sýna með skýrum hætti að löggjafi þessara tíma hefur haft þroskaðan skilning á nýtingu landsins til framleiðslu nauðsynlegra afurða og þýðingu hennar fyrir afkomu þegnanna. Þetta eru ekki einustu dæmin um skilning hinna fornu löggjafa á samspili náttúrulegrar vistar, þarfa fjölskyldnanna og sjálfbæris búhátta þeirra. Athyglisvert er að í Grágás er jafnan talað um sel en Jónsbók um sætur eða setur þótt átt sé við sama fyrirbrigðið.
Aldursmunur er á lögbókunum og hefur þegar verið bent á að hann skýri hugtakamuninn sem að sínum hluta eigi rætur í þróun búháttarins á tímabilinu og þá sérstaklega þróunina er varð í Vestur-Noregi.

Hvað skyldi rannsakað?
Dýrafjörður
Til seljanna gekk ég einkum með búfræðileg sjónarmið í huga og reyndi að horfa samtímis til sem flestra þátta þeirrar framfærsluleiðar og landnýtingar með kvikfjárrækt er seljabúskapur á hinu afmarkaða rannsóknasvæði var.

Sogasel

Sogasel í Núpshlíðarhálsi – uppdráttur ÓSÁ.

Að öðru leyti fólst ásetningur minn í eftirtöldum áformum:
1. að kanna ritaðar og munnlegar heimildir um selin á rannsóknasvæðinu og notkun þeirra, 2. að kanna seljarústir á svæðinu og umhverfi þeirra, m. a. með hliðsjón af staðháttum og beitargildi landsins,
3. að athuga seljabúskapinn með hliðsjón af landkostum og landnýtingu á jörðunum. að athuga seljabúskapinn og þróun hans með hliðsjón af ástandi og breytingum á öðrum búnaðar- og samfélagsháttum á svæðinu.
Síðan skyldi leitast við setja niðurstöður rannsókninnar í samhengi við niðurstöður hliðstæðra rannsókna á öðrum stöðum, innlendum og erlendum, og þær almennu kenningar, sem til hafa orðið á grundvelli þeirra, um þennan þátt kvikfjárræktar hér á norðurslóðum.
Þegar gengið var á seljarústirnar voru þær kannaðar, einkum með hliðsjón af staðsetningu, skipulagi og stærð. Gerðar voru yfirborðsmælingar á þeim til uppdráttar og minjar hnitsettar þegar sú tækni varð mér tiltæk. Hins vegar var hvergi grafið í rústir eða minjum undir sverði hreyft enda er það viðfangsefni á hendi fólks með aðra sérþekkingu en ég ræð yfir. Tekinn skal vari fyrir því að yfirborðsathuganir sýni raunverulega gerð mannvirkis sem undir sverði er. Jarðrask, gróður og langvarandi traðk beitarpenings, en seljatóftir hafa sakir grósku löngum dregið hann að sér, getur hafa raskað yfirborðsmyndinni að einhverju marki. Næsta stig rannsóknarinnar gæti því orðið að athuga lögun og gerð áhugaverðustu rústanna nákvæmar, t.d. með jarðsjá eða uppgreftri.
Mjög var misjafnt hve glöggar tóftirnar á selstöðunum voru. Yfirborðsmælingarnar ættu samt að gefa viðunandi og samanburðarhæfar grunnmyndir af rústum flestra selmannvirkjanna. Fullnaðarvitneskja fæst þó aðeins með uppgreftri. Staðhættir voru kannaðir svo sem landslag, gróðurfar og umhverfi hinna einstöku selja. Þá voru teknar ljósmyndir af mælistöðum og svæðum.

Hvar stóðu selin?
Dýrafjörður
Þótt ekki hafi verið gerð nákvæm gróðurgreining á landinu virðist ekki vera um umtalsverðan mun á gróðurtegundum selhaga og heimalanda. Ég get mér þess til að munurinn sé fremur þroskamunur gróðurs tengdur hæð yfir sjó og snjóalögum, eins og þegar hefur verið nefnt: að seinna hafi sprottið frammi á sellöndunum og beitargróður því yngri og næringarríkari en gróður heimalanda þegar fram á selstöðutímann kom. Þar var einnig átt við landrýmið sem heima við var víða af skornum skammti.
DýrafjörðurSú fyrsta og helsta nytsemd af selverum málnytupenings á sumardag og sérlegasti tilgangur þeirra, sem þær brúka, er, að hafa því meiri mjólk og kost af honum sem selstöðurnar eru tíðast betri heimahögunum“, skrifaði sr. Guðlaugur prófastur Sveinsson í Vatnsfirði árið 1786. Hann var einn helsti talsmaður seljabúskapar á endurreisnarárum íslenskra atvinnuhátta á ofanverðri átjándu öld. Og presturinn rakti dæmi um það hvernig landgæðin gátu endurspeglast í nyt búpeningsins:
„Eg hefir sjálfr verit á þeirri jørd í 14 ár [hér mun átt við Kirkjuból í Langadal þar sem sr. Guðlaugur bjó árin 1766-1780], hvar búsmali giørdi þridiúngi minna gagn heima enn í selinu, hvar eg árliga lét mínum peníngi hallda, alloptazt frá Fardøgum til Høfuddags; en viza og heyrdi adra segia, sem þar áðr búit høfdu, at eigi hefdu þeir meir enn frekliga helmíngs gagn af peníngi sínum haft, þá honum gátu eigi í sel komit.“
– „á hvøriu landbúenda velgengni ecki sízt ríðr, sem hér má þarfnaz miólkur, smiørs, skyrs, sýru, feitara sláturs og fleira“ – svo aftur sé gripið til orða sr. Guðlaugs í Vatnsfirði.
Ekki er marktækur munur á meðalvegalengd frá bæ að seli á milli sveitanna, metinni í áætluðum gangtíma; í Þingeyrarhreppi er hún 40 mínútur að meðaltali en 8 mínútum lengri í Mýrahreppi; staðalfrávikin eru svipuð, um 20 mínútur. Skemmst hefur gangan verið 15 mín en lengst um 90 mín, bil hin sömu í báðum sveitum.

Lega seljanna – liður í skipulegri nýtingu landkosta?
Dýrafjörður
Þegar skoðuð er lega selstaðnanna í landi hverrar jarðar virðist koma fram regla um nýtingu gróðurlendis jarðarinnar.
Ekki er hægt að taka fyrir að einstakar tóftir séu frá mismunandi tíma. Á nokkrum seljanna mátti bæði sjá óljósar minjar eldri mannvirkja sem og sýnileg merki um að byggt hafði verið á grunni eldri mannvirkja.

Njarðvíkursel

Njarðvíkursel við Seltjörn á Reykjanesskaga – fyrir tíma skógræktar.

Má taka þetta sem merki um fleiri tímaskeið seljasögunnar þar sem menn nýttu augljóslega hleðsluefni úr eldri mannvirkjum á selstöðunum til þess að endurbyggja mannvirkin að þörfum hvers tíma. Það hefur líka verið bent á að búhátturinn hafi ekki verið samfelldur; að hann hafi legið niðri um lengri eða skemmri tíma en síðan tekinn upp að nýju.
Mörg selin liggja þannig að auðvelt hefur verið að sjá til beitilandsins sem væntanlega hefur auðveldað smalanum að líta eftir hjörð sinni, svo hann þyrfti ekki að hnappsetja ærnar „því þá datt úr þeim nytin.“
Við mörg seljanna eru landkostir þannig að ekki sýnist hafa verið auðvelt að stinga eða rista torf í veggi og á þök. Af stærð og fyrirferð tófta er þó ljóst að á mörgum seljanna hefur gríðarlega mikil vinna farið í aðdrætti efnis og veggjahleðslu. Það hefur verið leiguliðum ærin fyrirhöfn að halda mannvirkjunum við svo sem leiguliðum bar að gera – auk viðhalds annarra jarðarhúsa. Stærstu tóftirnar á seljunum gefa í engu eftir tóftum margra jarðarhúsa að stærð. Óneitanlega segir það einnig sína hljóðu sögu um mikilvægi selstaðnanna. Flestar voru seljatóftirnar orðnar það máðar að fátt var ráðið um húsagerð. Á að minnsta kosti tveimur seltóftum mátti þó enn sjá allglögg þakummerki. Ætla má að það sé á þeim sem hvað síðast voru í notkun. Fátt verður annars fullyrt um gerð selhúsanna. Vegna takmarkaðs notkunartíma á hverju ári og það hlýjasta tíma þess er freistandi að geta sér þess til að húsagerðin hafi verið einföld.

Stærð og gerð selhúsanna
Dýrafjörður
Þorvaldur Thoroddsen lýsti algengri húsaskipan íslensku seljanna þannig: Voru selhúsin vanalega þrjú, íveruhús eða svefnsel, eldhús og búr, og mun sá húsafjöldi hafa haldist síðan í fornöld, þó sum selin bæði fyrr og síðar hafi verið fátæklegri.

Þróun selja

Aldursþróun selja á Vatnsleysuströnd.

Einföldust voru selin þegar þau voru hólfuð í tvent. Voru herbergin kölluð útsel og innsel. Í útselinu sem var framar, og maður kom fyrst inn í, var öll eldamennska, en í innselinu svaf fólkið og þar var maturinn geymdur. Í innselið var gengið úr útselinu, en aldrei utan frá. Hjá þeim sem betur máttu sín voru selin í þrem herbergjum. Þá var eldað í miðherberginu, en fólkið svaf í öðru hinna. Vanalega voru tvær stúlkur í selinu og smali. Oft var húsmóðirin sjálf í selinu. Öll sel voru bygð úr torfi og grjóti og óþiljuð.
Sé litið yfir uppdrætti seljanna, er vandséð að eitt form öðrum fremur móti skipulag selhúsanna. Frekast er það kvíin sem tengir selstöðurnar saman.
Frásögn Þorvaldar Thoroddsen um gerð selhúsa má skilja svo að um aðskilin mannvirki hafi verið að ræða. Hagkvæmara gat verið að hafa húsin öll samveggja og jafnvel undir sömu þekju til þess að spara efni og vinnu. Nokkrar seljagrunnmyndanna úr Dýrafirði sýna eimitt slíkt form: Tvær til þrjár tóftir hlaðnar í samstæðu. Telja má víst að þar hafi vist vinnufólks verið samfelld um seljatímann og þá við vinnslu mjólkurinnar og eftir aðstæðum önnur verk, svo sem heyskap. Stærð mannvirkjanna ætti að endurspegla umfang starfseminnar á selinu, bæði í gripafjölda og nauðsynlegum mannafla.
Mjaltakvíar voru sýnilegar á þorra selstaðnanna: „Allar höfðu þær mjög svipað form; aflangar og mjög áþekkar að breidd – um það bil 1,9-2,0 m (sem er nálægt 3 álnum). Hin fasta breidd gerði það að verkum að ærnar röðuðu sér jafnan upp þannig að auðvelt var að mjólka þær. Lengd kvíanna var hins vegar mismunandi en af henni má áætla þann fjölda áa sem rúmast gat í hverri þeirra. Þétt saman má gera ráð fyrir að þrjár afteknar (rúnar) mjólkurær komist á lengdarmetrann og örugglega fimm ær á hverja tvo metra.“

Hvað segja örnefni um selin og selstöðurnar?
Dýrafjörður
„Örnefnin eru minjar um mannlega starfsemi á liðnum tímum. Þau verða aðeins til þar, sem menn hafast eitthvað að“, skrifaði Magnus Olsen.
Fjöldi seljaörnefna, sem tengd eru stöðum og svæðum í nágrenni seljanna, má ætla að geti verið nokkur mælikvarði á það hversu gróinn og umfangsmikill búhátturinn hefur verið á hverri jörð. Þar sem langt er síðan hátturinn var lagður af eða lítið fór fyrir honum má ætla að seljaörnefnin hafi horfið úr munni fólks og/eða að forsenda hafi ekki verið fyrir myndun þeirra. Vissulega getur samfella ábúðar á einstökum jörðum hafa haft áhrif á það hversu vel örnefni bárust á milli ábúenda og kynslóða. Nábýli og mikil umferð fólks um landið vegna nýtingar þess ætti þó að hafa ýtt undir góða varðveislu örnefnanna.
Byggt á örnefnaskrám jarðanna reyndust 2,4% allra örnefna á jörðunum tengjast seli.

En hvað má svo lesa úr örnefnum sjálfum?
Dýrafjörður
Seljaörnefnin í Dýrafirði virðast, rétt eins og í flestum öðrum héruðum, einkum vera tvenns konar: Annars vegar eru það sérstök heiti seljanna sjálfra, sem oftast hafa viðkomandi bæjarnafn að forlið, t. d. Hólasel, Sandasel, Botnssel og Mýrasel. Það geta einnig verið nöfn til aðgreiningar fleiri selja frá sama bæ, sbr. Fornasel, Nýjasel, Gamlasel, Heimrasel, Fremrasel. Hins vegar eru það örnefni staða og svæða í nágrenni selstaðnanna sem einkum hafa verið notuð til staðsetningar í samræðum fólks um land og umhverfi, til dæmis Seljalækur, Seljalágar, Selbali og Seljahvilft.

Seljagerðir

Þróun selja á Vatnsleysuströnd.

Úr flokki seljaheitanna virðist einkum mega lesa tvennt: hugsanlegan aldursmun seljanna og staðarmun.
Sel nágrannajarða voru gjarnan sett þannig að stutt væri á milli þeirra.
Það virðist vera einkenni hinna „gömlu“ selja að þau liggja stök í landi viðkomandi jarða og virðast því ekki vitna um seljaþyrpingar. Einhverjar breytingar búhátta eða félagsgerðar virðast hafa orðið sem leiddu til þess að „nýju“ seljunum var valinn annar staður en hinn „forni“. Sérkenni sýnilegra minja fornuseljanna (stærð og lega) gætu bent til þess að þau séu frá tíma stærri og fjölmennari heimila – hugsanlega með rætur allt til landnáms – en að með fjölgandi heimiliseiningum og lækkandi tölu heimilismanna hafi selmannvirkjum nágrannajarða verið þjappað meira saman til samvinnu og selskapar. Vel þekkt er að örnefni benda til sérstakra gæða eða eiginleika landsins.

Niðurlag
Dýrafjörður
Niðurstöður seljaathugann falla hvað snertir nýtingu landsins saman við niðurstöður rannsókna á norrænum seljabúskap og ríma við eldri heimildir um hann. Þótt talið sé að íslenski seljabúskapurinn eigi sér norrænar rætur er ljóst að hann hefur verið lagaður að staðbundnum aðstæðum, svo sem landslagi, eins og fyrri rannsakendur íslenskra selja hafa raunar bent á.

Flekkuvíkursel

Flekkuvíkursel – uppdráttur ÓSÁ.

Meðal síðustu selja á Íslandi var selið að Hrauni í Skálavík sem nýtt var sumurin 1952-1954. [Á Reykjanesskaganum lagðist selsbúkapurinn af um 1870. Lengst var selstöðunni í Flekkuvíkurseli viðhaldið, eða til 1874.] Það var vinnan sem á hverjum tíma var sá þátturinn er helst takmarkaði rekstur seljanna: Hún var mikil og ekki eftirsóknarverð, sennilega sakir aðstöðu, aðbúnaðar og fásinnis.
Á vertíðum annarra tíma ársins, einkum vor og haust, fóru menn með hliðstæðum hætti til fiskivera sinna. Markmið beggja ferðanna voru hin sömu: Að afla próteins og feitmetis til eigin viðurværis en einnig sem gjaldmiðla til leigugreiðslna og þeirra takmörkuðu viðskipta er stunduð voru. Í seljunum stóð ríki kvenna. Var það ef til vill eitt form þeirrar tíðar er markaði (annabundið) frelsi og jafnrétti kynjanna? Og þá má líka spyrja hvort aflögn seljabúskaparins hafi haft sambærileg áhrif á afkomugrundvöll heimilanna og hvarf þeirra frá notkun verstöðva til einhliða heimræðis hefði haft? Að þeirri spurningu kom þó ekki því þörfin fyrir selför og sauðamjaltir þvarr með gerbreyttum þjóðfélagsháttum.

Heimild:
-Rit LbhÍ r. 131, Sel og selstöður við Dýrafjörð, Bjarni Guðmundsson, prófessor emeritus, 2020, 73 bls.
-http://www.lbhi.is/sites/lbhi.is/files/gogn/vidhengi/rannsoknur/rit_lbhi_nr_131_sel_og_selstodur_vid_dyrafjord_loka_sm.pdf
Dýrafjörður

Jarðskjálfti

Jarðskjálftar á Íslandi verða á brotabelti á flekaskilum. Tvö slík belti eru á landinu: Á Suðurlandi, frá Ölfusi til Landssveitar og á Norðurlandi, kennt við Tjörnes. Öflugustu jarðskjálftar á Íslandi eru um 7 að stærð og geta valdið töluverðu tjóni. Þeir eru tíðir undir brotabeltunum og undir megineldstöðvum.

Ebenezer Henderson

Bók Ebenezers Hendersons um ferðalag hans á Íslandi – útg. 1818.

Enskur ferðamaður var hér á landi í byrjun 19. aldar og skrifaði um ýmislegt áhugavert, sem hann bæði heyrði og bar augum. Skrif hans birtust í framhaldinu í bókinni „Iceland; or the Journal of a Resicence in that Island, during the years 1814 and 1815″ eftir Ebenezer Henderson, London 1818. Á bls. 235-239 skrifar hann um jarðskjálfta  á Íslandi eftir að hafa fundið fyrir einum slíkum er hann var við Geysi í Haukadal í lok ferðar sinnar um landið.

„Fyrstu jarðskjálftarnir, sem vitað er um, urðu á árunum 1181 og 1812; en við vitum ekki um afleiðingar þeirra. Árið 1211 er fyrst getið um jarðhræringar í neðansjávareldfjalli nálægt Reykjanesi og fjöldi jarðskjálfta fylgdu í kjölfarið og nokkrir létust og hús víða um Ísland hrundur gjörsamlega til grunna. Á árunum 1260 og 1261 varð vart við harða skjálfta í Flatey á Breiðafirði. Árið 1294 skalf jörð í Rangárvallasýslu; Rangá breytti um farveg og margir bæir snerust á hvolf, og í átta daga urðu allir hverir hvítir sem mjólk. Árið 1300 gaus Hekla og miklar jarðhræringar fylgdu í kjölfarið á Suðurlandi og mötg hús hrundu. Skjálftahrina fygldi í kjölfarið átta árum síðar. Þá eyðilöguðust átján bæir og menn og skepnur dóu.

Ebenezer Henderson

Ebenezer Henderson fæddist 17. nóvember 1784 í litlum bæ í Dunfermline-héraði í Skotlandi og lést 17. maí 1858 skammt þar frá. Bók sem hann skrifaði um dvöl sína á Íslandi 1814-1815 er talin með merkari ferðabókum þar sem öllu er lýst mjög nákvæmlega, einkum jarðfræðitengdum fyrirbærum og hún er skrifuð í Reykjavík að stóru leyti.

Árið 1311 varð skelfilegur jarðskjálfti þar sem ekki færri en fimmtíu og einn bær hrundu og dró fyrir sólu þegar aska og sandur voru ýft upp af eldfjöllum svo ómögulegt var að ferðast frá einum hluta landsins til annars. Árið 1313 eyddust átján hús í miklum jarðskjálfta. Árið 1339 fundust nokkir skjálftar á Suðurlandi, útihýs hrundu og nautgripir lyftust frá jörðu, nokkur fjöll skriði, sprungur og hverir mynduðust. Árið 1370 hrundu tólf bæir í jarðskjálfta í Ölfusi.

Geysir

Mynd af Geysi í bók Ebenezers.

Á árunum 1390 og 1391 urðu fjöldi jarðskjálfta, einkum síðarnefnda árið; fjórtán bæir eyðilögðust í Grímsnesi, Flóa og Ölfusi og fólk grófst undir rústunum. Jörð breyttist; sjóðandi vatn spratt upp, og áhrifa skjálftans fannst alla leið upp á Holtavörðuheiði.

Grindavík

Þórkötlustaðaréttin í Grindavík eftir jarðskjálfta 31. júlí 2022.

Árið 1552 urðu nokkrir stórir jarðskjálftar, en engar skemmdir urðu á mannvirkjum; og árið 1554 héldu skjáltarnir slíkt áfram að fólk dirfiðist ekki að vera innan dyra í húsum sínum heldur héldu til í tjöldum. Nokkrir jarðskjálftar urðu 1578; og árið 1597 olli skjálfti allmiklum skemmdum á bæjum í Ölfusi. Árið 1614 varð endurtekin skjálftahrina allt haustið og nokkrir bæir hrundu. Um veturinn 1633 eyddust bæir í Ölfusi og áhrifin voru svo mikil að í mörgum kirkjum varð engin þjónusta það sem eftir lifði vetri. Árin 1657 og 1661 urðu nokkuð harðir jarðskjálftar á mismunandi stöðum í Fljótshlíð, suðaustan Heklu, og nokkur hús jöfnuðust við jörðu.

Arnarbæli

Arnarbæli eftir jarðskjálfta 1896.

Alvarlegastu jarðskjálftarnir fundust í Ölfusi og í Flóa 28. janúar, 1. apríl og þann 20. árið 1706. Ekki færri en tuttu og fjórir bæir eyðilögðust, fjölmargir urðu fyrir skemmdum og nautgripir drápust. Skjálftunum fylgdu aðrir stórir og smáir um vorið, og voru raktir til heklu og nágrennis.

Jarðskjálfti

Þann 26. ágúst 1896 hófust á Suðurlandi einhverjir mestu jarðskjálftar, sem sögur fara af hér á landi. Fyrsti kippurinn var snarpastur í Rangárvallasýslu og í Eystri hrepp í Árnessýslu, þar sem fjölmargir bæir hrundu til grunna. Næsta morgun kom annar kippur og virtist hann hafa verið snarpastur í Hrunamannahreppi, en þar féllu nokkrir bæir. Að kvöldi 5. september kom enn mjög snarpur kippur, sem olli miklu tjóni í Holtum, Skeið og Flóa.
Fólk var komið í háttinn þegar skjálfti 7,5 á Richter reið yfir. Síðan um 1700 hafa 7 jarðskjálftar verið á Suðurlandi og hafa haft styrkleika >VIII (1706, 1734, 1752, 1784, 1789, 1896 og 1912).
Svipað er að segja um Rangárvelli. Þar hafa bæir örugglega fallið 12 sinnum, líklega 17 sinnum, og þar hafa að minnsta kosti 5 jarðskjálftar siðan 1700 haft styrkleika >VIII eða 1725, 1732, 1784, 1896 og 1912. Aðeins einu sinni er vitað með vissu, að jarðskjálftar samfara byrjun Heklugoss hafi orðið svo sterkir, að bæir hafa hrunið, en líklegt, að það hafi skeð tvisvar eða þrisvar sinnum.

Líkt og jarðhræringar í Skaptáreldum voru hinar hræðilegustu skráðum í annála Íslands, urðu jarðskjálftarnir sem 14. og 16. ágúst 1784 þeir afdrifaríkustu, sem orðið höfðu fyrir íbúa landsins. Þeir munu hafa orðið á svæði vestan Heklu og fundust um land allt. Í Snæfellssýslu og Ísafirði fundust þeir greinilega. Í Árnessýslu einni hrundu ekki færri en þrjú hundruð og sjötíu og tveir bæir; sextíu og níu gereyðilögðust. Fjöldi húsa er skemmdust í landinu urðu eitt þúsund fjögur hundruð og fimmtíu og níu. Nítján kirkjur skemmdust og fjórar algerlega.
Til viðbótar skemmdum á húsum spilltust hagar, ár breyttu um farvegi og mikil grjóthrun varð í hlíðum fjalla. Margir sjóðandi hverir hurfu og aðrir nýir spruttu upp. Við Geysi nálægt Haukadal birtust ekki ekki færri en þrjátíu og fimm nýir hverir á svæðinu.
Árið 1789 varð enn einn afdrifaríkur jarðskjálfti. Í fyrstu varði hann í u.þ.b. tíu mínútur, en varð síðan viðvarandi af og til það hluta sumarsins. Áhrif skjálftans urðu mest í kringum Þingvallavatn. Botn vatnsins sökk til norðausturs, víða flæddi yfir gamlar leiðir og til suðvesturs og þornaði vatnið upp á allt að fjóra faðma dýpi (haft eftir biskupi Finnssyni).
Árið 1808 reið harður jarðskjálfti yfir sem hafði áhrif á háhitasvæði landsins. Síðasti skjálftinn var í júni 1815, en hann var vægur og fannst einungis í norðurhluta landsins.“

Sjá meira um jarðskjálfta á Reykjanesskaga.

Heimild:
-Iceland; or the Journal of a Resicence in that Island, during the years 1814 and 1815 by Ebenezer Henderson, London 1818, bls. 235-239.

Ebenezer Henderson

Ebenezer Henderson var skoskur guðfræðingur og ritaði gagnmerka bók um ferðir sínar, land og þjóð. Bókinni fylgir kort af Íslandi, gert að fyrirsögn höfundarins af feðgunum Daniel og William Home Lizars. Undirstaðan eru kort af Knoff-gerð, sérstaklega þau sem Jón Eiríksson átti hlut að. Helsta nýmælið á kortinu er að búið er að kippa norðanverðum Vestfjörðum suður fyrir heimskautsbaug. Annars er það í svo litlum mælikvarða að lítið af athugunum Hendersons kemst til skila.

Garðakirkja

Sævar Tjörvason sendi FERLIR eftirfarandi:

Garðakirkja

Garðakirkja 1966.

„Garðakirkja á sér merka sögu. Byggingarsaga hennar hefur að mestu verið endurgerð en erfitt virðist vera að rekja sögu einstakra muna og myndverka sem tilheyra kirkjunni í dag. Finn t.d. ekkert um veggmyndina (sexæringur) fyrir ofan kirkjuhurð Garðakirkju.

Finn ekkert um hana þegar ég fletti upp ýmsum gögnum um Garðakirkju enda er myndin ekki svo gömul.
Þessi veggmynd vísar til árabátatímabilsins. En höndin og sérstök stelling handar og fingra gefa einhver skilaboð væntanlega til sjómanna fyrri tíma. Þetta verk er því afar symboliskt. Stend alveg á gati fyrir utan að ekkert er að finna um sögu verksins og listamannsins. Væri þér þakklátur ef þú gætir bjargað mér í land.

Kristjana Samper

Kristjana Samper.

PS: Afi minn (f. 1872) ólst upp á Bakka sem landbrotið tók fyrir langa löngu. Í verbúð sem heyrði undir Pálshús. En séra Þórarinn Böðvarsson skólaði hann.
Þessi afi minn varð einn nafntogaðisti sjóari þess tíma. Um ævi hans og síðustu för hans frá Hafnarfirði til Keflavíkur orti Örn Arnarsson kvæðið Stjáni blái.“

Lágmyndin framan á Garðakirkju var gerð í tilefni 30 ára endurvígslu kirkjunnar. Hún er af táknmynd Páls postula eftir listakonuna Kristjönu Samper. Þá var sagt að Garðakirkja væri fullbyggð.

Garðakirkja

Garðakirkja – andyrið og lágmyndin.

Lágmyndin er frá 1996 og var staðsett yfir ytra andyri kirkjunnar. Hún er úr grásteini, kostuð af Kvenfélagi Garðabæjar (kostaði kr. 189.614) og á að tákna, sem fyrr sagði, Pál postula með vísan til atvinnuhátta Garðahverfinga fyrrum þar sem árabáturinn er annars vegar.

Lágmyndarinnar er ekki getið í nýútgefnu veglegu afmælisritverki Hafnarfjarðarkirkju þar sem eitt ritið af þremur fjallar nær einungis um Garðakirkju.

„Kærar þakkir fyrir ómakið. Kem iðulega við þarna vegna tengsla við afa minn sem Þórarinn Böðvarsson hafði mikil áhrif á. Síðast staldraði ég við veggmyndina og sá að hún smellpassaði þarna – rétt áður en áhöfnin, og börn, gestir sóknarinnar ganga inn í kirkjuskipið. Vel til fundið.“ – Sævar

Heimild:
-Rit Kvenfélags Garðabæjar 2023 – 70 ára, Menning og mannúð, Ágrip af sögu Kvenfélags Garðabæjar tímabilið 2003-2023.

Garðakirkja

Garðakirkja – lágmynd ofan við andyrið.

Raufarhólshellir
Ætlunin var að fara inn í Raufarhólshelli í Þrengslum, en alls mun hellirinn vera um 1360 metrar að lengd, en meginlínan er um 900 m og dýptin um 32 m. Sú saga hefur fylgt Raufarhólshelli að í honum hafi verið komið krukku með jarðneskum leifum síðustu manna úr útdauðum indíánaþjóðflokki við Magellansund.
RaufarhólshellirOpið inn í hellinn er bæði aðgengilegt og stórt. Eftir að inn er komið má sjá hvar loftið hefur fallið á nokkrum stöðum á leiðinni inn. Þetta er einn fjölfarnasti hraunhellir á Íslandi. Auk þess er hann lengstur hraunhellanna utan Hallmundarhrauns. Hellirinn sveigir undir þjóðveginn til suðvesturs og upp í rennslisstefnuna. Þar sem vegurinn liggur yfir Raufarhólshelli er hætta á ferðum. Þakið yfir hellinum, sem í upphafi var um 10 m á þykkt, er nú aðeins um 3-4 metrar. Búið er að hreinsa úr hellinum allar fagrar hraunmyndanir, dropsteina og hraunstrá og nú má sjá þar leifar af kyndlum, kertavax, filmuhylki, niðursuðudósir, plastpokar og fleira er nútímafólk gæti hugsanlega haft gaman að því að skoða við aðstæður, sem þarna eru.

Raufarhólshellir

Raufarhólshellir.

Innst í hellinum er fallegur hraunfoss, eða hann hefur a.m.k. einhvern tímann verið fallegur. Fyrir ofan fossinn má komast inn lítil þröng göng og skríða nokkra metra áfram inn í skemmtilega kúlu þar sem nokkrir menn komast fyrir. Gamlar sagnir greina frá dropsteinum í hellinum. Margir þeirra voru um hálfur meter á hæð. Enginn dropsteinn er nú eftir í Raufarhólshelli og lýsir það vel umgegni um hella, sem aðgengilegir eru hverjum og einum.

Raufarhólshellir

Í Raufarhólshelli.

Raufarhólshellir er mjög hruninn og því erfiður yfirferðar nema innst þar sem lítið hefur hrunið úr hellisloftinu. Ís er einnig fremst í hellinum og því oft hált á grjótinu og erfitt að komast þar um. Þá er ekki síst nauðsynlegt að hafa góða fyrirhyggju á bæði ljósabúnaði, sem nota á, og þeim er hægt er grípa til ef hann bregst því myrkrið er mikið um langan veg.Þessi ferð var hins vegar farin til að kanna hvort framangreind sögn gæti átt við rök að styðjast. Sagan segir að þegar Magellan sigldi um heimsins höf og í hringferð um jarðskorpuna, hafi hann komið sem nú er Magellansund. Þá bjó þar þjóðflokkur indíána er var að deyja út. Sótt geisaði og voru einungis þrír af ættflokknum eftir. Var svo um mælt og handsalað að jarðneskar leifar índíánanna yrðu settar í krukku að þeim brenndum og henni komið fyrir á friðsælasta stað, sem til væri á jörðinni. Indíánarnir dóu og staðið var við samningana.

Raufarhólshellir

Í Raufarhólshelli.

Ösku þeirra var komið fyrir í krukku og einhverjir tóku að sér að efna loforðið og fylgja efndunum eftir. Þeir tóku sig upp og fóru með krukkuna til friðsællar eyju í norðurhöfum. Þar var krukkunni komið fyrir í stórum og löngum helli eftir hátíðlega athöfn. Áletrun var skilin eftir því til vitnis. Nafni eyjarinnar var haldið leyndri af skiljanlegum ástæðum.
Þegar komið er u.þ.b. 300 metra inn í Raufarhólshelli er skilti á veggnum. Erfitt er að koma auga á það á bak við stóran stein eftir bugðu á göngunum. Á þessu skilti er sagt frá atvikinu…. Krukkan stendur þar hjá ef vel er að gáð. Þetta er eina indíánaathöfnin af þessum toga hér á landi sem vitað er um.

Heimild m.a.:
-Hraunhellar á Íslandi – Björn Hróarsson 1990.

Raufarhólshellir

Raufarhólshellir.

Festarfjall

Árið 2001 var gerð svæðaskráning um „Menningarminjar í Grindavíkurkaupsstað„. Hér er getið um sumt það, sem fram kemur í skýrslunni um gömlu bæina sem og merkar minjar í Krýsuvík.

Krýsuvík

Krýsuvík 1887.

Samkvæmt Landnámu nam Þórir haustmyrkr Selvog og Krýsuvík.
1275; Krýsuvík og Skálholt eiga hálfan allan reka undir fuglabergi í landi Strandakirkju í Selvogi.
1284: Stadur j videy aa fiordvng j hvalreka j [krýss[v]ik) ok skal sa sem býr j kryssvvik senda mann til videyar þegar hvalvr kemvr adur þridia sol sie af himne ok lata skiera hval ok abyrgizt sem seigir j logbok.“
1356 var staðurinn 71 hndr og átti kirkjan allt heimalandið.

Keflavík

Keflavík – rekafjaran.

1397: Þá á Krýsuvík fjöru í Keflavík til helminga við Kaldaðaneskirkju. Kaldaðaneskirkjra á „Saudahofn j krysevyk oc hvzrum manne ad geyma þar sauðda. fa kietil oc elldivid oc tvo menn til safna a vorid med þeim er sauda giæter.“
1479: lýste hvn þat. at einginn jtok væri j greinda jord vatzleysv. nema kirkian j kryssvvik ætti þar j Xc.“

1496 lét Stefán Jónsson Skálholtsbiskup meta byggingarnar á Krýsuvíkurstað, kirkjuna, „og staðinn aalan með hjáleiguhúsum innan garða.“

Sogasel

Sogasel –  Selstaðan í Sogagíg var lánuð Kálfatjörn frá Krýsuvík um tíma í skiptum fyrir skipsuppsátur á Ströndinni.

1524 eru þau kaup gerð að Viðeyjarkalustur eignast part Krýsuvíkurkirkju í Vatnsleysulandi og greiða fyrir fjögur hundruð til prests en kirkjunni áttæring.

1563: „Jtem hefe eg fullt vmmbod gefid mijnumm firrgreinndumm Radsmanne ad byggia Krysewijk fyrst sira Birne ef hann vill med þeirre landskilld sem hann kann af stad ad koma og med þeim leigukugilldumm sem þar kunna til ad setiast svo og med þeim skilmála vmm rekann og allt annad sem addur stendur vmm Grijndavijk.“
1703: „Krýsuvík – Kirkjustaður; eign Skálholtsstaðar, og var jarðardýrleiki óviss 1703.“

Krýsuvíkurtorfan

Krýsuvíkurtorfan – uppdráttur ÓSÁ.

Sama ár eru hjáleigur jarðarinnar Nýibær, Litli Nýibær, Norðurhjáleiga, Suðurhjáleiga, Austur hús og Vestur hús ásamt eyðijörðinni Gestsstöðum. 1847: 31 1/3 hndr, hjáleigur Suðurkot, Norðurkot, Stóri-Nýibær, Litli-Nýibær, Vigðísarveellir, Bali og Lækur. Árið 1918 eru tvö býli í Krýsuvík en jörðinni ekki skipt á milli þeirra. „Krýsuvík. Svo í Ln (Hauksbók og Sturlubók), og því réttara en Krísuvík (í F og víðar).“ Árbók 1923, 30.

Þórkötlustaðasel

Þórkötlustaðasel á Vigdísarvöllum.

Þórkötlustaðir áttu selför á Vigdísarvelli en Krýsuvík skipsstöðu í Þórkötlustaðanesi – Saga Grindavíkur I, 145.
Ummál Krýsuvíkurlands er á milli 60-70 km og á 300 ferkílómetra að flatarmáli. Gengið var frá afsali vegna kaupa Hafnarfjarðarkaupstaðar á Krýsuvík og Stóra-Nýjabæ 1941.
Austasti hluti Krýsuvíkurlands (Krýsuvíkurhraun) og sá vestasti (Ögmundarhraun og Vigdísarvellir) heyra þó undir Grindavíkurkaupstað.

Krýsuvík

Krýsuvík neðan Baðstofu – brennisteinshús Krýsuvíkurbónda undir Baðstofu.

1703: „Túninu er hætt fyrir skriðum og fje fyrir hrakníngi um vetur, ef ekki er vel gætt.“
1840: „Í hverfi þessu eru landkostir, hagaganga og heyskapur í meðallagi; ókostir, sérlegir óþerrar og snjókyngi, samt sérlegur uppblástur á öllum högum.“
1918: Tún 5,4, garðar 420 m2. Svæðið milli Kleifarvatns og Grænavatns er engja svæði. „Tún heimajarðarinnar liggur sunnan undir og upp í Bæjarfelli, en bæjarhús, kirkjan og kirkjugarðurinn standa á hól eða hygg, sunnarlega á túninu.“ Ólafur Þorvaldsson: Árbók 1943-48, 87.
Hluti Krýsuvíkurlands tilheyrir nú, því miður, Hafnarfjarðarkaupstað.

Gvendarhellir (hellir/fjárskýli)

Arngrímshellir

Í Gvendarhelli.

„Í Krýsuvíkurhrauni eru gróðurblettir, góðir sauðhagar, þar sem heitir Eystri-Klofningar upp ad Seljabót, en Vestri-Klofningar eru upp af Keflavík … Í Klofningum eru tveir hellar. Annar er Gvendarhellir, sem ber nafn Guðmundur nokkurs Bjarnasonar, er bjó þar einn á vetrum með sauðafé sitt um 1840. Hellir þessi er víðáttumikill og lágur.“

Arngrímshellir

Í Arngrímshelli í Krýsuvíkurhrauni.

„Vestan undir Krýsuvíkurhrauni er stór hellir og besta hagaland í kring, í og með hrauninu, samt víðar út um heiðina, so alltíð má beita fé undir vind, af hvörri átt sem hann er. Hellir þessi er langt frá bæjum. Er því erfitt að nota hann í vetrarharðindum. Fyrir hér um bil 100 árum eður máske nokkuð meir, var bóndi í Krýsuvík, að nafni Arngrímur, mig minnir Jónsson.

Arngrímshellir

Arngrímshellir – flórað gólf innan fjárskjólsins.

Hann tíundaði jafnan 50 hndr. Hann hafði fé sitt við hellir þenna. Hann skyldi hafa átt 99 ær grákollóttar. Sysitir hans átti eina á eins lita, og hætti hann ei fyrr að fala hana af systur sinni en hún yfirlét hönum ána sárnauðug. Sama veturinn seint gjörði áhlaupsbyl, sem stóð 6 dægur. Hrakti þá allt hans fé fram af Krýsuvíkurbergi hér og þar til dauðs og algjörlegs taps, því sjórinn tók við fyrir neðan bergið, en vindurinn rak til hafs. Í hengisfönninni framan í bergbrúninni stóð Grákolla alein, er hann fékk hjá systur sinni.

Gvendarhellir

Hústóft framan við Gvendarhelli.

Þegar hann eftir bylinn fór að leita að fénu, tekur hann ána þá og reynir í 3-gang að kasta henni fram af berginu, en gat aldrei kastað henni svo langt, að hún færi niður fyrir, en jafnótt og hún losnaði í hvört sinn við hendur hans, brölti hún upp að hnjám hönum. Loksins gaf hann frá sér og skal hafa sagt löngu seinna, að út af á þessari hefði hann eignast 100 fjár. Þetta hefi eg af sögusögn og gef það ei út sem áreiðnalegan sannleik.

Krýsuvíkurberg

Krýsuvíkurberg.

Ævilok Arngríms urðu þau, að steinn datt á hann úr Krýsuvíkurbergi og murði hann í sundur og 2 manneskjur aðrar. Þetta er víst. / Árið 1827 kom gamall bóndi til Krýsuvíkursóknar, Guðmundur Bjarnason, byggði nýbýlið Læk aldeilis að stofni, átti margt fé, hélt því við áðurnefndan hellir, en þar hönum þótti langt að hirða það þar, byggði hann þar annan bæ, dásnotran sem hinn, með glergluggum, sængurhúsi af- og alþiljuðu með 2r rúmum, í hinum karminum geymsluhús. Byggði hann hús þetta framan við hellisdyrnar og rak féð gegnum göngin út úr og inn í hellirinn, hlóð af honum með þvervegg, bjó til lambastíu með öðrum, gaf þeim þar, þá henta þókti, bjó til étur úr tilgengnum hellum allt í kring í stærri parti hellirsins, gaf þar fullorðna fénu í innistöðum (sem verið mun hafa allt að 200um eftir ágetskun manna), fluti þangað talsvert hey og smiðju sína og mun hafa starfað þetta að mestu eða öllu leyti, aleinn á einu ári. Þarna var hann 10 vetur samfellt yfir kindum sínum aleinn, en á sumrum heima. Loks gafst hann upp yfir 7tugt og sagðist hafa verið smali, síðan hann hafði 6 ár á baki.“ segir Jón Vestmann í sóknarlýsingu frá 1840.

Herdís og Krýs og smali (dysjar)

Kerlingadalur

Dysjar Herdísar og Krýsu í Kerlingardal.

„Norður af því [Krýsuvíkurhrauninu] uppi við veg, sitt hvoru megin hans, er svo Litla-Eldborg og Stóra-Eldborg.
… Beint upp af Stóru-Eldborg og austur af bæ er allhátt fell, sem heitri Geitahlíð. Milli Eldborgar og Geitahlíðar er Eldborgarskarð, en litlu austar er Deildarháls; um hann lá vegurinn áður.

Hvítskeggshvammur

Hvítskeggshvammur.

Beint upp af Stóru-Eldborg er hvammur , sem Krýsuvíkingar kalla Hvítskeggshvam … Austan við hvamminn og hálsinn eru þrjú dys, austust er Herdís, svo er Krýs og loks smalinn. Er hann ofan götunnar, en þær neðan …“ segir í örnefnalýsingu. „80 m norðan við malbikaðan veg, SV undir hlíðum Geitahlíðar. Við jaðar hrauns og vestan við þjóðleið.“ segir í skýrslu um fornleifar við Suðurstrandarveg.
FRIÐLÝSTAR MINJAR. „Dysjar tvær eða vörður („Krýs og Herdís“) austan Kerlingardals, um hálftíma gang fyrir vestan Sýslustein.“ Friðlýst (í Hafnarfriði) 30.04.1964, þinglýst 05.05.1964. – Fornleifaskrá, 12.

Krýs og Herdís

Dysjar Krýsar og Herdísar við þjóðleiðina undir Deildarhálsi..

1840: „Forntíðarkonur 2, Krýs og Herdís, nafnkenndar af bæjum sínum, Krýsu- og Herdísarvíkum, áttu lönd saman, sem enn liggja þau. Vildi Herdís næstum eiga alla Geitahlíð af hennar landi, en hún vildi ei gefa eftir. Fundust þær á Deildarhálsi. Kom so hart í með þeim, að Herdís drap smala Krýsar, sem með henni var, en Krýs vildi hefna, og lauk svo með þeim, að hvör drap aðra. Eru þar 3 dys, þeirra beggja sunnan við götuna, en smalans uppí brekku fyrir norðan hana. Síðan heitir hálsinn Deildarháls.“ segir Jón Vestmann í sóknarlýsingu frá 1840. „… sögn um tvær konur, Krýs og Herdísi, sem deildu um beit og drápu hvor aðra. Enn eru sýndar rétt við veginn yfir hálsinn dysjar Krýsar og smalamanna, sem voru einnig drepnir.“ Kålund I, 29. 1950:

Herdís og Krýsa

Dysjar Herdísar og Krýsu.

„Spölkorn austan Eldborgarskarðs, þar sem hin forna leið liggur þétt við rætur hlíðarinnar, eru tvær fornar steindysjar. Báðar eru þær sunnan vegar, með mjög skömmu á milli. Dysjar þessar heita Kerlingar, og segja fornar sagnir um uppruna þeirra á þessa leið:

Dysjar

Dysjar Herdísar og Krýsu við götuna um Kerlingadal.

„Krýs og Herdís, konurnar, sem sagan segir að fyrstar hafi búið á jörðunum Krýsuvík og Herdísarvík og jarðirnar síðan við þær kenndar, voru lengi búnar að eiga í deilum um landamerki jarðanna, eða komu sér ekki saman um hvar vera skyldu. Voru smalar þeirra oft búnir að elda grátt silfur sín á milli, út af fjárbeit, og vörðu oft spildur úr beitilandinu hvor fyrir öðrum og töldu, að með því rækju þeir erindi húsmæðra sinna. Erjur þessar leiddu til fjandskapar, ekki einasta hvað smalana snerti, heldur og millum þeirra Krýsar og Herdísar, sem báðar þóttust ofbeldi beittar.

Dysjar Herdísar og krýsu

Dysjar Herdísar, Krýsu og smalans neðst í Kerlingadal.

Þegar þóf þetta hafði farið fram um hríð, og óvild og ágengni færzt mjög í aukana, varð það þó að samkomulagi millum þeirra Krýsar og Herdísar, að endir skyldi bundinn á deilu þessa á þann hátt, að báðar skyldu þær fara, þar tilsettan dag, að heiman á sólarupprás og mörk ákveðin millum jarðanna þar sem þær mættust. Á tilteknum degi fara svo konurnar hvor heiman frá sér, Krýs frá Krýsuvík og Herdís frá Herdísarvík. Smala sína höfðu þær mð í för þessari. Ekki segir frá ferðum þeirra, fyrr en þær mættust á hálsi þeim, sem liggur austan Eldborgarskarðs. Umsvifalaust ganga þær til málanna, og sakaði Krýs Herdísi um að hafa brotið samkomulag það, sem þær höfðu áður gert, þar sem hún væri komin svona utarlega í landið, og hefði hún því hlotið að fara fyrr að heiman en tilsett var. Þetta vildi Herdís ekki viðurkenna og stóð fast á sínum rétti, sem hún taldi vera, en líklega hefur Herdís verið eitthvað minni fyrir sér.

Krýsa

Krýsa Sveins Björnssonar í Krýsuvík og ÓSÁ.

Um þetta deildu þær langa stund, og á meðan sú deila stóð gekk Krýs svo fast að Herdísi, að hún varð að láta undan síga, austur af hálsinum og yfir dal þann, sem austur af honum er. Með hverju skrefi, sem Krýs gekk fram, en Herdís aftur, hitnaði skap þeirra, svo að heitingum varð. Tóku þær þá að biðja hvor annarri óbæna, ásamt jörðum þeirra. Herdís lagði það á Krýsuvíkina, að allur silungur í Kleifarvatni skyldi verða að loðsilungi og öfugugga, en báðar þessar fisktegundir taldar baneitraðar.

Herdísarvík

Herdísarvík – Herdísarvíkurtjörn.

Krýs lagði það á Herdísarvíkina, að ein eða fleiri skipshafni skyldu drukkna í Herdísarvíkurtjörn, sem er smátjörn, fyrir túni Herdísarvíkur, innan við sjávarkambinn. / Þegar hér var komið sögu, var Krýs búin að hrekja Herdísi á eystri brún dals þess, sem áður er nefndur. Þar sprungu þær báðar af heift og mæði. Smalarnir, sem fram að þessu höfðu aðeins verið áhorfendur að því, sem fram fór millum húsmæðra þeirra, hugðu nú til hefnda. Ekki segir frá viðuregin þeirra annað en það, að þar féll Herdísarvíkursmalinn, en hinn fór heim og kunni frá tíðindum að segja. Staður sá, þar sem konur sögunnar mættust, heiti síðan Deildarháls, og dalurinn þar austur af Kerlingadalur.

Stóra-Eldborg

FERLIRsfélgar – Stóra-Eldborg að baki.

Þar, sem úrslitaþátturinn í þessari landamerkjaáreið fór fram, sjást enn hinar fornu grjótdysjar, sem … sagt er að séu kuml þeirra Krýsar og Herdísar. Fram á síðustu áratugi mátti sjá votta fyrir dys smalans, sem þarna féll, og var það neðst í hlíðinni ofan vegar, en er nú að fullu horfið undir skriðuhlaup. Dys Herdíar er talin sú eystri, Krýsar hin vestari. Heyrzt hefur, að til forna hafi sýslumörk verið um Kerlingar, en svo er staður þessi ávallt nefndur, og hefur þá línan sennilega verið milli dysjanna, þannig að hvor kona lægi í sínu landi.“ Harðsporar, 109-111. Bjarni Einarsson lýsir dysinni svo: „Úr hraungrjóti, ca. 5 m í þvermál og 1 m há. Dysin er talsvert mosavaxin og í henni miðri er friðlýsingarhæll (laus). 2 m vestur af [henni] er [Krýs] … Gamla þjóðleiðin liggur austan við dysina og austan við leiðina, gegnt dysunum, er vörðubrot á kletti. … Ljósleiðari hefur verið lagður býsna nærri dysunum, þó ekki nær en 20 m.“

Húshólmi (bæjarstæði/bústaður)

Húshólmi

Húshólmi – uppdráttur ÓSÁ.

„Neðst í hrauninu [Ögmundarhrauni], austast, er Húshólmi, og eru þar allmiklar rústir eftir bæ. Þessi hólmi er niðri við sjó skammt vestan við bergið … Vestur úr útsuðurhorni Húshólma liggur hraunlág milli tveggja hraungarða. Skiptist í hún í tvær lágar, er heita Kirkjulágar. Þar eru rústir. Álitið er, að gamli Krýsuvíkurbærinn hafi staðið í Húshólma, enda er illmögulegt að kenna hann við vík, þar sem hann stendur nú. Bæjarrústin þarna er því nefnd Gamla-Krýsuvík. Suður og suðvestur af bæjarrústum þessum verður lægð nokkur í hraunstrauminn, og telja sumir, að þar hafi víkin verið, rétt vestan við Húshólmafjöruna. Rétt hjá rústinni heitir Kirkjuflöt.“

Húshólmi

Húshólmi – skáli.

Örnefnið Húshólmi kemur fyrst fyrir í trjáreikningi frá 1609 (AM 66a 8vo, 55r-56v) (sbr. Sveinbjörn Rafnsson: Um aldur Ögmundarharuns, 420). 1755: „Eldflóðið féll í sjó niður og eyddi nokkrum bæjum á því svæði, sem nú heitir Ögmundarhraun. Meðal þeirra var kirkjustaður, sem Hólmastaður hét, og sjást þar enn minjar kirkjugarðsins og húsatóttanna.“ segir í hinni prentuðu Ferðabók Eggerst og Bjarna. Í dagbók þeirra fyrir 31. maí 1755 segir hinsvegar: „Om Effter middagen forloed vi Krisevigen med alle, og Reiste moed NV. först over et Nyt hraun, Ogmundarhraun Kaldet, dette Steenfloed Har for omtrent 200. aar siden, brændt og rundet Ned fra fieldene hen til Söen over 2. miile lang vey og Naar den er Kommen Ned til det Skionne flade land som her har været udvidet sig alleveigne vel over 3. miile langs med Stranden, taget bort Nogle bajer sem her til forne har Staaet, og der i bland Eet Kirke Stæd som heed Holma Stadur med Kirken og alting, dog Seer man endnu paa Een liden plet der er bleven til overs lidet Stykke af (som det meenes) Kirke gaarden og faae Stykker af Husevæggene.“

Ögmundarhraun

Ögmundarhraun.

Um aldur Ögmundarhrauns, 420). 1817: „Hús-Hólmi, nidur vid sióin í sama Hrauni; hefur þar verid mikil Bygd, ádur brann, sem sést af Húsa TóptaBrotum, ad hvórium Hraunid géngid hefur, ad nordan -vestan-sunnan, – og næstum saman ad Austan-verdu; er þar 1t Tóptar-Form 12 Feta breidt, og 24 Feta Lángt, innan nidur fallina Veggia Rústa; Húsid hefur snúid líkt og Kyrkiur vorar, meinast gamalt Goda-Hof; fundid hafa Menn þar nockud smávegis af Eyrtægi; þar er tvísett Túngards form med 20 fadma Milli-bili, hvar nú er Ling Mói; enn Graslendi innan ynnri Gards, austanverdt vid Hraunid.“ [afmg. 2: Um Húshólma er einnig getið í þjóðsögum um Ögmund og Ö.hraun] – FF, 227.

Húshólmi

Skálatóft í Húshólma.

1840: „Austan til við [Ögmundarhraun] er kallaður Húshólmi. Þar eru stórar húsatóftir niður sokknar, og ein þeirra snýr eins og kirkjur vanalaega. Hefur það verið vel stórt hús. Þó sjást ei tóftirnar allar, því hraunið hefur hlaupið yfir þær að vestanverðu, hvað mikið veit maður ekki, þó til að geta eftir sjón á því sjáanlega yfir fullan helfming, því þar hefur vafalaust verið stórbygging. Þar eru 2r túngarðshringir og hér um bil 20 faðma bil milli þeirra.

Húshólmi

Húshólmi – garður. Landnámslagið er í garðinum.

Meina menn, að Krýsuvík hafi þar verið, áður hraunið hljóp þar yfir, en við það tilfelli verið flutt upp í fjallavikið, sem þar er þó töluvert langt frá. Við sjóinn er og vík, sem bærinn gat nafn af tekið, nl. Hælsvík nú nefnd.“ Sóknarlýsing Jóns Vestmann. 1883: „Á aðalhólmanum eru glöggir garðar, einn þeirra 300 m á lengd; þar er kallaður Kirkjuflötur. Á dálitlum bletti úti í hrauninu, rétt fyrir vestan aðalhólmann, eru bæjarrústir. Hefir hraunið að nokkru leyti runnið yfir þær, en nokkuð hefir orðið eftir, og standa veggirnir út undan hraunröndunum. Lengsta tóttin er 16 m, breidd hennar sést þar eigi fyrir hrauninu, sem runnið hefir yfir báða hliðarveggina; önnur, við enda hinnar þveran, er 10 m á lengd og 7 m á breidd, og hin þriðja sérstök rétt við, 10 m á lengd og 8 á breidd. Utan um hana, frá aðalrústunum, er boginn garður, líkur húsagörðum, sem fyrr tíðkuðust á Íslandi. Auk þess sjást tveir aðrir garðspottar. Grjótið í tóttum þessum er dólerít, sams konar og það grjót, sem undir hrauninu liggur.“

Húshólmi

Húshólmi – kirkjutóft.

„Hraunflóð það, sem á sínum stað er nefnt Ögmundarhraun, hefir eyðilagt hinn forna bæ. Sjást þess glögg merki. … Þar undir hraunjaðrinum [við Húshólma] kemur forn túngarður, er liggur kringum allstórt svæði, en hverfur aftur í hraunið niðurfrá eigi langt frá vesturenda sjávarkambsins, sem nú var getið. Annar garður kemur undan hraunjaðrinum nokkru neðar en hinn og stenfir í suðaustur. hann beygist suður á við og gengur gegnum hinn fyrra garð skamt fyrir ofan sjávarkambinn. Er þar hlið á hinum fyrra. Svo heldur þessi síðartaldi áfram að sjávarkambinum og hverfur þar. Er þar sem gata sé rudd gegnum kambinn, líklega sjávargata, er hér eigi allbrimsamt og mun hafa verið útræði.

Húshólmi

Húshólmi – skálatóft.

Fyrir neðan þennan síðartalda garð verður afhallandi brekka ofan að neðri hraunjaðrinum. Liggur þriðji garður þar ofan frá neðra garðinum að neðra hraunjaðrinum og hverfur undir hann. Þannig sér hér á 4 aðskildar girðingar, er allar hverfa að meiru eða minna leyti undir hraun. Engin tóft sést í neinni þessari girðingu, svo að, ef sín girðing hefur tilheyrt hverju býli, þá eru tóftir þeirra býla hrauni byrgðar.

Húshólmi

Tóftir í Kirkjulág vestan Húshólma.

Vestur úr útsuður horni hólmans gengur graslág milli tveggja hraunjaðra. Er hún eigi breiðari en svo, að eigi má ríða 2 hestum samsíða. Þegar samt er komið vestur í hraunið, kvíslast hún í tvær lágar. Þær heita Kirkjulágar. Þar eru rústir. Verður fyrst fyrir tóft, sem snýr frá austri til vesturs, nál. 4 fðm löng og 2 fðm. breið. Dyr eru á vesturenda, jafnvíðar og tóftin sjálf. Mun þar hafa verið þil fyrir. Norðanmegin við þessa tóft, tæplega 2 fðm. frá henni, er garður, sem beygist austur fyrir hana og hverfur þar undir hraunið, en að vestan endar hann í tóftarvegg. Er sú tóft fyrir dyrum hinnar, nálægt jafnstór henni og liggur fr´anorðri til suðurs. Dyr hennar hverfa undir hraunjaðarinn að sunnanverðu. Vestan við hana dýpkar lágin að mun, en er þar ekki víðari en svari tóftarvídd. Sé það tóft, hefir þar líklega verið kjallari, en hleðslan hrunin.

Húshólmi

Húshólmi – garður í Kirkjulágum.

Frá norðausturhorni þvertóftarinnar gengur garður eftir norðurláginni, fyrst beint í norður nál. 12 fðm., svo beint í vestur nær eins langt og hverfur svo í hraunið. Utan með þessum garði er svo sem gangrúm hraunlaust, og er það norðurkvísl Kirkjuláganna. Lítur út fyrir að hér hafi hraunið sigið að með hægð frá báðum hliðum. Svo sem 40 fðm norðar í hrauninu er auður vesturhluti rústar, sem auðsjáanlega er bæjarrúst. Hefir hún verið þrískift. Miðtóftin snýr frá norðri til suðurs og hefir dyr á suðurenda og aðrar á vesturveggnum, inn í vesturtóftina. Inn af miðtóftinni virðist og hús hafa verið, sem er hrauni hulið alt að kalla. Miðtóftin nál. 2 1/2 fðm. löng og 1 1/2 fðm víð. Vesturtóftin er jafnvíð og hin er löng, nfl. 2 1/2 fðm., ennál. 5 fðm á lengd. Hún er merkileg að því, að með báðum veggjum, eftir henni endilangri, eru 1 al. breið set eða rúmstæði og markar glöggt fyri vegjgjum þar utanvið. Austasta tóftin er nær öll hrauni hulin.

Húshólmastígur

Húshólmastígur.

Þó sýnist sem útidyr hafi verið á henni fyrir austan útidyr miðtóftarinnar. Hvergi er hraunlaus blettur kring um þessa rúst, og ekki veriður komizt að henni nema á hrauni. Nafnið Kirkjulágar bendir á, að hér hafi kirkjustaðurin Krýsuvík verið. Getur vel verið, að sú tóftin í syðri láginni, sem fyrst var talin, sé einmitt kirkjutóftin. Hefir heimabærinn þá víst verið þar líka. Rúsin uppi í hrauninu er þó ekki eftir smákot. Hygg ég að heimabæir hafi verið tveir, Efribær og Fremribær, og kirkjan verið hjá Fremri-bænum. Eftir afstöðu að dæma hafa girðingarnar, sem fyr getur, eigi verið tún þessara bæja, heldur annara afbýla, sem þá eru hrauni hulin.“

Húshólmi

Húshólmi – stekkur.

Bjarni Einarsson skráði fornleifar í Húshólma sumarið 2000. Hann getur þess að fjórar samsíða línur sem Brynjúlfur Jónsson sýnir þvert yfir hólmann ofanverðan séu „sennilega gamlar reiðgötur sem ekki sjást í dag.“ Á svipuðum slóðum skráir hann rúst. „Ca. 35 m NNV af hæl 17 250, í blásnum móa. … Nánast hringlaga, 8-9 m í þvermál. Veggir ógreinilegir, en úr torfi og grjóti, ca. 1,5 m breiðir og 0,1 – 0,5 m háir.
Talsvert rof er í kringum rústina og sjá má líklega hleðslusteina. Engar dyr sjást. Gólf er grasi og lyngi vaxið. Rofabarð við rústina var kannað og kom í ljós að rústin er eldri en 1226.“ Rúst þessi hefur hnitið 63°50.22 N 022°09.52 W. Önnur rúst í Húshólma er „Sunnan við jaðar hrauns í móa. … 6 x 11 m (A – V). Veggir úr grjóti ca. 0,5 – 1 m breiðir og 0,2 – 0,8 m háir. Tvö hólf eru á rústinni (A og B). Dyr eru á hólfi A til suðurs. Hólf B er ógreinilegt og dyr ekki sjáanlegar. Veggir á hólfi A eru mosavaxnir en á hólfi B eru þeir grasi- og mosavaxnir. Gólf er grasi gróið. Í norðurhluta hólfs A er einskonar skúti í veggnum. Er hann hlaðinn úr mun stærra grjóti en veggirnir.“ Rúst þessi hefur hnitið 63°50.26 N 022°09.34 W. Enn önnur rúst er „Ca. 4 m vestur af jaðri hrauns, í móa. … 2,5 x 3 m (A – V). Veggir úr grjóti, 0,3 – 0,5 m breiðir og 0,2 – 0,5 m háir. Dyr snúa til austurs eða norðausturs. Gólfið er vaxið lyngi.“ Þessi rúst hefur hnitið 63°50.25 N 022°09.44.

Húshólmi

Húshólmi – meintur grafreitur.

Ennfremur greinir Bjarni frá túnagrði í Húshólma: „Við austur jaðar Ögmundarhrauns í Húshólma. Í móa. Garðurinn er úr torfi, 1,5 – 2 m breiður og 0,2 – 0,6 m hár. Garðurinn gengur ca. 50-60 m út undan hrauninu í dálitlum boga. Beygir hann síðan til suðurs og er þar mjög ógreinilegur. Þessi hluti liggur rétt vestan við mikið rofabarð. Að endingu gegnur hann inn í annan garð (ca. 60 m sunnar) sem einnig gengur út úr hrauninu. … Grafið var í rof á garðinum skammt austur af þeim stað þar sem hann kemur undan hrauninu og því haldið fram að hann væri eldri en landnámsgjóskan frá 871-72. Landnámsgjóskan lá í pælunni, en ekki garðinum sjálfum.“

Óbrennishólmi (fjárskýli)

Óbrennishólmi

Óbrennishólmi – uppdráttur ÓSÁ.

„Þá er þar vestar og ofar [en Húshólmi] niður undan Latsfjalli annar grashólmi í hrauninu, Óbrennishólmi.“ segir í örnefnalýsingu. „Í [Ögmundahrauni] spölkorn hér frá [þ.e. Húshólma] er og óbrunninn hólmi og ófært hraun allt í kring nema einn lítill stígur, sem síðan hefur verið ruddur. Hólmi þessi nefnist Óbrennirshólmi. Þar er sagt smalinn hafi verið með heimilisféð, meðan hraunið hljóp yfir heila plátsið (þar eru og 2 misstórar fjárborgarústir), og að hann hafi ei getað komist undan því annað en á hól þennan, sem hraunið umkringdi,“ segir Jón Vestmann í sóknarlýsingu frá 1840. „Í Óbrennishólma sjást engar rústir, utan aflagur hringur, vel 5 fðm. í þvermál á hól einum, og er það án efa fjárborg.“ segir Brynjúlfur Jónsson í skýrslu frá 1903. „Þessi rúst er enn greinileg. Hún er á hól syðst í hólmanum.“ segir Jón Jónsson í grein um Ögmundarhraun frá 1983.

Óbrennishólmi

Óbrennishólmi – fjárborg/virki.

Guðmundur Ólafsson skoðaði staðinn 23.7.1980, mældi hann og ljósmyndaði. „Í Óbrennishólma sjást engar rústir, utan aflagur hringur, vel 5 fðm. í þvermál á hól einum, og er það án efa fjárborg. Og þar litlu vestar liggur langur og digur garður þvert uppeftir. Slitin er hann sundur sumstaðar nú, en eigi mun svo hafa verið í fyrstu, Á einum stað t.d. hverfur hann undir hraunnef, en kemur undan því aftur hinu megin. Efst hverfur hann undir hraunnef. Tilgangur garðs þessa er mér óljós, nema hann hafi verið landamerkjagarður milli Krýsivíkur og næstu jarðar fyrir vestan.“
8.8.1979: „Efst og austast í hólmanum rakst ég þá á hleðslu úr grjóti, sem hverfur inn undir hraunið. Við nánari athugun kom í ljós að þarna hefur verið – sennilega – fjárbyrgi eða rétt, sem hraunið hefur runnið inn í og yfir.
Það hefur runnið í lækjum yfir hleðsluna og jafnvel smogið inn milli steinanna.“ segir Jónsson í grein um Ögmundarhraun frá 1983.
Guðmundur Ólafsson skoðaði staðinn 23.7.1980, mældi hann og ljósmyndaði.

Ögmundastígur (leið)

Ögmundarstígur

Ögmundarstígur.

„Einkum er mjó hraunkvísl, Ögmundarhraun, andstyggileg. Yfir hana hefur verið ruddur þröngur og djúpur troðningur, og gerði það einn maður að sögn, er Ögmundur hét. Skyldi hann hafa ákveðið gjald af hverjum þeim, er um veginn færi, fyrir fyrirhöfn sína. Launin urðu þau, að hann var myrtur austan við einstigið (þar sem hann hefur ef til vill haft tollbúð sína), og sést þar enn steindys, sem á að vera leiði hans,“ segir Sveinn Pálsson í skýrslu um Reykjanesför 1796.

Ögmundardys

Jón Guðmundsson á Skála við Ögmundardys.

„Ögmundar-Hraun,…tekur Nafn af Fornmanni nockrum, sem ruddi Veg yfir þad, 480 Fadma; og féck til launa, Loford fyrir Dóttur Bóndans á Ísólfs-Skála; enn var af hónum drepinn sofandi, þá Þrautin var unnin. Leidi hans er í Hraunbrúninni austanverdt, aldeilis ómarkverd Dys. Er hér sídan alfara vegur, miklu skémmri, sem adur lá nordur i Fjóllum nærri Hrauns upptókum.“ FF,227. [svipað hjá BJ Tillag til… 1953,101-2, sbr. Jón Árna. IV, 1956, 133-4. Annars k. saga er hjá Sveini Pálssyni Ferðabók Rv. 1945,661] „Úr því að ég minnist á Ögmundarhraun, sem liggur skammt vestur af Krýsuvík, milli Mælifells og Latfjalls, og gengur í sjó fram vestan Kr’ysuvíkurbergs, afar illt yfirferðar, nema um einstígi það, sem í það hefur verið rutt endur fyrir löngu, þá get ég hér þeirrar sagnar, sem um þá vegarbót er sögð. Bóndinn í Krýsuvík átti þræl þann, er Ögmundur hér, og lagði sá hug á dóttur bónda, sem ekki hefur bóndi kært sig um þær mægðir; samt gaf hann Ögmundi kost konunnar, en nokkuð skyldi hann til vinna, sem sé það að ryðja veg gengum hraun það er fyrr getur. Tók þrællinn tilboði bónda, en ekki hef og lauk verkinu á tilsettum tíma, en launin urðu þau sömu sem þeir bræður Halli og Leiknir hrepptu, eftri að hafa rutt veg um hið illfæra Berserkjahraun, – dauðinn; hann var veginn að undirlagi bónda, og er dys hans við austurbrún hraunsins við Mælifell, og heitir hraunið síðan Ögmundarhraun.“

Ögmundarstígur

Ögmundarstígur.

1840: „Ögmundarhraun. Áður en það var rutt, varð að fara vestur yfir hálsa fyrir endann á hraunsuppkomunni, þegar fara þurfti til Njarð- eða Keflavíkur. Bóndinn í Krýsuvík, að nafni Gissur, átti dóttur. Hennar bað lausingi nokkur, tröllmenni að stærð og kröftum. Bóndi vildi ei gifta dóttur sína fúlmenni þessu, en treystist ei að standa í móti hönum, tekur því það ráð að lofa hönum stúlku þessari, ef hann vilji vinna það til hennar að gjöra færan veg yfir hraunið, þar sem beinn yrðu vegur til Suðurnesja. Þetta verk tókst hinn á hendur og framkvæmdi það duglega, en lagðist til svefns að loknu verki austan til við hraunbrúnina, en bóndi lá í leyni í hraungjótu, ætlaði hinum stundir að sofna vært og drap hann sofandi. Þar er dys hans, sem drepinn var og hraunið síðan við hann kennt.“ segir Jón Vestmann í sóknarlýsingu frá 1840. „Frá Borgarhólum heldur leiðin í áttina að Ísólfsskála og áfram til Grindavíkur. Liggur hún þar bæði yfir blásna móa og úfið hraun. Í hinu úfna hrauni er leiðin yfirleitt rudd, ca. 3 m breið. Fornleiðin er vörðuð nær alla leiðina frá Krýsuvík að Ísólfsskála. Alla vega á einum stað er vísir að brú (veghleðsla) þar sem leiðin fellur ofan af stalli niður á hraun skammt vestur af Litlahálsi … Núverandi vegur hefur verið lagður ofan í gömlu leiðina frá Skalla og vestur að Ísólfsskála. Sömuleiðis hefur núverandi vegur legið yfir leiðina á stöku stað vestur af Ísólfsskála.“ segir í skýrslu um fornleifar við Suðurstrandarveg.

Ögmundarleiði (legstaður)

Ögmundardys

Ögmundardys austast við Ögmundarstíg.

„Einkum er mjó hraunkvísl, Ögmundarhraun, andstyggileg. Yfir hana hefur verið ruddur þröngur og djúpur troðningur, og gerði það einn maður að sögn, er Ögmundur hét. Skyldi hann hafa ákveðið gjald af hverjum þeim, er um veginn færi, fyrir fyrirhöfn sína. Launin urðu þau, að hann var myrtur austan við einstigið (þar sem hann hefur ef til vill haft tollbúð sína), og sést þar enn steindys, sem á að vera leiði hans.“ segir Sveinn Pálsson í skýrslu um Reykjanesför 1796. „Ögmundar-Hraun,…tekur Nafn af Fornmanni nockrum, sem ruddi Veg yfir þad, 480 Fadma; og féck til launa, Loford fyrir Dóttur Bóndans á Ísólfs-Skála; enn var af hónum drepinn sofandi, þá Þrautin var unnin. Leidi hans er í Hraunbrúninni austanverdt, aldeilis ómarkverd Dys. Er hér sídan alfara vegur, miklu skémmri, sem adur lá nordur i Fjóllum nærri Hrauns upptókum.“ FF,227. [svipað hjá BJ Tillag til… 1953,101-2, sbr. Jón Árna. IV, 1956, 133-4. Annars k. saga er hjá Sveini Pálssyni Ferðabók Rv. 1945,661]. „Úr því að ég minnist á Ögmundarhraun, sem liggur skammt vestur af Krýsuvík, milli Mælifells og Latfjalls, og gengur í sjó fram vestan Krísuvíkurbergs, afar illt yfirferðar, nema um einstígi það, sem í það hefur verið rutt endur fyrir löngu, þá get ég hér þeirrar sagnar, sem um þá vegarbót er sögð.

Ögmundastígur

Dys Ögmundar við Ögmundarstíg í Ögmundarhrauni.

Bóndinn í Krísuvík átti þræl þann, er Ögmundur hér, og lagði sá hug á dóttur bónda, sem ekki hefur bóndi kært sig um þær mægðir; samt gaf hann Ögmundi kost konunnar, en nokkuð skyldi hann til vinna, sem sé það að ryðja veg gengum hraun það er fyrr getur. Tók þrællinn tilboði bónda, en ekki hef og lauk verkinu á tilsettum tíma, en launin urðu þau sömu sem þeir bræður Halli og Leiknir hrepptu, eftir að hafa rutt veg um hið illfæra Berserkjahraun, – dauðinn; hann var veginn að undirlagi bónda, og er dys hans við austurbrún hraunsins við Mælifell, og heitri hraunið síðan Ögmundarhraun.“ „Austan við hraunið [Ögmundarhraun] í rótum Mælifells er Ögmundarleiðið, þar sem Ögmundur sá, sem hraunið er við kennt, á að vera grafinn. … Ögmundardysið eða leiðið er vestan undir Krýsuvíkur-Mælifelli …“
1840: „Ögmundarhraun. Áður en það var rutt, varð að fara vestur yfir hálsa fyrir endann á hraunsuppkomunni, þegar fara þurfti til Njarð- eða Keflavíkur. Bóndinn í Krýsuvík, að nafni Gissur, átti dóttur. Hennar bað lausingi nokkur, tröllmenni að stærð og kröftum. Bóndi vildi ei gifta dóttur sína fúlmenni þessu, en treystist ei að standa í móti hönum, tekur því það ráð að lofa hönum stúlku þessari, ef hann vilji vinna það til hennar að gjöra færan veg yfir hraunið, þar sem beinn yrðu vegur til Suðurnesja. Þetta verk tókst hinn á hendur og framkvæmdi það duglega, en lagðist til svefns að loknu verki austan til við hraunbrúnina, en bóndi lá í leyni í hraungjótu, ætlaði hinum stundir að sofna vært og drap hann sofandi. Þar er dys hans, sem drepinn var og hraunið síðan við hann kennt.“ segir Jón Vestmann í sóknarlýsingu frá 1840.

Hettuvegur (leið)

Hetturvegur

Hettuvegur.

„[Drumbsdalavegur liggur yfir Sveifluháls milli Krýsuvíkur og Vígdísarvalla] Þar norður frá er hóll, sem heitir Bleikshóll, og þar niðurundan í norðurhlíðum hálsins er dalur, sem heitir Bleikingsdalur. Þá er vegur sem heitir Hettuvegur eða Móhálsavegur. Ekki kann ég að staðsetja veg þennan.“
1883: „Síðan fórum við frá Vigdísarvöllum yfir Sveifluháls að Krýsuvík um Hettuveg (285 m), sem heitir eftir háu fjalli rétt sunnan við námurnar. Vegur þessi er allbrattur og eru hálsarnir báðir örmjóir að ofan, sagyddir og klungróttir, allir úr móbergi.“ – ÞT Ferðabók I, 184.

Ketilstígur (leið)

1755: „Hverirnir í Krýsuvík liggja í dalverpi undir háum fjöllum á eldbrunnu landsvæði. Gatan niður af fjallinu í dal þenna heitir Ketilstígur. Hann er stuttur, en allbrattur.“ segir í ferðabók Eggerts og Bjarna. „Arnarvatn er í lægð á hálsinum, og í gegnum þá lægð liggur vegur, sem nefndur er Ketilstígur. Ef komið er norðan frá yfir hálsinn, liggur hann fyrst upp bratt klettahögg, og þegar upp á það er komið, blasir Ketillinn við, en það er  kringlóttur djúpur dalur eða skál niður í fjallið … Framan við Ketilstíg er Bleiksfflöt. Sunnan við Ketilstíg niðri heitir Fagraflöt.“
Henry Holland lýsir leiðinni milli Hafnarfjarðar og Krýsuvíkur 1811 – Dagbók í Íslandsferð 1811, 80-82.

Ketilsstígur

Ketilsstígur.

William Hooker lýsir Ketilsstíg 1809 – Ferð um Ísland 1809, 141-42. 1840: „Þegar komið er hér um bil í miðjan [Móhálsadal] liggur leiðin suðaustur til fjalla, yfir esytri Móhrygginn, og er þar fast hjá gígur einn í hálsinum, skammt ofan við dalbotninn. Þessi gamli gígur hefur nú að nokkru fyllst upp og gróið, hann er kringlóttur og var eitt sinn mjög djúpur; heitir hann Ketill og tekur vegurinn nafn sitt af honum og kallast Ketilsstígur. Þar er hálsinn nokkuð hár en ekki breiður og þegar kemur yfir hann eru nyrstu brennisteinsnámarnir í Krýsivík rétt við fætur manns.“ Jónas Hallgrímsson, Ritverk III, 366. 1840: „Frá Krýsuvík liggur annar vegur til [Hafnarfjarðar], nefndur Ketilsstígur, 3 partar úr þingmannaleið að lengd, grýttur og brattur sem hinn … Litli-Nýibær í Krýsuvík er næst við Ketilsstíg … Ás í Garðasókn á Álftanesi er næsti bær við Ketilstíg að vestan.“ SSÁ, 222.

Ketilsstígur

Ketilsstígur.

1879: „Stuttur fjallvegur, en brattur liggur yfir hálsinn til Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Er af honum fagurt útsýni yfir fjörðinn til fjallanna fyrir norðan. Einnig er leiðin sem liggur af hálsinum niður að bænum í Krýsuvík talin mjög eftirtektarverð, því að hún bugðast að nokkru milli sjálfra námanna, og verður að gæta vel að sér að stíga ekki niður úr leirskorpunni, sem er laus og brothætt, en oft leynist undir sjóðandi leðja.“ Kålund I, 29.

Sogasel (sel)

Sogasel

Í Sogaseli.

„Norðan við Grænavatnseggjar [hæð vestan Djúpavatns og er smávatnið Grænavatn á henni.], Engjaháls og Djúpavatn er lægð gegnum fjöllin, sem heitir Sog. …

Sogasel

Selin við Sogagíg og vegslóðinn upp að efra borstæðinu. – Uppdráttur ÓSÁ.

Vestan í Sogunum er sel, sem heitir Sogasel.“ segir í örnefnalýsingu Krýsuvíkur. Selsvellir ná inn að Grænavatnseggjum er svo nefnist brúnin á hálsinum, þar sem Grænavatn er austur af…Grænavatnseggjar ná inn i Sog. Sogin eru gilskorningur í Vesturhálsinum.

Sogaselsdalur er grasigróinn gýgur vestast í Sogunum og þar var sel frá Flekkuvík.“, segir í örnefnaskrá fyrir Vesturháls.
Guðrún Gísladóttir getur Sogasels í skýrslu frá 1993 og birtir af því uppdrátt: „Seljarústirnar eru þrjár. Sú austasta er í bestu ásigkomulagi. Þarna var haft í seli um 1703 frá Kálfatjörn í Vatnsleysustrandarhreppi, en síðar einnig frá Bakka.“

Selatangar (verbúð)

Selatangar

Selatngar – uppdráttur ÓSÁ.

1703: „Jörðin á í sínu landi, en þó allfjarri, skipsuppsátur og brúkar heimabóndinn það um vertíð fyrir sig og hjáleigumenn sína. Öngvar eru þar verbúðir aðrar. Og er þó lendíng merkilega slæm, heitir plátsið á Selatöngum.“ segir í jarðabók Árna og Páls.

Selatangar

Selatangar – fiskbyrgi.

1756: „Selatangi við Krýsuvík er lítill, en vel fallinn til sjósóknar, en ströndin er klettótt og lending ill sakir brima.“ segir í Ferðabók Eggerts og Bjarna. „Þegar kemur vestur fyrir Miðrekana og landinu fer að sveigja til norðurs, taka við Seltangar. … Á Seltöngum var fyrrum mikil útróðrarstöð og verstöð. Er þar enn allmikið af búðarústum og fiskigörðum til herzlu á fiski. Hér er mikið af hraunhellum, þótt flestir séu þeir litlir, voru þeir notaðir til ýmissa hluta og hlutu nöfn af. Nokkru eftir 1880 lagðist útræði hér niður að fullu og öllu.“ segir í örnefnalýsingu Krýsuvíkr. „Austan við Hraunnef [þar sem leiðin er hálfnuð út í Selatanga er]…Veiðbjöllunef…Austan við Veiðbjöllunef kemur Mölvík…þar upp af Mölvík austan til heitir Katlahaun…Austast í Katlahrauni er Nótarhellir og gengur í sjó fram…Fyrir austan Nótarhelli er sandfjara og síðan taka við Selatangar.“, segir í örnefnaskrá Ísólfsskála. „Nokkuð austan við bæinn á Isólfsskála, sem svarar klukkutíma gang, gengur tangi fram í sjóinn. Hann heitir Selatangar.“, segir í örnefnaskrá AG um Ísólfsskála.
FRIÐLÝSTAR MINJAR. „Verbúðatóftir, fiskbyrgi, fiskigarðar og önnur gömul ammnvirki í hinni fornu verstöð á Sealtöngum.“ Friðlýst (í landi Ísólfsstaða) 01.09.1966, þinglýst 05.09.1966.

Selatangar

Selatangar – verbúð.

„Á Selatöngum var aldrei föst búseta, heldur einungis útver með nokkrum verbúðum. þaðan var einkum útræði Krýsuvíkurmanna, en Krýsuvík fylgdu lengi nokkrar hjáleigur. Til er gömul þula sem telur 73 menn við róðra í Krýsuvík. Ástæðan fyrir þeim kveðskap er sögð vera sú, að strákur einn hafi orðið mötustuttur í verinu. Buðust þá hásetar á skipum þeim sem þar reru að gefa honum mötu til vertíðarloka, ef hann kæmi nöfnum þeirra allra í eina þulu: Tuttugu og þrjá Jóna telja má,/ tvo Árna, Þorkel, Svein./Guðmunda fimm og Þorstein, þá/ Þorvald, Gunnlaug, Freystein. / Einara tvo, Ingimund, Rafn, / Eyvind, tvo Þórða þar. / Vilhjálmur Gesti verður jafn / Vernharður, tveir Bjarnar / Gissura tvo, Gísla, Runólf, / Grím, Ketil, Stíg, Egil. / Erlenda þrjá, Bernharð, Brynjólf, / Björn og Hildibrand til. / Magnúsar tveir og Markús snar / með þeim hannes, tveir Sigurðar. / Loftur, Hallvarður, Hálfdán, senn / þar sezt hann Narfa hjá. / Á Selatöngum sjóróðramenn / sjálfur Guð annist þá.

Selatngar

Seltangar – austasta sjóbúðin.

Þótt aldrei væri stórt útver á Selatöngum eru þar þó talsverðar verminjar. Þaðan var seinast róið 1884.“ Íslenskir sjávarhættir II, 37-38. Guðrún Gísladóttir lýsir rústunum svo í skýrslu frá 1993: „Þarna eru nú minjar um verbúðir, fiskbyrgi og garðhleðslur sem eru að mestu horfnar. Rústirnar eru margar og er hægt að telja þær upp undir 20, auk garðhleðslanna sem eru á hraunnefunum og eru nú að mestu horfnar. Á vestustu hraunnibbunni er verbúð og rústir auk garðhleðsla (rúst A á 4. mynd). á næstu nibbu austan við eru rústir sömu leiðis en hraunnibban er aðgreind frá þeirri vestari af sandi. Hinar rústirnar eru svo á þriðju nibbunni sem myndar samfelldara og stærra svæði en hinar og þar eru líka felstar rústirnar. Austast á þessu svæði er önnur verbúðatóft og byrgi í líkingu við það sem er vestast (rúst B á 4. mynd). Utan í hraunflákanum að austan eru fyrirhleðslur við skúta sem virðast hafa verið notaðir af fé. Margar hleðslurnar hafa farið verulega illa í flóðum undanfarin ár.

Selatngar

Selatangar – sjóbúðin vestari.

Verbúðartóftin vestari er undir hraunbrúninni og er mjög fallin, þó má greina húsaskipan. Rústin er hlaðin úr grjóti og torfi en hraungrjót er meginbyggingarefnið, enda hefur skort torf í hraunhafinu sem umlykur Selatanga að sjó. Við rústina að norðan- og sunnanverðu eru byrgi sem þarf að varðveita. Allt í nágrenninu eru svo hlaðnar rústir sem þarf að huga að. Nokkur byrgi eru uppistandandi og vel farin og slaga þau uppí að vera mannhæðarhá. … Stórflóðin á undanförnum árum hafa farið illa með rústirnar. Rústirnar eru á hraunnibbum sem skaga út frá Ögmundarhauni og utan í þeim.“ „Á Selatöngum var allmikil útgerð frá Skálholti í eina tíð, en lagðist fyrst niður um tíma eftir Básendaflóðið 1799 og svo að fullu og öllu milli 1880 og 1890. Þarna eru byrgi og búðatættur, sem eru nú friðlýstar. Dágon var klettur á kampinum suður af vestustu sjóbúðinni á Selatöngum er er nú hruninn…Skiptivöllur er smáhæð fyrir austan Dágon, grasivaxin að ofan. Sjóbúðirnar standa austan undir Skiptivelli á hraunefi.“, segir í örnefnaskrá Ísólfsskála. „Á Selatöngum sjást byrgi og búðatættur, eldhús og önnur mannvirki, enda var þarna allmikil útgerð fyrir eina tíð…“, segir í örnefnaskrá AG um Ísólfsskála.

Tangadraugur (draugur)
„Á Seltöngum [045] hafðist við um eitt skeið hinn nafnkunni Tangadraugur (Tanga Tumi), sem talinn var hversdagslegur fremur meinlítill, en þá er á hann rann jötunmóður, gat hann orðið svo fyrirferðarmikill, að hann „fyllti út í fjallaskörðin“ að því er Beinteinn gamli í Arnarfelli sagðist frá.“

Vigdísarvellir (sel/bústaður)

Vigdísarvellir

Vigdísarvellir – uppdráttur ÓSÁ.

1703: Hjáleiga Krýsuvíkur en nýtt sem selstaða frá Þorkötlustöðum. „Selstöðu brúkar jörðin [Þorkötlustaðir] og hefur lengi brúkað í Krýsuvíkurlandi, þar sem heitir á Vigdísarvöllum, segja menn að selstaðan sje ljeð frá Krýsuvík, en Krísuvík aftur ljeð skipstaða fyrir Þorkötlustaðalandi.“JÁM III, 14. Býlið var vestan við Sveifluháls en undir Núpshlíðarhálsi segir í örnefnalýsingu Krýsuvíkur.

Vigdísarvellir

Vigdísarvellir.

1840: Vigdísarvellir eru nýbýli frá 1830 en voru áður selstaða – SSÁ, 220, 221. Var í eyði um 1880 en byggðist á ný fram yfir aldamótin 1900 – Saga Grindavíkur II, 86-87.
„Vigdísarvellir og Bali höfðu sínar eigin engjar og nærtækar, er og um nokkuð langan veg og einkar torsóttan að sækja þaðan á Krýsuvíkurengjar.“ Ólafur E Einarsson: Höfuðbólið Krýsuvík og fjórtán hjáleigur þess“.
„Undir Núpshlíðarhálsi norðan hrauns tekur við hraunlaust graslendi, sem heitir Vigdísarvellir. Þarna voru tvær hjáleigurnar, Vigdísarvellir, … og Bali.“ “ … 1879 féll sterk baðstofa á Vigdísarvöllum, en … (í) jarðskjálftunum 28. og 29. janúar 1905 … hrundu eða stórskemmdust öll hús á Vigdísarvöllum og á Litla-Nýjabæ.“ – ÞT Ferðabók I, 184.

Bali (bústaður)

Vigdísarvellir

Vigdísarvellir – Bali.

Hjáleiga Krýsuvíkur, ekki nefnd í jarðatali 1703. Býlið var vestan við Sveifluháls en undir Núpshlíðarhálsi segir í örnefnalýsingu Krýsuvíkur. Þar er fyst getið búsetu árið 1840 og síðast 1850 – Saga Grindavíkur II, 87.
„Vigdísarvellir og Bali höfðu sínar eigin engjar og nærtækar, er og um nokkuð langan veg og einkar torsóttan að sækja þaðan á Krýsuvíkurengjar.“ Ólafur E Einarsson: Höfuðbólið Krýsuvík og fjórtán hjáleigur þess“.
„Undir Núpshlíðarhálsi norðan hrauns tekur við hraunlaust graslendi, sem heitir Vigdísarvellir. Þarna voru tvær hjáleigurnar, Vigdísarvellir, … og Bali.“

Ísólfskáli (bústaður)

Isólfsskáli

Ísólfsskáli 1920.

16 hdr. 1840, óviss 1703. Eign Skálholtsstaðar. JÁM III, 8. Aðrar orðmyndir nafnsins eru Ísuskáli og Ísiskáli. Saga Grindavíkur I, 142.

Ísólfsskáli

Ísólfsskáli – uppdráttur ÓSÁ.

1703: „Við til húsabótar hefur ábúandinn af reka þegar hann heppnast…Tún sendið mjög og liggur undir skriðum. Engjar öngvar. Útigángur mjög lakur…Grasa og sölvatekja er í fjörunni að nokkru gagni. Selveiði hefur áður nokkur verið og kynni enn að vera, ef ágreiningslaust væri við Krýsuvíkur ábúendur. En hjer eru misgreiningar nokkrar um landamerki og vita menn óglögt, hvör þessi hlunnindi má með rjettu brúka…Heimræði er af jörðunni vetur og sumar, en lendíng bág og brimasöm…Torftekja til húsaþaks og heytorfs sendin, og mjög bæði gagnslítil og erfið. Vatnsból er erfitt bæði til nautnar fyrir menn og peníng sumar og vetur…“ JÁM III, 8-9.

Ísólfsskáli

Ísólfsskáli.

1840: „Slétt tún eru á ísuskála, en lítil rækt er í þeim; litlir eru hagar þar og fremur graslítið pláss, því fellin þar um kring að norðanverðu eru ber og graslítil eins og líka hraunið þar strax fyrir sunnan, sem nær allt til og þó langt austur fyrir Selatanga. Er þar líka vatnsskortur mikill nema fjöruvötn, sem bæði eru brúkuð til neyzlu og handa fénaði.“ segir í sóknarlýsingu, Landnám Ingólfs III, 141.
„Gamli Ísólfsskáli var upp af Skálabót undir Bjallanum vestast. Þar eru nú húsatættur.“, segir í örnefnaskrá.
„Á Ísólfsskála féll eldhús [í jarðskjálftum 28. og 29. janúar 1905].“ – ÞT Ferðabók I, 184. Athugasemd á túnakorti: „Bærinn fluttur frá sjó, bygður að stofni og kálgarðar árið 1916. Jörðin hafði þá verið í eyði 3 ár.“

Selsvellir (sel)

Selsvellir

Selsvellir – uppdráttur ÓSÁ.

„…Hraunsseli, sem eru tættur sels frá Hrauni í Grindavík. Þrengslin eru þar innar með hálsinum þar sem hraunið gengur næst hálsinum að vestan. Síðan taka við Selsvellir og þar upp af Selsvallafjall. Selsvellir ná inn að Grænavatnseggjum er svo nefnist brúnin á hálsinum, þar sem Grænavatn er austur af…Grænavatnseggjar ná inn í Sog. Sogin eru gilskorningur í Vesturhálsinum. Sogaselsdalur er grasigróinn gýgur vestast í Sogunum og þar var sel frá Flekkuvík.“, segir í örnefnaskrá Vesturháls.

Selsvellir

Eitt af gömlu seljunum á Selsvöllum.

Staður í Grindavík átti selstöðuna á Selsvöllum, sbr. 1703: „Selstaða góð til haga, en lángt og erfitt að sækja, hefur þó hjeðan frá staðnum brúkuð verið lxxx ár á Selsvöllum.“ – JÁM III, 22. 1840: „Eftir jarðabókinni 1760 á Staður selstöðu á Selsvöllum, þó það nú sýnist orðið almennings selstaða úr allri Grindavík.“ segir í sóknarlýsingu og ennfremur: „Selsvellir eru héðan í landnorður upp í fellum, og er Keilir, þegar í sel þetta er komið, rétt í útnorður. Stendur selið í Strandarmannalandi eður fyrir norðan Grindavíkur landamerki. Þar er allgrösugt, en bízt fljótt upp, því allir bæir í sókninni nema Hraun hafa þar í seli, og þó að engu goldið Staðarprestinum. Vilja menn hér, gjöra þessa selstöðu almenning, og þyrfti þó ei að vera. … Sú mun og orsök, að allir hafa þyrpzt á Selsvelli, því þar er dálítill rennandi lækur rétt við selið.“ Landnám Ingólfs III, 134. 1844:

Selsvellir

Á Selsvöllum.

“ … í bréfi sr. geirs Bachmanns til biskups árið 1844 … segir hann … að hann hafi notað sér selstöðuna á Selvöllum ásamt tveimur hjáleigubændum. Það hafi forverar sínir líka gert þegar þeir hafi verið það fénaðarmargir, að þeim hafi fundizt það borga sig. Þegar prestur notaði sér ekki selið, fóru sóknarbændur að fara með fénað sinn á Selvelli, í fyrstu með leyfi sóknarprests og keyptu þá af honum selhúsin.

Selsvellir

Selstaða á Selsvöllum.

Í tíð sr. Geirs var svo komið, að ásamt honum höfðu 6 bændur í seli á Selvöllum. Áttu þeir allir selhús þar og var fénaður þeirra um 500 fjár, ungt og gamalt, og um 30 nautgripir. Kvartar prestur yfir því, hve lítil not honum séu að selinu þegar slíkur skepnugrúi gangi á Selvöllum. Þetta valdi því líka, að reka verði allan selfénaðinn horaðan og nytlausan heim að bæjum einatt í 17. viku sumars (fyrir miðjan ágúst). Þessir bændur töldu sig eiga jafnan rétt til selstöðu eins og Staðarprestur, sumir jafnvel meiri. Var nú svo komið, að í stað þess, að Staðarprestur hefði átt að hafa talsverðan arð af selstöðu þessari hafði hann, að dómi sr. Geirs, af henni óbætanlegan skaða vegna þess hve nytlítill og rýr peningur hans verður meðan slíkur fjöldi fjár er á Selvöllum og fyrr er lýst. Þannig var selstaða prestssetursins „leyfis- og borgunarlaust brúkuð eins og almennings eða allra selstaða væri þeirra hér í sókn, sem hana nýta vildu“. Ef þessu héldi fram, yrði selstaðan ekki einungis arðlaus fyrir Stað heldur ónýt með öllu fyrir „óhemju átroðning og yfirgang“.“

Selsvellir

Stekkur/rétt á Selsvöllum.

„Selvellir eru stórar grassléttur norður með hálsinum norðanverðum, allt norður fyrir Trölladyngju. Er þar ágætt haglendi og vatn nóg, lækur, sem fellur úr hálsinum niður undir hraunið. Þar hefir áður verið sel frá Stað í Grinavík, en er nú af tekið. Sjást þar enn tvennar eða þrennar seltóttir. Nú hafa menn þar nokkurs konar afrétt og reka þangað fé og hesta, enda er þar fríðara land og byggilegra en víða þar, sem mikil byggð er. Væri það nóg land fyrir 2-3 bæi, því bæði eru slægjur nógar á völlunum og ágæt beit á hálsinum.“ ÞT Ferðabók I, 180. Guðrún Gísladóttir lýsir tóftum á Selsvöllu í skýrslu frá 1993: „Á Selsvöllum eru rústirnar mjög fallnar en má þó vel greina þær enn. … Þarna eru rústir í hraunjaðrinum sem liggur vestan Selsvalla og uppi undir hlíðinni. Haft var í seli á Selsvöllum þegar á 17. öld og jafnel fyrr. Selstaðan tilheyrði prestsetrinu á Stað í Grindavík. Um miðja 19. öldina var gróður og jarðvegseyðing þó orðin svo alvarleg að bændur í Grindavík höfðu nánast allir í seli á Selsvöllum við fátæklegar undirtektir Staðarprestsins.“ – Árið 1703 hföfðust útileguþjófar við í helli við Selsvelli og í helli hjá Hvernum eina í nokkrar vikur – þeir voru gripnir og hengdir á alþingi sama ár – Ólafur Briem í Útilegumenn og auðar tóttir.

Drykkjarsteinn (þjóðsaga)

Drykkjarsteinn

Drykkjarsteinn.

„…Mælifellsskarð. Vestan þess tekur svo við fjall allmikið, sem heitir Slaga…Norðanvert við Slöguna er Drykkjarsteinn.“, segir í örnefnaskrá AG. „Drykkjarsteinsdalur er norðan við Slögu vestanvert. Þar í er Drykkjarsteinn. Það er stakur móklettur við fjallshlíðina með nokkuð djúpa skál en litla um sig, og þar stóð oftast vatn í, sem var kærkomin svölun ferðamönnum, því lítið er um yfirborðsvatn á þessum slóðum. Skálin er nú sprungin og ekkert vatn þar lengur að hafa.“, segir í örnefnaskrá.

Frykkjarsteinn

Drykkjarsteinn.

„Hans er víða getið, vegna þess að þar fengu ferðamenn oft svölun. Hans er einnig getið í þjóðsögum.“, segir í örnefnaskrá AG. 1840: „… frá Krýsuvík út eða vestur til Grindavíkur, annar [vegur], og til Njarðvíkur sá vestlægari vegur. Skiptast þeir hjá Drykkjarsteini, markverðum þess vegna, að í enni stærstu holu, sem í hönum eru, fæst eður hefur oftast verið vatn, nema máske í allra langvaranlegustu þerrum, til svölunar ferðafólki á þessum langa vatnslausa vegi. En fyrir fáum árum síðan skyldu nokkrir ferðamenn örmæddir af þorsta ekki hafa fundið vatn í steinsholunni og einn þeirra fyrir þann skuld ósæmt í hana, og er sagt, að síðan hafi hún verið jafnan þurr. … Steinn þessi stendur á þurru aurmelsholti.“ segir í lýsingu Selvogsþinga 1840. 1883: „Frá Ísólfsskála riðum við upp á Selvelli við Núpshlíðarháls. Á leiðinni er á einum stað, á hálsi nokkru fyrir norðaustan Ísólfsskála, svokallaður Drykkjarsteinn. Það er stór móbergssteinn með djúpum holum í. Sezt þar stundum vatn í holurnar, og er það kærkomið ferðamönnum í sumarhita.“ ÞT Ferðabók I, 180.

Hraunssel (sel)

Hraunssel

Hraunssel.

„Austan við mitt Sandfell er götuslóði yfir hraunið austur í Hraunssel fremst. Inn með Núpshlíðarhálsinum að vestan eru tættur, sem Hraunssel heita.“, segir í örnefnaskrá.
„…sem eru tættur sels frá Hrauni í Grindavík.“, segir í örnefnaskrá Vesturháls. 1840: „Litlu vestar en Selsvellir er selstaða frá Hrauni; hér er árlega haft í seli frá bæ þessum, og eru landamerkin milli seljanna í svo kölluðum Þrengslum.“ segir í sóknarlýsingu. 1883: „Komum við fyrst að Hraunsseli (155 m). Það er nú í rústum, en ágætt grras er í kring og dálítil vatnsdeigla í klettunum fyrir ofan.“ ÞT Ferðabók I, 180. Guðrún Gísladóttir lýsir Hraunsseli í skýrslu frá 1993: „Veggjarhleðslur uppi standandi þótt þær hafi látið á sjá. Þarna var sel frá Hrauni.“

Hraun (bústaður)

Hraun

Hraun við Grindavík.

26 hdr. 1840, óviss 1703. Eign Skálholtsstaðar. JÁM III, 9. 1847: Jarðardýrleiki 25 hdr. JJ, 84. Hjáleigur 1703:
Vatnagarður, Garðhús (í eyði) og ein ónefnd við heimabæinn. JÁM III, 10-11. Hjáleigur í örnefnaskrá: Draugagerði, Bakkar (Litla-Hraun), Sunnuhvoll, Hrauntún. Ö-Hraun LJ, 1.

Hraun

Brunnur á Hrauni.

1703: „Rekavon í betra lagi…Heimræði er árið um kríng en lending voveifleg…Engjar öngvar. Útigángur í lakasta máta hjer í sveit.“JÁM III, 9-10. Heimildir frá 18. öld gefa nokkra hugmynd um bújörðina Hraun, og virðast af þeim sem hún hafi þá verið einna lökust í sveitinni.

Hraun

Hraun – krossrefagildra.

„Þar eru falleg tún og vel ræktuð; hefir nefndur hreppstjóri [Jón Jónsson] látið mikið slétta í túni sínu, og er þar þó ekkert illþýfi. … láglendið allt um kring túnið að vestan, norðan og útnorðanverðu er svarta lausasandur og lágar hraunklappir … Vatnsskortur er mikill á bæ þessum … Eigi verður þar höfð nokkur skepna heima á sumrum, og eru allir hestar daglega fluttir langt í burtu á bak við Fiskidalsfell, þó brúka eigi strax að morgni. Bágt er þar og með beiti í fjöru á vetrum, því fjara er þar allsstaðar há, en lítið útgrynni. Gengur því oftast fé og hross í Þorkötlustaðanesi um vetur, hvar, eins og á öllum bæjum í Grindavík, er betri fjara en á Hrauni.“ Landnám Ingólfs III, 140.
„Bærinn stendur við sjó vestanvert við Hraunsvík, rétt utast við hana vestanverða.“, segir í örnefnaskrá AG.
1840: „Bær þessi er hinn allra reisulegasti í sókninni…uppbyggð nú í seinni tíð þrjú stór og reisugleg timburhús.“SSG

Bænhús (kapella)

Fornleifar

Kapellan á Hrauni – friðlýstar fornleifar.

1840: „Á Hrauni var forðum bænhús, en ei veit ég hvenær aflagt, og ei heldur fæ ég upplýst, hverjir bæir sóttu þangað kirkju.“ segir í sóknarlýsingu. „Sker út af Vatnagarði kemur aðeins upp úr á stórstraumfjöru og er kallað Klobbasker. Sagt er, að það hafi komið upp, þegar bænhús var aflagt á Hrauni (sennil. á 17. öld).“, segir í örnefnaskrá LJ.
„Enginn vafi leikur þó á því, að kirkja hafi verið á Hrauni á miðöldum og allt fram yfir 1600, og virðist hún hafa gegnt mikilvægu hlutverki. Við vitum að sönnu ekki með vissu, hvenær kirkjan var reist, en…voru líkur leiddar að því, að með „Lónalandi“, sem getið er um í Vilkinsmáldaga, væri átt við Hraun.

Hraun

Hraun – fornleifauppgröftur 2025; leit að gömlu kirkjunni.

Fái sú tilgáta staðist, er ljóst að kirkja hefur verið risin á Hrauni árið 1397 og vafalaust allnokkru fyrr, en í Vilkinsmáldaga segir um „Lónaland“ og kirkjuna þar, að Staðarkirkja eigi fjórðung í jörðinni og „…skal sá hafa leigu af þeim sem kirkju varðveitir slíka sem settist við þann er þar býr.“ Með þessu er átt við það, að til Staðar skyldu renna leigur af jarðarpartinum eftir því sem umsemdist milli þess, er gætti kirkjunnar í „Lónalandi“, og ábúenda þar. Á hinn bóginn kemur ekki fram, hver þar var, sem gæta skyldi kirkjunnar. Hún virðist því ekki hafa verið prestsskyld, engar heimildir eru fyrir því, að til hennar hafi verið goldin neins konar gjöld eða tollar, og er því líklegast, að Staðarklerkar hafi samið um kirkjugæsluna við ábúandann á „Lónalandi“ (Hrauni). Engar heimildir eru um kirkjuna á Hrauni frá 15. og 16. öld. Árið 1602 skýtur henni skyndilega upp í annálum, en við það ár segir Fitjaannáll: „Þá drukknuðu á stóra farmaskipi Skálholtsstaðar 24 manneskjur með einni stúlku, fyrir framan Þorkötlustaði í Grindavík..og voru þeir flestir jarðaðir í bænhúsinu í Grindavík á Hrauni.“ Þessi útför hefur væntanlega verið ein síðasta kirkjulega athöfnin, sem framkvæmd var í kirkjunni, eða í bænhúsinu, á Hrauni.
Kirkjan mun hafa verið aflögð skömmu eftir þetta og í Chorographica Islandica, sem rituð var um 1700, segir Árni Magnússon: „Á Hrauni í Grindavík hefur verið kirkja. Sér enn til kirkjugarðs og stendur þar nú í staðinn skemma. Þessi kirkja er nú fallin fyrir um 100 árum ongefer (circa vel paulo ante annum 1600).“ Saga Grindavíkur I, 137-38. Í vísitasíu Staðar frá 1642 kemur fram að kirkjan þar átti klukku „sem kom frá Hrauni“ – Saga Grindavíkur I, 108-109.

Hraun

Kapellutóft í Kapellulág austan við Hraun.

1840: „Á Hrauni var forðum bænahús, en ei veit ég hvenær aflagt, og ei heldur fæ ég upplýst, hverjir bæir sóttu þangað kirkju.“SSG.
„Milli Festar [berggangur sem gengur úr Festarfjalli] og Dunkshellis upp með hömrunum með sjó er Hraunssandur. Heldur nær bæ en hellirinn er Hvalhóll. Rétt vestan við Hvalhól er smávík, sem heitir Hrólfsvík.

Kapella

Gripir er fundust í kapellunni í Kapellulág ofan Hrauns.

FRIÐLÝSTAR MINJAR. „Lítil rúst í Kapellulág, við veginn á Siglubergsháls.“ Friðlýst 25.10.1930, þinglýst 15.11.1938. – Fornleifaskrá, 13. „Þar er smágrjótrúst. Er til þjóðsaga um rúst þessa.“, segir í örnefnaskrá AG.
Rannsókn í Gullbringu og Árnessýslu sumarið 1902 eftir Brynjúlf Jónsson: „Kapellulág heitir lægðardrag nokkurt upp með veginum sem liggur frá Hrauni í Grindavík upp á hálsinn (Siglubergsháls). Í draginu er dálítil grjótrúst, nokkuð grasigróin, svo sem 3 al. í þvermál að ofan, en fláir utan og virðast vera nokkuð hrunin. Naumast er hún yfir I al. á hæð. Nafnið Kapellulág bendir til þess, að hér hafi verið Kapella, án efa ætluð ferðamönnum til að gjöra þar bæn sína áður en þeir lögðu á Krýsuvíkurhálsa, sem hafa verið álitnir hættulegir eftir að jarðeldar runnu þar ofan. Rústin er raunar lítil til að vera kapellutóft.

En hafi kapellan verið af timbri og grunnur af grjóti undir, þá mundi rústin svara því, að vera leifar af þeim grunni. Einkennilega munnmælasaga hefir myndast um þessa rúst. Hún er á þá leið: Þá er Tyrkir rændu í Grindavík (1627), flýði drengur einn undan þeim, ríðandi á rauðri meri, og hleypti upp veg. Einn af Tyrkjunum elti hann, og var svo fljótur á fæti, að hann náði honum í Kapellulág. Þreif hann þá í tagl merarinnar. En hún sló báðum afturfótum fyrir brjóst honum svo hart, að hann lá dauður eftir. Var hann þá dysjaður, og á rústin að vera dys hans.“ BJ.

Kapella

Kapellutóftin við Hraun eftir uppgröft.

Fornleifarannsókn í Kapellulág 1954: „Á sjávarbakkanum um 200 m suðaustur frá dysinni er grasi gróinn hóll, sem heitir Hvalhóll. Menn taka mið af þessum hól, þegar hann ber í dysina frá sjónum séð, og heitir þetta mið „Húsið“. Í því nafni felst sjálfsagt réttari bending um uppruna þessa mannvirkis en í munnmælasögunni…Það var þegar í stað ljóst við rannsóknina, að við höfðum fyrir okkur lítið hús eða hústóft, sem var barmafull af mold, sandi og grjóti, innveggir lítið sem ekki hrundir, en útveggir mjög hrundir og steinar úr þeim skriðnir út á alla vegu. Af því skapaðist dysjarútlitið og þá einnig nafnið og loks munnmælasagan um Tyrkjann. Í miðnafninu Húsið hefur hins vegar geymst minning um, að þetta hafði í upphafi verið hús. Það hefur verið ótrúlega lítið; 2,20 m að lengd og 1,20 m að breidd. Veggirnir eru hlaðnir úr grjóti í 1 m hæð og standa vel að innan, lítið eitt fláandi upp eftir, þ.e. hallast út. Veggjarþykktin hefur verið um 1 m, eftir því sem næst verður komizt. Húsið hefur snúið frá austri til vesturs, þó lítið eitt til norðvesturs. Vesturgafl hefur verið úr timbri og dyr á að norðan.

Dalssel (sel)

Dalssel

Í Dalsseli.

„Rétt innan við Innstadal, norður undir hrauninu, sem hér heitir Dalahraun, eru Nauthólsflatir, og austast á þeim er hóll, sem heitir Nauthóll…Innst með Fagradalsfjalli, eða beint norðan þess, er gamalt sel, sem hét Dalssel, og inn af því undir vesturhorni fellsins, sem heitir Fagradals-Vatnsfell, er Fagradals-Hagafell.“, segir í örnefnaskrá AG.

Sandakravegur (leið)

Sandakravegur

Sandakravegur.

„…norður af Höfða er Sandfellið…Vestan við Leggjabrjótshraun, Fagradalsfjalls. Næst við Kálffell er Eldborgir. Svo tekur við mikið hraunflæmi og afarfornt, sem heitir Dalahraun…Skammt vestur af Fagradalsfjalli er í því tveir hólar með talsverðu millibili, og heita þeir Innri-Sandhóll og Sandhóll, sem er hærri og sunnar. Meðfram fellinu liggur hér gamall vegur, norðan úr Vogum, og heitir hann Sandakravegur. Lá hann um Móhálsa.“, segir í örnefnaskrá AG.

Sandakravegur

Sandakravegur 2006.

1840: „Sá norðasti [aðalvegur] kallast Sandakravegur; liggur hann í norður útnorður út úr þeim eina alfaravegi austanmanna, sem frá Ölfusinu og Selvogi er hingað, skammt fyrir austan og ofan Hraun …, fram hjá Fiskidalsfelli og Skógfellunum, sem öll eru að vestanverðu við veginn, og kemur maður af honum ofan á Vogastapa.“ segir í sóknarlýsingu.

Dúnkhellir (hellir)

Dunknahellir

Dúknahellir á Hraunssandi (lengst t.v).

„Fyrir austan hana [Kapellulág] er allmikil hæð, og af henni skammt austur að sjó, þar sem Hraunsvík nær lengst inn undir Festarfjall. Þar er mjög hár sjávarbakki, og grefur sjór hella inn í móbergið. Þar var hellir, sem nú er mjög lítið eftir af, og hét Dúnkhellir. Á skerjum nokkrum undir Festi segja þeir á Hrauni, að áður hafi verið járnhringar til að festa skip…“ KE.
„… hafi Írar fest þar skip sín. Þessir járnhringjar munu ekki sjást lengur, og enginn þeirra á Hrauni hafði sjálfur séð þá, en þeir þóttust þó vita fyrir víst, að þessir hringar hefður verið þarna.“KE. „Munnmæli eru um það, að í Selskeri, framundan Eystri-Nípu [á merkjum Hrauns og Ísólfsskála], hafi verið annar af tveim festarboltum og að þar hafi forðum verið skipalega. Þetta er þó fremur ólíklegt, vegna þess að á þessum slóðum er sjór sjaldan kyrr og erfitt að athafna sig við út- og uppskipun.“ segir í Sögu Grindavíkur I. Munnmæli um skipshringi Íra í sjávarhömrum við Grindavík pr. í Þjóðsögur og munnmæli 1899, s. 1.

Þorkötlustaðir (bústaður)

Þórkötlustaðahverfi

Þórkötlustaðahverfi – uppdráttur ÓSÁ.

60 hdr 1840, óviss 1703. Eign Skálholtsstaðar. Hefur selstöðu í landi Krýsuvíkur, á Vigdísarvöllum. JÁM III, 11, 14. Hjáleigur 1703: Eyvindarhús, Ormshús, Eingland, Klöpp, Bugðunga. JÁM III, 12-13. 1840: Ætíð hefir þar verið tvíbýli, en nú eru þar þrír bændur, hjáleigur: Einland, Klöpp og Bullunga og tímthúsið Borgarkot. SSG, 139.
1847: Jarðardýrleiki 66 2/3 hdr. Hjáleigan Lambhúskot hefur bæst þá við 1847…“Eptir þremur afsals bréfum 8. August 1787 og 26. Janúar 1791 eru Þorkötlustaðir seldir í þrennu lagi (austurparturinn, vesturparturinn og miðparturinn). JJ, 84. Þríbýli var þar lengst af 19. öldinni. Stundum er jörðin kölluð Þórkötlustaðir.
1703: „Heimræði árið um kríng…Engjar öngvar. Sjór gengur á túnið og brýtur land að framan.“JÁM III, 12, 14.

Þórkötlustaðir

Þórkötlustaðir 1935.

1840: „Þar eru slétt og stór tún og hartnær þriðjungur þeirra kominn í móa fyrir órækt og hirðuleysi. … Þar er og sæmilegt beitiland fyrir fáan fénað, en þar amar vatnsleysi sem víðar. Syðst í nesinu var fyrrum selalátur frá Þorkötlustöðum, en nú hefir selurinn vegna brims og uppbrots yfirgefið látrin.“ Landnám Ingólfs III, 139. „Mikið af landi hennar er eldbrunnið, og bæirnir standa austast í landareigninni við sjóinn…Land jarðarinnar er frekar mjótt, en nokkuð langt.“Ö-Þorkötlustaðir AG, 1, 3. „…tiltölulega mikið sléttlendi, lending dágóð í Þorkötlustaðasundi og margvísleg hlunnindi í Nesinu.“Saga Grindavíkur I, 129.

Þórkötlustaðir

21.9.1670: „Áður en Sigmundur [Jónssson] tók við búi á Þórkötlustöðum, voru hús öll á jörðinni skoðuð og metin…níu vistarverur innanbæjar og skiptust í stóra skála, litlu og stóru baðstofu, vesturskála, „hornshús“, „hús innar af skála“, eldhús, klefa og anddyri. Útihús voru fjós, hlaða, smiðja og skemma og loks tveir hjallar, annar heima við bæ, en hinn frammi á nesinu [000]. Öll voru húsin orðin gömul og hrörleg, og um sum var þess getið, að þau væru að hruni komin vegna elli og fúa. Útveggir voru flestir sagðir „trosnaðir“ og illa farnir, en innveggir virðast sumir hafa verið öllu skár komnir. Mörg útihúsanna voru hurðarlaus og viðrast hvorki hafa haldið vatni né vindi.“ Saga Grindavíkur I.
Rannsókn í Gullbringu og Árnessýslu sumarið 1902 eftir Brynjúlf Jónsson: „Á Þorkötlustöðum í Grindavík var í vor (1902) bygð heyhlaða í bæjarhúsaröðinni og grafið fyrir henni nál. 3 al. djúpt í jörð. Þar komu menn niður á merkilegar byggingarleifar. Kom fram grjótveggur langsetis eftir gröfinni, þeim megin sem inn vissi í húsagarðinn. Neðst framundan þeim vegg svo sem 1/2 al. breitt þrep, tæplega hnéhátt, alveg slétt að ofan, og svo vandað og óhaggað, að byggingarmenn létu það standa og höfðu það fyrir undirstöðu undir bakvegg hlöðunnar. Ofan á þessu þrepi var sæmilegur grjótveggur, rúml. I al. á hæð, eða að þrepinu meðtöldu um 2 al. á hæð. Langs með þessu þrepi, svo sem 2 al. frá því, lá grjótbálkur eftir endilöngu, viðlíka hár og þrepið, eða vart við það. Hann var nál. 2 al. breiður og allur lagður flötum hraunhellum ofan. Á þeim var öllum eldslitur. Var mér sýnt brot úr einni þeirra og var eldsliturinn auðsær. Hinumegin bálksins, viðlíka langt frá honum, sáust leifar af framvegg.

Grindavík

Þórkötlustaðanesviti.

En auðséð var að hann hafði einhverntíma áður verið rifinn og mestallt grjótið úr honum tekið burtu. Báðum megin við bálkinn var gólfskán, um 2. þuml. á þykt. En ofan á henni var þykt lag af svörtum sandi, sem líktist eldfjallaösku. Tveir byrkidrumbar láu í tóftinni, annar var brunninn utan, en ófúinn innan, nál. 6 þuml. í þvermál; hinn viðlíka digur, óbrunninn og með berki, en fúinn. Eigi var grafið fyrir enda þrepsins eða bálksins; var gröfin þó vel 12 al. löng. Tóku bæjarhúsin við að norðanverðu. En í suðurenda grafarinnar tík við fjósflór; og var að sjá, sem fjósið hefðir verið framhald sömu byggingarinnar. Þetta virðast hafa verið leifar af fornum „eldaskdla“. Þrepið ætlað til að sitja á , en bálkurinn arinn, til að kinda langeld á, og er merkilegt, að hann var upphleyptur. Eldfjallaskan ofan á gólfskáninni bendir til þess, að bærinn hafi lagzt í eyði um hríð og tóftirnar staðið opnar fyrir öskufalli. Má og vera að hraunið, sem myndar Þorkötlustaðanes og runnið hefur á báða vegu við túnið, sé yngra en bygging landsins, og verður þetta þá auðskilið.“BJ.

Þorkötlustaðaviti (viti)

„Í [Þorkötlustaða]nesinu er viti, sem nefndur er Þorkötlustaðaviti.“, segir í örnefnaskrá AG.

Vogavegur / Skógfellavegur (leið)

Skógfellavegur

Skógfellavegur.

„Norður af Vatnsheiði er kallað Sprengisandur. Um hann lá gamli vegurinn, einnig um Lyngrima…Dalahraun. Það hraun er frekar mishæðalítið, nema þar rís norðar allhátt fell, sem heitir Stóra-Skógfell. Austan þess er gamall vegur, nefndur Skógfellsvegur. Norðan þess er línan um Skógfellshraun…“, segir í örnefnaskrá AG.

Sandakravegur

Gengið um Sandakraveg að Skógfellavegi.

„Austan Svartsengis eru sléttar klappir með melum og vikri á milli og heitir þar Sprengisandur og lá gamli Vogavegurinn þar um.“, segir í örnefnaskrá LJ.
„Vogavegurinn liggur austan Stóra-Skógfells og var nefndur þar Skógfellsvegur og tekur við af Sprengisandi.“, segir í örnefnaskrá LJ. GK-016:020 er „afleggjari“ af Skógfellavegi til Hóps og Járngerðarstaðahverfis.

Randeyðarstígur (leið)

Þórkötlustaðir

Randeyðarstígur hægra megin á uppdrættinum – uppdráttur ÓSÁ.

„Randeyðarstígur er gata á milli Hrauns og Þórkötlustaða og var hann farinn áður fyrr, er aðalumferðargatan lá fyrir neðan Þórkötlustaði og var þar komið á Eyrargötuna.“, segir í örnefnaskrá LJ.

Látragötur (leið)
„Látragötur eru slóðar úr vestur enda Stekkatúns fram í Látur.“, segir í örnefnaskrá LJ. „… úr vesturenda [Stokkatúns] og fram í látrin eru götuslóðar, sem Látragötur heita.“ segir í Sögu Grindavíkur I.

Eyrargata (leið)

Eyrargata

Eyrargata.

„Framundan Krabbagerði í flæðarmálinu og við syðri enda Herdísarvíkur eru háar klappir nefndar Draugur. Þar norður af er vík, Herdísarvík. Upp af henni í norðurenda eru klettahólar, sem heita Kóngar. Upp af Kóngum tekur við Kóngahraun…og inn undir miðju Nesi í norðvestur frá Kóngahrauni er hár hóll með grasþúfu í toppinn, sem heitir Gjáhóll. Hjá Gjáhól er löng lægð…sem heitir Gjáhólsgjá….Síðan tekur Þórkötlustaðabót við og skiftist hún í tvo hluta. Fyrst Syðri-bót og síðan Heimri-bót…Upp af Heimri-bót eru sandflatir nefndar Brunnaflatir.“, segir í örnefnaskrá LJ.

Eyrargata

Eyrargata.

„Neðst á Brunnflötum við kampinn var grafinn brunnur, þar sem skepnum var vatnað áður en brunnur var grafinn hjá Þórkötlustöðum. Eftir Brunnflötum lá gata og sunnan við sandorpnar hæðir vestur af Brunnflötum, við norður enda Gjáhólsgjáar í átt að Rifinu (Eyri). Hét hún Eyrargata en lítið markar fyrir henni nú.“, segir í örnefnaskrá LJ.
„Önnur gata [en Eyrargata] er norðar og liggur um kirkjuhóla og fram hjá Hópi.“, segir í örnefnaskrá LJ.

Hóp (bústaður)

Hóp

Hóp í Grindavík – uppdráttur ÓSÁ.

32 hdr. 1840, óviss 1703. Eign Skálholtsstaðar. JÁM III, 14. 1847: 33 1/3 hdr. Seld er hún í tvennu lagi (vesturparturinn og austurparturinn) eptir afsalsbréfum 8. August 1787 og 26. Januar 1791. JJ, 84. Tvíbýli var á Hópi alla 19. öld en frá 1850 þríbýli og var þriðji parturinn nefndur Litla-Hóp frá 1880. Af sumum er bærinn talinn hafa heitið Hof.

Hóp

Hóp – sjóbúð.

1703: „Engjar öngvar…Flæðihætt er fyrir sauð. og líka brýtur sjófargángur túnið, og er hætt við enn meira landbroti.“JÁM III, 15. 1840: „Er jörð þessi miður ræktuð en skyldi, bæði að túnum og húsum, og er þó eigi að maklegleikum. Ekki eru tún þar eins slétt sem á Stað eða Tóttum og mega þó eigi þýfð heita. Miklar innnytjar eru við jörð þessa af Hópinu, ef notkaðar væru. … Í því veiðist mergð hrognkelsa eftir Jónsmessu, einnig silungur og mikill áll, en við ekkert þetta er sú ástundun höfð sem skyldi, og engir viðburðir við tvennt það síðarnefnda. Veiðzt hefir þar líka selur og lax, þótt minna fengist með jafnri viðleitni sem hið þrennt fyrst talda: þegar fiskur gengur afar grunnt, hefir þar inni þorskur fengizt og þyrsklingur, en sú veiði er samt ekki teljandi … á bæ þessum bagar vatnsleysi til neyzlu.“ Landnám Ingólfs III, 138-39. „Landið er því sneið af Þorkötlustaðanesinu og svo spildan samhliða landi Þorkötlustaða norður til Skógfells. Mikið af landinu er eldbrunnið, en gróið upp aftur á allstórum svæðum. Lón það er bærinn stendur upp frá og dregur nafn af, heitir Hóp. Nú er þar hafnarmannvirki Grindvíkinga.“Ö-Hóp, 1.
„Bærinn stendur niður við sjó, við Hópið, sem hann dregur nafn af.“, segir í örnefnaskrá AG.
„Sagt er að hann hafi upphaflega verið nefndur Hof, og er hér gömul goðatóft til. Sagt er að Hofsnafnið finnist í gömlum heimildum.“, segir í örnefnaskrá AG. 1902: „Þar er nú tvíbýli, og er á vesturbæjarhlaðinu hús, sem sú sögn fylgi, að þar hafi verið „goðahús“ í heiðni.“BJ.

Goðatóft (álagablettur)

Hóp

Hóp – Goðatóft.

„Austur af gömlu traðartóftinni neðan bæjar er Goðatóft…“, segir í örnefnaskrá AG.
FRIÐLÝSTAR MINJAR. „Goðahús“ svo nefnt á Vesturbæjarhlaðinu, nú fjós“ – friðlýst 25.10.1930, þinglýst 15.11.1938. – Fornleifaskrá, 13. BJ: „Bærinn Hóp í Grindavík er sagt að upphaflega hafi heitið Hof, og að þar hafi verið goðahof. Þar er nú tvíbýli, og er á vesturbæjarhlaðinu hús, sem sú sögn fylgir, að þar hafi verið „goðahús“ í heiðni. Þess vegna megi aldrei taka það burtu, en samt megi breyta því og nota það á hvern hátt sem ábúanda hagar. Hafa ábúendur fært sér þetta í nyt; „goðahúsið“ hefir til skams tíma verið geymslu-skemma, en nú er það haft fyrir fjós.“ Árb. 1903, 46-47
„…gamalt goðahús friðlýst, sem ekki má róta.“, segir í örnefnaskrá AG.

Selháls (sel)

Hópssel

Hópssel.

„Vestan úr Hagafelli er hraunkvísl, sem eins og steypist fram af fellinu. Það heitir Gráigeiri, og er gamalt fiskimið Melhóll í Gráageira. Þar vestan í fellinu er svonenfndur Selháls, sem vegurinn liggur yfir…Selháls er hryggur, sem tengir saman Hagafell og Þorbjörn. Þetta er sunnan við Dagmálaholtið.“, segir í örnefnaskrá AG.
„Dagmálaholt mun vera kennt við eyktamark frá selinu á Baðsvöllum [sel frá Járngerðarstöðum skv. Jarðabókinni]. Einnig er Selháls kenndur við það sel [Hópssel]… Fast við veginn eru seltættur, sem virðast yngri en hin selin.“, segir í örnefnaskrá AG.

Járngerðarstaðir (bústaður)

Járngerðarstaðir

Járngerðarstaðir – gamli bærinn.

125 hdr. 1847, óviss 1703. Eign Skálholtsstaðar. „Selstöðu hefur jörðin og brúkar þar sem heitir Baðsvellir…Hjáleigur: Vallarhús, Lambhús, Kvíhús, Hrafnshús, Akurhús, Gjáhús, Krosshús, Garðhús, Hlaðhús.
Búðir til forna: Gullekra (tómthús), Krubba (tómthús) og Litlu Gjáhús.“ JÁM III, 15.

Járngerðarstaðir

Járngerðarstaðir á fyrri hluta síðustu aldar.

1803: Hjáleiga: Nyrðra-Garðshorn, 1847: Hjáleigur eru: Kvíhús, Rafnshús, Akurhús, Krosshús, Hóll, Lángi, Gjáhús, Garðhús og Vallhús. JJ, 84. Stundum talað um Járngerðarstaðahverfi.
1703: „Heimræði er árið um kríng og lendíng í betra lagi…Engjar öngvar.“JÁM III, 16. „Jörðin nær frá sjó og upp til fjalls eisn og önnur býli hér.“ Ö-Járngerðarstaðir SS, 1. 1840: „Eigi er fagurt á Járngerðarstöðum, því þó þar ei sé ýkja illa húsað, þá stendur bærinn og allt hvefi þetta nema Krosshús niður í dæld eða dalverpi, og er þaðan hvergi víðsýnt.- Þýfð hafa tún verið á Járngerðarstöðum, en eru mikið sléttuð í seinni tíð af bóndanum Þórði sál. Einarssyni og þar núverandi bónda sgr. Einari Jónssyni. Hafa og nokkrir hjáleigubændurnir í seinni tíð þessa jarðarbót eftir þeim upp tekið. – Bæði í túninu og utantúns eru djúpar vatnsgjár, í hverjar sjór fellur að í og út; í sumum þeirra er oft veiddur áll, og mætti þó mikið meira veiða, ef atorka væri og rækt við höfð.

Jángerðarstaðir

Járngerðarstaðir; Vesturbær, Austurbær og Valdastaðir.

Það hafa Járngerðarstaðir til landkosta fram yfir Stað og Húsatóttir og meiri en nokkurt annað býli í þessari sókn, að fyrst er þar nóg vatn í gjám þessum handa fénaðinum, og svo í öðrum smá stöðutjörnum, eins og líka þar er grasgefnast utantúns, þó eigi megi hagar heita. Mætti þó halda þar fáum skepnum heima á sumardag, hvað ekki má heita mögulegt á Stað og Húsatóttum.“ Landnám Ingólfs III, 137-138.

Járngerðarstaðir

Járngerðarstaðir – loftmynd 1954.

1840: „Tvíbýli er á heimajörðinni og fylgja hverjum parti 5 hjáleigur…“ segir í örnefnalýsingu „Nokkur um Dalinn…Þessar „holur“ voru nokkurs konar uppsprettur undir bökkunum. Úr þeim var tekið allt vatn í bæinn, sem kallað var, það var til notkunar fyrir fólkið á Járngerðarstöðum, báðum bæjum…“, segir í athugasemdum við örnefnaskrá. Elsta úttekt bæjarins er af Vesturbænum frá 1882. Þar voru þá baðstofa (8×5,5 al.), göng (4×1,5 al.), Bæjardyr (6×2,25 al.), skáli (7×3 al.), eldahús (9×4 al.), búr í norðurenda baðstofu (4×5,5 al.), fjós m. 3 básum, hesthús f. 3 hesta, heyhús (8,5×3 al.), smiðja (7×3 al.), sjómannabúð, fiskhjallur, húsagarður með bæjarrönd (50 fðm), túngarður 160 fðm og traðargarður 85 fðm og kálgarður – Saga Grindavíkur II, 57-58.

Gerðavellir (búðir)

Junkaragerði

Garður í Junkeragerði á Gerðavöllum – uppdráttur ÓSÁ.

„Frá Stórubót [vik inn í landið við Malarenda] liggur Rásin inn í Gerðavallabrunna, sem eru upp af Gerðavöllum. En sjórinn víkkaði hana og brauzt inn á lægra svæði. Sjórinn gegnur gegnum Rásina um flóð.“, segir í örnefnaskrá AG.

Gerðavellir

Gerðavellir – flugmynd.

„Sagt er að Junkarar hafi lagt upp í Stórubót við Gerðavelli, upp af Skyggnir, vestan við Rásina. Þar voru á Gerðavöllum allmiklar hlaðnar girðingar gamlar…Á Gerðavöllum er allt fullt af görðum. Þeir eru hlaðnir á tvo vegu við vellina og eiga að vera eftir Junkarana, en þeir reru til skiptis eftir veðri úr Grindavík og Höfnum (Njarðvíkum), eftir því sem sögurnar segja. Fóru þeir með skipin á milli, og hét þar Skipastígur.“, segir í örnefnaskrá AG. „Munnmæli um útgerð Þjóðverja í Grindavík herma að þeir hafi haft aðsetur á Gerðisvöllum, skammt norðvestur af Stóru bót í Járngerðarstaðalandi.“ segir í Sögu Grindavíkur I, 251. „Á þessum slóðum voru aðstæður að ýmsu leyti hentugar aðkomumönnum, sem stunda vildu útgerð og kaupskap, en þurftu jafnframt að hafa vara á sér. Þeir voru utan meginbyggðarinnar í Járngerðarstaðahverfi, og á Stóru bót var bærileg höfn kaupskipum og þokkalegur útróðrastaður, a.m.k. yfir sumartíman. Aðstaða til fiskverkunar á Hellunum var góð og vestan Stóru bótar rís hóll sá, sem Skyggnir heitir og er með hæstu hólum í nágrenninu. Af honum mátti, eins og nafnið bendir til, hafa gát á mannaferðum.“ segir í Sögu Grindavíkur I, 240-41. „Heimildir um „Tyrkjaránið“ 1627 herma, að þá hafi danska kaupskipið legið í Járngerðarstaðasundi, og af heimildum um ránið verður ekki annað ráðið en að á þessum tíma hafi búðir kaupmanns staðið í landi Járngerðarstaða. Þar mun verslunin og hafa haft bækistöðvar sínar til árins 1939, en þá hættu kaupmenn að sigla á Grindavík …“ segir þar ennfremur á s. 253. Þegar verslun hófst á ný í Grindavík 1664 var hún færð til Arfadalsvíkur.

Skipstígur (leið)

Skipsstígur

Skipsstígur.

„Sagt er að Junkarar hafi lagt upp í Stórubót við Gerðavelli, upp af Skyggnir, vestan við Rásina. Þar voru á Gerðavöllum allmiklar hlaðnar girðingar gamlar…Á Gerðavöllum er allt fullt af görðum. Þeir eru hlaðnir á tvo vegu við vellina og eiga að vera eftir Junkarana, en þeir reru til skiptis eftir veðri úr Grindavík og Höfnum (Njarðvíkum), eftir því sem sögurnar segja. Fóru þeir með skipin á milli, og hét þar Skipastígur.“, segir í örnefnaskrá AG.
1840: „Miðvegurinn, sem ýmist kallast Járngerðarstaða- eða Skipstígsvegur, liggur í útnorður fyrir sunnan Þorbjarnarfell, og er þá Þórðarfell, Súlur og Stapafell allt að vestan og sunnanverðu.“ segir í sóknarlýsingu.

Baðsvellir (sel)

Baðsvallasel

Baðsvellir – Baðsvallasel; uppdráttur ÓSÁ.

1703: „Selstöðu hefur jörðin og brúkar enn nú þar sem heita Baðsvellir, og kvarta menn um að þar sjeu haga oflitlir og þröngvirr. Item sje þar stórt mein að vatnsleysi, þá þerrar eru, og fyrir þessa lesti selstöðunnar segja menn fulla nauðsyn til að kaupa selstöðu annarsstaðar. Þessa brúkar bóndinn alleina.“ segir í jarðabók Árna og Páls. „Ef farið er yfir Selháls, sem er milli Þorbjarnar og Hagafells, taka við sléttir vellir, Baðsvellir.“, segir í örnefnaskrá AG.

Þjófagjá

Í Þjófagjá. í Þorbjarnarfelli.

„Sagt er, að þeir dragi nafn sitt af því, að þar hafi ræningjar baðað sig … Alveg niður við hraun er hallandi graslendi. Þar er slétt laut Kvíalág. Þar með hrauninu eru tvennar seltættur og hóll. Þar austan við heitir Stekkjarhóll.“, segir í örnefnaskrá AG.

Stekkjarhóll (stekkur)

Baðsvellir

Baðsvellir – uppdráttur ÓSÁ.

„Ef farið er yfir Selháls, sem er milli Þorbjarnar og Hagafells, taka við sléttir vellir, Baðsvellir.“, segir í örnefnaskrá AG.
„Sagt er, að þeir dragi nafn sitt af því, að þar hafi ræningjar baða sig…Alveg niður við hraun er hallandi graslendi. Þar er slétt laut Kvíalág. Þar með hrauninu eru tvennar seltættur og hóll. Þar austan við heitir Stekkjarhóll [Stekkhóll]“, segir í örnefnaskrá AG. „Þetta með seltóftina og Stekkjarhól getur verið rétt. Þetta var þá víst í Hópslandi.“, segir í athugasemdum við örnefnaskrá.

Gyltustígur (leið)

Gyltustígur

Gyltustígur (t.h.).

„Klifhólar eru útrennsli úr Þorbirni…Vestan í Klifhól, utan í fjallinu vestast, er Gyltustígur, eins konar hraunveggur. Hann er vestarlega í Þorbirni að sunnanverðu frá Lágafellstagli og upp úr.“, segir í örnefnaskrá AG.

Járngerður (legstaður)

Járngerðardys

Tómas Þorvaldsson við dys Járngerðar.

„Eitt örnefnið var við sjávargötu, þegar gengið var (til skips, sem kallað var) austur að lendingum. Á þá leið gengu sjómenn frá Járngerðarstöðum, Garðhúsum, Vallarhúsum, Velli og Gjáhúsum, nú Vík. Það var lítil mishæð, svo sem um 30 fet á lengd og 10 fet á breidd og svo sem 4 fet á hæð, grasi vaxin. Þetta var kallað Járngerður.“, segir í athugasemdum við örnefnaskrá.
„Þar átti að vera grafin sú merkiskona, sem eitt sinn bjó á Járngerðarstöðum, og mátti ekki við leiðinu hreyfa. En nú er það nú samt horfið fyrir nokkru.“, segir í athugasemdum við örnefnaskrá.
Rannsókn í Gullbringusýslu og Kjósarsýslu sumarið 1902 eftrir Brynjúlf Jónsson: “ Járngerðaleiði hafa menn kallað dálítinn aflangan bala í túninu á Hrafnshúsum í Járngerðarstaðahverfi. Ég lét grafa í þann bala, og reyndist hann gamall öskuhaugur.“BJ.

Engelska lág (vígi)

Jángerðarstaðir

Engelska lág.

„Upp af Stórubót, á Hellum, sem kallaðar eru, má enn sjá ógreinilegar leifar af virki Englendingsins Jóhanns Breiða …“ – „Aðsetur [enskra kaupmanna á fyrri hl. 16. aldar] var nokkuð fyrir vestan Járngerðarstaðabæinn, þar sem heitir „úti á Hellum“, upp af Stóru bót, og er líklegt, að þar hafi útræði þeirra og verslunarhöfn staðið á þessum slóðum hefur mikið land brotið á síðustu áratugum, og vafalaust einnig á fyrri öldum. Er því erfitt að gera sér grein fyrir því, hvernig aðstæður hafa verið fyrir nær hálfu árþúsundi. Þar sem nú er urð og grjót, voru grænir grasbalar fyrir u.þ.b. hálfri öld.

Jángerðarstaðir

Virkið.

Enn má þó greina þarna nokkur ummerki mannvistar, og er t.d. töluvert eftir af hól, þar sem munnmæli herma, að virki Jóhanns Breiða hafi staðið …“ segir í Sögu Grindavíkur I. „… stóðu búðir Jóhanns Breiða og félaga hans skammt upp af Stóru bót, sem er u.þ.b. einn kílómetra fyrir vestan Járngerðarstaðabæinn. Þar er örnefnið Engelska lág (eða laut), og herma munnmæli, að þar hafi Jóhann Breiði og aðrir Englendingar, sem féllu í átökunum aðfaranótt 11. júlí 1532, verið dysjaðir. Um það bil 5-600 metrum vestar heitir Gerðisvellir … Þar er líklegt, að búðir kaupmannanna frá Lynn hafi staðið.“, segir í Sögu Grindavíkur I, 246-47.

Junkaragerði

Garður í Junkeragerði á Gerðavöllum – uppdráttur ÓSÁ.

1532: „Gerði sagður Jóhann Breiði sér þá vígi eður virkisgarð skammt frá búðum á Járngerðarstöðum, sem enn sér merki og gerði orð með spotti þeim Hamborgurum að sækja til sín skreiðina. Tóku sig til hinir þýzku menn og Bessastaða fóveti, og komu óvart um nótt upp í Grindavík, komust upp í virki Jóhanns og slógu hann til dauðs og alla hans menn, en tóku skip og allt hvað þeir áttu. Þar sést kuml þeirra eða dysjar hjá virkisgarði.“ Skarðsárannáll.

Þjófagjá (þjóðsaga)

Grindavík

Grindavík – í Þjófagjá á Þorbjarnarfelli.

„Stór sprunga klýfur topp [Þorbjarnarfells] og heitir Þjófagjá. Þar herma munnmæli, að flokkur útileguþjófa hafi haldið sig og rænt og ruplað Í Grindavík. Að lokum tóku byggðamenn sig til, fóru að þjófunum, gripu þá og hengdu í Gálgaklettum … Engar öruggar heimildir eru um það, að útileguþjófar hafi nokkru sinni hafst við í Þjófagjá, og engar mannvistarleifar hafa fundist þar.“ segir í Sögu Grindavíkur I.

Húsatóptir (bústaður)

Húsatóftir

Húsatóftir.

33 hdr. 1840, óviss 1703. Konungsjörð og liggur til Viðeyjarklausturs. „Selstöðu hefur jörðin lángvaranlega haft þar sem heitir á Selsvöllum, er þángað bæði lángt og erfitt að sækja.“ Hjáleigur: Kóngshús og Garðhús. JÁM III, 20. 1836: „Seld með fleiri kóngsjörðum þetta ár, fyrir 630 ríkisdali í silfri til þáverandi landseta. Höfðu Viðeyingar hér áður útræði.“ SSG, 136. 1847: Jarðardýrleiki 33 1/3 hdr.JJ, 85. „Til forna átti Staður rétt til vatnssóknar í Baðstofu í Húsatóftalandi. Til endurgjalds áttu Húsatóftir þangfjörutak á Stað.“ GB Mannlíf, 39.
Kaupstaður var á Húsatóptum og var lent við Kóngshellu. Jörðin fór í eyði 1946 – GB Mannlíf, 91. 5 tómthúsbýli voru byggð í landi Húsatófta á árunum 1906-1934; Dalbær (1906-46), Vindheimar (1911-34), Blómsturvellir (1914-22), Hamrar (til 1930) og Reynistaður (1934-38).

Húsatóftir

Húsatóftir og Staður – uppdráttur frá einokunarverslunartíma Dana 1751.

1703: „Túnið er á næstliðnu vori þann 19. maí virt aldeilis fordjarfað að fjórðúngi sínum. Þeir eftirverandi fjórðúngar mjög spiltir af sandi og enn hætt við meiri skaða. Engjar öngvar. Mestalt land jarðarinnar hraun og sandi undirorpið.“JÁM III, 20. 1840: „…fyrir norðan og útnorðan túnið er víðast hvar náttúrleg gyrðing af lágum hraunhömrum, sem þar gjá er kölluð; líkt er og fyrir sunnan túnið sjálfgerð gyrðing af sama efni, em þeim mismun, að hér liggur túnið fram á klettana, þar sem það að norðanverðu hefir skýli af þeim og liggur upp undir þá…Mörgum þykir fallegt á bæ þessum því þar eru stór tún, slétt og fögur, þegar í blóma standa; eru þau og allvel ræktuð.“ Landnám Ingólfs III, 136.

Húsatóftir

Húsatóftir um 1960.

1840: „Bærinn stendur spottakorn frá sjó, á háum og víðsýnum fleti…“ segir í sóknarlýsingu. Á túnakorti frá 1918 eru sýndar tvær húsaþyrpingar og gætu það verið tveir bæir eða bær og útihúsaþyrping – eru um 20 m á milli.
„Frá þeim tíma [þ.e. verslunarinnar] er gólfið þar í bæjardyrunum steinlagt með tígulsteini. Aðrar menjar sjást þar ekki. Er líklegt, að kaupmanns“húsin“ hafi verið rifin þegar verzlunin lagðst niður, en svo aftur byggður bóndabær í „tóftum“ þeirra, og fengið þar af nafnið, sem hann hefir nú.“ segir Brynjúlfur Jónsson í grein frá 1903. Íbúðarhús úr steini var byggt á bæjarhólnum 1930 en fram að því hafði verið þar torfbær – GB Mannlíf, 83.
1786 voru heima á Húsatóftum íbúðarhús verslunarmanna, byggt 1777, 10,6 x 7 m að stærð, múrað í binding með torf og grjótveggjum að utan en göflum úr timbri. Einnig var þar íbúðarhús beykisins, byggt 1779, 7,2×4,4 m að stærð m. veggjum úr torfi og grjóti en þak úr timbri – GB Mannlíf, 117-118.

Kóngshús (bústaður)

Húsatóftir

Húsatóftir – Kóngshús.

„Hjáleigan Kóngshús stóð niður við Húsatóttavör …“ Hjáleiga 1703. JÁM III

Búðasandur (verslunarstaður)

Húsatóftir

Minjar dönsku einokunarverslunarinnar á Húsatóftum.

„Upp af Kóngshellu er Búðarhella. … Næstur er Búðasandur er tekur við af Garðafjöru allt frá Tóftavör, sem er vestast í Garðafjöru.“ – GB Mannlíf, 21. „Danska verzlunarhúsið stóð á litlum hól u.þ.b. 80 m upp af Tóftavör.

Túnakort

Húsatóftir – túnakort 1918.

Ennþá sést móta fyrir grunni þess.“, segir í örnefnaskrá. „Stóðu höndlunarhúsin niður við sjó nálægt Hvirflunum en kaupmenn bjuggu heima á Húsatóftum.“ segir í sóknarlýsingu frá 1840. „Á innri klöppinnni [ofan við Kóngshellu], sem er mun hærri, hafði krambúðin síðast staðið. Þar stóð enn fiskisöltunarhús Húsatóftarmanna, er eg reri þar, 1865 og 1866; og þar á klöppinni var aflanum skift eftir róðra og gjört að fiskinum. Þá var þó klöppin umflotin af sjó í stórstraumsflóðum. Nú er hún enn meira umflotin og ekki þykir lengur óhætt að hafa hús á henni. Hefir það nú verið flutt í land, og sjást engin merki eftir byggingu á klöppinni.“ segir Brynjúlfur Jónsson í grein frá 1903.
„Verzlun var í Grindavík áður, en hætt var við hana snemma á 18. öld. Höfnin var rétt við prestsetrið Stað, við hólma, sem hjallur er nú á. Skipin lágu milli hans og skers, sem heitir Barlest. Í Hólmanum eru enn kengir úr járni, sem skipin voru bundin í. Tangi gekk út að skerinu, og hét Búðartangi, af því verzlunarhúsin stóðu þar, en nú er tanginn að mestu brotinn af brimi.“ ÞT Ferðabók I, 179 „Fyrir mörgum árum var verið að grafa þar fyrir sjóhúsi. Þá fannst þar lóð, 100 pund að þyngd, sem bar merki Kóngshöndlunar.“ GB Mannlíf, 85. 1787 voru þar þessar byggingar: Búðin, byggð 1779, 12,5 x 7,5 m að stærð; Eldhús með múraðri eldstó, 6 x 4 m og Gamla pakkhúsið (sennilega eldri verslunarbúð) einnig 12,5×7,5 m að stærð – GB Mannlíf, 117.

Húsatóftir

Húsatóftir – örnefni og minjar.

Verslun var tekin upp á ný í Grindavík árið 1664 en hafði fram til 1639 verið í Járngerðarstaðalandi. Kaupmenn „fluttu sig nú um set vestur í Arfadal í landi Húsatótta. Þar var ráðist í umtalsverðar framkvæmdir og á uppdrætti, sem Kristófer Klog gerði af Grindavíkurhöfn árið 1751 … má sjá verslunarhús niðri við ströndina. Þau stóðu skammt frá svonefndum Hvirflum, þar sem heiti Búðasandur …“ seegir í Sögu Grindavíkur I, 255. Á uppdrættinum sést tvílyft hús, talið vera krambúðin sem reist var 1731 og minna hús sambyggt við austurendann. Þetta hús mun hafa staðið fram undir lok 18. aldar, en 1779 hafði ný krambúð verið byggð. Saga Grindavíkur I, 255-56.
Kaupsigling var í Staðarvík til 1745 en eftir það var aðeins siglt til Básenda, þó ennþá væri verslað í húsunum í Grindavík. Árni Jónsson keypti húsin á Búðasandi 1789, krambúð, eldhús og „gamla pakkhús“ en hann varð endanlega gjaldþrota 1796 og lagðist þá verslun alveg af í Grindavík. Verslunarhúsin voru rifin 1806 – Saga Grindavíkur I, 256-65.

Prestastígur (leið)

Prestastígur

Prestastígur.

„Vestur af Grýtugjá, upp undir jaðri apalhraunsins (Eldborgarhrauns), er Hrafnagjá…Frá Hrafnagjá er einstigi um hraunið frá Sauðabæli út í Óbrennishóla. Troðningur þessi eða einstigi er fær öllum, þótt slæmur sé.“, segir í örnefnaskrá.
1840: „Sá fjórði og síðasti vegur, sem út úr sókninni liggur og alþjóðarvegur má nefnast, liggur upp frá Húsatóttum, í útnorður ofan í Hafnirnar, og er hann sá eini, sem héðan verður farinn þangað.“ segir í sóknarlýsingu. = Prestastígur

Byrgi (útilegumannabústaður)

Tyrkjabyrgi

Byrgin í Sundvörðuhrauni – uppdráttur ÓSÁ.

„Miðkrókakriki teygist langt inn í apalhraunið [Eldborgarhrauni] úr vesturjaðri Tóftakróka. Í norðvestur af honum, út í apalhrauninu, er dálítið sléttlendi og eru þar nokkur grjótbyrgi, er gefa til kynna, að þar hafi fólk hafzt við, er vildi fara huldu höfði. Byrgin eru vel falin í apalhrauninu, en frá staðnum ber Sundvörðuna í Gyltustíg í Þorbirni.“, segir í örnefnaskrá.
FRIÐLÝSTAR MINJAR. „

Tyrkjabyrgi

Eldvörp – eitt „Tyrkjabyrgjanna“.

„Útilegumannabæli“ svo nefnt, í hraunkvos norðvestur af túninu.“ friðlýst 25.10.1930, þinglýst 15.11.1938. 1883: „Frá Járngerðarstöðum í Grindavík fórum við upp í Eldvarpahraun … Í því skoðaði ég á einum stað gamlar, mosavaxnar rústir. Þær er mjög illt að finna, á afskekktum stað í versta brunahrauni. Þar hefir líklega einhvern tíma í fyrndinni verið athvarf manns, sem einhverra orsaka vegna hefir orðið að flýja úr byggðinni. Ekki er hægt að sjá þessar rústir, fyrr en maður er rétt kominn að þeim. Standa þær í kvos, á flötum hraunbletti, og há hraun allt í kring. Fram á miðjum fletinum eru þrír kofar, allir hlaðnir úr hrunhellum og hleðslan virðist einföld. Gjört hefir verið yfir byrgi þessi með stórum hraunhellum. Allir eru kofar þessir smáir, 5-6 m að lengd, og snúa dyrnar til norðurs. Stærsti kofinn er inni í hraunviki; hafa hraunbrúnirnar verið notaðar fyrir veggi. Bak við þennnan kofa var hlaðin tótt, djúp eins og brunnur. Þar fundum við hálffúna, tiltelgda spýtu undir mörgum hraunhellum og mosa. Önnur hringmynduð rúst var þar í nánd. Uppi á hæstu hraunbrúninni fyrir ofan var enn eitt byrgi, alveg eins og það hefði verið notað til þess að skyggnast um. Allar eru rústir þessar mjög gamlar, því á þeim var nærri eins þykkt mosalag eins og á hrauninu sjálfu. Enginn veit neitt um þessa kofa; þeir fundust af tilviljun 1872.“ ÞT Ferðabók I, 177-78. „Getgátur eru um, að þarna hafi menn flúið – annaðhvort undan ræningjum eða drepsóttum eða þá að ófrjálsir menn hafi hafzt þarna við, en engar sagnir eru um mannavist þarna. Sléttar klappir eru þarna og hraunið hátt umhverfis. Á klöppum þessum, nálægt miðju, eru þrjú byrgi í röð frá austri til vesturs. Auk þess er rúst af kofa norðaustast í þessari hvilft, undir hárri hraunpípu. Þröngum og djúpum hraunkrika vestan við rústina hefur verið lokað með grjótgarði og virðist þar hafa verið fjárrétt.“, segir í örnefnaskrá.

Tyrkjabyrgi

Byrgi í Eldvörpum.

Rannsókn Brynjúlfs Jónssonar sumarið 1902: „Útilegumannabæli hafa menn álitið rústir nokkrar í hrauninu fyrir ofan Húsatóftir, svo sem 1 1/2 kl.tíma leið þaðan ef mannavegur væri. En líttfært er að komast þangað nema á einn veg, með því að fara langan krók og þó mjög vandfarið. Má nærri geta, að þar er lítið um mannaferðir, þar eð enginn vissi af rústum þessum fyr en þær fundust af tilviljun litlu eftir 1870….

Tyrkjabyrgi

„Tyrkjabyrgi“.

Rústirnar er í kvos, þar sem hraunið hefir klofnað og sinn hraunriminn oltið fram hvorumegin, eftir flötu hrauni, sem áður hefir storknað. Sér að eins á einn veg út úr kvosinni, og á þeim stað er það, sem koma má þangað hesti, ef gætilega er farið. Við fundum 7 tóftir og var hver laus við aðra. Tvær eru afsíðis, suður með austurbrúninni, þær eru litlar og huldar mosa. Inni í kvosinni eru 3 tóftir, sem mynda röð yfirum hana þvera. Hin stærsta þeirra er við vesturbrúnina, nálægt 6 al. löng. 2 fðm. austar er önnur 5 al. löng og þá 7 fðm. austar en hin þriðja, 4 al. löng, og er hún við austurbrúnina. Allar eru þær jafnvíðar: rúml. 2 al.; þær eru bygðar af smáum hraunhellum og aðrar stærri hafa myndað þak, en eru nú fallnar ofan í. Veggirnir standa lítt haggaðir; eru gaflar hæstir og dyr á hliðinni við annan gaflinn, eins á öllum. Vindaugu eru á veggjum og göflum. Eigi snúa þær göflum saman og eigi heldur hliðum, en horfa skáhalt hver við annarri. Ekki virtust okkur þær líklegar til íbúðar, en hefðu getað verið geymsluhjallar, t.a.m. fyrir þurrkað kjöt. Í kvosarbotninum er hringmynduð tóft, svo lág, að veggirnir eru mosa huldir. Það gæti verið niður hrunin fjárrétt. En eigi bendir það þó til þess er Sæmundur [Jónsson á Járngerðarstöðum] sagði: að í henni hefði hann fundið ösku og skörung úr járni. Inn frá stærstu tótftinni er í hraunbrúninni glufa milli kletta. Sú glufa hefir verið notuð notuð fyrir tóft; hlaðið í skörð og svo reft yfir með breiðum hraunhellum. Þær eru nú fallnar ofan í og hleðslan að nokkru leyti líka. Þetta kynni helzt að hafa verið íveruhúsið. Þar er skjól gott og fylgsni gott. En ólíklegt er að menn hafi getað dvalið til lengdar á þessum stað. Þar hefir víst verið „á flestu góðu mesta óhægð“. Þar hefir ekkert verið til eldiviðar, því þá hefir mosinn ekki verið kominn.

Tyrkjabyrgi

Byrgi í Eldvörpum.

En gerum ráð fyrir, að íbúar hafi eigi kært sig um eld, hafi eigi viljað láta reyk sjást eða reykjarlykt finnast frá hýbýlum sínum. En þá er einn gallinn þó verstur. Þar fæst ekkert vatn nema regnvatn, eða snjór á vetrum….Ekki er hægt að skilja, til hvers litlu tóftirnar, sem fyrst getur, hafa átt að vera. Þær eru svo smáar, að það er eins og börn hafi bygt þær að gamni. Og trúa myndi ég, að þetta væri alt saman eftir stálpuð börn t.a.m. 10-14 ára gamla drengi ef líklegt væri, að þeir hefðu komið á þennan stað. En það sýnist mér ekki vera.“ Árbók 1903. 1959: „Skammt vestur af Sundvörðunni, sem er við austurbrún þess hluta Grindavíkurhrauns, sem við hana er kennt, er hraunkvos, sem er opin móti vestri. Hefur apalhraunið þar fyrir austan kvíslast í tvennt og þannig myndað kvosina. Í kvosarbotninum er slétt helluhraun, alþakið mosa, en litlum öðrum gróðri. Í kvos þessari eru rústir af mörgum smáum kofum, hlöðnum úr grjóti, og tvær rústir eru uppi á brún apalhraunsins fyrir sunnan kvosina. Rústir þesaar eru mjög vel faldar inni í hrauninu, og þar eiga að jafnaði engir leið um, enda voru þær ókunnar, þar til þær fundust af tilviljun veturinn 1872. … Stærsta tóttin innst í kvosinni hefur verið byggð inni í hraunviki, og að norðanverðu hefur hraunbrúnin verið notuð fyrir vegg.

Eldvörp

Dagbjartur Einarsson í Tyrkjabyrgjunum í Sundvörðuhrauni.

Þessi tótt er langmest úr lagi gengin af öllum tóttunum, svo að erfitt er að ákveða lögun hennar og stærð. Þó virðist hún hafa verið um 4 m á lengd að innanmáli og 1,50 m á breidd, þar sem hún er breiðust. Í henni hefur verið milligerð, sem skipti henni í tvö herbergi. Bendir Brynjúlfur á, að þessi tótt sé líklegust til að hafa verið mannabústaður. Enn fremur getur Þorvaldur Thoroddsen þess, að bak við þennan kofa sé önnur tótt, djúp eins og brunnur, og þar hafi hann fundið tiltelgda spýtu undir mörgum hraunhellum og mosa. Varla getur hér verið átt við aðra tótt en innri endann á sjálfri tóttinni í hraunvikinu, en hann hefur verið aðskilinn frá hinum hlutanum með millivegg og Þorvaldur því kallað hann sérstaka tótt. Þetta eru eunu trjáleifarnar, sem fundizt hada í rústunum, og annars er ekkert, sem bendir til að nokkur spýta hafi verið í þeim.

Tyrjabyrgi

Eitt „Tyrkjabyrgjanna“.

Reft hefur verið yfir allar tóttirnar með hraunhellum, en þakið er allsstaðar dottið niður og hellurnar eru inni í tóttunum eða við þær. Stærstu hellurnar eru um 80 X 90 cm að stærð. Tótt 7 er hringmynduð, og veggir hennar eru miklu lægri en hinna tóttanna. Segir Brynjúlfur eftir Sæmundi bónda á Járngerðarstöðum, að þar hafi hann fundið ösku og skörung úr járni. Ef gert er ráð fyrir að tóttin í hraunvikinu hafi verið aðal-íveruhúsið á þessum stað, liggur næst að halda, að hringmyndaða tóttin hafi verið eldhús eða eldstæði. Tóttirnar nr. 8 og 10 eru mjög litlar og ómerkilegar að sjá. En tótt 9 er einkennilegust allra tóttanna. Eiginlega eru það þrjár tóttir, sem snúa göflum saman, en oðnast hver í sína áttina. Þessar tóttir eru miklu minni en tóttirnar inni í kvosinni. Í einni þessara tótta er ein þakhella enn óhögguð, og eru það einu leifarnar af uppistandandi þaki í rústum þessum. Að lokum skal þess getið, að skammt fyrir norðan kvosina, sem rústirnar eru í, er annað hraunvik, sem gengur inn af sömu hraunsléttunni. Innst í því hefur verið hlaðið upp í öll skörð, svo að þar hefur myndazt aðhald, sem varla hefur verið gert til annars en að handsama fé. Hraunvik þetta er opið að framan, svo að varla hefur verið um eiginlega fjárrétt að ræða. … öruggt vatnsból er ekki nær en í hraungjá einni um 20 mínútna gang sunnar í hrauninu … Enn fremur er á sumum árstímum hægt að fá vatn rétt við kofana (að minnsta kosti var þar vatn í mái 1950). … Þær eru alþaktar mosa og hljóta því að vera nokkurra alda gamlar.“ segir Ólafur Briem í Útilegumenn og auðar tóttir.

Árnastígur (leið)

Árnastígur

Árnastígur.

„Sunnan við Klifgjá er Árnastígur, vel rudd braut um apalhraun. Gamli vegurinn milli Staðarhverfisins og Keflavíkur liggur um Árnastíg og Klifgjá, þar n-austur af er Þórðarfell. Þá er Stapafell og Stapafellsþúfa sem er mikilvægur punktur um landamerki milli ýmissa jarða á Suðurnesjum.“ GB Mannlíf, 23.

Staður (bústaður)

Staðahverfi

Staður Gamli kirkjustaðurinn er neðst h.m.

Kirkjustaður. 37,3 hdr. 1847. Skálholtskirkjujörð. 1657 voru 7 hjáleigur: Krókshjáleiga, Beinróa og Brykrukka, Hús Ólafs Sighvatssonar, Hús Daða Símonarsonar, Vestur-Hjáleiga og ein ónafngreind auk einnar ónafngreindrar í eyði – Saga Grindavíkur I, 104. 1703 voru Sjávarhús, Krókur og Beinrófa hjáleigur, Bergskot 1803. Staður var prestsetur til 1928 en fór í eyði 1964 og þar með Staðarhverfi – Ö-Staður, 4; GB Mannlíf, 49-50. „Til forna átti Staður rétt til vatnssóknar í Baðstofu í Húsatóftalandi. Til endurgjalds áttu Húsatóftir þangfjörutak á Stað.“ GB Mannlíf, 39. Á tuttugustu öld byggðust eftirfarandi tómthús í landi Staðar: Merki (1908-43), Lönd (1911-46), og Melstaður (1936-50).

Staðarhverfi

Staðarhverfi – uppdráttur ÓSÁ.

1840: Á Stað eru mikið slétt og í gróanda yfrið fögur tún; eru þau undirorpin afarmiklu sandfoki af öllum vindum frá útnorðri til landsuðurs, við hvað þau árlega skemmast og til þurrðar ganga. Við aldamótin voru af þeim vel fóðraðar 4 kýr, en nú á dögum gefa þau ekki af sér fóður fyrir 1 kú, þó vel í ári láti, og verður því að afla þess, á vantar, kjarna úr fjöru og lyngi úr heiði. Af sjóar ágangi er túninu líka mikill skaði búinn af sunnanveðrum og brimi. Bera þau enn að sönnu menjar eftir mikla flóðið 1798, og munu þó aðrar enn yngri vera. … Fáir eru kostir við jörð þessa, nema ef telja skal trjáreka, að hverjum eru þó mikil áraskipti, og allgóða fjárgöngu á vetrardag í fjörunni. En þess fleiri mætti telja hennar ókosti, t.d. í áföllum af feykilegu sandfoki, sem og líka sjóargangi í stórflóðum. Aldeilis engin hagabiet á sumardag, hvorki fyrir sauðfé, kýr né hesta, hverjir við minnstu brúkun horast niður af hagaleysi, en búsmali allur þá í sel rekinn, að eigi tapist hér heima né verði mönnum ónýtur fyrir fóðurleysi eða gangi á túnunm manna. Vatnsskortur er hér líka mikill, og eigi vatn að fá handa fénaði nema út undir Staðarbergi í gjá, sem fellur að og út í …“ sóknarlýsing, Landnám Ingólfs III, 134.

Staður

Staður. Síðasta íbúðarhúsið – byggt um 1930. Klukknaportið framar.

21.1.1925: „Gekk sjórinn langt upp á Staðartún, flæddi næstum upp að kirkjugarði, braut stórt skarð í malarkambinn og gróf sig þar niður í mold „svo túnið er nú með öllu varnarlaust fyrir hverju venjulegu stórstraumsflóði.“ “ GB Mannlíf, 49.
„Bærinn á Stað stóð eina 4-500 metra upp (norðvestur) frá sjó og var túnið að mestu sjávarmegin við hann.“ „Grunnur og tröppur steinhússins [b. 1938] sjást enn (1999) rétt norðan við núverandi kirkjugarð. Skv. munnlegri heimild (Ólafur Gamalíelson, uppalinn á Stað) stóð síðasti torfbærinn við NV horn núverandi kirkjugarðs. Tóftirnar eftir torfbæinn voru sléttaðar út fyrir nokkrum árum en traðirnar eru enn greinilegar norðan við kirkjugarðinn.“ AS Staður, 7. Úttekt af bænum á Stað frá 1657 er pr. í Sögu Grindavíkur I, 101-103 og fylgir tilgátuteikning af húsaskipan.

Kirkjugarður / kirkja

Staðarkirkjugarður

Staðarkirkjugarður.

„Kirkjugarðurinn er í túninu fast suðaustan við bæinn og ekki nema 2-3 m á milli skemmunnar og hans. Kirkjan stóð vestarlega í garðinum. – Þann 26. september 1909 var ný kirkja vígð að Járngerðarstöðum og tók sú við af Staðarkirkju, sem þá var aflögð.“
Um klukknaportið – GB Mannlíf, 55 og um sögu og skrúða kirkjunnar – GB Mannlíf, 136-44, Saga Grindavíkur I, 108-13. Koparbjallan í klukkuportinu er ú Anlaby, sem strandaði utan við Jónsbása.

Sjávarhús (bústaður)

Grindavík - kort 1751

Grindavík – kort 1751.

1840: „Sjávarhús, austur við sjóinn hjá lendingunni; eru þau eyðilögð í mikla flóðinu 1798, og stendur þar nú fiskihjallur á háum, berum kletti; fellur nú sjór á milli klettsins og naustanna í hverju stórstraumsflóði.“ segir í sóknarlýsingu. „Staðarklöpp var umflotin á flóði og mun hér áður hafa verið nefnd Hjallhólmi. Um 1916 mátti sjá tættur hæst á Staðarklöpp, en þeim skolaði síðan burt í flóðum. Tættur þessar hafa líklega verið af gömlum fiskihjöllum … Líklega hefur hjáleigan Sjávarhús áður staðið á Staðarklöpp.“ Í GB Mannlíf, 25-26 er talað um hjáleiguna Sjóhús, norðan við Þvottakletta, en að á Staðarklöppinni hafi verið sjóhús fram til 1930 en á bls. 56 segir: „Sjávarhús. Þau stóðu austur hjá Staðarvör en eyðilögðust í Básendaflóðinu 1799. Var síðan reistur þar fiskhjallur á háum, berum kletti og féll sjór milli hans og naustanna í hverju stórstraumsflóði.“ Guðsteinn Einarsson lýsir þessu svo: „Fiskhjallur eða þeirra tíma söltunarhús var á klöppinni; tóftin að því stóð fram um 1930 og var undir því moldarjarðvegur, ca. 2m á hæð, en er nú öllu skolað í burtu og klöppin ber.“ GE Frá Valahnúk.

Staðarvör (lending)

Staðarvör

Staðarvör.

Fast norðan við Staðarklöpp er Staðarvör, flórlögð upp í sandinn. Á.V. og S.V.G. vita ekki með vissu hvenær hún var gerð, en telja sennilegast, að það hafi verið rétt upp úr síðustu aldamótum.“ segir í örnefnalýsingu.
„Innan við Staðarklöpp er Staðarvör, þar sem bátarnir voru settir á land.“ segir Guðsteinn Einarsson.

Básar (þjóðsaga / býli)
„Þá [utan við Sölvabása] koma Flóabásar (kallast nú Hróabásar), eign Staðarkirkju. Þar skal hafa staðið bær og heitið í Básum.“
ÁM hafði þetta eftir Eyjólfi Jónssyni á Þorkötlustöðum og öðrum gömlum Grindvíkingum 1703.

Háleyjar (þjóðsaga / býli)

Háleyjar

Háleyjar – tóft.

„Þá koma Háleyjar. Á Staðarkirkja þar hálfan viðreka en Viðeyjarklaustur hálfan, og hefur sá helmingur fylgt Húsatóftum fyrir þá almennilegu leiguna, sem annars af jörðinni gengur. Í Haleyjum skal hafa verið bær.“ hafði Árni Magnússon eftir Eyjólfi Jónssyni á Þorkötlustöðum og öðrum gömlum Grindvíkingum 1703. Á sjálfri Háleyjabungu er grasgróður, en hún er þó minna en 1/3 er gróin og hvergi er bæjarstæði eða sýnilegt vatnsból. Algerlega gróðursnautt er austan og vestan við bunguna. Engar fornleifar eru á þessum stað.
„Fyrir innan Krossvíkur tekur við Háleyjaberg og þá Háleyjar. Þar voru talin góð fiskimið skammt undan landi, og rústir og tóttabrot uppi á kampinum geta bent til þess, að þarna hafi fyrrum verið útræði. Um sjósókn frá Háleyjum eru þó engar öruggar heimildir, en hafi hún verið einhver, er líklegast, að útvegurinn hafi verið frá Húsatóttum. Húsatóttamenn áttu sölvatekju í Háleyjum, og er reyndar alls ekki loku fyrir skotið, að byrgistrústirnar séu leifar eftir þær athafnir. Þeir, sem á sölvafjöruna fóru, hafa að líkindum legið við þarna út frá og sjálfsagt þurrkað sölin, eftir því sem mögulegt var.“ segir í Sögu Grindavíkur I.

Háleyjar

Háleyjar – tóft.

Í örnefnalýsingu segir: „Talið er, að á Háleyjum hafi fyrrum verið útræði. Til þess benda m.a. kofarústir framarlega á Háleyjabungu.“ sbr. GB Mannlíf, 30. Hið rétta um þessa rúst kemur fram í skýrslu Brynjúlfs Jónssonar frá 1903: „Þar er ágætur lendingarstaður. Skammt vestur frá Krossvíkum, en á landi er þar hraun eitt og ekkert einkennilegt. Að eins er þar ofurlítil rúst eftir sjóbúð, sem bygð var seint á 18. öld. Þá gjörði Grindvíkingur einn, er Jón hét, bæ í Vatnsfelli, þar sem nú er bær vitavarðar, og hafði útræði frá Háleyjum. En það er langt frá Vatnsfelli, og gat hann ekki sótt sjó að heiman. Því bygði hann búðina. En honum reyndist ókleyft að lifa á þessu nýbýli sínu, og fór þaðan aftur eftir 2 ár. Síðan hefir Háleyjalenfing ekki verið notuð.“ Árbók 1903, 44. Leitað 1998 en ekkert fannst – starfsmaður í Saltverksmiðjunni sem segist mikið hafa gengið á þessu svæði kannst ekki við þessar rústir.

Rafnkelsstaðaberg

Gatklettur í [H]Rafnkelsstaðabergi.

Um 1860: „Skarfasetur heitir hin yzta tá á Reykjanesi; þa er þar austur frá kallað Rafnkelsstaðaberg, þá Háleygjahæð …“ sgir Magnús Grímsson í ritgerð um fornleifar á Reykjanesi. „Fyrir innan Básinn tekur við mishátt berg, 10-40 metra hátt. Það er oftast nefnt Krossvíkurberg, en Guðsteinn Einarsson kveðst einnig hafa heyrt það kallað Rafnkelsstaðaberg. … Ekki er vitað til þess, að bæjarnafnið Rafnkelsstaðir hafi nokkurntíma  verið til í Grindavíkurhreppi, og reyndar mun engin jörð á Suðurnesjum hafa heitið svo, nema Rafnkelsstaðir í Rosmhvalaneshreppi.“ segir í sögu Grindavíkur I. Einnig er getið um þennan stað í örnefnalýsingu: „… utar tekur við Krossvíkurberg, sem einnig er nefnt Hrafnkelsstaðaberg (Ath.: í frb. var það oft haft Hrakkelsstaðaberg). Bendir nafnið til að þarna hafi einhvern tímann verið bær.“
Gróðurlausir sjávarhamrar.
Brynjúlfur Jónsson getur örnefnisins í grein í Árbók 1903 og telur að þar hafi verið bær nefndur Hrafnkelsstaðir – Árbók 1903, 43-44. Engar fornleifar eru við Hrafnkelsstaðaberg.

Mölvík (þjóðsaga / býli)
1703: „Þá kemur Mölvík, Staðarkirkjueign. Þar skal og hafa verið bær og þar er vatnsból hjá.“ Um 1860: „… þá Mölvík, sem samnefndur bær á að hafa staðið við …“ ÁM hafði þetta eftir Eyjólfi Jónssyni á Þorkötlustöðum og öðrum gömlum Grindvíkingum 1703.

Sandvík (þjóðsaga / býli)

Litla-Sandvík

Litla-Sandvík – mögulegar mannvistarleifar.

1703: „Þar næst Sandvík, Staðarkirkju eign, skal og hafa verið bær.“ segir í Chorographiu Árna Magnússonar.
Um 1860: „… þá Háleygjahæð og Háleygjar, þá Sandgerði tvö við Sandvíkurnar.“ segir Magnús Grímsson í ritgerð um fornleifar á Reykjanesi. „Þarna er talið að hafi verið verbúð, jafnvel bær, fyrir eina tíð, enda má þetta kallast ein af fáum „byggilegum“ stöðum á þessum auðnarslóðum.“ segir Gísli Brynjólfsson í bók sinni um Staðhverfinga. „Hvorki [Sigurður V. Guðmundsson] né [Árni Vilmundsson] kannast við að hafa heyrt talað um byggð í Sandvík.“ segir í örnefnalýsingu. ÁM hafði þetta eftir Eyjólfi Jónssyni á Þorkötlustöðum og öðrum gömlum Grindvíkingum 1703.

Krossvík (þjóðsaga / býli)
„Stóra-Krossvík kemur þá. Hana eignar sér Staðarkirkja í Grindavík, en aðrir eigna hana Nesskirkju á Seltjarnarnesi og hefur nú Þorkell í Njarðvík af Nessmönnum rekann þar. Í Krossvík skal hafa verið bær.“ hafði Árni Magnússon eftir Eyjólfi Jónssyni á Þorkötlustöðum og öðrum gömlum Grindvíkingum 1703. Algerlega gróðursnauð klettaströnd.
Brynjúlfur Jónsson getur örnefnisins í grein í Árbók 1903 og telur að bendi til byggðar áður en hraun runnu þar – Árbók 1903, 44.

Herkistaðir (þjóðsaga / býli)
„Þar næst [utan við Krossvík] eru Herkistaðir. Skal hafa verið bær, eign Staðarkirkju.“ hafði Árni Magnússon eftir Eyjólfi Jónssyni á Þorkötlustöðum og öðrum gömlum Grindvíkingum 1703.
Þverhnípti klettaströnd, gróðursnautt. Engar fornleifar eru á þessum stað.

Sundlaug

Reykjanes

Sundlaugin á Reykjanesi.

„… örskammt ofan við [Valahnúka] Mölina er gjá í hrauninu, sem heitir Valbjargargjá. Í henni var ylvolgt vatn, og þar var gerð sundlaug um 1930. Laugin var um 30 fermetrar að stærð, og var börnum í Grindavík kennt þar sund. Sjór mun hafa gengið inn í gjána, því dýpi í lauginni fór eftir því, hvernig stóð á sjó. Nú er sundkennsla í gjánni löngu aflögð, en enn má sjá ummerki eftir hana, hlaðinn steinvegg og tröppur niður í vatnið.“ segir Jón Þ. Þór í Sögu Grindavíkur. 1998: Sundlaugin er syðst og vestast í túni frá vitavarðabústað, um 10 m norðan við Sjólaug, um 250 m SSV við Reykjanesvita.

Reykjanes

Reykjanes – sundlaug.

Í náttúrulegri sprungu. Við austurenda sprungunnar hefur veggur verið hlaðinn upp með hraungrýti og myndar „U“ á móts við sprunguna. Gengið er niður í laugina norðantil á austurvegg. Hleðslan í norðurenda er 1,5 m há en þar er klöpp í botninn en suðurendi laugarinnar er 3m djúpur. Veggurinn í austurenda er um 0,7 m hærri en umhverfið en hefur þó tæplega verið vatnsheldur. Mjög sérstætt mannvirki.

Gunnuhver (þjóðsaga)

Gunnuhver

Gunnuhver.

1841: „Hver er á Reykjanesi, Gunna kallaður, skammt eitt í landnorður af Grasfelli. Bullar hann og sýður í leireðju en ekkert sést tært vatn; er hverinn utan í hól; holan, sem sýður í með mörgum augum, er hér um 12-16 faðmar ummáls og niður að eðjunni fullkomnar þrjár álnir. Fremur líkist hver þessi bullandi feni en nokkrum vatnshver og öldungis ólíkur öllum þeim hverum, ég séð hefi í Borgarfirði, Biskupstungum og Laugardal.“ – „Um Hveravelli, sem eru norðaustur frá vitanum, er Gunnuhver, sem mun vera hérna megin merkjanna. Hann er kenndur við Guðrúnu sálugu Önundardóttur, sem steypti sér þar niður á leið yfir í eilífðina.“ Gunnuhver er vel merktur og auðfundinn. Gert hefur verið bílastæði skammt sunnan við hann og gönguleið að honum og pallur við hann.

Gunnuhver

Gunnuhver.

1860: „“Hverir eru hér út á Reykjanesi fæstir mjög stórir og gjósa ei hátt. [. . .] Einn hverinn er stærstur; í honum krakkar eins og katli. Sá hver er kallaður Gunnuhver,. . . Í þessum hver endaði afturgangan Gunna eftir að hún var búin að ganga aftur um hríð og valda skaða meðal manna. Upphaf sögunnar var það að prestur nokkur átti í útistöðum við Gunnu sem síðan dó og hóf að ásækja fólk og sérstaklega prest og konu hans. Hún dró bæði hjónin til dauða áður en menn tóku sig saman, fóru til Eiríks í Vogsósum sem gaf þeim hnoða og sagði þeim að láta Gunnu taka í. Það gerðu þeir og Gunna elti hnoðann ofan í Gunnuhver og sást ekki síðar.“ – MG. „… gufuhver einn mikill skammft … frá [Gunnuhver] er kominn þar upp á þessari öld … Rétt hjá „Gunnu“ er töluverð fúlga af hreinni kísilsýru (kísill), sem lengi var kölluð postulínsnáma, af því að menn hugðu það vera postulín, en lítill arður hefir enn orðið af henni.“ Bjarni Sæmundsson: Suðurkjálkinn, ÁFÍ 1936, 40.
Vilhjálmur Jónsson á Kirkjubóli (d. 1706) átti í útistöðum við kerlingu eina, Guðrúnu Önundardóttur, út af potti sem hann átti að hafa tekið hjá henni, líklega upp í skuld. Heitaðist hún við hann.

Kirkjuból

Tóftir Kirkjubóls.

Vilhjálmur var viðstaddur greftrun hennar en fannst dauður, blár og beinbrotinn á víðavangi daginn efti. Var prestur fenginn til að vaka yfir líkinu en þóttist eiga fullt í fangi við að verja það fyrir ágangi kerlingar. Afturgangan magnaðist mjög og næst dó ekkja Vilhjálms en fólk sem fór um þar sem lík hans fannst annaðhvort viltist eða varð vitstola. Þegar afturgangan var orðin svo mögnuð að menn sáu hana fullum sjónum voru sendir menn til séra Eiríks í Vogsósum en þegar þeir fóru af stað aftur frá honum fékk hann þeim hnoða sem þeir skyldu láta Gunnu taka í lausa endann á. Sagði hann að hnoðað mundi þá sjálft velta þangað sem hún mætti vera að ósekju. Sendimenn fóru þá heim og gerðu eins og fyrir þá var lagt. Þegar Gunna tók í lausa endann á hnoðanu valt það af stað en hún á eftir. Sást það seinast til að hvort tveggja hnoðað og Gunna, steyptist ofan í hver þann suður á Reykjanesi sem síðan er kallaður Gunnuhver. Sumir segja að hnoðað færi ofan í hverinn, en Gunna héldi í endann; var endinn svo langur að Gunna gat staðið hálfbogin uppi á hverbarminum og trítlar hún þannig einatt til og frá kringum hverinn á blábrúninni hálfbogin. Tveir eru hverirnir og er annar stærri en annar; greinir menn á um það hver hverinn það er. JÁM III, 508-510

Heimild:
-Menningarminjar í Grindavíkurkaupstað, Svæðisskráning. Fornleifastofnun Íslands, Reykjavík 2001.

Grindavík

Grindavík.

Hvalsnes

Hvalsnes er kirkjustaður sunnan við Sandgerði á Miðnesi. Þar var lengi prestsetur og þjónaði Hvalsnesprestur þá að jafnaði einnig í Kirkjuvogi (Höfnum) og í Innri-Njarðvík.

Hvalsneskirkja

Hvalsneskirkja.

Á Hvalsnesi er steinkirkja, byggð utan við kirkjugarðinn. Kirkjan sú var vígð á jóladag árið 1887, en Hvalsnesprestakall hafði verið lagt niður 1811 og síðan hefur Hvalsnessókn tilheyrt Útskálaprestakalli.
Kirkjubóndinn Ketill Ketilsson í Kotvogi lét reisa Hvalsneskirkju. Þar hafði kirkja staðið frá allt frá 1200. Ketill hafði frétt að verið væri að reisa hlaðna kirkju í Innri-Njarðvík (1885-1886). Snaraðist þangað og samdi við steinsmiðina um að koma á Hvalsnes þegar verkinu væri lokið og hefja þar hleðslu. Grjótið var tekið úr klöppinni fyrir utan túnið og því ekki langt að fara.
Kirkjusmiður var Magnús Magnússon, steinsmiður í Garði. Hann fórst 1887 áður en smíðinni lauk og tók þá við Stefán Egilsson.

Hvalsnes

Grafsteinn Steinunnar í Hvalsneskirkju.

Stórbóndinn Ketill Ketilsson í Kotvogi í Höfnum var þá eigandi Hvalsnesjarðarinnar og kostaði hann kirkjubygginguna. Hún á nú marga góða gripi, meðal annars er þar geymdur legsteinn Steinunnar, dóttur Hallgríms Péturssonar sálmaskálds, en hann var þar prestur frá 1644 til 1651. Hann er sagður hafa höggvið legsteininn sjálfur. Legsteinn þessi var lengi týndur en fannst 1964 þar sem hann hafði verið notaður í stéttina framan við kirkjuna.

Þekktastir Hvalsnespresta voru fyrrnefndur Hallgrímur Pétursson (1644-1651) og Árni Hallvarðsson (1743-1748).

Hallgrímur Pétursson (1614–27. október 1674) var prestur og mesta sálmaskáld Íslendinga. Ævi hans var að mörgu leyti óvenjuleg en þekktastur er hann í dag fyrir Passíusálmana sína sem voru fyrst gefnir út á prenti árið 1666. Hann var af góðum ættum en bjó lengst af við fátækt. Hann naut mikils stuðnings Brynjólfs Sveinssonar biskups og fékk prestsvígslu frá honum þrátt fyrir að Hallgrímur lyki aldrei formlega prófi. Hallgrímskirkja í Reykjavík og Hallgrímskirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd eru nefndar eftir honum.

Hvalsnes

Hallgrímur Pétursson – glerlistaverk í Akureyrarkirkju.

Árni Hallvarðsson (1712-1748) var prestur á Suðurnesjum. Foreldrar hans voru Hallvarður Ingimundarson í Gerðum í Garði og Þórdís Halldórsdóttir frá Keflavík. Hann varð stúdent frá Skálholtsskóla 1739 en var á sumrum hjá Brynjólfi Sigurðssyni sýslumanni á Reykjum í Ölfusi. Hann var prestur á Hvalsnesi frá 1742 til dauðadags.
Sagt er að séra Árni hafi bannað vikivaka og jólaskemmtanir þær sem haldnar voru á Flankastöðum og að honum hafi hefnst fyrir það er hann drukknaði í embættisferð að Kirkjuvogi þann 31. mars 1748.

Á Hvalsnestorfunni voru eftirtaldir bæir á fyrri hluta 20. aldar; Vesturbær og Austurbær, Kirkjuhóll suðvestan kirkju, Brandskot norðan sjávargötunnar að vörinni til norðausturs, Nýibær og Smiðshús vestast, sunnar Gerðakot, norðar Tjörn Moshús, Hlið og Garðbær, austar Nýlenda, Bursthús og Skinnalón. Flestir bæjanna eru nú tóftir einar, en sumum jörðunum standa þó enn íbúðarhús.

Hvalsnes

Hvalsnes – loftmynd 1954.

Í „Fornleifaskráningu vegna fyrirhugaðs ljósleiðara í Suðurnesjabæ“ árið 2022 má m.a. lesa eftirfarandi fróðleik um bæina:

Hvalsnes

Hvalsnes

Hvalsnes um miðja 20. öld.

1686 og 1695: 60 hdr., 3/4 konungseign, 1/4 kirkjueign, samkvæmt The Old Icelandic Land Registers, 122.
1703: Jarðardýrleiki óviss, ¾ konungseign ¼ kirkjueign. Kirkjustaður með hjáleigunum Gierdakoti, Smidshúsi, Ervidi, Moakoti, hjáleigu kennd við ábúanda hverju sinni (þá Þorbjörn) og Fiosakoti, samkvæmt JÁM III, 45-47.
1847: Jarðardýrleiki óviss, bændaeign, með hjáleigunum Gerðakoti, Rembihnúti, Mosahúsi og Nýlendu. Þar segir að í jb. 1803 séu hjáleigurnar Smiðshús og Brandshús undirsettar jörðinni, samkvæmt JJ, 86.
Um 1200: Kirknaskrá Páls, DI XII 9.

Hvalsnes

Brunnur, fylltur, í Brunnlág.

1225: “Síðan fór Aron [Hjörleifsson] suðr a Hvalsnes til Þorsteins ok var þar um hríð,” segir í Íslendingasögu, Sturl I, 308. Hvalsness er einnig getið í sömu sögu bls. 457, 495.
Um 1270: Skrá um rekaskipti á Rosmhvalanesi. “Þadann fra fvlavik xl fadma a sanndinn fra kolldvhomrvm. Þadann aa hvalsnes. krokvr. ok vtskaler sydvr til midær holms sinn þridivng hvor þeirra. […] Þadann eigv vtskaler einer sydvr til miosyndis. Þadann aa sydvr hvalsnes ij hlvti j vidreka enn starnes þridvng.” DI II, 77.
Um 1270: “Þetta er hvalskipte rost hvelínga: at þann hval sem meire er enn xij vætter ok half vætt ok rekvr millvm æsvbergs ok kefl v vikur til motz vid niardvikínga skall skiptta j nív stade. […] Hinn ixa hlvt hvals aa hvalsnes ok starnes.” DI II, 78-79.

Hvalsnes

Lögréttan á Hvalsnesi.

Um 1270: “landamerkia bref aa milli huals nes og starnes.” DI II, 81.
1367: “xliij. Hvalnes maldage eins og j vilchinsbok. þa lidit var fra hijngad burd vors lausnara Jesu christi þushundrut ara þriu hundrut ara og siau tijger ara vijgde herra othgeir Biskup kirkiu a Hualsnese et cetera”; Hítardalsbók, sjá 1370; DI III 219.
1370: “Hvalsnes. Þa er lidit var fra hijngadburd vors herra Jesu Christi Þushundrud ära ccc. oc lxx ara. vijgdi herra Otthgeir Biskup kirkiu a Hvalsnesi […]. ad kirkian a fi ordung j heima landi sem Biorn bondi Olafsson oc Salgierdur kona hanz [gafu] kirkiunni til vpphelldis og ad standa skylldi fi rir presti og jord j nordurnesium […].” DI III, 256-257.

Hvalsnes

Hvalsnes – Virkishóll.

1415: “[…] hustru jnghunn gunnarsdotter medr fullo handabandhi fek […] herra arnna med gudz nadh biskup i skalholti sitt fullt oc loghligt æighnar vmbodh yfuer hualsnesi a hrosmalanesi […].” DI III, 761.
25.8.1426: Vottað “ath herra hanis paalsson feck med fullo handabande herman langha forstandara ath allra heilagra kirkiu j bergwin huaalsnes a Rosmalanesi liggiande bade síns herra kongsins oc suo sína vægna […].” DI IV, 336.
1435: Jón Kárason prestur vottar um viðtal Árna Ólafssar biskups við Helga Guðinason systurson sinn: “hielt biskup aarne aa eirne skaal ok drack helga aulit til. ok hier til gef ek þier jaurdina er hualsnes heiter er liggr aa Rosmalanese til fullrar eignar.” DI IV, 554.

Hvalsnes

Hvalsneshverfi – túnakort 1919.

1436: Snorri Ingimundarson prestur og þrír aðrir menn votta: “ath gudrun styrsdottir handfeste helga gudinasyne suo felldan vitnissburd. Ath hun heyrde […] gerra aarna med guds naad biskup j skalhollte kennazt […] ath hann hefde gefi t nefndum helga jaurdina er hualsnes heiter er liggr aa rosmalanese til
fullrar eignar ok sagdizt þa enn gefa honum adr nefnda jaurd.” DI IV, 555.
1436: Helgi Ingjaldsson prestur vottar: “at nefnd jngun [gunnarsdotter] feck biskp arna jordina a hualsnese er liggr a rosmalanesi til fullrar eignar med ollum þeim gognum ok gædum sem til liggr […].” DI IV, 555-556.

Hvalsnes

Hvalsnes – Smiðshúsabrunnur.

1436: Alþingisdómur tólf manna útnefndum af Ormi Loptssyni hirðstjóra: “at dæma i milli hera laughmannzins helga gudinasonar ogh nikulas snæbiarnarsonar. Kærdi fyrrnefndr helghi ath aadrnefndr nikulaas hielldi ogh sier eignadi jordina hvalsnes er liggr aa rosmhvalanesi. […] þvi dæmdvm vier fyrrnefnder domsmenn títtnefndom helgha optnefnda jord hvalsnes til fvllrar eignar svo mikit sem gilldi aatta lester fi sk fram komnar i bergvin en honum til hallz þad sem jördin væri dyrri.” DI IV, 559-560.
1445: Torfi Arason selr Skúla Loptssyni Hvalsnes á Rosmhvalanesi og Gegnishól í Skagafi rði fyrir jarðirnar Þykkvaskóg, Miðskóg Þórólfsstaði, Smyrlahól Giljaland og Heinaberg. “[Seljandi jarðarinnar reiknar] at hualsnesi fylgdi tuer jarder nes ok Melaberg ok stedi onnur fi rir omagavist. enn adra etti kirkian ok Þar til tolf kugilldi. kynni [kaupandi] at spyria at helge gudinason hefdi fl eire peninga tekit kirkiunnar vegna aa hualsnesi Þa skylldi [seljandi] Þa til leggia.” DI IV, 665-666.

Hvalsnes

Hvalsnes – Virkishóll.

1488: Jörðin Býjasker á Rosmhvalanesi er í Hvalsneskirkjusókn. DI VI, 637.
1541. Minnisgreinar Gizurar biskups. “Jtem lofad sira Eyolfi Hualsnesi ef sera Halldor hefur þad ecki heima sialfur.” DI X, 691.
1546: Bréf Gizurar biskups til síra Eyjólfs á Hvalsnesi. “J hueriu þier skrifudut at sira Einar hefdi b(ygt) undan ydur hualsnes veit ec þar ecki til.” DI XI, 528. 1552: Fógetareikningar. “Jtem Ogmonder aff Hualsnese ff or ij skatte xvj alne vadmel.” DI XII, 420. Sjá einnig Fógetareikninga 1553, DI XII, 577, 579.
1563: Jarðaskiptabréf hirðsjóra fyrir hönd konungs við Skálholtsstól. “[…] under minn nadugasta herra og Krununa skulu þessar jarder liggia til eignar oc aftekta […] Hvalznes med Hualsness hverfi fyrer jc hundrada.” DI XIV, 156. 1575: Máld DI XV 639 1698-1720: Jón bp Vídalín lætur lögtaka að Njarðvíkurkirkja fái alkirkjurétt og skuli vera annexía frá Hvalnesi; PP, 102.

Hvalsnes

Hvalsnes (HWL).

Fasteignamat frá 1916 er til fyrir Hvalsnes ásamt Móum, Loftstöðum, Smiðshúsum, Nýjabæ, Móhúsum og Tjörn.
1919: “Túnin að mestu slétt og sléttuð.” Tún (Hvalsnes A), 3.4 hekt., garðar 800 m2. Tún (Hvalsnes V),
3.4 hekt., garðar 540 m2. Tún (Smiðshús), 1.3 hekt., garðar 540 m2. Tún (Nýibær), 0.9 hekt., garðar 810 m2. Tún (Tjörn), 0.15 hekt., garðar 380 m2. Tún (Garðbær), 0.15 hekt., garðar 380 m2. Tún (Hlið), 0.15 hekt., garðar 380 m2. Sléttað tún (Móakot), 0.44 hekt., garðar 370 m2. Sléttað tún (Loftstaðir) 0.1 hekt., garðar 590 m2. Öll torfan samtals 9.9 hekt., og garðar 4790 m2.

Hvalsnes

Hvalsnes; bæirnir Nýibær, Moshús og Tjörn. Smiðshús t.h.

1703: [S]o er og mestalt land jarðarinnar komið í sand, grjót og hrjóstur […]. Torfrista og stúnga engin nema í sendinni jörðu, valla nýtandi. Eldiviðartak ekkert nema fj öruþáng. Fjörugrasatekja sem jörðinni nægir. Sölvatekja lítil. Fuglveiði og eggver ekkert nema ef sótt væri til Geirfuglaskers, sem presturinn þykist heyrt hafa kirkjunni eignað að nokkrum parti, en þángað er háskaför so mikil, að það hefur um lángar stundir ekki farið verið […]. Rekavon nokkur. Hrognkelsafj ara að nokkru gagni. Murukjarnar, söl og bjöllur eru um veturinn brúkaðar til að næra á nautpeníngi í heyskorti […]. Vatnsskortur er að miklu meini, so að margoft bæði sumar og vetur verður það að meini mönnum og fjenaði, þegar ekki nást fjöruvötn,” segir í JÁM III, 44-45.
“Hvalsnestangi […]. Skiptast þar á tjarnir og þýfðir móar. Þar er kúabeit, einnig hesta og sauðfjár að nokkru,” segir í örnefnalýsingu MÞ (Ö-Hvalsnes MÞ, 1).
Í örnefnaskrá AG segir: “Kúatraðir eru frá bæ milli Norðurtúns og Tjarnarbletts.” (Ö-Hvalsnes AG, 1).

Hvalsnes

Hvalsnes – útihús frá Austurbæ.

Uppmældar minjar á bæjarhólnum í Hvalsnesi eru áberandi og sjást vel úr öllum áttum. Á túnakorti frá 1919 er bærinn Hvalsnes merktur með níu steinhúsum, tveimur kálgörðum og einni for vestan við suðurkálgarðinn. Íbúðarhús er suðaustast á bæjarhólnum og steinsteypt útihús til norðurs og vesturs.
Íbúðarhúsið er byggt yfir austurenda bæjarhúsanna líkt og þau eru sýnd á túnakortinu og útihúsin eru vestarlega á hólnum, á sama stað og útihús á túnakortinu. Stafnar bæjarins snéru til suðurs að öllum líkindum en mikið rask er á bæjarhólnum vegna húsbygginga sem og annarra framkvæmda. Áætlað er að ljósleiðarinn liggi þvert yfir miðjan bæjarhólinn.
Slétt, ræktuð tún eru allt umhverfis bæjarhólinn á Hvalsnesi. Bæjarstæðið er Bæjarhóllinn er um 50 m í þvermál og 1-2 m á hæð. Brún hólsins sést einna best til suðurs, þar er hún 1,5 m á hæð. Malarplan er á hólnum miðjum og vegur yfir norðurhluta hans. Ekkert er varðveitt af eldri húsum á bæjahólnum en án efa er enn mannvist undir sverði.

Hvalsneskirkja

Hvalsneskirkja

Hvalsneskirkja.

Á túnakorti frá 1919 er steinkirkja, sem er samtengt kirkjugarði, merkt um 80 m suðaustan bæjar. Kirkjustæðið sést enn.
c. 1200: Kirknaskrá Páls, DI XII 9. HVALSNES Á MIÐNESI (G) -Guði, Maríu, heilögum krossi, Ólafi , Katrínu, öllum Guðs helgum mönnum.
1367: “xliij. Hvalnes maldage eins og j vilchinsbok. þa lidit var fra hijngad burd vors lausnara Jesu christi þushundrut ara þriu hundrut ara og siau tijger ara vijgde herra othgeir Biskup kirkiu a Hualsnese et cetera”; Hítardalsbók, sjá 1370, DI III 219.
10.6.1370: “Hvalsnes. Þa er lidit var fra hijngadburd vors herra Jesu Christi Þushundrud ära ccc. oc lxx ara. vijgdi herra Otthgeir Biskup kirkiu a Hvalsnesi Gudi til lofs oc dyrdar og heilagri Gudz modur Mariæ. hinum heilaga krossi. Olavo kongi. heilagri Katariæ oc ollum Gudz helgum monnum næsta dag fi rir festum Barnabæ Apostoli med þessum mäldaga. ad kirkian a fi ordung j heima landi sem Biorn bondi Olafsson oc Salgierdur kona hanz [gafu] kirkiunni til vpphelldis og ad standa skylldi fi rir presti og jord j nordurnesium oc xij kyr.

Hvalsneskirkja

Hvalsneskirkja.

Þar skal vera heimilisprestr oc syngia hvern dag helgann oc hvern dag vm Langafostu oc jolafostu. ymbrudaga oc oll ix lestra holld oc octavas oc iij daga j viku þess j milli. þar skal lvka presti iiij merkur aa hveriu aare. þangad liggia Þesser iiij bæer ad tiundum oc lysitollum oc ollum skylldum. þoristader. fl angastader. Sandgerdi oc Vppsaler. Og af ollum bæium sudur þadan til Voga allar skylldur vtan af Biaskerium oc þeim tveimur kotum sem þar fylgir jordunni. tekst þar af heima tiund. af Hvalsnesi skal syngia til Biaskeria annan huern dag helgan. Þetta aa kirkian innan sig. kross fornan storan med vnderstodum. Mariuskriptt. olafsskriptt. iij krossa smä. Salvatoris skriptt. skrijn med helgum domum. v. kluckur. iiij biollur.

Hvalneskirkja

Hvalsneskirkja.

Tabulum oc brijk. tiolld vmmhverfi s sig. kiertistikur iiij med kopar. jarnstikur iiij. sacrarium mvnnlaug. ampli oc fonts vmbuning med skijrnar katle. vijgdz vattzkietill oc stockull. paxspialld oc paskablad. sacrarium handklædi oc kiertistiku. glodarkier. elldbera. baksturjarn. kirkiu läs. kista. vj manna messuklædi oc iiij hoklar ad auk. kantarakapur iij. sloppar ij. alltaraklædi iij med dvkum. kaleika iij. oc hvslkier med silfur glerglugga iij. merki ij. lectara ij. stol. kiertaklofa. paskakiertis vmbunad. dymbil oc halftt pund vax. xij manada tijder. J mote þeim iiij bæium sem vndann Vtskaala kirkiu eru tekner leggur Biorn bonde kirkiunni ad Vtskalum jord er hiter j Votum med tveimur kugilldumtil æfi nnligrar eignar. fi ell nidur portio sijdan Svarthofdi erfdi jordina fi rir ad hann giordi kluckna hvs oc fi ri brad oc brot aa kirkiu”; Vmáld DI III 256-257 [ef seinasta málsgreinin er ekki seinni viðbót, þá getur hér ekki verið um kirkjustofnun að ræða. Umtalsverð ornamentiseign bendir líka til að kirkjan hafi átt sér lengri sögu. Máldaga Oddgeirs ber þá etv að skoða sem breytingu úr hálf- í alkirkju].

Hvalsneskirkja

Hvalsneskirkja.

7.5.1445: “[Seljandi jarðarinnar reiknar] at hualsnesi fylgdi tuer jarder nes ok Melaberg ok stedi onnur firir omagavist. enn adra etti kirkian ok Þar til tolf kugilldi. kynni [kaupandi] at spyria at helge gudinason hefdi fl eire peninga tekit kirkiunnar vegna aa hualsnesi Þa skylldi [seljandi] Þa til leggia”; DI IV 666.
22.8.1488: Jörðin Býjasker á Rosmhvalanesi er í Hvalsneskirkjusókn. DI VI, 637.
1575: Máld DI XV 639.
1698-1720: Jón bp Vídalín lætur lögtaka að Njarðvíkurkirkja fái alkirkjurétt og skuli vera annexía frá Hvalnesi; PP, 102.

Hvalsneskirkja

Hvalsneskirkja.

1811: Hvalnesprestakalli skipt upp og varð Hvalnes annexía frá Útskálum, staðfest með konungsbréfi 26.4.1815, Þó þannig að Hvalneskirkja skyldi niður lögð; PP, 104.
5.4.1820: Hvalneskirkja tekin upp á ný og byggð upp aftur 1821; PP, 102 [konungsbréf].
“[K]irkjan var uppbyggð að heita mátti á ábúandans kostnað 1821; þykir hún vera snoturt hús og prýðilegt,” segir í sýslu og sóknalýsingum. “Nýlega er búið að færa Hvalsnesskirkju út úr kirkjugarðinum suðaustur fyrir hann; er hún nú bygð úr steini og mjög vönduð. — Mér hafði verið sagt, að í Hvalsnesskirkjugarði hefði verið legsteinn yfir Steinunni Hallgrímsdóttur skálds, Péturssonar.

Hvalsneskirkja

Hvalsneskirkja og minnismerki um horfna sjómenn.

Nú var þar aðeins einn legsteinn sjáanlegur og af honum var alt letur þó horfið. En sú sögn fylgdi honum, að hann væri yfir séra Eiríki Guðmundssyni ([d.] 1796). Var mér sagt, að gras mundi gróið yfir Steinunnar-steininn, en að Hákon bóndi í Nýlendu mundi vita, hvar hans væri að leita. Hákon kvaðst muna eftir steininum: hann hefði verið alsettur letri. Og hann vísaði til, hvar hann minnti að steinninn hefði verið. Þar lét ég gjöra talsverða leit, en kom fyrir ekki. […] Á Stafnesi kom maður til mín, og sagðist hafa beyrt það haft eftir Steingrími bónda í Nesjum (Jónssyni prests í Hruna, Steingrímssonar), að hann (Steingrímur) myndi eftir því, að þá er síðast var bygð kirkjan í kirkjugarðinum (sem var 1864), þá hefði legsteinn verið settur í »grunnmúrinn«, og á honum hefði verið nafnið »Steinunn Hallgrímsdóttir« og ártalið, en ekkert annað.

Hvalsnes

Sólveig; minningarteinn á Hvalsnesi.

Ártalið hefði verið annaðhvort 1660 eða 1669. […] Sé hún rétt hefir sá steinn eigi tilheyrt Steinunni dóttur séra Hallgríms skálds. Hann var farinn frá Hvalsnesi fyrir 1660,” segir í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1903. “Á skrásetningarferð minni um Suðurnes í ágústmán. i sumar var mér sagt til tveggja rúnasteinsbrota á Hvalsnesi. […]. Annað lá úti undir kirkjugarðsveggnum að sunnanverðu, fyrir utan hann; er það aftari hluti steinsins. Hitt var í hleðslunni í norð-vesturvegg kirkjugarðsins að innanverðu og sást á þá hlið sem rúnirnar voru á. Efni beggja brotanna er grágrýti (dolerit) og er það brotið, sem í hleðslunni var, orðið eytt og veðurbarið; hefði það verið hér mörg ár enn, var fyrirsjáanlegt að rúnir og alt verk hefði eyðst af því. […] Bæði brotin eru nú komin á Forngripasafnið. Í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1971 er áletrunin sögt talin frá um 1500.

Hvalsneskirkja

Hvalsneskirkja.

“Síra Gestur var þá prestur á Hvalsnesi. Hann kom út úr bænum um vökuna og sér hvar tveir menn eru að glíma í kirkjugarðinum. Prestur gengur þangað og sér hvað um er að vera; er þar Þórarinn [í Glaumbæ] og Jáson [unglingspiltur sem grafinn var að Hvalsneskirkju] nærri því búinn að drepa hann.
Gestur prestur bjargaði Þórarni og kom Jásyni frá honum. Þórarinn hafði vakið Jáson upp og sent hann eftir peningum; var hann þá aftur kominn. Sagt er að síra Gestur muni hafa tekið til sín megnið af peningunum,” segir í Þjóðsögum Jóns Árnasonar.

Skóli

Hvalsnes

Hvalsnes – fyrrum skólinn sést á risbyggingunni.

Á túnakorti frá 1919 er skólahús merkt um 180 m austan bæjar, rétt utan við heimatúnið. Óræktaður mói og uppblásið svæði. Ekki sést til skólans – búið að byggja skemmu þar sem skólinn hefur staðið.

Garðbær
Á túnakorti frá 1919 er þurrabúðin Garðbær teiknuð með steinhúsi með skemmu ásamt einum kálgarði, um 140 m norðan bæjar.

Hvalsnes

Hvalsnes – Garðbær. Hlið t.h.

“Yztu takmörk Tjarnarbletts er rúst eftir þurrabúð, sem heitir Tjörn, og þar vestast í yztu merkjum Norðurtúns er Garðbæjartóft. Þar austur af er önnur þurrabúð, Hlið,” segir í örnefnaskrá AG. Garðbær er um 130 m norðan við Hvalsnesbæ og 25 m VSV við Hlið. Bæjartóftin er horfin en var fast sunnan við núverandi íbúðarhús.
Garðbær samanstendur af bæjarstæðinu og kálgarði sem enn sést fyrir norðan íbúðarhúsið.
Kálgarðurinn er ennfremur sambyggður Hliði. Núverandi íbúðarhús er inni í kálgarðinum og bæjartóftin hefur verið sléttuð út. Grasivasið slétt svæði sem nýtt er sem bakgarður. Engin ummerki um Garðabæ sjást á yfirborði.

Hlið
HvalsnesÁ túnakorti frá 1919 er þurrabúðin Hlið, ásamt þremur kálgörðum, merkt um 150 m norðan Hvalsnesbæjar.
“Yztu takmörk Tjarnarbletts er rúst eftir þurrabúð, sem heitir Tjörn, og þar vestast í yztu merkjum Norðurtúns er Garðbæjartóft. Þar austur af er önnur þurrabúð, Hlið,” segir í örnefnalýsingu.
Hlið er fast austan við Garðbæ, kálgarðar bæjanna voru sambyggðir. Minjar á Hliði sjást enn og samanstanda af bæjartóft, kálgarði og leið.
Tóftin er um 13×13 m að stærð og snýr norðaustur-suðvestur. Veggirnir eru 2 m á breidd og 0,5-2 m á hæð, algrónir en víða glittir í grjót. Tóftin skiptist í tvö hólf. Vestara hólfi ð er stærra, 5,5 x 2,6 m að innanmáli og snýr norðvestur-suðaustur. Op er á miðri vesturhlið, inn í kálgarð. Eystra hólfið er minna, 3 x 1 m að innanmáli og snýr norðvestur-suðaustur. Op er til suðausturs. Veggir í vestara hólfi nú standa betur og eru hærri en í minna hólfinu.

Smiðshús

Hvalsnes

Hvalsnes- Smiðshús.

Á túnakorti frá 1919 er Smiðshús merkt, með fimm steinhúsum sem og kálgarði austan við þau, um 280 m vestan Hvalsnesbæjar. Innan túns eru teiknuð tvö
steinhús og stakur kálgarður.
“Smidshús, önnur hjaleiga. Jarðardýrleiki óviss,” segir í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns.
“Brunnurinn á Smiðshúsum sést í túninu norðaustan við gamla húsið,” segir á Ferlir.is. Alls eru skráðar fimm fornleifar á Smiðshúsum, innan túns býlisins og
sýnt er á túnakorti Hvalsnes frá 1919. Smiðshús hafa ekki farið varhluta af landbroti og hluti bæjarhólsins kominn undir sjóvarnargarð. Íbúðarhúsið er nú
um 15 m austan við strandlengjuna og engin hús á bæjarhólnum utan tófarbrots.
Smiðshús eru á sjávarbakka og einungs tóftarbrot fast vestan við veg að núverandi íbúðarhúsi að sem er 115m NNA.
Bæjarhóllinn er horfinn og búið ad slétta allt út nema einn vegg. Hann er L-laga, um 5,5×5,5 m að stærð.
Hann er um 1 m á hæð, steyptur til vesturs en til austurs má greina 4-5 umför af grjóthleðslu.

Gerðakot

Hvalsnes

Hvalsnes – Gerðakot.

1703: Jarðardýrleiki óviss, sögð fyrsta hjáleiga frá Hvalsnesi, samkvæmt JÁM III, 45.
1847: Jarðardýrleiki óviss, sögð hjáleiga frá Hvalsnesi, samkvæmt JJ, 86.
Kuml: “Útsuður frá Hvalsnesi nær sjó er bær, sem heitir Gerðakot.” Árið 1854 var grafið fyrir nýbýli á hóli í landi Gerðakots. Kom þá upp beinagrind sem snéri N-S (Magnús Grímsson 1940, 254).
“Gerðakot var flutt þangað sem var torfbær, er hét Landlyst,” segir í örnefnaskrá Hvalsness (Ö-Hvalsnes AG, 2).
1919: Tún (Gerðakot), 2 hekt., garðar 980 m2.
Samkvæmt túnakorti frá 1919 á Gerðakot kálgarð í Loftstaðatúni.
Á túnakorti frá 1919 eru sex steinhús merkt og norðan við þau for. Kálgarður er teiknaður sunnan bæjarhúsanna.

Hvalsnes

Hvalsnes – Gerðakot nýrra/Landlyst.

“Útsuður frá Hvalsnesi nær sjó er bær, sem heitir Gerðakot,” segir í örnefnaskrá. “Gamla-Gerðakot stóð á flötu túninu innan við lágan malarkamp, norðan við Hrossatjörn. Í stórflóðum gekk sjór yfir kampinn inn í tjörnina: hún hækkaði þá, svo að fyllti kálgarðinn fyrir framan bæinn og varla var fært um stéttina, fyrr en fjaraði. Sjór gekk einnig inn á túnið fyrir norðan bæinn í stórflóðum. Þótti þetta svo uggvænlegt orðið, að 1929 var bærinn fluttur ofar í túnið,” segir Magnús Þórarinsson.
“Gerðakot var flutt þangað sem var torfbær, er hét Landlyst,” segir í örnefnaskrá Hvalsness.
“Árið 1880 taldi hann [sr. Sigurður B. Sívertsen] prýðileg timburhús með stofum (undir baðstofu) á Stafnesi, Gerðakoti og Sandgerði og þokkalegar innanþiljaðar baðstofur á Stafnesi, Sandgerði og Klöpp,” segir í Við opið haf e. Ásgeir Ásgeirsson.
Bæjarhóllinn er 30 x 22 m að stærð og snýr austur-vestur. Hann er algróinn og þakin tóftum, erfitt er að sjá hvað eru bæjarhús og hvað útihús. Tóftirnar eru ekki samtengdar heldur stakar sem bendir til endurnýtingar. Hóllinn er grasivaxinn, 0,5-1 m hæð, hæstur til suðurs.

Nýlenda

Hvalsnes

Hvalsnes – Nýlenda.

1847: Jarðardýrleiki óviss, sögð undirsett Hvalsnesi, samkvæmt JJ, 86.
Jarðarítök: Jörðin átti reka- og þangfjörur innan Hvalsneslands, segir í örnefnalýsingu Hvalsness (Ö-Hvalsnes MÞ, 2).
Fasteignamat frá 1916 er til fyrir Nýlendu.
1919: “Túnin slétt mestöll, einkum á Busth., létt greiðfært.” Tún (Nýlenda), 1.3 hekt., garðar 1200 m2.
Á túnakorti frá 1919 er Nýlenda merkt með átta steinhúsum og einu timburhúsi sem eru umkringd þremur kálgörðum á öllum hliðum ef frá er talið austurhlið. For er vestanmegin norðurkálgarðs. Stafnar bæjarins snéru að öllum líkindum til norðvesturs. Núverandi bæjarhús eru á sama stað og eldri hús.
Slétt tún eru allt umhverfis bæjarhólinn. Engin ummerki bæjarhóls og -húsa sjást á yfirborði.

Bursthús

Hvalsnes

Hvalsnes – Bursthús.

1686: 10 hdr., konungseign, samkvæmt The Old Icelandic Land Registers, 122.
1695: 10 hdr., konungseign, samkvæmt The Old Icelandic Land Registers, 122.
1703: “Jarðardýrleiki veit enginn til vissu, en eftir einum gömlum manni er haft, að hún hafi verið konungseign“. “Á þessari jörðu er ekki fyrirsvar og fátækraflutníngur nema að helmgíngi við lögbýlissjarðir og er því hálfl enda kölluð; meina sumir hún hafi verið bygð af Hvalsnesslandi,” segir í JÁM III, 47-48.
1703: “Sölva og hrognkelsafjara nokkur. Murukjarnatekja nokkuð lítil, þó stundum að gagni til að lengja líf kvikfjenaðar. Tún fordjarfast af sjávarágángi,
item af grjóti og sandi. Engjar eru öngvar. Útigangur enginn nema í Hvalsnesslandi.
Eldiviðartak ekkert nema í fjörunni og þó lítið. Vatnsból af skorti og fordjarfast af sjávaryfirgángi. Heimræði hefur verið árið um kríng, en er nú að mestu af, því að lendíng og skipsuppsátur fordjarfast af sjáfaryfirgángi,” segir í JÁM III, 37.
1847: Jarðardýrleiki óviss, bændaeign, samkvæmt JJ, 86.

Hvalsnes

Hvalsnes – Skinnalón.

Á túnakorti frá 1919 er Busthús merkt með sjö steinhúsum, einu timburhúsi, tveimur kálgörðum til norðurs og suðurs og einni for. Á túnakorti Kirkjubólshverfi segir: «Bæinn Kirkjuból flutti Gunnar – sonur Erlendar á Stafnesi (ár) að Busthúsum, þangað sem nú er hann.» Ekkert íbúðarhús er á bæjarhólnum, einungis sumarbústaður.
Stafnar bæjarins snéru til suðvesturs. Langur, gróinn hóll. Greinilegt að uppsöfnun mannvistarlaga er undir sverði. Bæjarhóllinn er 48 x 28 m að stærð og snýr norðvestur suðaustur. Hann er um 1 m á hæð. Ekki sjást minjar á hólnum en nokkrar dældir eru þar auk beinna bakka. Mikið rof er i suðurhlið bæjarhólsins, þar sem kálgarður var.

Heimildir:
-Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns III, 1923-24.
-Árbók hins íslenska fornleifafélags, 1903 – bls. 39.
-Örnefnaskráning fyrir Hvalsnes – Ari Gíslason.
-Örnefnalýsing fyrir Hvalsnes – Magnús Þórarinsson.
-Túnakort 1919.
-Loftmynd 1954.
-Fornleifaskráning vegna fyrirhugaðs ljósleiðara í Suðurnesjabæ. 2. útgáfa 2022.

Hvalsnes

Hvalsnes – uppdráttur ÓSÁ.

Rauðamelur

Í Fjarðarfréttum í sept. 2025 var fjallað um „Náttúruvætti í hættu – Óskráður Rauðamelur á hættusvæði„:

Rauðamelur

Áætlað efnistökusvæði Rauðamelsnámu (úr umhverfismatsskýrslu).

„Í umhverfismatsskýrslu Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarhafnar var gert ráð fyrir að stækkuð Straumsvíkurhöfn myndi m.a. fela í sér aðstöðu fyrir starfsemi fyrirtækisins Carbfix vegna uppbyggingar Coda Terminal í Hafnarfirði. Eftir að kynningu umhverfismatsskýrslu lauk breyttust áformin að því leyti að ekki var lengur gert ráð fyrir aðstöðu fyrir Carbfix í höfninni. Samkvæmt upplýsingum frá Hafnarfjarðarbæ, dags. 24.6.2025, koma hin breyttu áform fyrst og fremst til að leiða til breyttrar áfangaskiptingar við uppbyggingu hafnarinnar.

Rauðamelur

Stóri-Rauðamelur – núverandi námusvæði.

Gert er ráð fyrir að taka 1.240.000 m³ af efni úr áður skemmdri Rauðamelsnámu og á mörkum áhrifasvæðis vinnslunnar er náttúruvætti, Litli Rauðamelur sem ekki hefur verið skráður á minjaskrá og talinn horfinn.
Rauðmalarhólar myndast þegar hraun renna út í stöðuvötn eða mýrlend – eða gos verður í sjó eða vatni.
Litli Rauðamelur er aðeins í um 150 m fjarlægð frá Rauðamel og er alveg óraskaður – ennþá.

Rauðamelur

Litli-Rauðamelur næst og eyðilagður Stóri Rauðamelur fjær.

Í örnefnalýsingu Gísla Sigurðssonar segir: „Skógargatan liggur áfram suður yfir Rauðamel litla (132) og austan við Rauðamel stóra (133), en Suðurnesjavegurinn lá milli Rauðamelanna. Rauðimelur litli var lágur melhóll. Rauðimelur stóri var sunnar. Hann var feiknastór, og var varða á honum í gamla daga. Vestast á honum var rofabarð með hríslum. Nú eru melar þessir horfnir vegna flugvallargerðar og komin tjörn, þar sem sá syðri var.“
Þrátt fyrir fullyrðingu þess efnis að Litli-Rauðimelur sé horfinn „lifir“ hann enn góðu „lífi“ skammt norðnorðaustan þess Stóra – GG.“

Heimild:
-Fjarðarfréttir 11.09.2025, Náttúruvætti í hættu – Óskráður Litli Rauðamelur á hættusvæði, bls. 18.
-https://vefblad.fjardarfrettir.is/p/fjardarfrettir/11-9-2025/r/10/18-19/6849/1993125

Rauðamelur

Litli-Rauðamelur 2024.